18.maí 2012 - 15:01 Vilhjálmur Birgisson

Lýðræðislegt ofbeldi

Á mánudaginn var sat ég ársfund Lífeyrissjóðs Festu og eðli málsins samkvæmt var staða sjóðsins og úttektarskýrsla sem Landssamband lífeyrissjóða lét gera umtalsvert til umræðu á þessum ársfundi.  
08.maí 2012 - 11:27 Vilhjálmur Birgisson

Þolinmæði smábátasjómanna á þrotum

Það er óhætt að segja að þolinmæði smábátasjómanna sé löngu brostin en þeir eru eina starfsstéttin hér á landi sem ekki nýtur þeirra lágmarksmannréttinda að hafa kjarasamning sem tryggir þeim hin ýmsu réttindi og kjör eins og allir kjarasamningar gera.  Rétt er að geta þess að smábátasjómenn hafa aldrei haft í gildi kjarasamning og er það verkalýðshreyfingunni, smábátaeigendum og samfélaginu öllu til ævarandi skammar.
01.maí 2012 - 13:11 Vilhjálmur Birgisson

1. maí ræðan mín

Ég spyr líka hvernig í ósköpunum stendur á því að núverandi forsætisráðherra sem hefur lagt fram þrjú frumvörp varðandi afnám verðtryggingarinnar þegar hún var í stjórnarandstöðu og færði fyrir því frábær rök skuli ekki gera það þegar hún hefur tækifæri til? Hvergi á byggðu bóli þekkist verðtrygging með þeim hætti sem íslensk heimili þurfa að búa við. Hvaða vitglóra er í því að verðtryggðar skuldir íslenskra heimila geti jafnvel hækkað við uppskerubrest í Brasilíu eða ef einhver harðstjóri í Miðausturlöndum fer vitlaust framúr rúmi að morgni.
27.apr. 2012 - 16:00 Vilhjálmur Birgisson

Verðtryggðar skuldir heimilanna hafa hækkað um 81 milljarð á einu ári

Ég skora á stjórnvöld að hætta að taka stöðu með fjármálakerfinu í öllum málum og fara að snúa sér að alþýðu þessa lands sem er við það að blæða út vegna aðgerðaleysis og síendurtekinna svika um aðgerðir til handa skuldsettum heimilum.
02.apr. 2012 - 20:14 Vilhjálmur Birgisson

Verðlagsmál á sjávarafurðum verði rannsökuð opinberlega

Nú liggur fyrir að stór hluti þess sjávarafla sem veiddur er við Íslandsstrendur er á sömu hendi það er að segja veiðar, vinnsla og sala og það kom fram í umfjöllun Kastljóssins að útgerðin er að færa hagnaðinn af skipunum inn í vinnsluna til að koma sér hjá því að þurfa að greiða sjómönnunum hlutaskiptin.
23.mar. 2012 - 09:00 Vilhjálmur Birgisson

Töpuðu Michelsen ræningjarnir 50 milljónum?

Menn verða að fyrirgefa mér en ég skil alls ekki þann fréttaflutning að undanförnu þar sem talað er um að bankarnir hafi „tapað“ 64 milljörðum vegna gengislánadóms Hæstaréttar frá 15. febrúar síðastliðnum. 

17.mar. 2012 - 10:00 Vilhjálmur Birgisson

Af hverju er alkóhólismi ekki viðkenndur sem sjúkdómur?

Það er sorglegt til þess að vita að alltof mörg fyrirtæki neita alfarið að greiða sínum starfsmönnum vinnutap þegar þeir þurfa að leita sér lækninga vegna áfengis- eða fíkniefnaneyslu.  Vissulega eru þó til undantekningar þar sem fyrirtæki sýna þessum sjúkdómi fullan skilning og greiða allt vinnutap samkvæmt kjarasamningum og fyrir það ber að þakka
08.mar. 2012 - 15:30 Vilhjálmur Birgisson

Galið kerfi: Meiri vinna - lægri ráðstöfunartekjur

Í vikunni leitaði félagsmaður Verkalýðsfélags Akraness til skrifstofu félagsins og sagði farir sínar ekki sléttar. Félagsmaðurinn vinnur við ræstingar í hlutastarfi og fær atvinnuleysisbætur á móti. Hún lýsti því þannig að í raun hefði hún minna á milli handanna núna en þegar hún var á fullum atvinnuleysisbótum. Við nánari skoðun hefur nú komið í ljós að vegna breytinga á vinnureglum Vinnumálastofnunar nú um áramótin hefur myndast stór galli í kerfinu sem gerir einmitt þetta að verkum. Þessi kona, sem reynir hvað hún getur að bæta lífsgæði sín með því að vinna hlutastarf eins og henni býðst, hefur lægri mánaðartekjur en sá sem er á fullum atvinnuleysisbótum.
24.feb. 2012 - 17:40 Vilhjálmur Birgisson

Bankarnir rændir innan frá, lífeyrissjóðirnir aftan frá

Á þriðjudaginn var afar fróðleg frétt á RUV um afskriftir til auðmanna, fyrirtækja og heimila í landinu. Í fréttinni kom fram að búið er að afskrifa 750 milljarða króna og þar af séu afskriftir til heimilanna 196,4 milljarðar en þó er þess getið í fréttinni að þetta séu ekki allar afskriftir sem átt hafi sér stað í bankakerfinu enda er ótalin niðurfelling skulda þeirra fyrirtækja sem skulduðu minna en milljarð króna.
15.feb. 2012 - 15:00 Vilhjálmur Birgisson

Bjarni Ben seldi – lífeyrissjóðirnir keyptu

Í gær var afar fróðlegt viðtal við Bjarna Benediktsson, formanns Sjálfstæðisflokksins, í Kastljósi.  Megin uppistaðan í þessu viðtali var um félagið Vafning en það er ekki það mál sem vakti mestu athygli hjá mér í þessu viðtali heldur það sem Bjarni sagði um sölu sína á hlutabréfum í Glitni og ástæðu þess að hann seldi bréfin í febrúar mánuði 2008 fyrir 120 milljónir króna. Helgi Seljan spurði í viðtalinu hvort Bjarni hafi haft einhverjar upplýsingar sem hægt væri að flokka til innherjaupplýsinga og nefndi sérstaklega fund sem fyrrverandi seðlabankastjóri, Davíð Oddsson, átti með Ingibjörgu Sólrúnu og Geir Haarde, þar sem áhyggjur af alvarlegri stöðu Glitnisbanka voru meðal annars til umræðu.

PressupennarÍ stafrófsröð
Vilhjálmur Birgisson

Fæddur 5. ágúst 1965. Fjögurra barna faðir og Skagamaður í húð og hár. Hefur alla tíð unnið verkamannavinnu þar til hann tók við formennsku í Verkalýðsfélagi Akraness 19. nóvember 2003.

Er óflokksbundinn og hefur þá trú að forystumenn í verkalýðshreyfingunni eigi ekki að vera eyrnamerktir stjórnmálaflokkum. Hefur brennandi áhuga þjóðfélagsmálum og segir sína meiningu umbúðalaust.

Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar