03. feb. 2012 - 10:00Vilhjálmur Steinarsson

Fylgdu þessum ráðum ef þú vilt auka hjá þér fitubrennnslu!

Stórar æfingar eru frábær leið til að auka fitubrennslu!

Stórar æfingar eru frábær leið til að auka fitubrennslu!

Fitubrennslubransinn er risastór á heimsvísu og veltir milljörðum. Það eru alltaf að koma fram einhverjar skyndilausnir og fáránlegar aðferðir til þess að brenna fitu. Fólk gleypir við því eins og hverju öðru og stendur alltaf í stað eða nær aldrei þeim árangri sem vörurnar lofa á stuttum tíma.

Að brenna fitu er ekkert rosalega flókið ferli og jú margir eru mismóttækilegir og það getur verið kúnst að finna hvað hentar hverjum og einum. Þetta er þolinmæðisvinna og á ekki að gerast á nokkrum dögum eða viku. Ég vona allavega að þeir sem vilja létta sig, vilji gera það til frambúðar.

En hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga ef markmiðið er að skafa af sér smjörið.

• Undiráætlaðu hitaeiningarnar yfir daginn: Ekki fara of langt undir daglega orkuþörf því þá fer líkaminn í svokallað svelt og rígheldur í bestu orkuna, sem er fitan. Með svelti, þá hægir þú einnig á efnaskiptum líkamans. Gott er að undiráætla um ca. 300 hitaeiningar á dag. Þú léttist að vísu örlítið hægar en þú ert væntanlega að breyta um lífstíl þannig þú vilt að árangurinn haldist.

• Borðaðu góða fitu: Holla og góða fitan hefur ótal marga góða eiginleika fyrir hjarta og æðakerfi, efnaskipti og ónæmiskerfi svo eitthvað sé nefnt. Þú færð holla fitu úr hnetum, möndlum, feitum fisk, avocado o.m.fl.

• Ekki sleppa máltíðum: Það er rosalega mikilvægt að borða reglulega yfir daginn til þess að halda orkustiginu og blóðsykrinum í jafnvægi yfir daginn. Ef þú borðar sjaldan yfir daginn, þá eru meiri líkur á að þú troðir í þig þegar þú borðar. Það kemur ójafnvægi á líkamsstarfsemina. Góð leið er að skipuleggja máltíðirnar fyrirfram og þeir sem eru of þungir, urðu ekki of þungir á einni nóttu. Þannig þú verður ekki fit á einni nóttu. Þetta er þolinmæðisvinna.

• Drekktu nóg af vatni.

• Mikilvægt er að viðhalda eða auka prótein inntöku: Þegar þú ert að undiráætla hitaeiningarnar þínar yfir daginn, er mikilvægt að þú sért ekki að missa út mikilvæg prótein. Það er nauðsynlegt að halda í allan þann vöðvamassa sem er til staðar, því þeir hjálpa að sjálfsögðu við fitubrennsluna.

• Lyftu lóðum og hafðu þau í þyngri kantinum: Að lyfta lóðum (ekki þessum bleiku litlu) étur upp miklu fleiri hitaeiningar en að dúlla sér á brettinu. Brettið er gott í þolþjálfun, en ef þú ætlar virkilega að láta hitaeiningarnar fuðra upp, þá mæli ég með styrktarþjálfun. Tala nú ekki um alla orkuna sem fer í að jafna sig eftir góða lyftingaræfingu, þannig þú ert að brenna hitaeiningum löngu eftir æfingu.

• Veldu stórar æfingar í ræktinni: Ekki endilega vera einangra hvern vöðva fyrir sig, nema þú sért á leið upp á svið að pósa. Notaðu stórar æfingar sem reyna á fleiri ein ein liðamót/vöðvahópa í einu. Líkaminn þarf að vinna meira og þú eykur efnaskiptin og fitubrennsluna.

• Ekki sprengja skalann um helgar: Ef þú ert að undiráætla hitaeiningar yfir daginn um ca. 300 þá ertu að lækka þig um 1500 hitaeiningar á virkum dögum vikunnar. Það er ekkert mál að fara langt langt yfir þá  tölu um helgar með sukki, þannig ég mæli með að þú hafir „nammidaginn“ hóflegan, þannig þú standir ekki bara í stað viku eftir viku.

Eflaust hafa allir heyrt þetta áður en sannleikurinn er samt sá að það er gott að láta minna sig á þetta reglulega. Mér finnst það allavega og ef maður er í þeim pælingum að létta sig, þá innbyrðir maður þessar upplýsingar aldrei of oft.




19.maí 2012 - 11:58 Vilhjálmur Steinarsson

6 verstu mistökin

Svona árangur næst ekki með því að hamast einungis í hundruðum kviðæfinga á dag! Að gera æfingu sem einangrar einn vöðva í einu, eins to t.d. tvíhöfðakreppur (bicep curls) mun ekki skila þér miklu. Þær Ef þú vilt byggja upp almennilegan vöðvamassa og hafa fitubrennsluna í botni á meðan, þá þarftu að framkvæma stórar æfingar sem örva marga vöðva og vöðvahópa í einu ásamt því auðvitað að nota sem mesta orku á sama tíma.
30.apr. 2012 - 10:00 Vilhjálmur Steinarsson

3 æfingar fyrir hraðari efnaskipti og aukna fitubrennslu!

Undanfarið höfum við hér á Heilsupressunni mikið nefnt og rætt stórar fjölliða (full body exercises) æfingar sem hjálpa til við að hraða efnaskiptum og auka fitubrennlsu. Teljum við þetta mun betri kost þegar verið er að byggja upp vöðvamassa og brenna burt lýsi og öðrum óþarfa.

09.apr. 2012 - 12:20 Vilhjálmur Steinarsson

10 leiðir til þess að bæta matarvenjur! Án allra öfga og skyndilausna!

Ég lendi daglega í því að leiðbeina einstaklingum með mataræðið. Ég er enginn næringarfræðingur en ég hef lesið mikið tengt næringu og heilbrigðum lífstíl. Ég er algjörlega á móti skyndilausnum, öfgum og öllu því sem líkamsræktarbransinn gengur því miður of mikið út á.

25.mar. 2012 - 11:30 Vilhjálmur Steinarsson

Æfingatæki í líkamsræktarstöðvum: Góð eða slæm?

Oft er mikið rætt um notkunargildi þessara stóru föstu æfingatækja í líkamsræktarstöðvum. Þær umræður fara líklega oftast fram á milli þjálfara sem gera sér grein fyrir mikilvægi tækjanna. Að sjálfsögðu eru skiptar skoðanir á mikilvægi þeirra og auðvitað er ekki hægt að setja öll tæki undir sama hatt og segja að þau séu léleg.

20.mar. 2012 - 15:30 Vilhjálmur Steinarsson

Krefjandi æfing: Láttu reyna á þessa í dag!

Hér fyrir neðan er frábær æfing sem vinnur með allan líkamann í einu. Þegar þú ert að æfa er nauðsynlegt að prófa nýja og skemmtilega hluti.

28.feb. 2012 - 10:00 Vilhjálmur Steinarsson

Sleppir þú oft æfingum? Hver er afsökunin?

Ég fæ stundum fyrispurnir frá fólki sem er að sækjast eftir einkaþjálfun eða fjarþjálfun hjá mér, en það hefur engan tíma til að æfa sökum vinnu, skóla eða öðrum ástæðum. Margar ástæður geta spilað þar inn í en eitt er víst að einstaklingurinn er ekki tilbúinn að setja sjálfan sig í fyrsta sæti. Jú fyrsta skrefið er komið, það er búið að hafa samband við þjálfara, en hvað svo? 
 

19.feb. 2012 - 16:30 Vilhjálmur Steinarsson

Hvar er þessi kúlurass?

Stelpur eiga það til í að sækjast í kúlurassinn fræga og halda að með því að liggja í gömlu góðu Jane Fonda æfingunum, á fjórum fótum, framkvæmandi hundruðir endurtekninga að kúlurassinn láti sjá sig. Íþróttamenn hafa einnig mjög gott af því að þróa góða rassvöðva, þar sem þeir spila stórt hlutverk í sprettum og hoppum.
01.feb. 2012 - 10:40 Vilhjálmur Steinarsson

Álagsstjórnun: Reynslusaga

Eitt af því allra mikilvægasta í keppnisíþróttum er álagsstjórnun að mínu mati. Ef þú keyrir líkamann aðeins yfir brúnina, þá eru líkur á -að þú fáir ekki það útúr honum og þú ert að sækjast eftir. Ég tala nú ekki um að þú eykur líkur á meiðslum margfalt.

18.jan. 2012 - 16:00 Vilhjálmur Steinarsson

Er markmið allra sem stunda líkamsrækt, að bæta sig?

Þeir sem mæta í ræktina reglulega, hljóta að vera með einhver markmið. Þessi markmið geta verið óskýr eða mjög markviss og skýr. Sumir eru ekki með nein markmið og æfa bara til að æfa því þeir vita að þeir þurfa að stunda einhvers konar hreyfingu til að komast í form eða halda sér í formi.


Vilhjálmur Steinarsson
Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar