01. feb. 2012 - 10:40Vilhjálmur Steinarsson

Álagsstjórnun: Reynslusaga

Eitt af því allra mikilvægasta í keppnisíþróttum er álagsstjórnun að mínu mati. Ef þú keyrir líkamann aðeins yfir brúnina, þá eru líkur á að þú fáir ekki það útúr honum og þú ert að sækjast eftir. Ég tala nú ekki um að þú eykur líkur á meiðslum margfalt.

Eflaust finnst einhverjum þetta asnalegt og halda því fram að því meira sem þú æfir, því betri verður þú í þinni grein. Já það virkar kannski hjá einum og einum en hjá okkur hinum, getur þetta endað illa. Margir íþróttaþjálfarar eru rosalega góðir í að stjórna sínum æfingum, taktík, leikkerfum og allri keyrslunni. En málið er að margir þeirra hafa ekki hugmynd um hvernig líkaminn virkar og þekkja ekki orðið HVÍLD. Þar kemur styrktarþjálfari að góðum notum.

Hver kannast ekki við það að fá langa helgi í frí frá æfingum og koma til baka á mánudegi, með þvílíka orku og kraft að það er eins og ekkert fái mann stoppað. Þetta er einmitt ávinningur þess að fá hvíld á réttum tíma og í réttu magni.

Ég byrjaði ungur að spila með meistaraflokki í körfu og var með hrikalegan metnað. Ég var frekar grannur og léttur og þurfi vissulega að styrkja mig fyrir öll átökin. Ég fékk þau skilaboð að ég þyrfti að fara að lyfta og styrkja mig. Eins og ég sagði, þá var ég mjög metnaðarfullur og ætlaði mér að ná langt. Ég fór að lyfta á fullu, vaknaði fyrir 6 alla morgna til þess að fara í ræktina. En gallinn var sá að ég kunni ekkert að lyfta og liðið mitt var ekki með neinn að staðaldri sem gat kennt mér að lyfta. Ég reyndi að herma sem mest eftir þeim sem virtust vita hvað þeir voru að gera og vinna mig þannig upp.

En hvað um það, ég æfði og æfði og voru æfingarnar allt uppí 12-14 á viku, með öllum körfuboltaæfingunum og leikjunum sem fylgdu. Ég kunni ekki að hvíla. En fyrst um sinn, þá bætti ég mig mikið. Ég varð sterkari, sneggri, hoppaði hærra og allt það sem því fylgdi. Þegar maður er ungur, þá þolir maður mikið álag og ef þú hefur verið í íþróttum, þá fannstu líklega fyrir því á yngri árum að þú varst „alltaf í formi" og það tók enga stund að komast á þann stað sem maður vildi vera.

Þegar ég fór að nálgast tvítugt, þá fóru hlutirnir að gerast. Ég fór í þrjár hnéaðgerðir á mjög skömmum tíma og fékk svo skilaboð að ég þyrfti að hvíla í ákveðið langan tíma. Ég fór allt of snemma af stað og fann að ég var ekki tilbúinn í öll þessi átök, en það skipti engu máli því þetta hlaut að lagast fyrir rest. Útfrá því fór ég að beita mér vitaust og fór að fá verki í nára og bak.

Þegar ég var um 24 ára gamall, þá fór ég að fá verki í bakið. Á þessum tíma var ég að spila með Keflavík. Verkirnir voru daufir í fyrstu og ég spilaði áfram auðvitað og æfði eins og skepna. Smám saman fóru þeir að versna og ég gerði ekkert í málunum, nema halda áfram að spila og þjösnast á þessu.

Ég flakkaði á milli sérfræðinga til þess að finna hvað væri að mér. Lítið sást á myndatökum og ég fékk því engin svör við þessu. Það var ekki fyrr en árið 2009 að ég fór til Péturs E. Jónssonar, hjá Atlas Endurhæfingu, að ég fór að fá svör við þessum verkjum.

Neðstu hryggjaliðirnir hjá mér voru skaddaðir (brjósklos og sprunga í hryggjalið). Það var ekki hægt að draga neina aðra ályktun nema að þessi meiðsli stöfuðu af ofálagi í mjög langan tíma. Ég hóf meðferð hjá Pétri sem stóð í hátt tvö ár, því í byrjun var erfitt að meðhöndla þetta vegna þess að mjöðmin var „frosin“ og vefir í kring svo stífir af öllu álaginu.

Ég þarf að fara reglulega til Péturs til þess að kanna stöðuna og hvort ekki sé allt í lagi. Ég get ekki hlaupið, hoppað né tekið æfingar þar sem ég set mikið álag á hrygginn (hnébeygja, réttstaða, þung axlapressa o.m.fl). Ég hætti í körfubolta 27 ára gamall, ekki á eigin forsendum.

Ég er ekki að skrifa þetta til þess að láta vorkenna mér á neinn hátt, þvert á móti. Það er nefnilega fullt af fólki í sömu sporum og verr statt. Ég var enginn toppleikmaður og er heldur ekki að segja að ég hefði náð eitthvað lengra ef ég hefði ekki lent í þessum meiðslum. Kannski var ég bara með svona léleg gen, hver veit? En mig langaði að spila körfubolta lengur því mér finnst það gaman. En ég lít á þetta sem lán í óláni því ég hefði líklega ekki fengið svona mikla ástríðu fyrir þjálfun, ef ég hefði ekki þurft að fara í gegnum þetta ferli.

Ég lærði íþróttafræði og fór þá að læra mikið um líkamann. Ég þjálfa mikið af íþróttafólki og oft á tíðum er álagsstjórnun eitt af þeim verkefnum sem ég þarf vinna með. Ég vil miðla þessari reynslu minni til annarra leikmanna og það er enn allt of mikið um það að fólk æfir of mikið og ómarkvisst. Það eykur þar með líkur á meiðslum sem getur endað illa. Þú finnur kannski ekki endilega fyrir því snemma á ferlinum, en þegar meiðslin koma, þá getur verið erfitt að vinna sig útúr þeim á eigin spýtur.

Það er einnig í höndum þjálfara að kynna sér álagsstjórnun og leikmenn þurfa að hlusta á líkamann og vera ófeimnir við láta vita ef þeir finna til eða treysta sér ekki til að framkvæma einhverjar æfingar. Það hlýtur að vera markmið hvers íþróttamanns að sleppa við meiðsli og eiga langan og farsælan feril. Þú ert ekkert minni NAGLI þó þú strjórnir álagi á skrokkinn og ert örlítið skynsamari.

Mín ráð til ungra íþróttamanna er að leita til styrktarþjálfara/einkaþjálfara þegar kemur að því að styrkja sig. Mörg lið eru einnig komin með styrktarþjálfara sem er frábær þróun. Það er svo mikilvægt að fá leiðbeiningar frá fagfólki þegar kemur að öllum aukaæfingunum.




19.maí 2012 - 11:58 Vilhjálmur Steinarsson

6 verstu mistökin

Svona árangur næst ekki með því að hamast einungis í hundruðum kviðæfinga á dag! Að gera æfingu sem einangrar einn vöðva í einu, eins to t.d. tvíhöfðakreppur (bicep curls) mun ekki skila þér miklu. Þær Ef þú vilt byggja upp almennilegan vöðvamassa og hafa fitubrennsluna í botni á meðan, þá þarftu að framkvæma stórar æfingar sem örva marga vöðva og vöðvahópa í einu ásamt því auðvitað að nota sem mesta orku á sama tíma.
30.apr. 2012 - 10:00 Vilhjálmur Steinarsson

3 æfingar fyrir hraðari efnaskipti og aukna fitubrennslu!

Undanfarið höfum við hér á Heilsupressunni mikið nefnt og rætt stórar fjölliða (full body exercises) æfingar sem hjálpa til við að hraða efnaskiptum og auka fitubrennlsu. Teljum við þetta mun betri kost þegar verið er að byggja upp vöðvamassa og brenna burt lýsi og öðrum óþarfa.

09.apr. 2012 - 12:20 Vilhjálmur Steinarsson

10 leiðir til þess að bæta matarvenjur! Án allra öfga og skyndilausna!

Ég lendi daglega í því að leiðbeina einstaklingum með mataræðið. Ég er enginn næringarfræðingur en ég hef lesið mikið tengt næringu og heilbrigðum lífstíl. Ég er algjörlega á móti skyndilausnum, öfgum og öllu því sem líkamsræktarbransinn gengur því miður of mikið út á.

25.mar. 2012 - 11:30 Vilhjálmur Steinarsson

Æfingatæki í líkamsræktarstöðvum: Góð eða slæm?

Oft er mikið rætt um notkunargildi þessara stóru föstu æfingatækja í líkamsræktarstöðvum. Þær umræður fara líklega oftast fram á milli þjálfara sem gera sér grein fyrir mikilvægi tækjanna. Að sjálfsögðu eru skiptar skoðanir á mikilvægi þeirra og auðvitað er ekki hægt að setja öll tæki undir sama hatt og segja að þau séu léleg.

20.mar. 2012 - 15:30 Vilhjálmur Steinarsson

Krefjandi æfing: Láttu reyna á þessa í dag!

Hér fyrir neðan er frábær æfing sem vinnur með allan líkamann í einu. Þegar þú ert að æfa er nauðsynlegt að prófa nýja og skemmtilega hluti.

28.feb. 2012 - 10:00 Vilhjálmur Steinarsson

Sleppir þú oft æfingum? Hver er afsökunin?

Ég fæ stundum fyrispurnir frá fólki sem er að sækjast eftir einkaþjálfun eða fjarþjálfun hjá mér, en það hefur engan tíma til að æfa sökum vinnu, skóla eða öðrum ástæðum. Margar ástæður geta spilað þar inn í en eitt er víst að einstaklingurinn er ekki tilbúinn að setja sjálfan sig í fyrsta sæti. Jú fyrsta skrefið er komið, það er búið að hafa samband við þjálfara, en hvað svo? 
 

19.feb. 2012 - 16:30 Vilhjálmur Steinarsson

Hvar er þessi kúlurass?

Stelpur eiga það til í að sækjast í kúlurassinn fræga og halda að með því að liggja í gömlu góðu Jane Fonda æfingunum, á fjórum fótum, framkvæmandi hundruðir endurtekninga að kúlurassinn láti sjá sig. Íþróttamenn hafa einnig mjög gott af því að þróa góða rassvöðva, þar sem þeir spila stórt hlutverk í sprettum og hoppum.
03.feb. 2012 - 10:00 Vilhjálmur Steinarsson

Fylgdu þessum ráðum ef þú vilt auka hjá þér fitubrennnslu!

Stórar æfingar eru frábær leið til að auka fitubrennslu! Fitubrennslubransinn er risastór á heimsvísu og veltir milljörðum. Það eru alltaf að koma fram einhverjar skyndilausnir og fáránlegar aðferðir til þess að brenna fitu. Fólk gleypir við því eins og hverju öðru og stendur alltaf í stað eða nær aldrei þeim árangri sem vörurnar lofa á stuttum tíma.
18.jan. 2012 - 16:00 Vilhjálmur Steinarsson

Er markmið allra sem stunda líkamsrækt, að bæta sig?

Þeir sem mæta í ræktina reglulega, hljóta að vera með einhver markmið. Þessi markmið geta verið óskýr eða mjög markviss og skýr. Sumir eru ekki með nein markmið og æfa bara til að æfa því þeir vita að þeir þurfa að stunda einhvers konar hreyfingu til að komast í form eða halda sér í formi.


Vilhjálmur Steinarsson
Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar