21. des. 2011 - 08:10Steingrímur Sævarr Ólafsson

Ótrúleg lágkúra DV

Þegar maður heldur að DV geti ekki sokkið dýpra þá finnur blaðið sér nýjan botn, nýja lágkúru, setur í raun nýtt met í ómerkilegheitum. 

Það er fátækt á Íslandi. Það eru til fjölskyldur sem ekki eiga mat og foreldrar geta ekki gefið börnum sínum gjafir.

Pressan hefur síðustu daga fjallað ítarlega um fátækt hér á landi og þá neyð sem hér ríkir hjá stórum hópi fólks. Í tuga- og hundruðatali hefur Pressunni borist frásagnir, reynslusögur og hjálparbeiðnir frá þeim sem minna mega sín.  Sumar þeirra hafa verið birtar, aðrar ekki.

Ein þeirra sem hafði samband við Pressuna er einstæð móðir sem skuldaði húsaleigu og hún skuldaði líka orkureikninga. Í frétt Pressunnar kom fram að hennar eina ósk væri að geta skrúfað upp í hitanum og að lenda ekki á götunni á næstunni. Það var það eina sem hún vildi.

Þessi frétt snart strengi í hjörtum landsmanna og meðal þeirra fjölmörgu sem höfðu samband við Pressuna vegna málsins var karlmaður sem bauðst til að ganga frá leigunni fyrir konuna og borga rafmagnsreikninginn.  Hann vildi ekki að nafn sitt kæmi fram og vildi einungis að konunni yrðu færð skilaboðin „Gleðileg jól.“

Meira góðverk er erfitt að gera og hugheilar óskir fylgdu manninum. 

En það eru ekki bara góðar og fallegar hugsanir sem fylgja slíku góðverki, því sumir mega ekki til þess hugsa að jákvæðir hlutir séu í gangi. Allra síst á Pressunni. 

Þannig hefur DV verið með Pressuna, eigendur móðurfyrirtækisins Vefpressunnar og starfsmenn á heilanum síðustu vikur, og jafnvel mánuði. Stundum er það krúttlegt en stundum finnst manni reiðin, öfundin og afbrýðin, fyrir utan illgirnina, keyra úr hófi.  Þá verður maður hreinlega dapur. En það er önnur saga.

DV getur ekki unnt einstæðu móðurinni að hafa notið góðverks. DV hefur nefnilega ákveðið að konan sé ekki til.  Þeir hafa nefnilega hringt nokkur símtöl og spurt hvort einhver kannist við að kona fái úthlutun sem skuldi húsaleigu og búið sé að loka fyrir rafmagnið hjá. Og með einkennilegri aðferðarfræði hafa þeir komist að því að það sé ekki til einstæð móðir sem skuldi húsaleigu og rafmagn.

Ef DV hefði sýnt örlítið meiri manngæsku og lesið það sem birtist á Pressunni, þá hefðu blaðamenn þar getað séð að aldrei var lokað fyrir hitann hjá konunni.  Þar stóð:

Konan hefur ekki getað haft hita á íbúðinni sem þau búa í þar sem hún er í vanskilum vegna orkureikninga og vill ekki bæta við þá „himinháu skuld“ sem þar er fyrir.  Íbúðin sé því yfirleitt ísköld...

Konan skuldaði orkureikninga, en ekki var lokað fyrir hitann. Hún gat hins vegar ekki leyft sér að hafa hitann í botni, þess vegna var íbúðin „yfirleitt ísköld.“ 

Með þessar staðreyndir að vopni kemst DV að þeirri niðurstöðu að konan sé ekki til. DV kemst reyndar líka að þeirri niðurstöðu að lokað hafa verið fyrir rafmagn hjá konunni, þó það sé hvergi fullyrt og komi hvergi fram.

Ég reikna með forsíðufrétt DV um að á Íslandi sé ekki til einstæð móðir sem skuldi húsaleigu og sé eftir á með greiðslu hita og rafmagns.

Blaðamaður DV hringdi í mig og sagðist hafa hringt nokkur símtöl og sagðist ekki hafa hitt á neinn sem kannaðist við konuna. Virtist hann þar með draga þá ályktun að ekki væri til einstæð móðir sem skuldaði húsaleigu og rafmagn og efaðist líka um að til væri fólk sem vildi koma fátækum til aðstoðar. Var helst á honum að skilja að Pressan yrði að gefa honum upp nafn fátæku konunnar, annars yrði dregin sú ályktun að hún væri ekki til.

DV vill kannski skúbba því gagnvart börnunum að móðir þeirra sé ekki til?

Mér finnst þetta ósvífið og satt best að segja móðgandi í garð fátækra á Íslandi, þeirra tuga og jafnvel hundruða sem þiggja mataraðstoð, hlýjan fatnað, fá jólapakka til dæmis með pakkajólum Bylgjunnar. Þeirra sem standa í biðröðum í kulda, þeirra sem þurfa að brjóta odd af oflæti sínu og biðja um hjálp, þeirra sem ekki geta gefið sínum nánustu gjafir, þeirra sem líða.

Þetta er líka móðgandi í garð þeirra tuga sem í frítíma sínum aðstoða við matarúthlutun, gefa notuð föt, fara með matargjafir, gefa fé til styrktar þeim sem minna mega sín.

Pressan er ekki hjálparsamtök heldur fjölmiðill og þeim tugum og hundruðum sem hafa viljað leggja þessari móður eða öðrum sem glíma við fátækt lið, hefur verið bent á Fjölskylduhjálpina, Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd, Samhjálp og svo mætti áfram telja. Umrædd einstæð móðir hefur ítrekað hafnað persónulegum gjöfum og óskað eftir að framlögum yrði beint til hjálparsamtaka. Samkvæmt DV virðist það útilokað að konan vilji deila þeirra hjálp sem berst með öðrum. Nei, samkvæmt þeirra hugsunarhætti er samhjálp og samkennd ekki til.

Mér finnst að DV eigi að skammast sín. Mér finnst að Reynir Traustason, ritstjóri DV, eigi að blygðast sín og ætti að taka eins og eina til tvær vaktir um þessar hátíðir hjá hjálparsamtökum til að finna á eigin skinni hvernig fátæktin er á Íslandi.

Einstæða móðirin var augljóslega fátæk á röngum stað. Hún var nefnilega ekki fátæk á DV.

Kannski DV vilji birta lista yfir fátæka Íslendinga?

Þeir væru reyndar langefstir á blaði ef birtur væri listi yfir andlega fátæka einstaklinga sem setja met í lágkúru.




06.feb. 2012 - 14:02

Rétti upp hönd sem klikkaði ekki

Ég er búinn að leita og leita en ég bara finn ekki nokkurn aðila sem virðist hafa staðið sig í stykkinu.
23.maí 2011 - 13:41 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Hvað á að leggja mikið á mann?

Hversu mikið á að leggja á okkur, blessaða Íslendinga? Íslands óhamingju verður allt að vopni.
19.apr. 2011 - 12:30 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Hvað varð um mannlega þáttinn?

Reimar frændi var ruslakall. Hann var ruslakall sem hafði mannlega þáttinn, eitthvað annað en ruslakallar í dag.
07.mar. 2011 - 17:49 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Ábyrgð ráðherra

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, heldur úti öflugri heimasíðu. Þeir sem hana lesa eru aldrei í vafa um hvar ráðherrann stendur í hinum og þessu málum.
25.okt. 2010 - 18:45 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Skammist ykkar!

Þau koma augnablikin þar sem maður starir á stafina sem saman mynda orð sem síðan mynda setningar. Maður trúir ekki sínum eigin augum. Eina sem maður getur sagt er; Skammist ykkar!
17.okt. 2010 - 15:20 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Frábær ósigur!

Reynið að þurrka af mér brosið. Reyniði það bara!
04.okt. 2010 - 21:42 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Fjölskyldubyltingin á Austurvelli

Ég var á Austurvelli. Með þúsundum Íslendinga. Þetta voru alvöru mótmæli. Þetta var fjölskyldubylting.
03.okt. 2010 - 15:48 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Kæri Hodgson!

Kæri Roy Hodgson.

Ég var andvígur ráðningu þinni og þú hefur ekkert gert til að sýna fram á að ég hafi rangt fyrir mér.


13.jan. 2010 - 10:50 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Af hverju eru Danir svona leiðinlegir við okkur?

Af hverju eru Danir svona leiðinlegir við okkur? Þetta er spurning sem hefur leitað á mig síðustu dagana...nei, líklega síðustu árin ef ég hugsa það betur.
18.des. 2009 - 11:00 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Geggjaði granninn

Góður vinur minn býr í fjórbýlishúsi.  Hann er svo heppinn að í sama húsi býr kona sem nú í desember er holdgervingur jólasveinsins Hurðaskellis, en bregður sér líka í hlutverk nýrra sveina á borð við Blaðadreifis, Stigaþrammara, Gluggabrjóts, Hamarneglis og Öskursveins.
16.des. 2009 - 10:22 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Eiður Smári - Gefst ekki upp í mótlæti

Það blæs ekki byrlega fyrir Eiði Smára þessa dagana, gagnrýnin er hörð, bæði innanlands og utan. En Eiður Smári er maður sem gefst ekki upp í mótlæti - og mun ekki heldur gera það núna.
27.ágú. 2009 - 09:21 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Jón og sr. FH

Það er athyglisvert að skoða tölfræði. Tölfræði sem á að sýna að það sitja ekki allir við sama borð. En af hverju er þetta? Er þetta spurning um Jón og sr. Jón?
18.ágú. 2009 - 11:10 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Skemmdarverk, skammsýni, skandall og skúffelsi

Skemmdarverk, skammsýni, skandall og skúffelsi. Fjögur orð sem lýsa í hnotskurn hvernig hægt er að taka náttúruperlu og eyðileggja hana fyrir stundarhagsmuni.
12.ágú. 2009 - 10:56 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Ég er ekki í fýlu út í þig!

Ég lenti í því fyrir helgi að síminn minn ákvað að slökkva á sér og vera i þeirri stöðu. Í framhaldinu uppgötvaði ég hræðilegan sannleika. Ég er algjörlega háður gemsanum mínum. Algjörlega.
30.jún. 2009 - 15:17 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Ég vissi ekki að ég væri að kjósa um Icesave

Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, upplýsti á Alþingi áðan að þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave væri óþarfi af því að í síðustu kosningum hefðu kjósendur verið að kjósa um Icesave. Á einhvern óskiljanlegan hátt fór þessi staðreynd algjörlega framhjá mér.
29.jún. 2009 - 10:33 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Ísland - stórasta lán í heimi

Þeir voru fljótir að búa til bolinn „Ísland - stórasta land í heimi“ þegar forsetafrúin missti þetta út úr sér eftir glæsilegan sigur í annað sætið á Ólympíuleikunum í handbolta. Ég hef ekki enn séð bolinn „Ísland - stórasta lán í heimi“.
09.jún. 2009 - 23:26 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Stutt

Sýnist að sumir í elítunni séu komnir á nýja línu.
09.maí 2009 - 14:15 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Já, ég viðurkenni það, ég er nörd

Ég þekki persónurnar, hef notað frasana, veit muninn á seríunum og á meira að segja þar til gerða peysu og gullið barmmerki keypt í útlöndum. Já, ég viðurkenni það, ég er nörd.
26.apr. 2009 - 09:45 Steingrímur Sævarr Ólafsson

Skiptir ekki máli, þeir unnu!

Það er skrýtið að upplifa kosningar þar sem allir fara með sigur af hólmi, allir lýsa yfir einhvers konar sigri, allir fagna nýjum tímum, allir. Geta menn einfaldlega ekki tapað í kosningum?

Steingrímur Sævarr Ólafsson

Ritstjóri á Pressunni.

steingrimur@pressan.is

Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar