14. júl. 2009 - 15:06Sigmundur Ernir

Starfslaun blaðamanna

Áhugamaður er ég um fjölmiðla - og hef svo sem starfað á þeim nokkrum um árabil.

Og af því að ég þarf stundum að taka hattinn ofan, vegna þess sem vel er gert, verð ég að lofa blaðamenn DV þessa dagana.

Mér sýnist þeir einir hafa almennilega áhuga á útrásarglæfrunum og sinni þeim af viðvarandi áhuga og metnaði til að upplýsa og fræða fámenna þjóð. Þögnin um brennuvarga bankakerfisins á svokölluðum “stórum blöðum” þessa lands er næsta grátbrosleg. Eru krosseignatengslin þar enn að þvælast fyrir mönnum? Auðvitað er það eðlileg spurn. Í besta falli þurfa þau blöð að taka sig á. Það er enda eftir nógu að slægjast - eins og sést hefur í hverju eintaki DV af öðru síðustu daga.

Ef til vill þarf hér að hvetja menn enn betur til dáða. Og hér tillaga - og kannski þingsályktunartillaga síðar meir: Ég legg til að blaðamenn, rétt eins og listamenn, komist á starfslaun hins opinbera - og fái skjól til að skrifa sig inn í þessar einar mestu svikamyllur Íslandssögunnar. Það á að hefja blaðamennsku á þann stall sem henni ber. Allt eins má líka hugsa sér borgarblaðamann, rétt eins og borgarlistamann, svo rótað sé enn betur í þeim viðkvæma ranni. Það er nefnilega svo að í menningarlegu samhengi skiptir metnaðarfull, ágeng og ábyrg blaðamennska sköpum fyrir inntak umræðunnar í hverju landi, svo og sjálfsmynd þjóða.

Oft var þörf, en nú er nauðsyn. Skóflum flórinn út með tiltækum ráðum. Og þorum umfram allt, fremur en að þegja …




08.okt. 2009 - 11:25 Sigmundur Ernir

Samstaða / sundrung

Ástæða er til að hrósa félögunum Höskuldi Þór Þórhallssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir strandhögg þeirra í Noregi. Þeir hafa haft frumkvæði að því að norsk stjórnvöld veiti Íslendingum umtalsvert lán og komi þannig gömlu flóttaþjóðinni til hjálpar á erfiðum tímum.
27.sep. 2009 - 22:26 Sigmundur Ernir

Sameiningarhrina

Sat um helgina ársfundi Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) og Eyþings, sem er samsvarandi félag fyrir Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur. Fyrrnefndi fundurinn á Seyðisfirði og sá síðarnefndi á Mývatni, sem út af fyrir sig er hamingja og nautn.
25.sep. 2009 - 09:28 Sigmundur Ernir

Á sama tíma að ári

Varla er það tilviljun að akkúrat og nákvæmlega ári eftir að Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður gjaldþrota Glitnis gekk á fund Davíðs Oddssonar, bankastjóra gjaldþrota Seðlabanka … gengur brottrekinn Davíð Oddsson inn í hlutafélag kvótakóngsins Þorsteins Más Baldvinssonar og tekur upp penna; eins og nýráðinn túskildingur.
24.sep. 2009 - 09:28 Sigmundur Ernir

Nýir ritstjórar

Þá er það ljóst. Nýir ritstjórar Mogga verða tveir; Davíð nokkur Oddsson og Haraldur Johannessen sem ritstýrt hefur Viðskiptablaðinu um skeið.
08.sep. 2009 - 13:24 Sigmundur Ernir

Þjóðarsátt um grunngildi

Það er út af fyrir sig óþolandi að góðæri síðustu ára hafi ekki verið notað til að treysta innviði velferðarkerfisins. Stjórnvöld gleymdu sér svo að segja algerlega. Velmektartíminn var þvert á móti notaður til að vekja stoðir viðskiptalífsins. Það mátti ekkert trufla gróðahyggjuna.
26.ágú. 2009 - 13:56 Sigmundur Ernir

Mistök af minni hálfu

Eftir á að hyggja voru það engu að síður mistök af minni hálfu að mæta í þingið eftir að hafa bragðað áfengi. Á því biðst ég velvirðingar.
15.júl. 2009 - 23:07 Sigmundur Ernir

Pólitisk ósk

Í pólitík þurfa menn einatt að óska sér. Og sumt rætist, annað ekki.
06.júl. 2009 - 20:35 Sigmundur Ernir

DO

Davíð Oddsson er pólitískum andstæðingum sínum mikið lán. Gott væri að hann tjáði sig oftar. Og helst í breiðsíðum.
03.júl. 2009 - 00:04 Sigmundur Ernir

Viðskipta...blaðamaður

Sammála er ég félaga Agli Helgasyni á Eyjunni að ekki er mikil eftirsjá að Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins á miðvikudögum. Ég er forfallinn blaðalesari ..næsta sjúklegur, ef því er að skipta, en sísta efni blaðanna hefur jafnan birst í óskiljanlegum viðskiptafréttum; á stundum skrifaðar af klappliði gömlu ebidtu-kónganna.
02.júl. 2009 - 11:09 Sigmundur Ernir

Áhættan og óvissan

Líklega er illskásti kosturinn í Icesave-deilunni að ganga að þeim nauðasamningi sem liggur fyrir, þótt það sé út af fyrir sig ömurlegt. Altént verður að semja - og ég er hræddur um að landsmenn bifi Bretum og Hollendingum ekki lengra, samanber fylgiskjöl samningsins.
01.júl. 2009 - 07:30 Sigmundur Ernir

Tvö lönd

Það virðist vera annað og afslappaðra andrúmsloft úti á landi en er við lýði í móðuharðindum höfuðborgarinnar. Líklega vegna þess að fólk utan suðvesturhornsins er vanara kreppu en loftbólubændur Borgartúnsins.
17.jún. 2009 - 09:29 Sigmundur Ernir

Byrðar allra

Nú um stundir er ráðist í viðkvæmustu aðgerðir í ríkisfjármálum sem sögur fara af um áratugaskeið. Það þarf að skera inn að vöðvum … en þó ekki inn að beini. Já, blessunarlega ekki enn um sinn. Gott og vel. Vandinn er samt sá að fitan í kerfinu er sjálfhverf, örugg með sitt, óháð straumum og stefnum samfélagsins, hvað þá vindum og fárviðrum.
15.jún. 2009 - 12:02 Sigmundur Ernir

Íslensk Joly

Eitt það ánægjulega við þingmennskuna er stríður straumur pósta almennings á netföng þingmanna. Þetta er göturómur sem gellur í. Undanfarið hafa unnendur Evu Joly látið stuðningspóstunum rigna yfir þingmenn, svo sem þennan hér:
12.jún. 2009 - 16:28 Sigmundur Ernir

Hattur ofan

Auðveldlega tek ég hatt minn ofan andspænis sjálfstæðismönnum sem þessa dagana leggja fram metnaðarfulla stefnuskrá til endurreisnar heimila og atvinnulífs. Langsamlega flest tek ég undir í vel unnu plaggi hægrimanna, sem fullir ábyrgðar - og ef til vill iðrunar - láta nú hendur standa fram úr ermum. Já, hattur ofan …
09.jún. 2009 - 23:36 Sigmundur Ernir

Unglingurinn í ælunni

Mér líður eins og fálátum föður sem þrífur upp æluna í stofunni. Ælu unglingsins sem kunni sér ekki hóf í gleðinni. Og sá hinn sami, vel að merkja, sefur úr sér dauðann, óáreittur.
04.jún. 2009 - 17:30 Sigmundur Ernir

Hvert fór þenslan?

Íslendingar súpa nú seyðið af því að það var ekki síður ríkissjóður en einkaframtakið sem eyddi um efni fram í gamla góðærinu. Tekjuauki hins opinbera, af völdum veislunnar, var ekki notaður til að treysta velferðina - og því síður var hann lagður inn á bók.
03.jún. 2009 - 10:47 Sigmundur Ernir

Útlenskt

Von er til þess að efnahagsreikningur ríkisbankanna liggi fyrir í þessum mánuði. Brýnt er að sjálfstraustið fari að leka af störfum þessara mikilvægu fjármálafyrirtækja - og þau taki til kostanna í uppbyggingu atvinnulífsins.
01.jún. 2009 - 10:23 Sigmundur Ernir

Þverpólitík

Mér sýnist breið samstaða vera að myndast á Alþingi um að endurskoða verðtryggingarkerfið. Illnauðsynlegar hækkanir á bifreiðaeldsneyti, tóbaki og víni, eiga ekki að íþyngja heimilunum umfram það sem þær sjálfar gera.
30.maí 2009 - 18:42 Sigmundur Ernir

Skorið niður sumstaðar

Aðstoðarmannakerfi landsbyggðarþingmanna hefur verið skorið niður. Sjálfur lagði ég til þann táknræna sparnað á tímum aðhalds og ráðdeildar í ríkisrekstri. Og sparnaðurinn er genginn eftir. Gott og vel.

Sigmundur Ernir Rúnarsson
Alþingismaður fyrir Samfylkinguna í Norðausturkjördæmi. Rithöfundur.
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit