09. feb. 2012 - 16:01Ólafur Arnarson

Lífeyrissjóðirnir eru tálmynd

Íslenska lífeyrissjóðakerfið er komið inn í öngstræti. Í lífeyrissjóðunum eru um 2100 milljarðar eða sem nemur um sjö milljónum á hvert mannsbarn í landinu. Sjóðirnir gegna mikilvægu hlutverki fyrir launafólk og veita tryggingar m.a. þeim sem verða fyrir heilsubresti um starfsævina hvort sem er í lengri eða skemmri tíma. Ekki skyldi gera lítið úr þessu hlutverki sjóðanna. Þeir hafa þannig samfélagslegu hlutverki að gegna.

Lífeyrissjóðirnir eru hins vegar handónýtir þegar kemur að greiðslu lífeyris að lokinni starfsævi. Því fer fjarri að sökin sé öll þeirra. Stjórnmálamenn bera þar meiri ábyrgð en stjórnendur sjóðanna og hafa markvisst aukið tekjutengingar í almannatryggingakerfinu þannig að nú skerðast tryggingagreiðslur til ellilífeyrisþega krónu fyrir krónu vegna greiðslna úr lífeyrissjóði.

Ekki nóg með það heldur skerða tekjur af séreignasparnaði tryggingagreiðslur þannig að lífeyrisþegar fá einungis brot af séreignasparnaði sínum í eigin vasa þegar upp er staðið. Í hnotskurn virkar skerðingin vegna séreignasparnaðarins líkt og um 80 prósenta jaðarskatt sé að ræða.
Það stendur því lítið eftir af þeim háleitu markmiðum, sem höfð voru að leiðarljósi þegar söfnunarkerfinu var komið á í lífeyrismálum Íslendinga. Um nokkurt skeið hafa lífeyrissjóðir og stjórnvöld hvatt fólk eindregið til að leggja fyrir í séreignarsparnað undir því yfirskini að séreignasparnaðurinn muni koma sem viðbót ofan á aðrar greiðslur sem lífeyrisþegar fá út úr almannatryggingum og lífeyrissjóðum að starfsævinni lokinni. Nú hefur komið á daginn að séreignarsparnaðurinn er tálmynd og blekking ein.

Meðal tekjuskattur almenns launafólks hér á landi nemur um 36 prósentum af launatekjum hans. Þessu til viðbótar hafa 12 prósent af launatekjum verið greiddar inn í lífeyrissjóð. Nú, þegar fyrir liggur að greiðslur úr lífeyrissjóði bæta ekki kjör lífeyrisþega heldur dragast krónu fyrir krónu frá greiðslum úr almannatryggingakerfinu er ómögulegt annað en að skilgreina lífeyrissjóðsiðgjöldin sem viðbótar tekjuskatt á launatekjur. Þetta þýðir að tekjuskattur almenns launafólks hér á landi er ekki 36 prósent heldur 48 prósent í raun. Ennfremur stendur til að hækka lífeyrissjóðsiðgjöld upp í 15 prósent af launatekjum á næstunni og þá verður tekjuskattur almennings kominn yfir 50 prósent.

Þetta sýnir glögglega að um langt árabil hefur allur samanburður á sköttum hér á landi og í nágrannalöndum okkar ekki aðeins verið villandi heldur beinlínis rangur. Í nágrannalöndum okkar eru iðgjöld í lífeyrissjóð talin til skattgreiðslna en hér á landi hefur það ekki verið gert. Réttlætingin hefur verið sú að íslenska lífeyrissjóðakerfið sé í grundvallaratriðum frábrugðið lífeyrissjóðakerfum nágrannalandanna, sem eru flest með hreint gegnumstreymiskerfi á meðan við erum með söfnunarsjóði. Nú hefur komið á daginn að lífeyrisréttindi á Íslandi eru einskis virði vegna þess að tekjutengingin í almannatryggingakerfinu núllar þau út.

Ég mun á næstunni fjalla meira um lífeyrissjóðakerfið hér á landi. Það er orðið að sjálfstæðu og mjög alvarlegu vandamáli í íslenska hagkerfinu. Lífeyrissjóðirnir eru allt of stórir fyrir hagkerfið og fjárfestingarumhverfið hér á landi. Góð rök má færa fyrir því að ómögulegt sé að ná jafnvægi á gengi krónunnar með óbreytt lífeyrissjóðakerfi auk þess sem svo bólgið sjóðakerfi eykur mjög hættu á eignabólum í smáu hagkerfi.



23.maí 2012 - 16:07 Gunnar I. Birgisson

Yfirlýsing

Undirritaður vill koma eftirfarandi atriðum á framfæri vegna dóms sem féll í Héraðsdómi Reykjaness 22.05.2012 í svokölluðu Lífeyrissjóðsmáli.
23.maí 2012 - 09:07 Aðsend grein

Maltölsprósentuvirðing

Sigurður Þorleifsson. Bréfið var frá Samfylkingunni í suðurkjördæmi þar sem leitað var til mín um fjárstuðning. Ég tel mig vera bóngóðann mann en þar sem mér er ekki fært að dreifa því lítla sem ég á út um koppa og grundir, ætla ég að gefa ykkur ókeypis ráð í ykkar vandræðum.
22.maí 2012 - 15:01 Ólafur Arnarson

Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?

Það er að sjálfsögðu ekki hægt að treysta markaðinum til að miðla upplýsingum um bæði framboð og eftirspurn. Nei, það sér hver maður að miklu skilvirkara er að útgerðin hafi þetta allt á sinni hendi. Tuttugasta öldin sýndi líka og sannaði yfirburði miðstýringar og áætlunarbúskapar framyfir markaðshagkerfið. Öll þekkjum við söguna um Bandaríkin og Vestur-Evrópu sem markaðshagkerfið hneppti í ánauð fátæktar og vöruskorts á meðan frjáls lýðurinn í Sovétríkjunum og Austur-Evrópu naut ávaxta miðstýrðs áætlunarbúskapar að hætti þeirra félaga Marx og Leníns – hinna miklu hugsuða, sem höfðu svo mikla innsýn í þarfir neytenda að þeir hefðu líkast til plumað sig vel sem útgerðarmenn á Íslandi. Í öllu falli skildu þeir mikilvægi þess að halda virðiskeðjunni óslitinni á einni hendi.
22.maí 2012 - 15:00 Fannar Karvel

Basic hnébeygja eða hvað...

Þegar kemur að fótaæfingum er hnébeygjan kóngur allra annarra æfinga, punktur!
22.maí 2012 - 10:40 Ragga Nagli

Rútínurask

Það þarf ekki að þýða skipulagningu á G8 fundi að ætla að hreyfa sig í fríinu.
22.maí 2012 - 00:13 Brynjar Eldon Geirsson

Golf í Vestmannaeyjum

Það er fátt skemmtilegra en að fara til Vestmannaeyja og leika þar einn glæsilegasta golfvöll landsins. Golfvöllurinn í Eyjum er ávallt í góðu ásigkomulagi og vel hirtur og það er tilvalið að taka sig saman með félögunum og skjótast í dagsferð og njóta þess að leika golf í frábæru umhverfi á góðum golfvelli.
21.maí 2012 - 16:32 Aðsend grein

Lýður: Fellur ríkisstjórnin vegna málþófs?

Lýður Árnason læknir.
21.maí 2012 - 12:30 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Davíð Oddsson og Evrópusambandið

Sjálfur hef ég haft tvíræða afstöðu til Evrópusambandsins. Mér finnst það æskilegt, ef það verður opinn markaður, þar sem menn geta skipst á vöru og þjónustu yfir landamæri í frjálsri samkeppni. Mér finnst sambandið hins vegar óæskilegt, ef það verður lokað ríki, girt tollmúrum, virkið Evrópa.
21.maí 2012 - 06:00 Ólafur Már Sigurðsson

Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband

Næstu mánudaga munu Brynjar Geirsson og Ólafur Már Sigurðsson spila fyrir okkur Grafarholtsvöll sem af mörgum er talinn vera einn sá skemmtilegasti á landinu. Á hverjum mánudegi munu þeir félagar spila eina holu og fara yfir leikskipulag á hverri holu fyrir sig. Hér sjáum við hvernig þeir spiluðu 6. holuna.
19.maí 2012 - 11:58 Vilhjálmur Steinarsson

6 verstu mistökin

Svona árangur næst ekki með því að hamast einungis í hundruðum kviðæfinga á dag! Að gera æfingu sem einangrar einn vöðva í einu, eins to t.d. tvíhöfðakreppur (bicep curls) mun ekki skila þér miklu. Þær Ef þú vilt byggja upp almennilegan vöðvamassa og hafa fitubrennsluna í botni á meðan, þá þarftu að framkvæma stórar æfingar sem örva marga vöðva og vöðvahópa í einu ásamt því auðvitað að nota sem mesta orku á sama tíma.
18.maí 2012 - 15:01 Vilhjálmur Birgisson

Lýðræðislegt ofbeldi

Á mánudaginn var sat ég ársfund Lífeyrissjóðs Festu og eðli málsins samkvæmt var staða sjóðsins og úttektarskýrsla sem Landssamband lífeyrissjóða lét gera umtalsvert til umræðu á þessum ársfundi.  
18.maí 2012 - 09:21 Ragga Nagli

Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT

Hvað gera bændur þegar löngunin ætlar holdið lifandi að éta?
Nú þá skellir maður í bráðholla og löglega súkkulaðiköku.
17.maí 2012 - 21:07 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?

Fróðleg er sú frétt, sem mun vera rétt, að meiri hlutinn, þrír af fimm, í stjórn Hörpu hafi viljað ráða Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, fyrrverandi menntamálaráðherra, framkvæmdastjóra hússins. Af einhverjum ástæðum gerðist það þó ekki.

17.maí 2012 - 13:12 Sverrir Björn Þráinsson

Hversu svöng erum við í raun?

Reglulega í dagsins önn og amstri grípur um okkur gríðarleg svengd þar sem við segjum við okkur, „svakalega er ég svangur, ég gæti borðað heilan hest“ eða „nú ætla ég sko að borða“.
16.maí 2012 - 21:23 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Rússagrýlan

En til var önnur grýla, sem sömu menn hæddust óspart að: „Rússagrýlan,“ sem ætti sér enga stoð í veruleikanum, enda aðeins Morgunblaðslygi.
16.maí 2012 - 16:00 Guðlaugur Þór Þórðarson

Við getum fækkað umferðarslysum

Það er samstaða um að fækka slysum. Það gerist hinsvegar ekki af sjálfu sér. Það verður að vinna skipulega að því. Við eigum ítarlegar upplýsingar um umferðarslys á Íslandi og er t.d. nýútgefin slysaskýrsla Umferðarstofu góð heimild.
16.maí 2012 - 14:11 Bubbi Morthens

Stöð 2: Besta sætið til sjávar og sveita

Hvernig má það vera að endalaust er verið að reyna að gera eignarhald á 365 tortryggilegt?
16.maí 2012 - 09:19 Gréta Ingþórsdóttir

Lífið er dásamlegt – í minningu barns

Í dag eru fimm ár frá því dóttir mín dró andann í síðasta sinn. Hún gerði það með miklum erfiðismunum því að heilaæxlið þrengdi svo að mænunni að taugaboðin komust ekki leiðar sinnar.

15.maí 2012 - 19:38 Ólafur Margeirsson

Er vaxtahækkun svarið?

„Verðbólguvandinn er fyrst og fremst tilkominn vegna væntinga um að ekkert verði gert til þess að stöðva hana. Verðbólgan er í rauninni sjálfsprottin. Fólk og fyrirtæki sem óttast verðbólgu í framtíðinni hækka verð og krefjast hærri launa í dag. Þannig rætast væntingar fólks af sjálfu sér svo fremi sem Seðlabankinn gerir ekkert í málunum.”
15.maí 2012 - 16:15 Ólafur Arnarson

Gott hjá Ólínu

Það er í sjálfu sér ekkert athugavert við það að menn verji hagsmuni sína. Þessar auglýsingar, sem tala máli LÍÚ, minna mig hins vegar óþægilega mikið á gíslamyndböndin, sem voru algeng hér á árum áður þegar hryðjuverkasamtök í mið-austurlöndum tóku gísla og létu þá lofsyngja málstað samtakanna framan í myndavél og grátbiðja stjórnvöld um að verða við kröfum þeirra. Engum kemur til hugar að þar hafi gíslarnir talað frá hjartanu nema þá kannski þeir sem þjáðir voru orðnir af hinu alræmda Stokkhólmsheilkenni. En ég er vitanlega ekki að líkja LÍÚ við mið-austurlensk hryðjuverkasamtök.
15.maí 2012 - 13:27 Brynjar Nielsson

Dómur yfir hælisleitendum

Í Héraðsdómi Reykjaness þann 30. apríl s.l. voru tveir ungir menn sakfelldir fyrir skjalafals með því að hafa framvísað fölsuðum skilríkjum við komuna til landsins. Refsing var ákveðin 30 daga fangelsi fyrir brot sem varðar allt að 8 ára fangelsi. Eins og gjarnan vill verða þegar dómsniðurstaða samrýmist ekki pólitískri hugmyndafræði sumra vill umræðan leiðast á villigötur.
15.maí 2012 - 09:43 Sölvi Tryggvason

Stoltir af steranotkun

Undanfarið hef ég unnið að fréttaskýringaþætti um útlitsdýrkun á Íslandi, þar sem meðal annars var fjallað um ólögleg lyf sem notuð eru í þeim tilgangi að ná honu fullkomna útliti. Eftir að þátturinn fór í loftið hafa lyfjafræðingar sett sig í samband við mig til að tjá sig um þá steraöldu sem virðist vera í gangi á Íslandi. Einkum og sér í lagi hjá ungum karlmönnum. 

15.maí 2012 - 09:37 Fannar Karvel

Árangur í einu orði

Árangur í einu orði; Stöðugleiki.
Þetta hljómar ofsalega einfalt og það er það líka, allur þessi hópur í raunheimum sem er að berjast við vigtina á hverjum degi og stekkur á hverja töfrapilluna, hvert ofurprógrammið þarf ekki að vita meira.
15.maí 2012 - 09:08 Ragga Nagli

Grýttur jarðvegur

Margir klóra sér í skallanum yfir hvers vegna þeir ná ekki árangri þrátt fyrir blóðsúthellingar og tárvota hvarma. Þá er ráð að endurskoða aðferðirnar, leita ráða og læra af feilsporum annarra. 
14.maí 2012 - 06:00 Ólafur Már Sigurðsson

Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 5.hola - Myndband

Næstu mánudaga munu Brynjar Geirsson og Ólafur Már Sigurðsson spila fyrir okkur Grafarholtsvöll sem af mörgum er talinn vera einn sá skemmtilegasti á landinu. Á hverjum mánudegi munu þeir félagar spila eina holu og fara yfir leikskipulag á hverri holu fyrir sig. Hér sjáum við hvernig þeir spiluðu 5. holuna.
13.maí 2012 - 09:47 Ólafur Már Sigurðsson

17. holan á TPC Sawgrass - Myndband

Skemmtileg umfjöllun hjá Larry Dorman um 17. holuna á TPC Sawgrass.
12.maí 2012 - 13:26 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Gunnar Smári heldur reiðilestur

Ég spurði Gunnar Smára sömu spurningar og Össur: Hvar hefur þróunaraðstoð tekist? Hvaða land hefur blómgast á því að þiggja ölmusur og bætur? Þá fékk ég reiðilestur yfir mig.
12.maí 2012 - 07:00 Bubbi Morthens

Hversu sterk getur konan verið?

Hversu sterk getur konan verið? Hversu mikinn sársauka getur hún þolað? Hversu falleg getur hún verið, uppljómuð í mesta undri lífsins, fæðingunni sjálfri?
11.maí 2012 - 16:38 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Spurning til Össurar Skarphéðinssonar

Ég spyr Össur: Hvar hefur þróunaraðstoð tekist?
11.maí 2012 - 16:15 Ragga Nagli

Blæðandi steinar

Það getur verið auðveldara að draga blóð úr grjóthnullungi með ryðgaðri saumnál en að breyta venjum sínum. 
Vani er eitthvað sem við gerum á ómeðvitaðri sjálfsstjórn – líka fæðuval – líka óhollt fæðuval. 
10.maí 2012 - 16:20 Ólafur Arnarson

Nú er nóg komið!

Þetta er undir okkur sjálfum komið. Ef við sitjum bara heima og bölvum í hljóði gerist ekki neitt. Þá komast bankarnir upp með hvað sem er. Þá borgum við stökkbreyttu lánin og kaupaukana hjá rukkurunum.
10.maí 2012 - 10:09 Sölvi Tryggvason

Sterar og silikon

Undanfarið hef ég unnið að fréttaskýringaþætti um útlitsdýrkun á Íslandi, þar sem meðal annars verður fjallað um þær staðalmyndir sem dynja á okkur í fjölmiðlum, keppnir í fitness og vaxtarrækt, silíkonvæðingu íslenskra kvenna og steranotkun hjá ungum karlmönnum. Í þættinum verður meðal annars viðtal við unga konu sem lýsir notkun sinni á þremur tegundum ólöglegra lyfja í aðdraganda keppni í fitness og einnig verður sýnt þegar karlmaður á fertugsaldri sprautar sig með sterum.
09.maí 2012 - 22:44 Ólafur Már Sigurðsson

Topp 10 yfir bestu höggin á Players - Myndband

Hér sjáum við topp 10 yfir bestu höggin á Players-meistaramótin frá upphafi.
09.maí 2012 - 18:01 Ólafur Arnarson

Skuggastjórnendur Sjálfstæðisflokksins?

Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur ekki mikinn tíma til að snúa við blaðinu og sýna í verki að henni sé alvara með að fylgja stefnu flokksins en ekki vernda sérhagsmuni skuggastjórnendanna. Sé þá einhver alvara í málinu. Það dugar ekki að koma með friðþægingu rétt fyrir kosningar. Það hvílir mikil ábyrgð á þeim sem veljast til forystu í Sjálfstæðisflokknum. Kjósendur gera meiri kröfur til hans en annarra flokka. Betur má ef duga skal.
09.maí 2012 - 10:30 Aðsend grein

Af hverju eru skilnaðir svo tíðir?

Í starfi mínu sem ráðgjafi fyrir einstaklinga sem eru að kljást við samskiptaerfiðleika, fíknir eða meðvirkni þá hefur það komið mér á óvart hversu margir einstaklingar sem leita til mín eiga í hjónabands erfiðleikum eða hafa nýlega farið í gegnum skilnað.  Eftir fjölda viðtala fór að birtast mér sameiginlegir orsakavaldar þess að fólk átti í sambands- og hjónaerfiðleikum.
09.maí 2012 - 09:00 Guðlaugur Þór Þórðarson

Um hvað er deilt í stjórnarráðsmálinu?

Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa gagnrýnt það að stjórnarandstæðingar hafi vakið athygli á augljósum göllum við þetta mál með ræðum í þinginu. Er það kaldhæðnislegt að málþófsmeistararnir Steingrímur Joð og Jóhanna Sigurðardóttir skuli ganga í það verk. Ég tek til máls í mörgum málum en er ekki enn búinn að ná þeim skötuhjúum í lengstu ræðum þeirra þrátt fyrir að ég leggi allar ræður mínar á þessu þingi saman.
09.maí 2012 - 01:19 Brynjar Eldon Geirsson

Lykill að góðu skori

Kylfingar eru mjög uppteknir af sveiflunni sinni og það þarf enga rannsókn til þess að sjá það að æfingatími flestra áhugamanna fer í það að æfa sveifluna og helst að slá langt með driver. 

08.maí 2012 - 21:32 Aðsend grein

The Living Matrix umræðan og sú gagnrýni sem fylgdi í kjölfarið

Talað er um að það sé hættulegt að sýna mynd sem fjallar um óhefðbundnar aðferðir, ég tel það vera hættulegra að halda lausnum frá þeim sem virkilega þurfa á að halda. Það er raunveruleiki sem ég þekki.
08.maí 2012 - 17:32 Aðsend grein

Best í heimi

Þegar ég reyndi að sigrast á nánast óyfirstíganlegu þvottafjalli heima hjá mér fór ég að hugsa. Ég er ótrúlega heppin. Þrátt fyrir allt er ég í besta starfinu, ég er leikskólakennari.
08.maí 2012 - 15:30 Ólafur Arnarson

Dodge eða norræn velferð?

Væri hér á Íslandi efnahagsbrotalögregla og fjármálaeftirlit, sem ekki væru með störu á baksýnisspegilinn, myndu þessir aðilar ráðast inn í bankana og fjármálafyrirtækin og stöðva þá löglausu starfsemi, sem þar fer fram. Fólkið í Armani fötunum og Dior drögtunum væri leitt út í járnum og látið svara fyrir gjörðir sínar og aðgerðaleysi.
08.maí 2012 - 11:27 Vilhjálmur Birgisson

Þolinmæði smábátasjómanna á þrotum

Það er óhætt að segja að þolinmæði smábátasjómanna sé löngu brostin en þeir eru eina starfsstéttin hér á landi sem ekki nýtur þeirra lágmarksmannréttinda að hafa kjarasamning sem tryggir þeim hin ýmsu réttindi og kjör eins og allir kjarasamningar gera.  Rétt er að geta þess að smábátasjómenn hafa aldrei haft í gildi kjarasamning og er það verkalýðshreyfingunni, smábátaeigendum og samfélaginu öllu til ævarandi skammar.
08.maí 2012 - 09:00 Ragga Nagli

Hollar hindberjapönnsur - UPPSKRIFT

Bláber, hindber, rifsber, blæjuber, brómber, jarðarber... og Naglinn bíður með fiðrildi í maganum eftir kirsuberjunum sem eru algjörlega uppáhalds. 
07.maí 2012 - 22:13 Fannar Karvel

Afsakanir eru ekki gildar lengur

Veldu eina afsökun;
- “Það er svo erfitt að byrja!”
- “Mér verður svo illt í hnjánum af öllum hlaupum!”
- “Ég vil ekki svitna!”
- “Ég verð svo þreytt/-ur!”

Svo máttu henda henni í ruslið og hunskast út að hreyfa þig!

07.maí 2012 - 15:50 Aðsend grein

Er næringarfræðingum ekki treystandi?

Á síðustu misserum hafa sprottið upp umræður um störf og þekkingu næringarfræðinga. Þá hafa næringarfræðingar verið gagnrýndir fyrir að fylgja ekki nýjustu straumunum í „heilsufræðunum“ og séu fastir í gömlum kennslubókum.
07.maí 2012 - 06:00 Ólafur Már Sigurðsson

Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 4.hola - Myndband

Næstu mánudaga munu Brynjar Geirsson og Ólafur Már Sigurðsson spila fyrir okkur Grafarholtsvöll sem af mörgum er talinn vera einn sá skemmtilegasti á landinu. Á hverjum mánudegi munu þeir félagar spila eina holu og fara yfir leikskipulag á hverri holu fyrir sig. Hér sjáum við hvernig þeir spiluðu 4. holuna.
07.maí 2012 - 00:58 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Fall bankanna: Hvað gerðist að tjaldabaki?

Hverju skyldu þeir Jón Steinsson, Gauti Eggertsson og Már Guðmundsson nú svara Óðni? Hvort höfðu þeir heldur í huga hagsmuni íslensku þjóðarinnar eða kröfuhafa bankanna?
06.maí 2012 - 13:03 Ólafur Margeirsson

Opið bréf til Seðlabanka Íslands

Stjórnun peningamála og ráðandi hagfræðihugsun á hverjum tíma fyrir sig er að stórum hluta tískufyrirbrigði. Fyrir einni öld þótti það hálfpartinn fráleitt að íhuga þann möguleika að gullfóturinn myndi nokkurn tímann gefa eftir sem ráðandi peningamálafyrirkomulag. Síðan þá hefur gullfóturinn þurrkast út, tvisvar, og þrjár aðrar peningastefnur tekið við með mjög mismunandi árangri: Bretton Woods, fastgengi og flotgengi með verðbólgumarkmiði.
05.maí 2012 - 18:28 Ragga Nagli

Gjemli gjemli

Naglinn hefur sagt það áður og segir það aftur.... aldur er bara númer. 
Þú ræður hvað þú ert gamall/gömul útfrá hvernig þú velur að lifa lífinu.
04.maí 2012 - 01:44 Brynjar Eldon Geirsson

Frábær heimasíða

Hér deila bestu leikmenn heims daglegu lífi sýnu á þessari frábæru heimasíðu.
03.maí 2012 - 19:07 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Prakkaraskapur Helgu Kress

Og það var ekki nóg með, að Helga gabbaði forvitið fólk til að sækja fyrirlestur sinn, heldur lék hún sér líka að því.

Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar