Þóra Sigurðardóttir
03. des. 2010 - 15:00Þóra Sigurðardóttir

Þegar brjóstagjöf fer fyrir brjóstið á fólki!

Mikið óskaplega fer í taugarnar á mér þessi tvískynungsháttur er kemur að brjóstagjöf. Nýkomin frá Bandaríkjunum verð ég að viðurkenna að það er ekki tekið út með sældinni að vera með barn á brjósti. Hvergi er að finna afdrep fyrir mjólkandi mæður, og í yfirfullum flugvélum sér maður þann kostinn vænstan að troðast inn á klósettið og gefa barninu sem er auðvitað bara ógeðslegt. Ekki myndi ég vilja borða þar inni í fýlunni en þarf að bjóða barninu upp á það. 

Fæðuforði barnanna okkar hefur verið klámvæddur þannig að það þykir fátt dónalegra en að gefa brjóst. Ætlast er til að þú vefjir þig með þar til gerðum brjóstagjafatjaldi til að fela gjörninginn – til að misbjóða ekki fólkinu í kringum þig og vesalings barnið þarf að nærast í súrefnislausu rými.

Endalaust heyrir maður sögur af konum sem hafa verið reknar út af veitingastöðum, flugvélum og almenningsstöðum fyrir það eitt að misbjóða samborgurum sínum með brjóstunum á sér. Oftar en ekki er því haldið fram að það sé spillandi fyrir börn að verða vitni að athæfinu. Þetta er hræðilegt svo að ekki sé meira sagt. Löggjöfin er þó skýr og víða t.d. í Bandaríkjunum er viðaukar við löggjöfina til að íttreka rétt kvenna til að brynna börnum sínum þar sem þeim sýnist. 

Hér á Íslandi er hins vegar sjálfkrafa gert ráð fyrir að þú sért með barnið á brjósti. Þú ert jú með brjóst og þau ber að nota! Brjóstamjólk er best í heimi og allt það. Maður er ekki einu sinni spurður. Konur sem eiga erfitt með að mjólka eða kæra sig ekki um það lenda í mestu vandræðum og kvarta undantekningalítið undan fáránlegum samfélagslegum þrýstingi þar sem þær eru nánast stimplaðar sem úrrhrök í samfélagi mæðra. 

Víða annarsstaðar í heiminum er þessu þveröfugt farið. Í Bandaríkjunum er það t.a.m. eðlileg spurning hvort þú ætlir að gefa brjóst eða ekki og brjóstagjöf á almannafæri er eitthvað sem hreinlega tíðkast ekki. Ég man allavega ekki eftir að hafa séð aðra konu gefa brjóst. Kannski mjólka þær sig áður en þær fara í verslunarleiðangra eða flug en þá þarf að hita mjólkina ekki satt og hvar gera þær það. Auk þess finnst mér skrítið að þurfa að gera slíkar málamiðlanir. Við erum jú spendýr ekki satt. Allavega – þá er ég bæði pirruð og hissa yfir þessu. 

Í Bretlandi virðast yfirvöld þó vera að sjá ljósið. Þau eru semsagt búnir að átta sig á því þar að brjóstamjólkin sé mikilvæg undirstaða fyrir barnið og það sé gott fyrir breska æsku að fá sem besta undirstöðu því hún mun erfa landið. Breskar mæður séu líka umvörpum að velja þurrmjólk fram yfir brjóstamjólkina sem sé neikvæð þróun. Því eru yfirvöld að hrinda úr vör áttaki sem miðar að því að auðvelda mjólkandi mæðrum tilveruna með því að koma upp sérstökum gjafaherbergjum sem víðast. 
 
Sjálfri finnst mér þetta frábær hugmynd. Ég er orðin hundleið á að vera eins og eitthvað úrrhrak í felum að gefa barninu mínu að drekka. Ég er líka svo sjúklega sjálfsmeðvituð eitthvað að mér finnst eins og allir hljóti að vera að glápa á mig og það vita allar mjólkandi konur að það er síst að hjálpa manni.

Svo er líka hægt að taka hinn pólinn í hæðina og vera bara fjandans sama um hvað öðru fólki finnst. Eins og ein vinkona mín sagði: Þóra, ekki láta neinn segja þér hvar eða hvenær þú mátt gefa barninu. Ég hef sko gefið brjóst í sjálfu Vatíkaninu og það í messu!

En er það ekki líka einmitt málið. Er Vatíkanið ekki hinn fullkomni staður til að gera það fallegasta sem til er. Að næra litla kraftaverkið sitt sem maður bjó sjálfur til í líkamanum á sér. Ég held að það sé fátt meira viðeigandi. Ég held að það sé kominn tími til að við minnum okkur á hinn sanna tilgang brjóstanna.




31.jan. 2011 - 19:00 Þóra Sigurðardóttir

Ísland – bezt í heimi – eða hvað?

Ég hef aldrei tjáð mig á opinberum vettvangi um pólitík eða almennt um landsmálin yfir höfuð. En nú er mér nóg boðið. 
25.nóv. 2010 - 13:00 Þóra Sigurðardóttir

Af þukli, skæruliðaárásum, húsmæðraorlofi og biluðum útsölum!

Ég er á leiðinni til Boston. Ójá! Hjartað hamast af tilhlökkun og sem óð fantasera ég um MoccaLoccaGingerKaffi frá Starbucks, hitta mömmu mína og systur og njóta þess að fara í alvöru húsmæðraorlof. Tek reyndar litlar stýrið með þannig orlofið verður í lágmárki en halló – þrjár kynslóðir saman og allir hressir. Það er ómetanlegt.

19.nóv. 2010 - 17:10 Þóra Sigurðardóttir

Nítján barna móðir í Arkansas!

Það ganga margar lygasögur um foreldrahlutverkið og ein sú stærsta er sú að það sé sáralítill munur á því að eiga eitt barn eða tvö. Það sé fyrst þegar það þriðja bætist við að hlutirnir fari að flækjast. Aulinn ég trúði þessu í blindni og bjóst við að það yrði barnaleikur að eignast barn númer tvö. Þrátt fyrir ofurtrú á eigin skipulagsgáfu og móðurhæfileika þá verð ég að viðurkenna að lífið varð mun flóknara eftir að börnin urðu tvö. 
09.nóv. 2010 - 11:00 Þóra Sigurðardóttir

Rosalega hefurðu fitnað!

Ég var búin að sverja þess dýran eið – og skrifa um það heilan kafla í bókina mína að ég myndi passa mig gríðarlega vel eftir áætlaðan barnsburð í júlí síðastliðnum. Ég ætlaði sannarlega ekki að lenda aftur í sömu ormagryfjunni og síðast og taka mér rúmt ár í að jafna mig líkamlega eftir fæðinguna.


Þóra Sigurðardóttir
Þóra er rithöfundur, heimspekingur, garðyrkjusjení, höfrungatemjari, kafari, kökugerðarsnillingur, móðir og eiginkona með meiru. Hún er höfundur Foreldrahandbókarinnar og skrifar reglulega inn á Barnapressuna á Pressan.is
Pressupennarvinsælt
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Fleiri pressupennar