11. jún. 2012 - 23:30Aðsend grein

Vegna frétta af barnaníðingnum Gunnari Jakobssyni

Samtök vistheimilabarna –SVB  eru regnhlífasamtök fyrrum vistheimilisbarna sem hafa verið vistuð á hinum ýmsu stöðum eins og Breiðavík, Heyrnleysingjaskólanum, Bjargi, Silungapolli og fleiri stöðum. Við erum fólk með slæma reynslu af dvöl okkar á vistheimilum.  Reynslan einkennist oftar en ekki af kynferðislegu, líkamlegu og andlegu ofbeldi af hendi þeirra sem áttu að gæta okkar. Við sjáum okkur ekki annars kost en að senda út yfirlýsingu vegna fréttarinnar sem birtist í útvarp Sögu og síðar öðrum fjölmiðlunum í byrjun júní um dæmda barnaníðinginn Gunnar Jakobsson og ótakmarkað aðgengi hans að ungum saklausum börnum á fósturheimili fyrir norðan.

Dæmdur barnaníðingur Roy Svanur Shannon, sem í dag heitir Gunnar Jakobsson fékk að valsa um óáreittur á fósturheimili á Stokkseyri sem er á vegum barnaverndaryfirvalda í að minnsta kosti hálft ár eftir að lögreglu og barnaverndaryfirvöldum var tilkynnt um að hann væri að áreita barnungar stúlkur.

Svona hljómar byrjun fréttarinnar inni á útvarp Sögu sem þar að auki tók viðtal við manninn sem viðurkenndi barnagirnd sína. Í sömu frétt kemur ýmislegt annað fram sem okkur þykir ekki hægt að horfa framhjá og þar stendur hæst sú staðreynd að umsjónarmaður þessara fósturbarna ákvað að líta framhjá þessum dómi og hleypa honum að þessum börnum. Til að átta okkur aðeins betur á alvarleika málsins þá eru eftirfarandi upplýsingar líka teknar af vef útvarps Sögu þar sem afbrotaferill hans og síðustu ár eru rakin.

Gunnar var í apríl árið 1997 dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn sex barnungum stúlkum og var það þyngsti dómur sem hafði fallið í barnaníðingsmáli hérlendis á þeim tíma en hann var einnig fundinn sekur um að hafa gífurlegt magn af barnaklámi undir höndum. Þá var Gunnar sakfelldur fyrir að hafa framleitt og deilt barnaklámi á vefnum en meðal þess sem kemur fram í dómi Héraðsdómi Norðurlands eystra er að Gunnar hafði tekið sum brota sinna upp á myndbandsupptökuvél.

Við rannsókn málsins var eldra mál gegn Gunnari tekið upp en það mál má rekja til ársins 1991 en þá átti Gunnar að hafa áreitt barnungar stúlkur kynferðislega í sumarhúsi í Húsafelli. Það mál var kært árið 1992 en var fellt niður 1994. Eftir að hafa setið af sér dóminn breytti maðurinn sem þá hét Roy Svanur Shannon nafninu sínu í Gunnar Jakobsson og flutti til Danmerkur.  Þar dvaldi Gunnar í nokkur ár en sjá má á myndasíðu Gunnars að þar hefur hann umgengist barnungar stúlkur og er í myndasafni hans að finna vafasamar myndir af ungum stúlkum sem teknar eru í Danmörku en ekki er hægt að sjá hvernig Gunnar tengist stúlkunum. Þá er einnig að finna þar myndbönd af ungum stúlkum. Barnaverndaryfirvöld hafa ekki enn tekið ákvörðun um hvort börn verði send á fósturheimilið eftir að málið komst upp í síðustu viku en forstöðumaður fósturbarnana á heimilinu tengist Gunnari fjölskylduböndum.

Samtök vistheimilabarna fordæma þá ákvörðun forstöðumanns þessa fósturheimilis og starfsfólks fyrir að veita þessum manni aðgengi að börnum.

Samtök vistheimilabarna fordæma eftirlitsleysi barnaverndaryfirvaldanna á þessu fósturheimili og krefjast þess að slík vistheimili verði undir smásjá héðan í frá.  Svona vistheimili eru svartur blettur á sögu þjóðarinnar um það geta félagsmenn SVB borið vitni og við hörmum af öllu hjarta að það sé enn í dag ekki betur komið fyrir þeim börnum sem vistuð eru af hálfu barnaverndaryfirvalda á vist- og fósturheimilum fjarri fjölskyldu sinni..

Það er réttur barnanna að vera örugg, það er réttur þeirra að vel sé um þau hugsað og að kynferðisglæpamenn fái ekki undir neinum kringumstæðum aðgang að þeim. Það er skylda okkar allra að fylgjast með því að ofbeldi gegn börnum sé ekki liðið né að þeim sé hætta búin á svona heimilum.

Það er skylda okkar allra að fylgjast með því að ofbeldi gegn börnum sé ekki liðið né að þeim sé hætta búin á svona heimilum, því slíkt skilur eftir sig djúpt sálarsár. Yfirvöldum ber að tryggja allt ofangreint, ekki á morgun né í næstu viku heldur núna strax.

Fyrir hönd Samtaka vistheimilabarna

Víglundur Þór Víglundsson formaður

Sigurgeir Friðriksson  varaformaður




27.apr. 2013 - 18:22 Aðsend grein

Óvissuferð niður Dettifoss

Jón Einar Jakobsson hrl. Formaður Framsóknarflokksins hefur talað fyrir þeirri skoðun, að brostnar forsendur vegna bankahruns valdi því, að rétt sé, að tekið verði tillit til þessa við uppgjör og endurgreiðslu skuldunauta verðtryggðra lána og þá vitaskuld á kostnað kröfuhafa slíkra lána.
17.apr. 2013 - 15:02 Aðsend grein

Kristinn H. Gunnarsson: Enn skrökvar Vilhjálmur

Kristinn H. Gunnarsson. Það sem er alvarlegt við málflutning Vilhjálms Birgisson er að hann vísvitandi leitast við að afvegaleiða fólk og segir því ósatt. Þeir sem fylgja ráðum Vilhjálms munu fljótt reyna á eigin skinni að kjör þeirra munu versna en ekki batna eins og gefið er fyrirheit um.
07.apr. 2013 - 13:29 Aðsend grein

Vilhjálmi Birgissyni svarað

Það hefur verið vaxandi krafa í þjóðfélaginu um að menn sem tala fyrir hinum ýmsu málefnum sanni fyrir pöplinum að  þeir séu ekki vanhæfir til verksins vegna eigin hagsmuna. Skuldastaða þingmanna hefur t.d. nýverið gerð opinber. Þetta ætti náttúrulega að gilda víðar og um fleiri.
19.mar. 2013 - 14:10

Örn Karlsson: Skottuhagfræði gefur villuljós út í samfélagið

Það kannast orðið flestir við skrif ýmissa málsmetandi manna sem beinast gegn öllu tali um leiðréttingar á verðtryggðum húsnæðisskuldum heimilanna.
16.mar. 2013 - 17:36 Aðsend grein

Fordæmalausar hótanir í samskiptum lögmanna

Pressunni hefur borist yfirlýsing frá lögmannsstofunni LEX í tilefni af pistli Sigurðar G. Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns hér á Pressunni í dag, þar sem hann upplýsir að LEX hafi kært sig til siðanefndar Lögmannafélags Íslands.
10.mar. 2013 - 13:14 Aðsend grein

Örn Karlsson: Breytir verðtryggingin raunvirði skulda?

Ætla má að skuldugur almenningur eigi heimtingu á að ofangreindri spurningu sé svarað af háskólasamfélaginu. Krafan er þá jafnframt sú að fræðimennirnir taki niður hinar pólitísku grímur sínar og reyni að rifja upp fræðin.
07.mar. 2013 - 14:11

Þórólfur Matthíasson: Fjármálastærðfræði fyrir byrjanda

 Öll gífuryrði Ólafs Arnarson í minn garð hljóta að teljast dauð og ómerk og eftir stendur að Ólafi Arnarssyni hefur mistekist að fara rétt með grundvallaratriði í núvirðingu. Því miður hefur hann ekki borið gæfa til þess að viðurkenna mistök sín.  Það er ekki uppskrift að uppbyggilegri umræðu um flókið málefni sem snertir marga bæði í bráð og lengd.
04.mar. 2013 - 10:47 Aðsend grein

Þórólfur Matthíasson: Núvirðing fyrir byrjanda

Þórólfur Matthíasson. Þó Ólafur Arnarson tvíkalli Robert Schiller, mikilsmetinn hagfræðing, sér til vitnis er vandinn sá að Schiller segir ekki það sem Ólafur segir að hann segi.  Þvert á móti leggur hann til sömu aðferðafræði og Boardman og félagar mæla með, enda almennt viðurkennd aðferð.
01.mar. 2013 - 11:02 Aðsend grein

Þórólfur Matthíasson: Vaxtareikningur fyrir byrjanda

Þórólfur Matthíasson. Er Sigga jafn vel sett með að fá nýjan farmiða að ári liðnu frá Bjössa og hún hefði verið með ferðina núna?  Já segir álitsgjafinn og pistlahöfundurinn.  Nei segja allar byrjendabækur í hagfræði.  Afhverju?  Í fyrsta lagi hefur Sigga enga tryggingu fyrir að hún geti farið ferðina að ári þó hún geti farið hana núna.
28.feb. 2013 - 14:25 Aðsend grein

Kristinn H. Gunnarsson: Allir útreikningar Vilhjálms hraktir

Kristinn H. Gunnarsson. Það færi vel á því að þeir báðir dragi  ummæli sín til baka og biðjist afsökunar á þeim. Sérstaklega finnst mér að Vilhjálmur Birgisson þurfi að hugsa sinn gang. Formaður verkalýðsfélags getur ekki leyft sér að fara með hrein ósannindi.
27.feb. 2013 - 15:23 Aðsend grein

Þórólfur Matthíasson: Rusl inn, rusl út

Þórólfur Matthíasson. Þessi álitsgjafi hefur oftsinnis sent undirrituðum tóninn, stundum af litlu tilefni.  Ég legg það ekki á lesendur þessa pistils að endurtaka allar þær ljótu nafngiftir sem hann hefur hnýtt við nafn mitt.  Það væri freistandi að svara nú í sömu mynt.  Það skal ekki gert.  Enda á sérhver maður rétt á að gera mistök, því af mistökum má svo margt læra.
24.feb. 2013 - 13:00 Aðsend grein

Ávöxtun lífeyrissjóðanna og tap þeirra af útrásinni 2003-2011

Þorbergur Steinn Leifsson Íslenska lífeyrissjóða kerfið er hlutfallslega eitt það stærsta í heiminum en einungis fjögur önnur lönd eru á svipuðu reki hvað hlutfallslega stærð varðar.
24.feb. 2013 - 12:18 Aðsend grein

Tveggja hana verðtrygging

Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsleiðtogi, og Kristinn H. Gunnarsson, fv. alþingismaður, hafa átt í ritdeilu um kosti og galla verðtryggðra húsnæðislána í kjölfar greinar Vilhjálms sem birtist á pressan.is þann 13. febrúar sl. undir fyrirsögninni „Munar 88 milljónum á óverðtryggðu og verðtryggðu láni!”
24.feb. 2013 - 08:33 Aðsend grein

Lánakjörin eru ekki í boði

Ólafur Arnarson  hefur tekið að sér að verja rangar fullyrðar Vilhjálms Birgissonar, formanns Verkalýðsfélags Akraness  um muninn á verðtryggðum og óverðtryggðum lánskjörum.
Vörnin felst í því að staðhæfa að Landsbankinn muni lána 20 mkr óverðtryggt með aðeins 0.94% vöxum  umfram verðbólgu á sama tíma og  bankinn krefst 3.75% vaxta ofan á verðtryggð lánakjör.
21.feb. 2013 - 14:19 Aðsend grein

Munurinn er 5 milljónir kr. en ekki 88 mkr

Fyrir viku birtist á pressan.is grein eftir Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðsfélags Akraness, þar sem hann fullyrðir að það sé 88 mkr. dýrara að taka  22 mkr. húsnæðislán til 40 ára með verðtryggðum kjörum en ef lánið væri óverðtryggt með breytilegum vöxtum. Miðað er við að verðbólga verði 5.81% á ári allan lánstímann. Heildarkostnaður verði samkvæmt reiknivél Landsbankans rúmar 60 mkr. í öðru tilvikinu en 149 mkr. í hinu.
20.feb. 2013 - 21:31 Aðsend grein

Brynjar Níelsson gefst upp og fer grátandi heim

Gylfi Magnússon. Brynjar Níelsson hæstarréttarlögmaður og þingmannsefni birtir annan kafla í skáldsögu sem hann byggir að því er virðist lauslega á ævisögu minni á Pressunni þann 20. febrúar. Ég er vitaskuld klökkur yfir þessum nýsprottna áhuga hans og Heiðars Más Guðjónssonar á þessu efni en þeir félagar sitja nú báðir sveittir við skrif um það.
19.feb. 2013 - 12:40 Aðsend grein

Misskilningur breiðist út

Á endanum varð það hlutskipti Íslandsbanka að vinna úr eignasafni Byr og nýja Landsbankans að vinna úr eignasafni Sparisjóðsins í Keflavík/SpKef. Þau reyndust rýrari en menn höfðu áætlað fyrst eftir hrun. Það er þó mér vitanlega ekkert sem bendir til þess að það hafi skipt miklu um endurheimtur hvort eignasöfn þessara sparisjóða runnu inn í nýju bankana nokkrum mánuðum fyrr eða síðar. Hafi eitthvert tjón orðið af því að reka þessi fjármálafyrirtæki nokkrum mánuðum lengur en Brynjar telur að hafi verið æskilegt þá hefur það væntanlega helst falist í því að rekstrarkostnaður var eitthvað hærri en ella þann tíma, vegna þess að þeirri fækkun starfsmanna og útibúa sem varð á endanum seinkaði fyrir vikið.
02.feb. 2013 - 19:30 Aðsend grein

að vera aðstandandi þolenda ofbeldis

Ragnheiður Rafnsdóttir Í þessum skrifuðum orðum loga netheimar, fjölmiðlar og samfélagið allt vegna grófra ofbeldisbrota sem upp hafa komist.
15.jan. 2013 - 14:06 Aðsend grein

Svar til Guðrúnar Þorgerðar Ágústsdóttur vegna umfjöllunar um útigangsfólk

Gagnrýni þín hvað varðar það að of neikvæð mynd hafi verið dregin upp á fullan rétt á sér og fólk getur haft misjafnar skoðanir á því. Það er hins vegar ekki hlutverk fjölmiðla að segja já og amen við því hvernig kerfið sér hlutina.
11.jan. 2013 - 13:07 Aðsend grein

Leiðir skilja

Sigurður Baldvin Sigurðsson. Ég hef verið í Sjálfstæðisflokknum allt frá blautu barnsbeini. Þegar ég hafði aldur til kaus ég XD og hef haldið því áfram alla tíð síðan. Núna skilja leiðir. Við alþingiskosningarnar að vori mun ég kjósa annan flokk. Valið er auðvelt – DÖGUN.
09.jan. 2013 - 12:30 Aðsend grein

Drengur úr Eyjum

Ída Stanleysdóttir. Þegar ég var 12 ára gömul í Vestmannaeyjum var ég  að passa svo yndislegan lítinn tveggja ára strák, sem var svo skemmtilegur, kunni að syngja öll fallegu lögin sem flestir kunnu og sungu í Eyjum, hann var svo skýr, svona ungur og alltaf svo kátur og skapgóður. Vildi alltaf vera að leika og fara á „róló“ með jafnöldrum sínum og okkur barnapíunum.
08.des. 2012 - 16:03 Aðsend grein

Skiptir máli hver fær veiðigjaldið?

Spurt er í frétt á bb.is á Ísafirði hvort veiðigjaldið í sjávarútvegi kosti  störf í tilefni af fréttum um uppsagnir starfsfólks  síðustu daga hjá  útgerðarfyrirtækjum.
26.nóv. 2012 - 19:32 Aðsend grein

Þórhildur: Prófkjörsþankar

Þórhildur Þorleifsdóttir Það er í senn fróðlegt og niðurdrepandi að hlusta á vangaveltur  um niðurstöður í prófkjörum - og reyndar kosningum almennt. Flest sem sagt er víkur í engu frá því sem sagt var síðast og þar áður.
16.nóv. 2012 - 18:00 Aðsend grein

Jón Steinar: Spjallað saman

Jón Steinar Gunnlaugsson. Svanur Kristjánsson er prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Þegar prófessorar skrifa greinar í fræðirit ættu þeir að viða að sér upplýsingum og rannsaka viðfangsefnið eftir föngum áður en dregnar eru fræðilegar ályktanir. Svanur prófessor skrifar grein í hausthefti Skírnis 2012.
12.nóv. 2012 - 20:56 Aðsend grein

Bjúgnakrækir kom snemma til byggða í ár

Anna Lára Pálsdóttir. Bjúgnakrækir kom snemma til byggða í ár. Þar sem ekkert var skótauið í gluggakistunum og eftirspurn eftir jólasveinum í algjöru lágmarki tók hann upp fyrri háttu þeirra sveina og hóf að óknyttast. Hann brá sér í líki blaðamanns, tók fyrir bréfkorn sem kennaragrey í Hafnarfirði höfðu skrifað bæjarstjóra sínum og sneri út úr því í mest lesna fréttasnepli landsins.
10.nóv. 2012 - 16:32 Aðsend grein

Athugasemd vegna auglýsingar Hagsmunasamtaka heimilanna

Steingrímur J. Sigfússon. Hagsmunasamtök heimilanna hafa birt auglýsingar undafarna daga og vakið þannig athygli á málstaði sínum. Í því skyni hafa þau því miður gripið til þess ráðs að slá fram rakalausum fullyrðingum um nýlegt frumvarp atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra um neytendalán. Er fullyrt í auglýsingunum að frumvarpið eigi með einhverjum hætti að "auðvelda bönkunum að ljúga að okkur"þar sem ekki er tekið tillit til verðbótaþáttsins við útreikning á árlegri hlutfallstölu kostnaðar verðtryggðra lána. Við þetta er margt að athuga.
08.nóv. 2012 - 22:06 Aðsend grein

Jólasveinarnir eru snemma á ferðinni í ár

Uppsetningin er með þeim hætti, að þessir ágætu stjórnmálamenn eru látnir birtast almenningi eins og góðgjarnir jólasveinar, sem koma til byggða aðeins á undan áætlun og útdeila gjöfum til þægu barnanna.
31.okt. 2012 - 21:11 Aðsend grein

Yfirklór útvarpsstjóra

Ari Edwald. Heldur þykja mér aumkunarverðar tilraunir útvarpsstjóra til að draga í land með gífuryrði sín um 365 miðla, eignarhald þess og viðskiptabanka fyrirtækisins.
30.okt. 2012 - 15:00 Aðsend grein

Svar til Ara

Ari Edwald eyðir næstum helmingi af svari sínu til mín í að hrekja staðhæfingu sem ég hélt ekki fram. Það er alveg rétt hjá Ara að milljarðaafskriftir Landsbankans á kostnað almennings vegna fjölmiðlareksturs Jóns Ásgeirs fóru ekki fram í gegnum það félag sem nú heitir 365. Enda hélt ég því ekki fram. Þær fóru fram í gegnum félag sem hét Íslensk afþreying en voru alveg jafnmargir milljarðar fyrir því.
29.okt. 2012 - 17:30 Aðsend grein

Útvarpsstjóri fer vísvitandi með rangt mál

Ari Edwald. Ég hrökk við eins og fleiri að lesa um helgina ýmis ósannindi og gífuryrði sem Páll Magnússon lætur frá sér í nafni síns virðulega embættis. Er ljóst af viðbrögðum á vefnum og í blöðum að flestir eru sammála um að Páll hafi orðið sér til álitshnekkis með ósæmilegri framgöngu og kastað rýrð á embætti útvarpsstjóra.

Aðsendar greinar
Hér birtast aðsendar greinar og yfirlýsingar sem tengjast efni því sem birtist á Pressunni. Netfang: pressan@pressan.is
LHÍ
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 21.5.2013
Nú er nóg komið!
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 21.5.2013
Umdeildur
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 22.5.2013
Að fenginni áminningu
Kári Stefánsson
Kári Stefánsson - 22.5.2013
Óheft tjáningarþörf
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 22.5.2013
Umsátrinu um heimilin er lokið
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 15.5.2013
Rangfeðruð skammaskrif
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2013
Pétur Pétursson
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 20.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 6. hola - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 18.5.2013
Ógleymanleg heimsókn
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 24.5.2013
Sigmundur og Bjarni, stöðvið sjálftökuna!
Reynir Hjálmarsson
Reynir Hjálmarsson - 21.5.2013
Nútíminn gegn Derrick
Fleiri pressupennar