23.maí 2012 - 09:07
Aðsend grein
Bréfið var frá Samfylkingunni í suðurkjördæmi þar sem leitað var til mín um fjárstuðning. Ég tel mig vera bóngóðann mann en þar sem mér er ekki fært að dreifa því lítla sem ég á út um koppa og grundir, ætla ég að gefa ykkur ókeypis ráð í ykkar vandræðum.
21.maí 2012 - 16:32
Aðsend grein
09.maí 2012 - 10:30
Aðsend grein
Í starfi mínu sem ráðgjafi fyrir einstaklinga sem eru að kljást við samskiptaerfiðleika, fíknir eða meðvirkni þá hefur það komið mér á óvart hversu margir einstaklingar sem leita til mín eiga í hjónabands erfiðleikum eða hafa nýlega farið í gegnum skilnað. Eftir fjölda viðtala fór að birtast mér sameiginlegir orsakavaldar þess að fólk átti í sambands- og hjónaerfiðleikum.
08.maí 2012 - 21:32
Aðsend grein
Talað er um að það sé hættulegt að sýna mynd sem fjallar um óhefðbundnar aðferðir, ég tel það vera hættulegra að halda lausnum frá þeim sem virkilega þurfa á að halda. Það er raunveruleiki sem ég þekki.
08.maí 2012 - 17:32
Aðsend grein
Þegar ég reyndi að sigrast á nánast óyfirstíganlegu þvottafjalli heima hjá mér fór ég að hugsa. Ég er ótrúlega heppin. Þrátt fyrir allt er ég í besta starfinu, ég er leikskólakennari.
07.maí 2012 - 15:50
Aðsend grein
Á síðustu misserum hafa sprottið upp umræður um störf og þekkingu næringarfræðinga. Þá hafa næringarfræðingar verið gagnrýndir fyrir að fylgja ekki nýjustu straumunum í „heilsufræðunum“ og séu fastir í gömlum kennslubókum.
20.apr. 2012 - 16:45
Aðsend grein
Við höfum ólíkar skoðanir en markmið okkar er það sama; mannréttindi. Við nálgumst þau hins vegar frá mjög ólíku sjónarhorni.
17.apr. 2012 - 15:00
Aðsend grein
Alla dreymir um að lifa hamingjusamir og njóta allra þeirra dásemda sem lífið hefur upp á að bjóða. Það eru þó ekki allir í þeirri stöðu hér og nú og sumir hnjóta um lífsins hála svið. Þegar við erum stödd á þeim stað að lifa í daglegri vanlíðan eigum við í stöðugu stríði við huga okkar og tilfinningar.
20.mar. 2012 - 13:42
Aðsend grein
Eiginlega býst ég við að þið fylgist með fréttum þó svo maður efist stundum að þið fylgist með því sem er raunverulega að gerast hjá mörgum hér á Íslandi.
12.mar. 2012 - 19:00
Aðsend grein
Fólk sem vinnur í fjármálastofnunum eru hrætt. Skiljanlega. Maður í þeirra starfsstétt var stunginn af manni sem átti í ágreiningi við fjármálafyrirtæki. Leiðarar stórra dagblaða segja að “Samstaða okkar gegn ofbeldi á að vera skilyrðislaus og óumsemjanleg, og við eigum að sýna því skilningsleysi,” og að “aldrei er hægt að réttlæta eða útskýra ofbeldis- eða skemmdarverk með þjóðfélagsástandi.”
07.mar. 2012 - 09:00
Aðsend grein
Árið 1914 var stofnað fyrsta dýraverndarfélagið á Íslandi, Dýraverndarfélagi Íslands. Þar var í fararbroddi ásamt öðrum hinn merki athafnamaður og alþingismaður Tryggvi Gunnarsson. Störf hans í þágu Íslenskrar þjóðar vöktu athygli ekki síst í málefnum dýraverndar. Hann þótti svo mikill afreksmaður á því sviði að reistur var minnisvarði um Tryggva, sem stendur í garði Alþingis. Við andlát Tryggva var lagður blómsveigur frá Dýraverndarfélaginu á minnisvarða Tryggva. Á hann var ritað: ,,og það er víst ef dýrin mættu mæla, þá mundi verða blessað nafnið þitt." (höfundur Þorsteinn Erlingsson)
27.feb. 2012 - 12:00
Aðsend grein
Íslenskir hagfræðingar (flestir) ætla seint að átta sig á því að vísitala neysluverðs hvorki mælir breytingu á eiginleika krónunnar til verðmats né er hönnuð til þess. Því er útilokað að vísitala neysluverðs geti í lögskiptum verið réttur grundvöllur til leiðréttinga, sem mæta eiga breytingu á eiginleika krónunnar til verðmats.
24.feb. 2012 - 19:20
Aðsend grein
Kæra Lýsing,
Þakka þér kærlega fyrir bréf þitt til mín þann 17. febrúar síðastliðinn með yfirskriftinni ,,Hefur þú gleymt okkur?" Bara ef allir vinir mínir hefðu svona áhyggjur af mér. Mig langaði því að senda þér stuttan tölvupóst og láta þig vita að það er allt í lagi með mig og að ég sé svo sannarlega ekki búinn að gleyma þér.
23.feb. 2012 - 18:20
Aðsend grein
Eftir að Hæstiréttur sveiflaði nýverið lagasverðinu bjarta og skar á hnúta viðvarandi deilna um uppgjör á ólögmætum gengistryggðum lánum hefur mikilli óvissu um það verið eytt, öfugt við það sem talsmenn fjármálafyrirtækja og einstaka stjórnmálamenn hafa haldið fram. Rétturinn kvað uppúr um að fyrri greiðslur skuldara af lánum sínum teldust fullnaðargreiðslur og að kröfuhafar ættu engan rétt til þess að krefjast frekari greiðslna vegna tímabilsins fram til þess að viðurkennt var að þeir höfðu veitt þeim ólögmæt lán.
22.feb. 2012 - 13:30
Aðsend grein
Ólafur Margeirsson, doktorsnemi í hagfræði, birti greinina
Verðtryggð lán eru með hærri vexti á Pressan.is 16. febrúar sl. Í byrjun greinarinnar vitnar hann í setningu af glæru sem ég var með á málstofu í Seðlabanka Íslands 10. mars 2009 þar sem stendur:
15.feb. 2012 - 16:05
Aðsend grein
Hugvekja um raunverulegt gildi manneskjunnar í íslensku þjóðfélagskerfi.
Fyrr allnokkrum árum var ég full þjóðernisstolts. Ég var svo stolt af því að vera Íslendingur og fannst ég njóta þeirra ótrúlegu forréttinda að hafa fæðst hér á þessari eyju í norðri. Ég var fullviss um að ekkert gæti nokkurn tíma orðið til þess að stolt mitt sem íslendingur myndi dvína. Ég var sannfærð um að ég væri einhvers virði sem þjóðfélagsþegn og að sú hugsun um að flytja af landi brott myndi aldrei verða til í huga mér. Aldrei.
15.feb. 2012 - 13:00
Aðsend grein
1.
Af einhverjum óskýranlegum ástæðum verður orðavalið ósjálfrátt hástemmt þegar reynt er að lýsa djúpstæðri lestrarnautn. Hugtök og frasar á borð við „töfraheimur bókarinnar“ og „fjársjóður textans“ og „samsafn hins besta sem mannshugurinn hefur að bjóða“ taka að skjóta upp kollinum ótt og títt. En vandinn er sá að þó að lestur virðist hversdagsleg athöfn og einföld í huga læsra (augunum er rennt eftir orðum og línum frá vinstri til hægri, endurtekið eftir þörfum), þá getur þetta stefnumót sjónar og texta kveikt mergjaðan galdur. Í gang fer flókið ferli þar sem heilinn og ímyndunaraflið standa að flugeldasýningu. Orðavalið dregur ósjálfrátt dám af því magnaða sjónarspili hugans.
15.feb. 2012 - 09:15
Aðsend grein
Sæll Sighvatur,
Þetta er Marinó "nokkur" Njálsson. Þú sendir mér pillur í einhverju bræðikasti, þar sem þér líkar ekki við málflutning minn um orð þín í Silfri Egils sl. sunnudag. Ég tek það fram að ég á ekki í neinu stríði við þig og mér þykir þú fara sérkennilega leið að Ólafi Arnarsyni að spyrða málflutning okkar saman. Við Ólafur höfum svo sem þekkst í mjög mörg ár, leiðir okkar lágu saman í MR, en þess fyrir utan ekki talað mikið saman nema þá sjaldan að við hittumst á förnum vegi.
14.feb. 2012 - 21:00
Aðsend grein
Í nýársræðu tilkynnti Ólafur Ragnar Grímsson að hann ætlaði að láta af starfi forseta Íslands, sagðist eftir að hafa íhugað vandlega ólík sjónarmið varðandi framboðið, að niðurstaðan kynni að hljóma sem þversögn "en er engu að síður sú, að aðstæður þjóðarinnar séu þess eðlis, að ég geti fremur orðið að liði, ef val á verkefnum verður eingöngu háð mínum eigin vilja, óbundið af þeim skorðum sem embætti forsetans setur jafnan orðum og athöfnum".
14.feb. 2012 - 16:00
Aðsend grein
Þú skrifar fjarska langlokur, sem fyrst og fremst virðast til þess gerðar að þú komist hjá að svara þeim einföldum spurningum, sem að þér er beint.
13.feb. 2012 - 17:15
Aðsend grein
Kæri Ólafur.
Kjarninn í þínu langa máli er þessi: Það sem þú telur sanngjarnt að þeir, sem lána þér, fái til baka frá þér ert þú sjálfur ekki reiðubúinn til þess að taka að þér að lána öðrum á sömu kjörum. Þú vilt sem sé heldur vera þarna þiggjandi en veitandi. Það er út af fyrir sig skiljanlegt – en ekki stórmannlegt.
13.feb. 2012 - 09:00
Aðsend grein
Ég tek þig á orðinu – enda reikna ég með því að þú meinir það, sem þú segir samanber grein þína í Pressunni í dag
09.feb. 2012 - 21:45
Aðsend grein
Ég undirrituð er í algjörri andstöðu við þennan meirihluta sem búið er að mynda hér í Kópavogi. Í þeim meirihluta er
Y-Listi Kópavogsbúa sem ég átti frumkvæði að því að stofna og fékk gott fólk með mér til að hægt væri að bjóða fram. Grundvallaratriði var að reyna að vinna eins vel og við gætum fyrir Kópavogsbúa. Í framhaldi af því voru sett grunngildi sem við öll ætluðum að starfa útfrá. Þar vó þyngst
siðbót í stjórnsýslu og að
bæjarstjórinn yrði ópóilitískur – faglega ráðinn. Nú hefur það gerst að Y-Listinn hefur tekið stóra U beygju frá sínum grunngildum að því að virðist, undir forystu sjálfstæðismanna með
Ármann Kr. Ólafsson oddvita sjálfstæðisflokksins og hans stuðningsmanna. Ég hef reynt að berjast á móti þessu innan Y- Listans með kjafti og klóm og lenti í minnihluta. Stærsti
fjórflokkurinn sem virðist hafa náð yfirhöndinni, þar á meðal vegna afskipta forystunnar á landsvísu ætti að skammast sín og vona ég að kjósendur muni eftir því í næstu kosningum. Hér hafa átt sér pólitísk hrossakaup og fylgir spillingin yfirleitt á eftir með tilheyrandi kostnaði fyrir bæjarfélagið.
03.feb. 2012 - 10:00
Aðsend grein
Ég er leikskólakennari. Ég ber ábygð á velferð 24 barna sem eru meiri hluta vökutímans í minni umsjá.
31.jan. 2012 - 20:00
Aðsend grein
Undirritaður telur sig knúinn til að svara þeirri ávirðingu sem sögð er grundvöllur réttarfarssektar í héraðsdómsmáli sem kveðinn var upp í gær, 30. janúar, og hefur þótt fréttamatur.
31.jan. 2012 - 14:00
Aðsend grein
Fjórðungur íslenskra drengja getur ekki lesið sér til gagns við lok grunnskólannáms. Þessi frétt skók tilveru bókaþjóðarinnar nýverið. Reyndar leiddi OECD könnunin einnig í ljós að við 15 ára aldur eru stúlkur mun lakari í að leysa stærðfræðivandamál en drengir. Ef við byggjum hinumegin á hnettinum þar sem tækni og vísindi skipa hærri sess vektu þær niðurstöður eflaust meiri ugg. En við erum bókaþjóð og erum skelfingu lostin yfir þessum ólestri á lestrarfærni drengjanna okkar.
30.jan. 2012 - 13:40
Aðsend grein
EFTA Surveillance Authority (ESA) hefur stefnt íslenzkum stjórnvöldum fyrir EFTA dómstólnum vegna brots á tilskipun Evrópusambandsins um innstæðutryggingar (Directive 94/19/EC). Það er mat undirritaðs að ákæra ESA stangist á við ákvæði tilskipunarinnar og sé liður í áframhaldandi þvingunaraðgerðum gegn Íslandi utan laga og réttar. Upphaf þeirra má rekja til óformlegs ráðherrafundar Efnahags- og fjármálaráðs Evrópusambandsins 4. nóvember 2008, undir forsæti Christine Lagarde, núverandi framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þar sem Árna M. Mathiesen, fjármálaráðherra Íslands var “stillt upp við vegg”.
19.jan. 2012 - 19:30
Aðsend grein
Vilhjálmur Bjarnason skrifar grein í Morgunblaðið í dag, þar sem hann fjallar um persónuleg mál mín. Vilhjámur er á sinn sérstaka hátt að bregðast við sjónarmiðum sem ég setti fram í Fréttablaðsgrein í vikunni.
18.jan. 2012 - 18:00
Aðsend grein
Kæri herra Jón,
Ég er leikskólakennari. Ég er ákaflega stolt af minni fagstétt og enn stoltari af börnunum „mínum“ sem ég hitti á hverjum degi – framtíð landsins.
16.jan. 2012 - 12:00
Aðsend grein
Enginn íslenskur rithöfundur á síðustu öld stenst samjöfnuð við Halldór Laxness. Þekking hans og innsæi, dirfska, orðvísi og víð veraldarsýn tekur öðru fram. Hann var skáld minnar kynslóðar, en virðist síður höfða til ungu kynslóðarinnar, a.m.k. ekki þess hluta hennar sem alinn er upp við sýndarveruleika bandarískra kvikmynda.