03. jan. 2012 - 14:00Aðsend grein

Harpa: Áramótaheitin

Harpa Grétarsdóttir.

Harpa Grétarsdóttir.

Mér finnst rosalega gaman að búa til lista yfir það sem þarf að gera og stroka út þegar eitthvað klárast. Árlega bý ég til einn lista sem líklega margir þekkja, listann yfir áramótaheitin mín. Ég legg mikla natni í að skrifa áramótaheitin mín á fallegt blað með skrautskrift og teikna samviskusamlega lítinn ferhyrning svo ég  geti merkt við í hvert sinn sem ég lýk einhverju. Vandamálið með þennan lista er að ég get sjaldnast strokað neitt út fyrr en árið er liðið. Markmiðin sem ég set mér eru yfirleitt tengd heilsu og það er eitthvað sem ég reyni að framfylgja alla mánuði ársins, ekki bara í janúar til að geta strokað það út og lifað svo í sukki og svínaríi hina 11 mánuði ársins.

Ég eyddi stórum hluta líðandi árs í alls konar neikvæðni þrátt fyrir að framfylgja öllum góðu heitunum um að rækta heilsuna. Ég var óánægð með sjálfa mig, mér leið eins og ég hefði eytt fjórum árum lífs míns í fullkomlega tilgangslaust nám. Ég hafði nefnilega ekki verið svo heppin að vinna við fagið mitt með háskólanámi og leið eins og sú bóklega þekking sem ég hafði lagt svo mikið upp úr að viða að mér mundi fljótlega renna til sjávar því ég fann engan vettvang til að hagnýta hana. Með þessa vanlíðan á bakinu brunaði ég beint í ræktina til þess að vinna í líkamanum því ég var alveg viss um að árangurinn mundi setja plástur á sálina. Einni buxnastærð neðar var ég þó jafn atvinnulaus og umkomulaus í eigin skinni. Í ljósi þess að heil vika var liðin frá því að ég kláraði námið og mér var farið að leiðast ákvað ég að skrá mig á nýliðanámskeið JCI sem vinkona mín benti mér á og langaði að prófa. Ég hugsaði með mér að í versta falli væri þetta flott á ferilskrána og ekki verra að láta tímann líða þarna en annars staðar.

Í upphafi var ég mjög efins um JCI, hvað það stæði fyrir og efaðist stórlega að ég gæti fundið nokkuð við mitt hæfi. Ég var með stimpil hins klassíska Íslendings í hausnum “Þetta eru einhvers konar samtök, ég þarf engin samtök”. Á endanum ákvað ég að finna hjá mér smá jákvæðni hella mér út í hin ýmsu verkefni sem hægt er að taka þátt í og átti frumkvæði að öðrum sem félagar innan samtakanna tóku mjög vel í. Verkefnin eru af ýmsum toga, stundum er áherslan á að hjálpa öðrum en stundum er áherslan einfaldlega  á að styrkja sjálfa mig sem einstakling. Í dag er ég ekki búin að plástra gatið sem var á sálinni minni, ég er búin að sauma það saman og það er byrjað að gróa um heilt. Á þessum stutta tíma áttaði ég mig á að heilsa er alls ekki bundin við buxnastærðir og bingóvöðva. Andleg heilsa skiptir miklu máli og ég var komin á stað sem mér leið ekki vel á.

JCI er félag sem vinnur markvisst að því að stuðla að jákvæðum breytingum, hvort sem er hjá
einstaklingum eða samfélaginu öllu. JCI stendur fyrir Junior Chambers International og hefur það að leiðarljósi að virkja ungt fólk og er mikil áhersla lögð á framkomu, ræðumennsku og almenna sjálfsstyrkingu. JCI tekur þátt í alþjóðlegum átaksverkefnum og er t.d. núna að vinna í að safna moskítónetum fyrir fólk í Afríku. Það hefur gefið mér ótrúlega mikið að láta gott af mér leiða. Sumt er ekki stórt fyrir samfélagið en getur skipt höfuðmáli fyrir þá sem njóta góðs af, t.d. krakkarnir sem eiga eftir að leika sér á leikvellinum sem ég ætla að taka þátt í að gera upp með öðrum JCI félögum. Sterkari og sjálfsöruggari mætti ég einnig í atvinnuviðtal og fékk mjög spennandi vinnu og viti menn, yfirmenn mínir voru stórhrifnir af að sjá JCI á ferilskránni.

Ég ætla að bæta við áramótaheitum þetta árið. Ég ætla að vera dugleg að hugsa um heilsuna og líkamann en í ár ætla ég að auki að láta gott af mér leiða og vera sterkari og betri manneskja fyrir vikið. Í mínum huga eru áramótaheitin ekki lengur merkingarlaus listi sem ég dundað mér við að stroka út og byrjað á nýjum að ári. Áramótaheitin mín eru viðvarandi og verða endurnýjuð að ári.

Harpa Grétarsdóttir,
meðlimur í JCI.



23.maí 2012 - 09:07 Aðsend grein

Maltölsprósentuvirðing

Sigurður Þorleifsson. Bréfið var frá Samfylkingunni í suðurkjördæmi þar sem leitað var til mín um fjárstuðning. Ég tel mig vera bóngóðann mann en þar sem mér er ekki fært að dreifa því lítla sem ég á út um koppa og grundir, ætla ég að gefa ykkur ókeypis ráð í ykkar vandræðum.
21.maí 2012 - 16:32 Aðsend grein

Lýður: Fellur ríkisstjórnin vegna málþófs?

Lýður Árnason læknir.
09.maí 2012 - 10:30 Aðsend grein

Af hverju eru skilnaðir svo tíðir?

Í starfi mínu sem ráðgjafi fyrir einstaklinga sem eru að kljást við samskiptaerfiðleika, fíknir eða meðvirkni þá hefur það komið mér á óvart hversu margir einstaklingar sem leita til mín eiga í hjónabands erfiðleikum eða hafa nýlega farið í gegnum skilnað.  Eftir fjölda viðtala fór að birtast mér sameiginlegir orsakavaldar þess að fólk átti í sambands- og hjónaerfiðleikum.
08.maí 2012 - 21:32 Aðsend grein

The Living Matrix umræðan og sú gagnrýni sem fylgdi í kjölfarið

Talað er um að það sé hættulegt að sýna mynd sem fjallar um óhefðbundnar aðferðir, ég tel það vera hættulegra að halda lausnum frá þeim sem virkilega þurfa á að halda. Það er raunveruleiki sem ég þekki.
08.maí 2012 - 17:32 Aðsend grein

Best í heimi

Þegar ég reyndi að sigrast á nánast óyfirstíganlegu þvottafjalli heima hjá mér fór ég að hugsa. Ég er ótrúlega heppin. Þrátt fyrir allt er ég í besta starfinu, ég er leikskólakennari.
07.maí 2012 - 15:50 Aðsend grein

Er næringarfræðingum ekki treystandi?

Á síðustu misserum hafa sprottið upp umræður um störf og þekkingu næringarfræðinga. Þá hafa næringarfræðingar verið gagnrýndir fyrir að fylgja ekki nýjustu straumunum í „heilsufræðunum“ og séu fastir í gömlum kennslubókum.
20.apr. 2012 - 16:45 Aðsend grein

Anna Bentína: Um deilur Evu Hauksdóttur samfélagsrýnis við Stígamót

Við höfum ólíkar skoðanir en markmið okkar er það sama; mannréttindi. Við nálgumst þau hins vegar frá mjög ólíku sjónarhorni.
17.apr. 2012 - 15:00 Aðsend grein

Ragnhildur: Ég á hamingjuna skilið

Alla dreymir um að lifa hamingjusamir og njóta allra þeirra dásemda sem lífið hefur upp á að bjóða. Það eru þó ekki allir í þeirri stöðu hér og nú og sumir hnjóta um lífsins hála svið.  Þegar við erum stödd á þeim stað að lifa í daglegri vanlíðan eigum við í stöðugu stríði við huga okkar og tilfinningar.

 

20.mar. 2012 - 13:42 Aðsend grein

Lísa Björk: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar

Eiginlega býst ég við að þið fylgist með fréttum þó svo maður efist stundum að þið fylgist með því sem er raunverulega að gerast hjá mörgum hér á Íslandi.
12.mar. 2012 - 19:00 Aðsend grein

Jón Þór: Skilningur og réttlæti gera okkur öruggari

Jón Þór Ólafsson. Fólk sem vinnur í fjármálastofnunum eru hrætt. Skiljanlega. Maður í þeirra starfsstétt var stunginn af manni sem átti í ágreiningi við fjármálafyrirtæki. Leiðarar stórra dagblaða segja að “Samstaða okkar gegn ofbeldi á að vera skilyrðislaus og óumsemjanleg, og við eigum að sýna því skilningsleysi,” og að “aldrei er hægt að réttlæta eða útskýra ofbeldis- eða skemmdarverk með þjóðfélagsástandi.”
07.mar. 2012 - 09:00 Aðsend grein

Árni Stefán: Dýravernd – er endurreisn hennar í sjónmáli?

Árni Stefán Árnason. Árið 1914 var stofnað fyrsta dýraverndarfélagið á Íslandi, Dýraverndarfélagi Íslands. Þar var í fararbroddi ásamt öðrum hinn merki athafnamaður og alþingismaður Tryggvi Gunnarsson. Störf hans í þágu Íslenskrar þjóðar vöktu athygli ekki síst í málefnum dýraverndar. Hann þótti svo mikill afreksmaður á því sviði að reistur var minnisvarði um Tryggva, sem stendur í garði Alþingis. Við andlát Tryggva var lagður blómsveigur frá Dýraverndarfélaginu á minnisvarða Tryggva. Á hann var ritað: ,,og það er víst ef dýrin mættu mæla, þá mundi verða blessað nafnið þitt." (höfundur Þorsteinn Erlingsson)
27.feb. 2012 - 12:00 Aðsend grein

Örn: Enn segir Gylfi Magnússon ósatt

Örn Karlsson. Íslenskir hagfræðingar (flestir) ætla seint að átta sig á því að vísitala neysluverðs hvorki mælir breytingu á eiginleika krónunnar til verðmats né er hönnuð til þess. Því er útilokað að vísitala neysluverðs geti í lögskiptum verið réttur grundvöllur til leiðréttinga, sem mæta eiga breytingu á eiginleika krónunnar til verðmats.
24.feb. 2012 - 19:20 Aðsend grein

Bragi Dór: Kæra Lýsing

Bragi Dór Hafþórsson.
Kæra Lýsing,
 
Þakka þér kærlega fyrir bréf þitt til mín þann 17. febrúar síðastliðinn með yfirskriftinni ,,Hefur þú gleymt okkur?" Bara ef allir vinir mínir hefðu svona áhyggjur af mér. Mig langaði því að senda þér stuttan tölvupóst og láta þig vita að það er allt í lagi með mig og að ég sé svo sannarlega ekki búinn að gleyma þér. 
23.feb. 2012 - 18:20 Aðsend grein

Lúðvík og Sigurvin: Hæstiréttur eyðir óvissu

Lúðvík Bergvinsson og Sigurvin Ólafsson. Eftir að Hæstiréttur sveiflaði nýverið lagasverðinu bjarta og skar á hnúta viðvarandi deilna um uppgjör á ólögmætum gengistryggðum lánum hefur mikilli óvissu um það verið eytt, öfugt við það sem talsmenn fjármálafyrirtækja og einstaka stjórnmálamenn hafa haldið fram. Rétturinn kvað uppúr um að fyrri greiðslur skuldara af lánum sínum teldust fullnaðargreiðslur og að kröfuhafar ættu engan rétt til þess að krefjast frekari greiðslna vegna tímabilsins fram til þess að viðurkennt var að þeir höfðu veitt þeim ólögmæt lán. 
22.feb. 2012 - 13:30 Aðsend grein

Ásgeir: Verðtrygging, vextir og peningastefna Seðlabankans

Ásgeir Daníelsson. Ólafur Margeirsson, doktorsnemi í hagfræði, birti greinina Verðtryggð lán eru með hærri vexti á Pressan.is 16. febrúar sl. Í byrjun greinarinnar vitnar hann í setningu af glæru sem ég var með á málstofu í Seðlabanka Íslands 10. mars 2009 þar sem stendur:
15.feb. 2012 - 16:05 Aðsend grein

Ágústa: Íslenskur útlagi

Ágústa Ágústsdóttir.
Hugvekja um  raunverulegt gildi  manneskjunnar í íslensku þjóðfélagskerfi.                                                                                                    
Fyrr allnokkrum árum var ég full þjóðernisstolts. Ég var svo stolt af því að vera Íslendingur og fannst ég njóta þeirra ótrúlegu forréttinda að hafa fæðst hér á þessari eyju í norðri. Ég var fullviss um að ekkert gæti nokkurn tíma orðið til þess að stolt mitt sem íslendingur myndi dvína. Ég var sannfærð um að ég væri einhvers virði sem þjóðfélagsþegn og að sú hugsun um að flytja af landi brott myndi aldrei verða til í huga mér. Aldrei.
15.feb. 2012 - 13:00 Aðsend grein

Sindri: Að lýsa nautn í orðum

Sindri Freysson. Mynd: Adam Panczuk. 1.

Af einhverjum óskýranlegum ástæðum verður orðavalið ósjálfrátt hástemmt þegar reynt er að lýsa djúpstæðri lestrarnautn. Hugtök og frasar á borð við „töfraheimur bókarinnar“ og „fjársjóður textans“ og „samsafn hins besta sem mannshugurinn hefur að bjóða“ taka að skjóta upp kollinum ótt og títt. En vandinn er sá að þó að lestur virðist hversdagsleg athöfn og einföld í huga læsra (augunum er rennt eftir orðum og línum frá vinstri til hægri, endurtekið eftir þörfum), þá getur þetta stefnumót sjónar og texta kveikt mergjaðan galdur. Í gang fer flókið ferli þar sem heilinn og ímyndunaraflið standa að flugeldasýningu. Orðavalið dregur ósjálfrátt dám af því magnaða sjónarspili hugans.
15.feb. 2012 - 09:15 Aðsend grein

Marinó: Sighvati Björgvinssyni svarað

Marinó G. Njálsson. Sæll Sighvatur,

Þetta er Marinó "nokkur" Njálsson.  Þú sendir mér pillur í einhverju bræðikasti, þar sem þér líkar ekki við málflutning minn um orð þín í Silfri Egils sl. sunnudag. Ég tek það fram að ég á ekki í neinu stríði við þig og mér þykir þú fara sérkennilega leið að Ólafi Arnarsyni að spyrða málflutning okkar saman.  Við Ólafur höfum svo sem þekkst í mjög mörg ár, leiðir okkar lágu saman í MR, en þess fyrir utan ekki talað mikið saman nema þá sjaldan að við hittumst á förnum vegi.
14.feb. 2012 - 21:00 Aðsend grein

Tryggvi: Forseti – sameiningartákn eða stjórnmálamaður?

Tryggvi Tryggvason. Í nýársræðu tilkynnti Ólafur Ragnar Grímsson að hann ætlaði að láta af starfi forseta Íslands, sagðist eftir að hafa íhugað vandlega ólík sjónarmið varðandi framboðið, að niðurstaðan kynni að hljóma sem þversögn "en er engu að síður sú, að aðstæður þjóðarinnar séu þess eðlis, að ég geti fremur orðið að liði, ef val á verkefnum verður eingöngu háð mínum eigin vilja, óbundið af þeim skorðum sem embætti forsetans setur jafnan orðum og athöfnum". 
14.feb. 2012 - 16:00 Aðsend grein

Sighvatur: Ólafur þó!

Sighvatur Björgvinsson. Þú skrifar fjarska langlokur, sem fyrst og fremst virðast til þess gerðar að þú komist hjá að svara þeim einföldum spurningum, sem að þér er beint.
13.feb. 2012 - 17:15 Aðsend grein

Sighvatur: Kæri Ólafur

Sighvatur Björgvinsson.
Kæri Ólafur.

Kjarninn í þínu langa máli er þessi:  Það sem þú telur sanngjarnt að þeir, sem lána þér, fái til baka frá þér ert þú sjálfur ekki reiðubúinn til þess að taka að þér að lána öðrum á sömu kjörum.  Þú vilt sem sé heldur vera þarna þiggjandi en veitandi.  Það er út af fyrir sig skiljanlegt – en ekki stórmannlegt.
13.feb. 2012 - 09:00 Aðsend grein

Sighvatur: Sæll Ólafur

Ég tek þig á orðinu – enda reikna ég með því að þú meinir það, sem þú segir samanber grein þína í Pressunni í dag
09.feb. 2012 - 21:45 Aðsend grein

Ásdís: Afsökunarbeiðni til Kópavogsbúa, vegna myndunar nýs meirihluta í Kópavogi

Ásdís Ólafsdóttir. Ég undirrituð er í algjörri andstöðu við þennan meirihluta sem búið er að mynda hér í Kópavogi. Í þeim meirihluta er Y-Listi Kópavogsbúa sem ég átti frumkvæði að því að stofna og fékk gott fólk með mér til að hægt væri að bjóða fram. Grundvallaratriði var að reyna að vinna eins vel og við gætum fyrir Kópavogsbúa. Í framhaldi af því voru sett grunngildi sem við öll ætluðum að starfa útfrá. Þar vó þyngstsiðbót í stjórnsýslu og að bæjarstjórinn yrði ópóilitískur – faglega ráðinn. Nú hefur það gerst að Y-Listinn hefur tekið stóra U beygju frá sínum grunngildum að því að virðist, undir forystu sjálfstæðismanna með Ármann Kr. Ólafsson oddvita sjálfstæðisflokksins og hans stuðningsmanna. Ég hef reynt að berjast á móti þessu innan Y- Listans með kjafti og klóm og lenti í minnihluta. Stærstifjórflokkurinn sem virðist hafa náð yfirhöndinni, þar á meðal vegna afskipta forystunnar á landsvísu ætti að skammast sín og vona ég að kjósendur muni eftir því í næstu kosningum. Hér hafa átt sér pólitísk hrossakaup og fylgir spillingin yfirleitt á eftir með tilheyrandi kostnaði fyrir bæjarfélagið.
03.feb. 2012 - 10:00 Aðsend grein

Vala Björk: Ég er mikilvæg

Vala Björk Gunnarsdóttir.
Ég er leikskólakennari. Ég ber ábygð á velferð 24 barna sem eru meiri hluta vökutímans í minni umsjá. 

31.jan. 2012 - 20:00 Aðsend grein

Jón Egilsson: Umbjóðandi sýknaður en lögmaðurinn sektaður – bannað að lýsa hræðslueinkennu

Jón Egilsson. Undirritaður telur sig knúinn til að svara þeirri ávirðingu sem sögð er grundvöllur réttarfarssektar í héraðsdómsmáli sem kveðinn var upp í gær, 30. janúar, og hefur þótt fréttamatur. 
31.jan. 2012 - 14:00 Aðsend grein

Anna Lára: Árinni kennir illur ræðari

Anna Lára Pálsdóttir. Fjórðungur íslenskra drengja getur ekki lesið sér til gagns við lok grunnskólannáms. Þessi frétt skók tilveru bókaþjóðarinnar nýverið. Reyndar leiddi OECD könnunin einnig í ljós að við 15 ára aldur eru stúlkur mun lakari í að leysa stærðfræðivandamál en drengir. Ef við byggjum hinumegin á hnettinum þar sem tækni og vísindi skipa hærri sess vektu þær niðurstöður eflaust meiri ugg. En við erum bókaþjóð og erum skelfingu lostin yfir þessum ólestri á lestrarfærni drengjanna okkar. 
30.jan. 2012 - 13:40 Aðsend grein

Gunnar: Ákæra ESA fyrir EFTA dómstólnum

Gunnar Tómasson. EFTA Surveillance Authority (ESA) hefur stefnt íslenzkum stjórnvöldum fyrir EFTA dómstólnum vegna brots á tilskipun Evrópusambandsins um innstæðutryggingar (Directive 94/19/EC). Það er mat undirritaðs að ákæra ESA stangist á við ákvæði tilskipunarinnar og sé liður í áframhaldandi þvingunaraðgerðum gegn Íslandi utan laga og réttar. Upphaf þeirra má rekja til óformlegs ráðherrafundar Efnahags- og fjármálaráðs Evrópusambandsins 4. nóvember 2008, undir forsæti Christine Lagarde, núverandi framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þar sem Árna M. Mathiesen, fjármálaráðherra Íslands var “stillt upp við vegg”.
19.jan. 2012 - 19:30 Aðsend grein

Kristín Þorsteinsdóttir: Dilkadráttur Vilhjálms

Vilhjálmur Bjarnason skrifar grein í Morgunblaðið í dag, þar sem hann fjallar um persónuleg mál mín. Vilhjámur er á sinn sérstaka hátt að bregðast við sjónarmiðum sem ég setti fram í Fréttablaðsgrein í vikunni.   
18.jan. 2012 - 18:00 Aðsend grein

Heiða: Kæri Jón

Heiða Sigurjónsdóttir.
Kæri herra Jón,

Ég er leikskólakennari. Ég er ákaflega stolt af minni fagstétt og enn stoltari af börnunum „mínum“ sem ég hitti á hverjum degi – framtíð landsins.
16.jan. 2012 - 12:00 Aðsend grein

Tryggvi: Heimsljós - Jólasýning Þjóðleikhússins

Tryggvi Gíslason. Enginn íslenskur rithöfundur á síðustu öld stenst samjöfnuð við Halldór Laxness. Þekking hans og innsæi, dirfska, orðvísi og víð veraldarsýn tekur öðru fram. Hann var skáld minnar kynslóðar, en virðist síður höfða til ungu kynslóðarinnar, a.m.k. ekki þess hluta hennar sem alinn er upp við sýndarveruleika bandarískra kvikmynda.

Aðsendar greinar
Hér birtast aðsendar greinar og yfirlýsingar sem tengjast efni því sem birtist á Pressunni. Netfang: pressan@pressan.is
Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar