07. jún. 2012 - 14:10Vilhjálmur Birgisson

Stjórnendur Eimskips skammist ykkar

Það er ótrúlegt að nú mætti halda að árið 2007 sé skella aftur á af fullum þunga, en eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær þá var upplýst að lykilstjórnendum Eimskipafélagsins mun bjóðast að eignast hluti í félaginu á umtalsvert lægra gengi en reiknað er með að verði fyrir hendi þegar félagið verður skráð á markað í september. Heildarhlutur þeirra gæti orðið milljarða virði og fram kemur í fréttinni að lykilstjórnendur þurfi ekki  að greiða krónu fyrir kaupréttina og fái hundruð milljóna á silfurfati.

Ég verð að viðurkenna að mér er algerlega misboðið og það er morgunljóst að núna verður íslenska þjóðin að segja hingað og ekki lengra gagnvart fyrirtækjum sem haga sér með þessum hætti. Rétt er að rifja upp að kröfuhafar töpuðu í það minnsta 117 milljörðum vegna gjaldþrots Eimskips en varlega áætlað má gera ráð fyrir að lífeyrissjóðir launafólks hafa tapað rúmum 15 milljörðum vegna Eimskips.  Svo ætla þessir snillingar að koma núna og segja að rekstur Eimskips gangi svo vel að mikilvægt sé að lykilstjórnendum verði umbunað með kaupréttarsamningum. Mikilvægt er að hafa í huga að staða Eimskips er ekki góð núna vegna viðskiptasnilli þessara manna heldur er hún tilkomin að hluta til vegna þess að kröfuhafar og þar á meðal íslenskt launafólk tapaði milljörðum vegna gjaldþrots fyrirtækisins.

Ég hafði samband við framkvæmdastjóra lífeyrissjóðs Festu áðan, en Festa er sá lífeyrissjóður sem félagsmenn mínir í Verkalýðsfélagi Akraness greiða í.  Ég tjáði honum að Verkalýðsfélag Akraness geri þá skýlausu kröfu að lífeyrissjóðurinn Festa fjárfesti ekki fyrir eina krónu í þessu fyrirtæki þegar Eimskip fer á markað í september, ef þessi gjörningur um milljarða gjöf til lykilstjórnenda Eimskips verður að veruleika.

Það er þyngra en tárum taki að verða vitni að því að menn hafi ekki sterkara viðskiptasiðferði í ljósi þeirra staðreynda að Eimskip hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar þegar horft er til þess að kröfuhafar töpuðu 117 milljörðum vegna gjaldþrots fyrirtækisins.  Því til viðbótar hafa sjóðsfélagar þurft að sæta skerðingum á sínum lífeyri vegna 15 milljarða taps sjóðanna á fyrirtækinu.

Það er morgunljóst að ég sem formaður Verkalýðsfélags Akraness mun aldrei sætta mig við að fjármunum minna félagsmanna verði varið í hlutbréfakaup í þessu fyrirtæki ef þetta verður ekki dregið til baka.  Ég vil upplýsa að sjóðsfélagar Festu lífeyrissjóðs töpuðu 500 milljónum vegna gjaldþrots Eimskips. 

Við stjórnendur Eimskips vil ég segja: Þið ættuð að skammast ykkar að misbjóða íslenskri þjóð með þessari græðgi ykkar en alþýða þessa lands er blóðug upp fyrir axlir við að reyna að vinna sig útúr þeim vanda sem stjórnendur í mörgum fyrirtækjum innan atvinnulífsins komu almenningi í vegna þeirra græðgivæðingar sem var búin að skjóta rótum í íslensku atvinnulífi.  En núna mun íslenska þjóðin ekki láta ykkur endurtaka leikinn, svo mikið er víst.




17.jún. 2013 - 22:40 Vilhjálmur Birgisson

Útúrsnúningar

Ekki ein einasta þvottavél hér á landi hefur sama snúningshraða og útúrsnúningavél sumra í stjórnarandstöðunni sem geta bara alls ekki sætt sig við að þeim var hafnað í síðustu kosningum og snúa útúr öllu sem sagt er.
11.jún. 2013 - 12:56 Vilhjálmur Birgisson

Stóriðjan borgar verkafólki betur

Ég sem formaður í verkalýðsfélagi á dálítið erfitt með að skilja stjórnmálaflokka eins og til dæmis vinstri flokkanna sem eru og virðast hafa ætíð verið á móti stóriðju. Ástæðan er einföld, ófaglærðu verkafólki býðst nánast hvergi jafn góð laun eins og greidd eru í stóriðjunum.
04.jún. 2013 - 11:51 Vilhjálmur Birgisson

Stöðvið nauðungarsölur strax

Það hefur alltaf legið fyrir að það mun taka nýja ríkisstjórn einhvern tíma að koma með endanlega útfærslu á því hvernig skuldleiðrétting vegna forsendubrests heimilanna verður framkvæmd. En það er gríðarlega mikilvægt að þeirri vinnu verðu flýtt eins og kostur er enda er íslenskum heimilum að blæða út.
28.maí 2013 - 20:48 Vilhjálmur Birgisson

Hvað ef allt hefði verið stöðvað?

Ég ber mikla virðingu fyrir öllum þeim sem láta umhverfismál sig varða, enda held ég að okkar þyki öllum vænt um landið okkar og viljum sýna því alla þá virðingu sem það á skilið.
27.maí 2013 - 13:55 Vilhjálmur Birgisson

Stjórnarlaun í lífeyrissjóði hækkuð um 87%

Eins flestir muna þá var gengið frá kjarasamningum á hinum almenna vinnumarkaði þann 5. maí 2011 undir heitinu „samræmd launastefna“. En í þessum kjarasamningum skuldbundu Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög Alþýðusambands Íslands, að undanskildu Verkalýðsfélagi Akraness, sig til þess að ganga frá öllum sínum kjarasamningum á þeim nótum að launahækkanir yrðu ekki hærri en 11,4% í þriggja ára samningi.
26.maí 2013 - 17:44 Vilhjálmur Birgisson

Komum Helguvík af stað

Ég er ekki í nokkrum vafa um að eitt af brýnustu verkefnum nýrrar ríkisstjórnar verður að koma Helguvíkur álveri Norðuráls af stað sem allra fyrst. Helguvíkur verkefnið mun skila uppundir 5000 ársverkum og um 1000 ársverkum til framtíðar þegar starfsemin verður komin á fulla ferð.
24.maí 2013 - 21:38 Vilhjálmur Birgisson

Sigmundur og Bjarni, stöðvið sjálftökuna!

Ég verð að viðurkenna það að ég er gjörsamlega orðlaus eftir að lesa svona frétt. Hér er um að ræða banka sem skildi efir sig blóðuga slóð og fékk m.a skuldir sinna viðskiptavina með gríðarlegum afslætti úr gamla Landsbankanum. Í mörgum tilfellum hefur bankinn svo innheimt þær kröfur að fullu.
24.maí 2013 - 14:12 Vilhjálmur Birgisson

Er fólk í fýlu?

Mér finnst eins og sumir séu jafnvel í fýlu vegna þess að í stjórnarsáttmálanum er skýrt kveðið á um að afnema verðtrygginguna og leiðrétta forsendubrestinn sem heimilin máttu þola.
22.maí 2013 - 13:47 Vilhjálmur Birgisson

Umsátrinu um heimilin er lokið

Mér virðist við fyrstu sýn að þessi sáttmáli geti gefið íslenskri alþýðu og íslenskri þjóð von um bjartari tíma ef vel tekst til en það er mat mitt að nú hilli undir skjaldborgina sem skuldsettum heimilum hefur verið lofað á undanförnum árum. Umsátrinu um heimilin er lokið.
15.maí 2013 - 21:25 Vilhjálmur Birgisson

Ógeðsleg pólitík

Menn verða að fyrirgefa mér en ég skil ekki þá umræðu sem á sér stað um þessar mundir og lýtur að stjórnarmyndunarviðræðum Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna. Eins og ég hef sagt áður þá hamast pólitískir andstæðingar þessara flokka á lyklaborðinu kófsveittir af bræði og standa jafnvel á hverju götuhorni og æpa og öskra: „svikin kosningaloforð!“ Og það þrátt fyrir að ekki sé búið að mynda neina ríkisstjórn.
14.maí 2013 - 22:20 Vilhjálmur Birgisson

Hamast á Sigmundi Davíð

Nú hamast pólitískir andstæðingar Sigmundar Davíðs eins og enginn sé morgundagurinn á lyklaborðinu og ég hef grun um að sumir þeirra hafi jafnvel puttabrotið sig, svo fast hafa þeir slegið á lyklaborðið.
14.maí 2013 - 12:09 Vilhjálmur Birgisson

Ólafur Ragnar – Til hamingju með daginn

Frá heimsókn eldri borgara af Akranesi á Bessastaði í fyrra. Eitt af fyrstu verkum okkar á skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness í dag var að draga íslenska fánann að húni í tilefni þess að forseti vor, Ólafur Ragnar Grímsson, á stórafmæli í dag en hann er sjötugur.
10.maí 2013 - 13:01 Vilhjálmur Birgisson

Vantraust á forseta ASÍ

Ekki þarf að fara í neinar grafgötur með það að forseti ASÍ ber umtalsverða ábyrgð á þeirri stöðu sem skuldsett alþýða og heimili landsins eru nú í, enda hefur forsetinn ætíð notað Alþýðusambandið til að verja fjármálakerfið á kostnað skuldsettrar alþýðu.
07.maí 2013 - 08:32 Vilhjálmur Birgisson

Skorað á Sigmund og Bjarna

Í gær kom á skrifstofuna til mín kona sem varð öryrki fyrir nokkrum árum vegna alvarlegs sjúkdóms sem hún fékk, en þessi ágæta kona tjáði mér að í dag eigi að bjóða húseignina ofan af henni. Það leyndi sér ekki angistin og kvíðinn sem skein úr augum hennar og ég skal alveg viðurkenna að ég fann gríðarlega til með henni.
03.maí 2013 - 14:18 Vilhjálmur Birgisson

Ís fyrir alla

Ég hef verið að glugga í ræður sumra forystumanna verkalýðshreyfingarinnar sem fluttar voru í tilefni 1. maí. Það sem vekur undrun mína er að í sumum ræðunum er gert stólpagrín að kosningaloforðum Framsóknarmanna, til dæmis talað um ís fyrir alla og annað í þeim dúr.
01.maí 2013 - 11:56 Vilhjálmur Birgisson

Ávarp á 1. maí

Kæru félagar innilega til hamingju með baráttudag verkalýðsins.
30.apr. 2013 - 11:45 Vilhjálmur Birgisson

Hanna Birna og forsendubresturinn

Ég sé að það verður lítið mál fyrir Sjálfstæðismenn að ná saman við tillögur Framsóknarmanna hvað varðar leiðréttingu á forsendubrestinum því í ræðu varaformanns Sjálfstæðismanna Hönnu Birnu Kristjánsdóttur á landsfundi flokksins frá árinu 2011 kemur fram að Hanna Birna er sammála þeim tillögum sem Framsóknarmenn hafa lagt til.
28.apr. 2013 - 11:53 Vilhjálmur Birgisson

Sigmundur fær umboðið

Jæja þá liggja niðurstöður kosningar fyrir og ég er afar ánægður með að eitt af aðalbaráttumálum Verkalýðsfélags Akraness undanfarin ár sem er afnám verðtryggingar og leiðrétting á forsendubresti heimilanna verður að öllum líkindum loksins að veruleika.
25.apr. 2013 - 13:34 Vilhjálmur Birgisson

Búið að mynda nýja stjórn?

Við mig hafi samband mjög ábyrgur einstaklingur og tjáði mér að hann hefði það eftir áræðanlegum heimildum að Sjálfstæðismenn, Samfylking og Björt framtíð séu nú þegar farin að ræða hugsanlegt ríkisstjórnarsamstarf.
19.apr. 2013 - 21:30 Vilhjálmur Birgisson

Ég á mér drauma

Ég á mér nokkra drauma eftir kosningar og vona svo innilega að þessir draumar verði að veruleika, enda hagsmunir alþýðunnar og heimilanna í húfi. 


18.apr. 2013 - 10:53 Vilhjálmur Birgisson

Flokkaflakkari og sleggjudómar

Já, sleggjudómum Kristins H Gunnarssonar í minn garð ætlar seint að ljúka, en núna er hann harðasti stuðningsmaður þess að verðtryggingarvítisvélin fái að halda áfram að murka lífið í heimilum þessa lands.
12.apr. 2013 - 12:56 Vilhjálmur Birgisson

Lífeyrir launafólks á hinum almenna vinnumarkaði skertur um 130 milljarða!

Eitt helsta baráttumál stjórnar og trúnaðarráðs Verkalýðsfélags  Akraness undanfarin ár hefur verið afnám verðtryggingar á neytendalánum til heimilanna, leiðrétting á forsendubrestinum sem heimilin hafa mátt þola vegna efnahagshrunsins og einnig að sett verði vaxtaþak á húsnæðislán heimilanna.
Félagið hefur m.a. lagt fram tillögur og ályktanir á þingum Starfsgreinasambands Íslands og einnig á þingum ASÍ, en því miður hafa þessar tillögur ætíð verið felldar á þessum þingum því það liggur fyrir að forysta ASÍ hefur alltaf verið á móti almennum leiðréttingum á forsendubrestinum sem heimilin urðu fyrir og að verðtryggingin verði afnumin.
27.mar. 2013 - 14:17 Vilhjálmur Birgisson

Netsóðar og smámenni

Það er þyngra en tárum taki að þurfa sitja undir miskunnarlausum árásum og rógburði frá manni eins Elíasi Svavari Kristinssyni sem hefur haldið úti skefjalausum árásum á mig á netmiðlum vítt og breitt.  Í þetta sinn heldur Elías því fram að mér sé „andskotans sama um alþýðu þessa lands“ því ég sé fyrst og fremst að hugsa um mínar gríðarlegu persónulegu skuldir. 
14.mar. 2013 - 10:28 Vilhjálmur Birgisson

Skjaldborgin og slökkvistarfið

Það verður að viðurkennast að framkoma gagnvart skuldsettum heimilum frá hruni hefur verið skelfileg.  Það er því rétt að rifja upp hvað núverandi stjórnvöld sögðu þegar þau tóku við árið 2009. Þau lofuðu skjaldborg um heimilin og sögðust ætla að slökkva þann eignabruna sem var farinn að skíðloga á íslenskum heimilum.
07.mar. 2013 - 14:12 Vilhjálmur Birgisson

Sanngirni, lýðskrum og hver á að borga?

Það er nöturlegt  og dapurlegt að heyra hvernig alltof margir stjórnmálamenn tala um vanda skuldsettra heimila þessa dagana.  En oft á tíðum er talað um lýðskrum ef deila á byrðum hrunsins jafnt á milli alþýðunnar og þeirra sem eiga fjármagnið hér á landi og öllu vilja ráða
01.mar. 2013 - 13:05 Vilhjálmur Birgisson

Þetta er neyðarkall fyrir skuldsett heimili

Í gær hringdi í mig maður sem sagðist hafa heyrt að 22 milljóna króna lán hafi hækkað um 360.000 kr. vegna hækkunar á neysluvísitölunni. Hann sagðist ekki vera viss hvort þessi hækkun hefði verið á einu ári eða hvort þetta átti hafa verið hækkun á einum mánuði.
22.feb. 2013 - 16:03 Vilhjálmur Birgisson

Sleggjudómum Kristins H. Gunnarssonar svarað

Það er óhætt að segja að maður skilur ekki svona mann eins og Kristinn H Gunnarson og ég ítreka að þetta eru mín lokaorð til hans, enda er þessi ágæti maður ekki svaraverður stundinni lengur, enda er ekki hægt að hlusta á svona „sleggjudóma“ frá honum lengur.
15.feb. 2013 - 13:50 Vilhjálmur Birgisson

Óskað eftir upplýsingum frá Landssambandi lífeyrissjóða

Eins og fram kom í úttektarskýrslu um lífeyrissjóðina sem var gerð opinber í fyrra töpuðu lífeyrissjóðirnir uppundir 500 milljörðum króna af lífeyri launafólks. Af þessum 500 milljörðum voru 36,4 milljarðar bókfærðir sem tap hjá lífeyrissjóðunum vegna gjaldmiðlavarnarsamninga.
13.feb. 2013 - 13:06 Vilhjálmur Birgisson

Munar 88 milljónum á óverðtryggðu og verðtryggðu láni!

Á fundi hjá Sjálfstæðismönnum um helgina þar sem ég hélt erindi m.a um verðtrygginguna þá fór ég yfir lánamöguleika einstaklinga til húsnæðiskaupa hjá Landsbankanum. Ég notaði lánareiknivél bankans til að skoða annars vegar óverðtryggt lán upp á 22 milljónir til 40 ára með 6,75% breytilegum vöxtum og hinsvegar verðtryggt lán með 3,75% breytilegum vöxtum.  En þessir lánamöguleikar eru í boði hjá Landsbankanum í dag.
31.jan. 2013 - 17:00 Vilhjálmur Birgisson

Hafa kostað jafn mikið og Icesave

Í gær var mér boðið að halda erindi hjá Framsóknarmönnum en fundurinn var haldinn á Grand hóteli og var fundarefnið afnám verðtryggingar og skuldavandi heimilanna. Það er óhætt að segja að fundurinn hafi verið afar góður. Kjaftfullt var út úr dyrum en talið er að yfir 300 manns hefðu mætt á fundinn.

Vilhjálmur Birgisson

Fæddur 5. ágúst 1965. Fjögurra barna faðir og Skagamaður í húð og hár. Hefur alla tíð unnið verkamannavinnu þar til hann tók við formennsku í Verkalýðsfélagi Akraness 19. nóvember 2003.

Er óflokksbundinn og hefur þá trú að forystumenn í verkalýðshreyfingunni eigi ekki að vera eyrnamerktir stjórnmálaflokkum. Hefur brennandi áhuga þjóðfélagsmálum og segir sína meiningu umbúðalaust.

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 12.6.2013
Þegar hæfileikana vantar
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 09.6.2013
Er Jafnréttisstofa nauðsynleg?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 09.6.2013
Merkileg frétt í Ríkisútvarpinu
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 10.6.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 9. hola - Myndband
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 17.6.2013
Engin kvöldskemmtun á 17. júní?
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 17.6.2013
Af hverju ekki allan hagnaðinn?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 11.6.2013
Stóriðjan borgar verkafólki betur
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.6.2013
Laugarvatn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.6.2013
Íslensk fyndni eða erlend
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 17.6.2013
Útúrsnúningar
Fleiri pressupennar