24.maí 2013 - 21:38
Vilhjálmur Birgisson
Ég verð að viðurkenna það að ég er gjörsamlega orðlaus eftir að lesa svona frétt. Hér er um að ræða banka sem skildi efir sig blóðuga slóð og fékk m.a skuldir sinna viðskiptavina með gríðarlegum afslætti úr gamla Landsbankanum. Í mörgum tilfellum hefur bankinn svo innheimt þær kröfur að fullu.
24.maí 2013 - 14:12
Vilhjálmur Birgisson
Mér finnst eins og sumir séu jafnvel í fýlu vegna þess að í stjórnarsáttmálanum er skýrt kveðið á um að afnema verðtrygginguna og leiðrétta forsendubrestinn sem heimilin máttu þola.
22.maí 2013 - 13:47
Vilhjálmur Birgisson
Mér virðist við fyrstu sýn að þessi sáttmáli geti gefið íslenskri alþýðu og íslenskri þjóð von um bjartari tíma ef vel tekst til en það er mat mitt að nú hilli undir skjaldborgina sem skuldsettum heimilum hefur verið lofað á undanförnum árum. Umsátrinu um heimilin er lokið.
15.maí 2013 - 21:25
Vilhjálmur Birgisson
Menn verða að fyrirgefa mér en ég skil ekki þá umræðu sem á sér stað um þessar mundir og lýtur að stjórnarmyndunarviðræðum Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna. Eins og ég hef sagt áður þá hamast pólitískir andstæðingar þessara flokka á lyklaborðinu kófsveittir af bræði og standa jafnvel á hverju götuhorni og æpa og öskra: „svikin kosningaloforð!“ Og það þrátt fyrir að ekki sé búið að mynda neina ríkisstjórn.
14.maí 2013 - 22:20
Vilhjálmur Birgisson
Nú hamast pólitískir andstæðingar Sigmundar Davíðs eins og enginn sé morgundagurinn á lyklaborðinu og ég hef grun um að sumir þeirra hafi jafnvel puttabrotið sig, svo fast hafa þeir slegið á lyklaborðið.
14.maí 2013 - 12:09
Vilhjálmur Birgisson
Eitt af fyrstu verkum okkar á skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness í dag var að draga íslenska fánann að húni í tilefni þess að forseti vor, Ólafur Ragnar Grímsson, á stórafmæli í dag en hann er sjötugur.
10.maí 2013 - 13:01
Vilhjálmur Birgisson
Ekki þarf að fara í neinar grafgötur með það að forseti ASÍ ber umtalsverða ábyrgð á þeirri stöðu sem skuldsett alþýða og heimili landsins eru nú í, enda hefur forsetinn ætíð notað Alþýðusambandið til að verja fjármálakerfið á kostnað skuldsettrar alþýðu.
07.maí 2013 - 08:32
Vilhjálmur Birgisson
Í gær kom á skrifstofuna til mín kona sem varð öryrki fyrir nokkrum árum vegna alvarlegs sjúkdóms sem hún fékk, en þessi ágæta kona tjáði mér að í dag eigi að bjóða húseignina ofan af henni. Það leyndi sér ekki angistin og kvíðinn sem skein úr augum hennar og ég skal alveg viðurkenna að ég fann gríðarlega til með henni.
03.maí 2013 - 14:18
Vilhjálmur Birgisson
Ég hef verið að glugga í ræður sumra forystumanna verkalýðshreyfingarinnar sem fluttar voru í tilefni 1. maí. Það sem vekur undrun mína er að í sumum ræðunum er gert stólpagrín að kosningaloforðum Framsóknarmanna, til dæmis talað um ís fyrir alla og annað í þeim dúr.
01.maí 2013 - 11:56
Vilhjálmur Birgisson
Kæru félagar innilega til hamingju með baráttudag verkalýðsins.
30.apr. 2013 - 11:45
Vilhjálmur Birgisson
Ég sé að það verður lítið mál fyrir Sjálfstæðismenn að ná saman við tillögur Framsóknarmanna hvað varðar leiðréttingu á forsendubrestinum því í ræðu varaformanns Sjálfstæðismanna Hönnu Birnu Kristjánsdóttur á landsfundi flokksins frá árinu 2011 kemur fram að Hanna Birna er sammála þeim tillögum sem Framsóknarmenn hafa lagt til.
28.apr. 2013 - 11:53
Vilhjálmur Birgisson
Jæja þá liggja niðurstöður kosningar fyrir og ég er afar ánægður með að eitt af aðalbaráttumálum Verkalýðsfélags Akraness undanfarin ár sem er afnám verðtryggingar og leiðrétting á forsendubresti heimilanna verður að öllum líkindum loksins að veruleika.
25.apr. 2013 - 13:34
Vilhjálmur Birgisson
Við mig hafi samband mjög ábyrgur einstaklingur og tjáði mér að hann hefði það eftir áræðanlegum heimildum að Sjálfstæðismenn, Samfylking og Björt framtíð séu nú þegar farin að ræða hugsanlegt ríkisstjórnarsamstarf.
19.apr. 2013 - 21:30
Vilhjálmur Birgisson
Ég á mér nokkra drauma eftir kosningar og vona svo innilega að þessir draumar verði að veruleika, enda hagsmunir alþýðunnar og heimilanna í húfi.
18.apr. 2013 - 10:53
Vilhjálmur Birgisson
Já, sleggjudómum Kristins H Gunnarssonar í minn garð ætlar seint að ljúka, en núna er hann harðasti stuðningsmaður þess að verðtryggingarvítisvélin fái að halda áfram að murka lífið í heimilum þessa lands.
12.apr. 2013 - 12:56
Vilhjálmur Birgisson
Eitt helsta baráttumál stjórnar og trúnaðarráðs Verkalýðsfélags Akraness undanfarin ár hefur verið afnám verðtryggingar á neytendalánum til heimilanna, leiðrétting á forsendubrestinum sem heimilin hafa mátt þola vegna efnahagshrunsins og einnig að sett verði vaxtaþak á húsnæðislán heimilanna.
Félagið hefur m.a. lagt fram tillögur og ályktanir á þingum Starfsgreinasambands Íslands og einnig á þingum ASÍ, en því miður hafa þessar tillögur ætíð verið felldar á þessum þingum því það liggur fyrir að forysta ASÍ hefur alltaf verið á móti almennum leiðréttingum á forsendubrestinum sem heimilin urðu fyrir og að verðtryggingin verði afnumin.
27.mar. 2013 - 14:17
Vilhjálmur Birgisson
Það er þyngra en tárum taki að þurfa sitja undir miskunnarlausum árásum og rógburði frá manni eins Elíasi Svavari Kristinssyni sem hefur haldið úti skefjalausum árásum á mig á netmiðlum vítt og breitt. Í þetta sinn heldur Elías því fram að mér sé „andskotans sama um alþýðu þessa lands“ því ég sé fyrst og fremst að hugsa um mínar gríðarlegu persónulegu skuldir.
14.mar. 2013 - 10:28
Vilhjálmur Birgisson
Það verður að viðurkennast að framkoma gagnvart skuldsettum heimilum frá hruni hefur verið skelfileg. Það er því rétt að rifja upp hvað núverandi stjórnvöld sögðu þegar þau tóku við árið 2009. Þau lofuðu skjaldborg um heimilin og sögðust ætla að slökkva þann eignabruna sem var farinn að skíðloga á íslenskum heimilum.
07.mar. 2013 - 14:12
Vilhjálmur Birgisson
Það er nöturlegt og dapurlegt að heyra hvernig alltof margir stjórnmálamenn tala um vanda skuldsettra heimila þessa dagana. En oft á tíðum er talað um lýðskrum ef deila á byrðum hrunsins jafnt á milli alþýðunnar og þeirra sem eiga fjármagnið hér á landi og öllu vilja ráða
01.mar. 2013 - 13:05
Vilhjálmur Birgisson
Í gær hringdi í mig maður sem sagðist hafa heyrt að 22 milljóna króna lán hafi hækkað um 360.000 kr. vegna hækkunar á neysluvísitölunni. Hann sagðist ekki vera viss hvort þessi hækkun hefði verið á einu ári eða hvort þetta átti hafa verið hækkun á einum mánuði.
22.feb. 2013 - 16:03
Vilhjálmur Birgisson
Það er óhætt að segja að maður skilur ekki svona mann eins og Kristinn H Gunnarson og ég ítreka að þetta eru mín lokaorð til hans, enda er þessi ágæti maður ekki svaraverður stundinni lengur, enda er ekki hægt að hlusta á svona „sleggjudóma“ frá honum lengur.
15.feb. 2013 - 13:50
Vilhjálmur Birgisson
Eins og fram kom í úttektarskýrslu um lífeyrissjóðina sem var gerð opinber í fyrra töpuðu lífeyrissjóðirnir uppundir 500 milljörðum króna af lífeyri launafólks. Af þessum 500 milljörðum voru 36,4 milljarðar bókfærðir sem tap hjá lífeyrissjóðunum vegna gjaldmiðlavarnarsamninga.
13.feb. 2013 - 13:06
Vilhjálmur Birgisson
Á fundi hjá Sjálfstæðismönnum um helgina þar sem ég hélt erindi m.a um verðtrygginguna þá fór ég yfir lánamöguleika einstaklinga til húsnæðiskaupa hjá Landsbankanum. Ég notaði lánareiknivél bankans til að skoða annars vegar óverðtryggt lán upp á 22 milljónir til 40 ára með 6,75% breytilegum vöxtum og hinsvegar verðtryggt lán með 3,75% breytilegum vöxtum. En þessir lánamöguleikar eru í boði hjá Landsbankanum í dag.
31.jan. 2013 - 17:00
Vilhjálmur Birgisson
Í gær var mér boðið að halda erindi hjá Framsóknarmönnum en fundurinn var haldinn á Grand hóteli og var fundarefnið afnám verðtryggingar og skuldavandi heimilanna. Það er óhætt að segja að fundurinn hafi verið afar góður. Kjaftfullt var út úr dyrum en talið er að yfir 300 manns hefðu mætt á fundinn.
30.jan. 2013 - 16:30
Vilhjálmur Birgisson
Þá er prófmál um lögmæti verðtryggingar komið til dómstóla.
20.jan. 2013 - 09:26
Vilhjálmur Birgisson
Í febrúar 2012 var upplýst í úttektarskýrslu um starfsemi lífeyrissjóðanna að lífeyrissjóðskerfið hefði tapað uppundir 500 milljörðum vegna glórulausra fjárfestinga í atvinnulífinu. En lífeyrissjóðirnir stigu trylltan dans með útrásarvíkingum og sem dæmi þá kemur fram í rannsóknarskýrslu Alþingis að Sigurður Einarsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings á að hafa sagt á ráðstefnu árið 2007 að ekki hefði verið hægt að fara í eitt einasta útrásarverkefni nema með aðkomu lífeyrissjóðanna, að hans mati.
12.jan. 2013 - 00:01
Vilhjálmur Birgisson
Síðastliðinn miðvikudag var ég í viðtali í Reykjavík síðdegis þar sem ég spurði hvort það væri virkilega þannig að enginn hefði eftirlit með mælingu Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs í ljósi þeirrar bláköldu staðreyndar að mælingin hefur gríðarleg áhrif á skuldir heimila og fyrirtækja.
07.des. 2012 - 12:53
Vilhjálmur Birgisson
Eins og fram hefur komið í fréttum ríkir nú umtalsverð óvissa varðandi atvinnuöryggi sjómanna, fiskvinnslufólks og annarra sem starfa í sjávarútvegi. Ástæðan er einföld, hið nýja auðlindagjald ríkisstjórnarinnar hefur stefnt atvinnuöryggi þessa fólks í verulega hættu. Í fréttum í gær kom fram að 62 starfsmönnum hefur nú verið sagt upp hjá þremur útgerðarfyrirtækjum og hef ég það sterklega á tilfinningunni að mun fleiri uppsagnir séu nú í burðarliðnum.
21.nóv. 2012 - 20:20
Vilhjálmur Birgisson
Eins og fram hefur komið í fréttum þá sakaði miðstjórn ASÍ mig um að hafa tekið þing ASÍ sem haldið var í október nánast í gíslingu með endalausum og síendurteknum ræðuhöldum sem tekið hefðu upp mikinn tíma, tafið þingstörf og haft áhrif á möguleika annarra til að tjá sig
04.nóv. 2012 - 13:27
Vilhjálmur Birgisson
Á þingi Alþýðusambands Íslands í lok október voru lífeyrismál umtalsvert til umfjöllunar enda eru ASÍ og SA búin að gera samkomulag sem er fólgið í því að iðgjöld í lífeyrissjóði á hinum almenna vinnumarkaði verði hækkuð úr 12% í 15,5% frá árinu 2014-2020.