18. maí 2012 - 15:01Vilhjálmur Birgisson
Lýðræðislegt ofbeldi
Á mánudaginn var sat ég ársfund Lífeyrissjóðs Festu og eðli málsins samkvæmt var staða sjóðsins og úttektarskýrsla sem Landssamband lífeyrissjóða lét gera umtalsvert til umræðu á þessum ársfundi.
Í úttektarskýrslunni kom fram að Lífeyrissjóðurinn Festa tapaði tæpum 20 milljörðum króna eða sem nam tæpum 36% af heildareignum sjóðsins. Það var einnig ýjað að því í úttektarskýrslunni að lög um verðbréfaviðskipti er lúta að innherjaupplýsingum hafi verið brotin. Á þeirri forsendu lagði ég fram tillögu um að fengið yrði óháð lögfræðilegt álit um hvort lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 hafi verið brotin.
Í þessu samhengi er rétt að benda á að einn stjórnarmaður í Lífeyrissjóði Festu var einnig stjórnarmaður í Sparisjóði Keflavíkur en Lífeyrissjóðurinn Festa tapaði tæpum 2 milljörðum króna vegna Sparisjóðs Keflavíkur. Um þessi mál er ítarlega fjallað í úttektarskýrslunni á bls. 90, 91, 96 og 97. Á þessum grunni var áðurnefnd tillaga lögð fram og mitt mat er að lög hafi klárlega verið brotin hvað innherjaupplýsingar varðar þó ég sé ekki löglærður maður.
Ég lagði einnig fram aðra tillögu um að fengið yrði óháð lögfræðilegt álit á því hvort að gjaldmiðlasamningar Lífeyrissjóðsins Festu hefðu staðist reglur sjóðsins og lög. Þessa tillögu lagði ég fram vegna þess að gjaldmiðlasamningarnir voru harðlega gagnrýndir í úttektarskýrslunni eins og fram kemur á bls. 94 í úttektarskýrslunni, en Lífeyrissjóðurinn Festa tapaði uppundir 4 milljörðum króna vegna gjaldmiðlasamninga. Á þeirri forsendu er mikilvægt að fá óháð álit á því hvort þessir samningar hafi staðist samþykktir sjóðsins og áðurnefnd lög.
Það er skemmst frá því að segja að báðar þessar tillögur voru felldar. Það er mér hulin ráðgáta að fundurinn skyldi ekki vilja fá það á hreint hvort að slíkt lögbrot hafi átt sér stað eður ei, sérstaklega í ljósi þess að úttektarskýrslan ýjar sterklega að því.
Það var hins vegar þyngra en tárum taki að verða vitni að því hvernig lýðræðið virkar innan lífeyrissjóðanna en í atkvæðagreiðslunni kom skýrt fram sá gríðarlegi lýðræðishalli sem er við stjórnun lífeyrissjóða. Hjá lífeyrissjóðum á hinum almenna vinnumarkaði fara atvinnurekendur með 50% vægi inni á fundunum og því er nánast útilokað fyrir hinn almenna sjóðsfélaga að koma nokkrum tillögum í gegn ef atvinnurekendur eru þeim mótfallnir. Á ársfundi Festu voru 60 fulltrúar sjóðsfélaga og 6 fulltrúar atvinnurekenda og virkaði eitt atkvæði hjá atvinnurekanda eins og 10 atkvæði gegn einu atkvæði frá fulltrúa sjóðsfélaga. Með öðrum orðum þá voru atvinnurekendur með jafn mörg atkvæði og 60 fulltrúar sjóðsfélaga, þetta er í mínum huga ekkert annað en lýðræðislegt ofbeldi enda er útilokað fyrir hinn almenna sjóðsfélaga að fá eina einustu tillögu samþykkta ef að atvinnurekendur eru henni andvígir. Þessi lýðræðishalli kom vel í ljós þegar fulltrúar atvinnurekenda greiddu atkvæði gegn þeim áðurnefndum tillögum.
Þennan lýðræðishalla og þetta lýðræðisofbeldi verður að stöðva í eitt skipti fyrir öll því það er ljóst að iðgjöld sem eru greidd í lífeyrissjóð eru eign sjóðsfélagans og því hefur atvinnurekandinn ekkert með það að gera að vera að ráðskast með fjármuni hins almenna sjóðsfélaga og hagsmuni hins almenna sjóðsfélaga.
Hækka stjórnarlaun um tugi prósenta.
Ég sagði einnig á þessum fundi að það færi um mig kaldur hrollur að heyra orð eins og framkvæmdastjórinn lét falla um að það væri mikil ábyrgð fólgin í því að stjórna lífeyrissjóði þegar hann rökstuddi launahækkun til stjórnar uppá tæp 30%
Ég spurði framkvæmdastjóra Festu hvar þessi ábyrgð lægi en nú liggur fyrir að lífeyrissjóðskerfið tapaði 500 milljörðum króna og ekki einn einasti framkvæmdastjóri eða forstjóri lífeyrissjóðs hefur borið eina einustu ábyrgð og virðast þeir ekki ætla að bera hana. Ég skoraði á framkvæmdastjóra Festu og aðra framkvæmdastjóra og forstjóra lífeyrissjóða að axla sína ábyrgð á þessu grímulausa tapi sem lífeyrissjóðirnir urðu fyrir og segja af sér, allir sem einn.
Ég sagði einnig á fundinum að það væri ömurlegt að sjá allar þær tugprósenta launahækkanir sem nú er verið að samþykkja á ársfundum lífeyrissjóðanna þessa dagana. Sérstaklega í ljósi þess að þetta eru að miklu leyti sömu aðilar og sömdu um svokallaða samræmda launastefnu, það er að segja það eru forystumenn í verkalýðshreyfingunni og forystumenn í Samtökum atvinnulífsins sem eru að fá þessar tugprósenta launahækkanir og þetta eru að stórum hluta sömu aðilar og treystu sér ekki til að semja um hærri launahækkanir en 11,4% og það til þriggja ára. Það kom til dæmis fram á fundinum að lífeyrissjóðurinn Gildi sem Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA hefur stýrt sem stjórnarformaður var að hækka stjórnarlaun um rúm 36% á dögunum. Það er eins og áður sagði sorglegt að semja handa verkafólki um samræmda launastefnu sem gaf 11,4% og það í þriggja ára samningi og horfa svo upp á sömu menn skammta sér launahækkun í gegnum stjórnarmennsku í lífeyrissjóðunum uppá rúm 36% svo ekki sé talað um 80% hækkun stjórnarlauna eins og hjá Framtakssjóði Íslands. Þessar launahækkanir eru að koma á sama tíma og lífeyrissjóðirnir tapa 500 milljörðum og verið er að skerða réttindi sjóðsfélaga eins og enginn sé morgundagurinn. Er þetta nýja siðferðið sem stjórnendur lífeyrissjóðanna hafa verið að boða? Að hækka stjórnarlaun um tugi prósenta á sama tíma og stórfellt tap og skerðingar eiga sér stað í sjóðunum?
Vantar 700 milljarða í kerfið.
Ég fór einnig yfir það á fundinum að það hafi verið nöturlegt og dapurlegt að sjá auglýsingar frá lífeyrissjóðselítunni eftir að úttektarskýrslan kom út. Í þessum heilsíðuauglýsingum kom fram að lífeyrissjóðskerfið stæði nokkuð traustum fótum og ætti heila 2.100 milljarða í eignum. Þessi auglýsingarherferð var stórundarleg í ljósi þess að það vantaði inn í þessa auglýsingu þá staðreynd að lífeyrissjóðskerfið vantar 700 milljarða til þess að geta staðið við sínar framtíðarskuldbindingar samkvæmt tryggingafræðilegri stöðu lífeyrissjóðskerfisins í heild sinni. Hvernig í ósköpunum geta menn þá sagt að þetta sé besta kerfi sem til er? Ég sagði einnig á ársfundinum að ég gerði orð Stefáns Ólafssonar, prófessors í félagsfræði við HÍ, að orðum mínum en Stefán sagði í útvarpsviðtali að þegar að þessir menn sem stjórna lífeyrissjóðunum fara að segja að þetta sé besta lífeyrissjóðskerfi í heimi þá eigi allar aðvörunarbjöllur að hringja hjá hinum almenna sjóðsfélaga. Og það er full ástæða til þess að skoða þetta kerfi algjörlega frá grunni og er forgangsverkefni að koma í veg fyrir það að það lýðræðisofbeldi sem birtist með atkvæðagreiðslu atvinnurekenda inni í lífeyrissjóðunum verði stöðvað án tafar.
24.maí 2013 - 21:38
Vilhjálmur Birgisson
Ég verð að viðurkenna það að ég er gjörsamlega orðlaus eftir að lesa svona frétt. Hér er um að ræða banka sem skildi efir sig blóðuga slóð og fékk m.a skuldir sinna viðskiptavina með gríðarlegum afslætti úr gamla Landsbankanum. Í mörgum tilfellum hefur bankinn svo innheimt þær kröfur að fullu.
24.maí 2013 - 14:12
Vilhjálmur Birgisson
Mér finnst eins og sumir séu jafnvel í fýlu vegna þess að í stjórnarsáttmálanum er skýrt kveðið á um að afnema verðtrygginguna og leiðrétta forsendubrestinn sem heimilin máttu þola.
22.maí 2013 - 13:47
Vilhjálmur Birgisson
Mér virðist við fyrstu sýn að þessi sáttmáli geti gefið íslenskri alþýðu og íslenskri þjóð von um bjartari tíma ef vel tekst til en það er mat mitt að nú hilli undir skjaldborgina sem skuldsettum heimilum hefur verið lofað á undanförnum árum. Umsátrinu um heimilin er lokið.
15.maí 2013 - 21:25
Vilhjálmur Birgisson
Menn verða að fyrirgefa mér en ég skil ekki þá umræðu sem á sér stað um þessar mundir og lýtur að stjórnarmyndunarviðræðum Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna. Eins og ég hef sagt áður þá hamast pólitískir andstæðingar þessara flokka á lyklaborðinu kófsveittir af bræði og standa jafnvel á hverju götuhorni og æpa og öskra: „svikin kosningaloforð!“ Og það þrátt fyrir að ekki sé búið að mynda neina ríkisstjórn.
14.maí 2013 - 22:20
Vilhjálmur Birgisson
Nú hamast pólitískir andstæðingar Sigmundar Davíðs eins og enginn sé morgundagurinn á lyklaborðinu og ég hef grun um að sumir þeirra hafi jafnvel puttabrotið sig, svo fast hafa þeir slegið á lyklaborðið.
14.maí 2013 - 12:09
Vilhjálmur Birgisson
Eitt af fyrstu verkum okkar á skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness í dag var að draga íslenska fánann að húni í tilefni þess að forseti vor, Ólafur Ragnar Grímsson, á stórafmæli í dag en hann er sjötugur.
10.maí 2013 - 13:01
Vilhjálmur Birgisson
Ekki þarf að fara í neinar grafgötur með það að forseti ASÍ ber umtalsverða ábyrgð á þeirri stöðu sem skuldsett alþýða og heimili landsins eru nú í, enda hefur forsetinn ætíð notað Alþýðusambandið til að verja fjármálakerfið á kostnað skuldsettrar alþýðu.
07.maí 2013 - 08:32
Vilhjálmur Birgisson
Í gær kom á skrifstofuna til mín kona sem varð öryrki fyrir nokkrum árum vegna alvarlegs sjúkdóms sem hún fékk, en þessi ágæta kona tjáði mér að í dag eigi að bjóða húseignina ofan af henni. Það leyndi sér ekki angistin og kvíðinn sem skein úr augum hennar og ég skal alveg viðurkenna að ég fann gríðarlega til með henni.
03.maí 2013 - 14:18
Vilhjálmur Birgisson
Ég hef verið að glugga í ræður sumra forystumanna verkalýðshreyfingarinnar sem fluttar voru í tilefni 1. maí. Það sem vekur undrun mína er að í sumum ræðunum er gert stólpagrín að kosningaloforðum Framsóknarmanna, til dæmis talað um ís fyrir alla og annað í þeim dúr.
01.maí 2013 - 11:56
Vilhjálmur Birgisson
Kæru félagar innilega til hamingju með baráttudag verkalýðsins.
30.apr. 2013 - 11:45
Vilhjálmur Birgisson
Ég sé að það verður lítið mál fyrir Sjálfstæðismenn að ná saman við tillögur Framsóknarmanna hvað varðar leiðréttingu á forsendubrestinum því í ræðu varaformanns Sjálfstæðismanna Hönnu Birnu Kristjánsdóttur á landsfundi flokksins frá árinu 2011 kemur fram að Hanna Birna er sammála þeim tillögum sem Framsóknarmenn hafa lagt til.
28.apr. 2013 - 11:53
Vilhjálmur Birgisson
Jæja þá liggja niðurstöður kosningar fyrir og ég er afar ánægður með að eitt af aðalbaráttumálum Verkalýðsfélags Akraness undanfarin ár sem er afnám verðtryggingar og leiðrétting á forsendubresti heimilanna verður að öllum líkindum loksins að veruleika.
25.apr. 2013 - 13:34
Vilhjálmur Birgisson
Við mig hafi samband mjög ábyrgur einstaklingur og tjáði mér að hann hefði það eftir áræðanlegum heimildum að Sjálfstæðismenn, Samfylking og Björt framtíð séu nú þegar farin að ræða hugsanlegt ríkisstjórnarsamstarf.
19.apr. 2013 - 21:30
Vilhjálmur Birgisson
Ég á mér nokkra drauma eftir kosningar og vona svo innilega að þessir draumar verði að veruleika, enda hagsmunir alþýðunnar og heimilanna í húfi.
18.apr. 2013 - 10:53
Vilhjálmur Birgisson
Já, sleggjudómum Kristins H Gunnarssonar í minn garð ætlar seint að ljúka, en núna er hann harðasti stuðningsmaður þess að verðtryggingarvítisvélin fái að halda áfram að murka lífið í heimilum þessa lands.
12.apr. 2013 - 12:56
Vilhjálmur Birgisson
Eitt helsta baráttumál stjórnar og trúnaðarráðs Verkalýðsfélags Akraness undanfarin ár hefur verið afnám verðtryggingar á neytendalánum til heimilanna, leiðrétting á forsendubrestinum sem heimilin hafa mátt þola vegna efnahagshrunsins og einnig að sett verði vaxtaþak á húsnæðislán heimilanna.
Félagið hefur m.a. lagt fram tillögur og ályktanir á þingum Starfsgreinasambands Íslands og einnig á þingum ASÍ, en því miður hafa þessar tillögur ætíð verið felldar á þessum þingum því það liggur fyrir að forysta ASÍ hefur alltaf verið á móti almennum leiðréttingum á forsendubrestinum sem heimilin urðu fyrir og að verðtryggingin verði afnumin.
27.mar. 2013 - 14:17
Vilhjálmur Birgisson
Það er þyngra en tárum taki að þurfa sitja undir miskunnarlausum árásum og rógburði frá manni eins Elíasi Svavari Kristinssyni sem hefur haldið úti skefjalausum árásum á mig á netmiðlum vítt og breitt. Í þetta sinn heldur Elías því fram að mér sé „andskotans sama um alþýðu þessa lands“ því ég sé fyrst og fremst að hugsa um mínar gríðarlegu persónulegu skuldir.
14.mar. 2013 - 10:28
Vilhjálmur Birgisson
Það verður að viðurkennast að framkoma gagnvart skuldsettum heimilum frá hruni hefur verið skelfileg. Það er því rétt að rifja upp hvað núverandi stjórnvöld sögðu þegar þau tóku við árið 2009. Þau lofuðu skjaldborg um heimilin og sögðust ætla að slökkva þann eignabruna sem var farinn að skíðloga á íslenskum heimilum.
07.mar. 2013 - 14:12
Vilhjálmur Birgisson
Það er nöturlegt og dapurlegt að heyra hvernig alltof margir stjórnmálamenn tala um vanda skuldsettra heimila þessa dagana. En oft á tíðum er talað um lýðskrum ef deila á byrðum hrunsins jafnt á milli alþýðunnar og þeirra sem eiga fjármagnið hér á landi og öllu vilja ráða
01.mar. 2013 - 13:05
Vilhjálmur Birgisson
Í gær hringdi í mig maður sem sagðist hafa heyrt að 22 milljóna króna lán hafi hækkað um 360.000 kr. vegna hækkunar á neysluvísitölunni. Hann sagðist ekki vera viss hvort þessi hækkun hefði verið á einu ári eða hvort þetta átti hafa verið hækkun á einum mánuði.
22.feb. 2013 - 16:03
Vilhjálmur Birgisson
Það er óhætt að segja að maður skilur ekki svona mann eins og Kristinn H Gunnarson og ég ítreka að þetta eru mín lokaorð til hans, enda er þessi ágæti maður ekki svaraverður stundinni lengur, enda er ekki hægt að hlusta á svona „sleggjudóma“ frá honum lengur.
15.feb. 2013 - 13:50
Vilhjálmur Birgisson
Eins og fram kom í úttektarskýrslu um lífeyrissjóðina sem var gerð opinber í fyrra töpuðu lífeyrissjóðirnir uppundir 500 milljörðum króna af lífeyri launafólks. Af þessum 500 milljörðum voru 36,4 milljarðar bókfærðir sem tap hjá lífeyrissjóðunum vegna gjaldmiðlavarnarsamninga.
13.feb. 2013 - 13:06
Vilhjálmur Birgisson
Á fundi hjá Sjálfstæðismönnum um helgina þar sem ég hélt erindi m.a um verðtrygginguna þá fór ég yfir lánamöguleika einstaklinga til húsnæðiskaupa hjá Landsbankanum. Ég notaði lánareiknivél bankans til að skoða annars vegar óverðtryggt lán upp á 22 milljónir til 40 ára með 6,75% breytilegum vöxtum og hinsvegar verðtryggt lán með 3,75% breytilegum vöxtum. En þessir lánamöguleikar eru í boði hjá Landsbankanum í dag.
31.jan. 2013 - 17:00
Vilhjálmur Birgisson
Í gær var mér boðið að halda erindi hjá Framsóknarmönnum en fundurinn var haldinn á Grand hóteli og var fundarefnið afnám verðtryggingar og skuldavandi heimilanna. Það er óhætt að segja að fundurinn hafi verið afar góður. Kjaftfullt var út úr dyrum en talið er að yfir 300 manns hefðu mætt á fundinn.
30.jan. 2013 - 16:30
Vilhjálmur Birgisson
Þá er prófmál um lögmæti verðtryggingar komið til dómstóla.
20.jan. 2013 - 09:26
Vilhjálmur Birgisson
Í febrúar 2012 var upplýst í úttektarskýrslu um starfsemi lífeyrissjóðanna að lífeyrissjóðskerfið hefði tapað uppundir 500 milljörðum vegna glórulausra fjárfestinga í atvinnulífinu. En lífeyrissjóðirnir stigu trylltan dans með útrásarvíkingum og sem dæmi þá kemur fram í rannsóknarskýrslu Alþingis að Sigurður Einarsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings á að hafa sagt á ráðstefnu árið 2007 að ekki hefði verið hægt að fara í eitt einasta útrásarverkefni nema með aðkomu lífeyrissjóðanna, að hans mati.
12.jan. 2013 - 00:01
Vilhjálmur Birgisson
Síðastliðinn miðvikudag var ég í viðtali í Reykjavík síðdegis þar sem ég spurði hvort það væri virkilega þannig að enginn hefði eftirlit með mælingu Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs í ljósi þeirrar bláköldu staðreyndar að mælingin hefur gríðarleg áhrif á skuldir heimila og fyrirtækja.
07.des. 2012 - 12:53
Vilhjálmur Birgisson
Eins og fram hefur komið í fréttum ríkir nú umtalsverð óvissa varðandi atvinnuöryggi sjómanna, fiskvinnslufólks og annarra sem starfa í sjávarútvegi. Ástæðan er einföld, hið nýja auðlindagjald ríkisstjórnarinnar hefur stefnt atvinnuöryggi þessa fólks í verulega hættu. Í fréttum í gær kom fram að 62 starfsmönnum hefur nú verið sagt upp hjá þremur útgerðarfyrirtækjum og hef ég það sterklega á tilfinningunni að mun fleiri uppsagnir séu nú í burðarliðnum.
21.nóv. 2012 - 20:20
Vilhjálmur Birgisson
Eins og fram hefur komið í fréttum þá sakaði miðstjórn ASÍ mig um að hafa tekið þing ASÍ sem haldið var í október nánast í gíslingu með endalausum og síendurteknum ræðuhöldum sem tekið hefðu upp mikinn tíma, tafið þingstörf og haft áhrif á möguleika annarra til að tjá sig
04.nóv. 2012 - 13:27
Vilhjálmur Birgisson
Á þingi Alþýðusambands Íslands í lok október voru lífeyrismál umtalsvert til umfjöllunar enda eru ASÍ og SA búin að gera samkomulag sem er fólgið í því að iðgjöld í lífeyrissjóði á hinum almenna vinnumarkaði verði hækkuð úr 12% í 15,5% frá árinu 2014-2020.