17. mar. 2012 - 10:00Vilhjálmur Birgisson

Af hverju er alkóhólismi ekki viðkenndur sem sjúkdómur?

 Það er sorglegt til þess að vita að alltof mörg fyrirtæki neita alfarið að greiða sínum starfsmönnum vinnutap þegar þeir þurfa að leita sér lækninga vegna áfengis- eða fíkniefnaneyslu.  Vissulega eru þó til undantekningar þar sem fyrirtæki sýna þessum sjúkdómi fullan skilning og greiða allt vinnutap samkvæmt kjarasamningum og fyrir það ber að þakka.
 
En eins og áður sagði þá eru það hins vegar alltof mörg fyrirtæki sem viðurkenna ekki alkóhólisma sem sjúkdóm sem er miður. Það eru fáar fjölskyldur hér á landi sem ekki þekkja þann bölvald sem áfengis- og fíkniefnaneysla getur leitt af sér og hvernig sú neysla getur splundrað og étið heilu fjölskyldurnar innan frá eins og illkynja krabbamein. Því er gríðarlega mikilvægt að einstaklingar sem þurfa að leita sér lækninga vegna alkóhólisma geti gert það án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að verða fyrir miklu launatapi sökum þess, enda á sjúklingurinn fullt í fangi með að reyna að ná tökum á sínum sjúkdómi.
Maður spyr sig hví í ósköpunum þessi sjúkdómur sé ekki viðurkenndur á sama hátt og aðrir sjúkdómar sem geta valdið fólki vinnutapi og skertri starfsgetu.
 
Það liggur fyrir að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) telur áfengis- og fíkniefnavandann vera eitt mesta heilbrigðisvandamál sem jarðarbúar standa frammi fyrir samanber ályktun sem gerð var fyrst árið 1979 og oftar síðar. Það liggur einnig fyrir að hér er um gríðarlega hagsmuni að ræða, bæði fyrir atvinnurekendur sem og þjóðfélagið í heild sinni enda er áætlað að áfengisvandamálið kosti þjóðfélagið frá 53 upp í 85 milljarða á ári. Einnig er talið að 83 ótímabær dauðsföll tengist þessum skaðvaldi en þetta eru niðurstöður úr meistaraprófsrannsókn sem Ari Matthíasson gerði í heilsuhagfræðum árið 2008. Á þessu sést hversu gríðarlega mikilvægt það er að fyrirtæki sýni þessum sjúkdómi fullkominn skilning enda eru hagsmunir fyrirtækja svo sannarlega til staðar.
 
Brýnt verkefni verkalýðshreyfingarinnar
 
Þetta þarf að vera eitt af brýnustu verkefnum verkalýðshreyfingarinnar að ganga frá því við Samtök atvinnulífsins að öllum atvinnurekendum beri skylda til að greiða starfsmönnum veikindadaga samkvæmt gildandi kjarasamningum með nákvæmlega sama hætti og þegar fólk leitar sér lækninga vegna annarra sjúkdóma. Reyndar er það mitt mat að þau fyrirtæki sem ekki viðurkenna þetta sem sjúkdóm hverfi frá þeirri þröngsýni og oft á tíðum fordómum og greiði starfsmönnum það vinnutap sem þeir verða fyrir þegar þeir leita sér lækninga við sínum meinum. Það er til gríðarlegra vansa fyrir þau fyrirtæki sem neita að greiða sínum starfsmönnum þegar þeir leita sér lækninga á Vogi og öðrum sambærilegum meðferðarstofnunum.
 
Ég veit til þess að allflest stéttarfélög hér á landi styðja sína félagsmenn í formi sjúkradagpeninga þegar þeir leita sér lækninga vegna áfengis- eða fíkniefnasjúkdóma en sú greiðsla nemur um 80% af þeim launum sem viðkomandi hafði. Það er hins vegar 20% minna ef hann fengi veikindadagana greidda frá atvinnurekandanum. Ég skora því á öll fyrirtæki að viðurkenna alkóhólisma sem sjúkdóm og greiða starfsfólki laun með sambærilegum hætti og um aðra sjúkdóma sé að ræða.
 
Verkalýðsfélag Akraness er stolt af því að hafa stutt SÁÁ umtalsvert á liðnum árum miðað við stærð félagsins til að vinna að því góða starfi sem þar er unnið enda eru fjölmargir félagsmenn sem hafa þurft að leita sér lækninga hjá áðurnefndum samtökum á liðnum árum og ártugum. En eins og allir vita er SÁÁ að vinna frábært starf.



15.maí 2013 - 21:25 Vilhjálmur Birgisson

Ógeðsleg pólitík

Menn verða að fyrirgefa mér en ég skil ekki þá umræðu sem á sér stað um þessar mundir og lýtur að stjórnarmyndunarviðræðum Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna. Eins og ég hef sagt áður þá hamast pólitískir andstæðingar þessara flokka á lyklaborðinu kófsveittir af bræði og standa jafnvel á hverju götuhorni og æpa og öskra: „svikin kosningaloforð!“ Og það þrátt fyrir að ekki sé búið að mynda neina ríkisstjórn.
14.maí 2013 - 22:20 Vilhjálmur Birgisson

Hamast á Sigmundi Davíð

Nú hamast pólitískir andstæðingar Sigmundar Davíðs eins og enginn sé morgundagurinn á lyklaborðinu og ég hef grun um að sumir þeirra hafi jafnvel puttabrotið sig, svo fast hafa þeir slegið á lyklaborðið.
14.maí 2013 - 12:09 Vilhjálmur Birgisson

Ólafur Ragnar – Til hamingju með daginn

Frá heimsókn eldri borgara af Akranesi á Bessastaði í fyrra. Eitt af fyrstu verkum okkar á skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness í dag var að draga íslenska fánann að húni í tilefni þess að forseti vor, Ólafur Ragnar Grímsson, á stórafmæli í dag en hann er sjötugur.
10.maí 2013 - 13:01 Vilhjálmur Birgisson

Vantraust á forseta ASÍ

Ekki þarf að fara í neinar grafgötur með það að forseti ASÍ ber umtalsverða ábyrgð á þeirri stöðu sem skuldsett alþýða og heimili landsins eru nú í, enda hefur forsetinn ætíð notað Alþýðusambandið til að verja fjármálakerfið á kostnað skuldsettrar alþýðu.
07.maí 2013 - 08:32 Vilhjálmur Birgisson

Skorað á Sigmund og Bjarna

Í gær kom á skrifstofuna til mín kona sem varð öryrki fyrir nokkrum árum vegna alvarlegs sjúkdóms sem hún fékk, en þessi ágæta kona tjáði mér að í dag eigi að bjóða húseignina ofan af henni. Það leyndi sér ekki angistin og kvíðinn sem skein úr augum hennar og ég skal alveg viðurkenna að ég fann gríðarlega til með henni.
03.maí 2013 - 14:18 Vilhjálmur Birgisson

Ís fyrir alla

Ég hef verið að glugga í ræður sumra forystumanna verkalýðshreyfingarinnar sem fluttar voru í tilefni 1. maí. Það sem vekur undrun mína er að í sumum ræðunum er gert stólpagrín að kosningaloforðum Framsóknarmanna, til dæmis talað um ís fyrir alla og annað í þeim dúr.
01.maí 2013 - 11:56 Vilhjálmur Birgisson

Ávarp á 1. maí

Kæru félagar innilega til hamingju með baráttudag verkalýðsins.
30.apr. 2013 - 11:45 Vilhjálmur Birgisson

Hanna Birna og forsendubresturinn

Ég sé að það verður lítið mál fyrir Sjálfstæðismenn að ná saman við tillögur Framsóknarmanna hvað varðar leiðréttingu á forsendubrestinum því í ræðu varaformanns Sjálfstæðismanna Hönnu Birnu Kristjánsdóttur á landsfundi flokksins frá árinu 2011 kemur fram að Hanna Birna er sammála þeim tillögum sem Framsóknarmenn hafa lagt til.
28.apr. 2013 - 11:53 Vilhjálmur Birgisson

Sigmundur fær umboðið

Jæja þá liggja niðurstöður kosningar fyrir og ég er afar ánægður með að eitt af aðalbaráttumálum Verkalýðsfélags Akraness undanfarin ár sem er afnám verðtryggingar og leiðrétting á forsendubresti heimilanna verður að öllum líkindum loksins að veruleika.
25.apr. 2013 - 13:34 Vilhjálmur Birgisson

Búið að mynda nýja stjórn?

Við mig hafi samband mjög ábyrgur einstaklingur og tjáði mér að hann hefði það eftir áræðanlegum heimildum að Sjálfstæðismenn, Samfylking og Björt framtíð séu nú þegar farin að ræða hugsanlegt ríkisstjórnarsamstarf.
19.apr. 2013 - 21:30 Vilhjálmur Birgisson

Ég á mér drauma

Ég á mér nokkra drauma eftir kosningar og vona svo innilega að þessir draumar verði að veruleika, enda hagsmunir alþýðunnar og heimilanna í húfi. 


18.apr. 2013 - 10:53 Vilhjálmur Birgisson

Flokkaflakkari og sleggjudómar

Já, sleggjudómum Kristins H Gunnarssonar í minn garð ætlar seint að ljúka, en núna er hann harðasti stuðningsmaður þess að verðtryggingarvítisvélin fái að halda áfram að murka lífið í heimilum þessa lands.
12.apr. 2013 - 12:56 Vilhjálmur Birgisson

Lífeyrir launafólks á hinum almenna vinnumarkaði skertur um 130 milljarða!

Eitt helsta baráttumál stjórnar og trúnaðarráðs Verkalýðsfélags  Akraness undanfarin ár hefur verið afnám verðtryggingar á neytendalánum til heimilanna, leiðrétting á forsendubrestinum sem heimilin hafa mátt þola vegna efnahagshrunsins og einnig að sett verði vaxtaþak á húsnæðislán heimilanna.
Félagið hefur m.a. lagt fram tillögur og ályktanir á þingum Starfsgreinasambands Íslands og einnig á þingum ASÍ, en því miður hafa þessar tillögur ætíð verið felldar á þessum þingum því það liggur fyrir að forysta ASÍ hefur alltaf verið á móti almennum leiðréttingum á forsendubrestinum sem heimilin urðu fyrir og að verðtryggingin verði afnumin.
27.mar. 2013 - 14:17 Vilhjálmur Birgisson

Netsóðar og smámenni

Það er þyngra en tárum taki að þurfa sitja undir miskunnarlausum árásum og rógburði frá manni eins Elíasi Svavari Kristinssyni sem hefur haldið úti skefjalausum árásum á mig á netmiðlum vítt og breitt.  Í þetta sinn heldur Elías því fram að mér sé „andskotans sama um alþýðu þessa lands“ því ég sé fyrst og fremst að hugsa um mínar gríðarlegu persónulegu skuldir. 
14.mar. 2013 - 10:28 Vilhjálmur Birgisson

Skjaldborgin og slökkvistarfið

Það verður að viðurkennast að framkoma gagnvart skuldsettum heimilum frá hruni hefur verið skelfileg.  Það er því rétt að rifja upp hvað núverandi stjórnvöld sögðu þegar þau tóku við árið 2009. Þau lofuðu skjaldborg um heimilin og sögðust ætla að slökkva þann eignabruna sem var farinn að skíðloga á íslenskum heimilum.
07.mar. 2013 - 14:12 Vilhjálmur Birgisson

Sanngirni, lýðskrum og hver á að borga?

Það er nöturlegt  og dapurlegt að heyra hvernig alltof margir stjórnmálamenn tala um vanda skuldsettra heimila þessa dagana.  En oft á tíðum er talað um lýðskrum ef deila á byrðum hrunsins jafnt á milli alþýðunnar og þeirra sem eiga fjármagnið hér á landi og öllu vilja ráða
01.mar. 2013 - 13:05 Vilhjálmur Birgisson

Þetta er neyðarkall fyrir skuldsett heimili

Í gær hringdi í mig maður sem sagðist hafa heyrt að 22 milljóna króna lán hafi hækkað um 360.000 kr. vegna hækkunar á neysluvísitölunni. Hann sagðist ekki vera viss hvort þessi hækkun hefði verið á einu ári eða hvort þetta átti hafa verið hækkun á einum mánuði.
22.feb. 2013 - 16:03 Vilhjálmur Birgisson

Sleggjudómum Kristins H. Gunnarssonar svarað

Það er óhætt að segja að maður skilur ekki svona mann eins og Kristinn H Gunnarson og ég ítreka að þetta eru mín lokaorð til hans, enda er þessi ágæti maður ekki svaraverður stundinni lengur, enda er ekki hægt að hlusta á svona „sleggjudóma“ frá honum lengur.
15.feb. 2013 - 13:50 Vilhjálmur Birgisson

Óskað eftir upplýsingum frá Landssambandi lífeyrissjóða

Eins og fram kom í úttektarskýrslu um lífeyrissjóðina sem var gerð opinber í fyrra töpuðu lífeyrissjóðirnir uppundir 500 milljörðum króna af lífeyri launafólks. Af þessum 500 milljörðum voru 36,4 milljarðar bókfærðir sem tap hjá lífeyrissjóðunum vegna gjaldmiðlavarnarsamninga.
13.feb. 2013 - 13:06 Vilhjálmur Birgisson

Munar 88 milljónum á óverðtryggðu og verðtryggðu láni!

Á fundi hjá Sjálfstæðismönnum um helgina þar sem ég hélt erindi m.a um verðtrygginguna þá fór ég yfir lánamöguleika einstaklinga til húsnæðiskaupa hjá Landsbankanum. Ég notaði lánareiknivél bankans til að skoða annars vegar óverðtryggt lán upp á 22 milljónir til 40 ára með 6,75% breytilegum vöxtum og hinsvegar verðtryggt lán með 3,75% breytilegum vöxtum.  En þessir lánamöguleikar eru í boði hjá Landsbankanum í dag.
31.jan. 2013 - 17:00 Vilhjálmur Birgisson

Hafa kostað jafn mikið og Icesave

Í gær var mér boðið að halda erindi hjá Framsóknarmönnum en fundurinn var haldinn á Grand hóteli og var fundarefnið afnám verðtryggingar og skuldavandi heimilanna. Það er óhætt að segja að fundurinn hafi verið afar góður. Kjaftfullt var út úr dyrum en talið er að yfir 300 manns hefðu mætt á fundinn.
30.jan. 2013 - 16:30 Vilhjálmur Birgisson

Verðtryggingarmál, stutt af Verkalýðsfélagi Akraness komið fyrir dóm

Þá er prófmál um lögmæti verðtryggingar komið til dómstóla.
20.jan. 2013 - 09:26 Vilhjálmur Birgisson

Lífeyrissjóðirnir tapa tugum milljarða til viðbótar – enginn ætlar að bera ábyrgð

Í febrúar 2012 var upplýst í úttektarskýrslu um starfsemi lífeyrissjóðanna að lífeyrissjóðskerfið hefði tapað uppundir 500 milljörðum vegna glórulausra fjárfestinga í atvinnulífinu. En lífeyrissjóðirnir stigu trylltan dans með útrásarvíkingum og sem dæmi þá kemur fram í rannsóknarskýrslu Alþingis að Sigurður Einarsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings á að hafa sagt á ráðstefnu árið 2007 að ekki hefði verið hægt að fara í eitt einasta útrásarverkefni nema með aðkomu lífeyrissjóðanna, að hans mati.
12.jan. 2013 - 00:01 Vilhjálmur Birgisson

Matarverð hækkað um 115%!

Síðastliðinn miðvikudag var ég í viðtali í Reykjavík síðdegis þar sem ég spurði hvort það væri virkilega þannig að enginn hefði eftirlit með mælingu Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs í ljósi þeirrar bláköldu staðreyndar að mælingin hefur gríðarleg áhrif á skuldir heimila og fyrirtækja.
07.des. 2012 - 12:53 Vilhjálmur Birgisson

Skattastefna stjórnvalda stefnir atvinnuöryggi fólks í sjávarútvegi í stórhættu

Eins og fram hefur komið í fréttum ríkir nú umtalsverð óvissa varðandi atvinnuöryggi sjómanna, fiskvinnslufólks og annarra sem starfa í sjávarútvegi. Ástæðan er einföld, hið nýja auðlindagjald ríkisstjórnarinnar hefur stefnt atvinnuöryggi þessa fólks í verulega hættu. Í fréttum í gær kom fram að 62 starfsmönnum hefur nú verið sagt upp hjá þremur útgerðarfyrirtækjum og hef ég það sterklega á tilfinningunni að mun fleiri uppsagnir séu nú í burðarliðnum.
21.nóv. 2012 - 20:20 Vilhjálmur Birgisson

Ræða sem ég flutti á þingi ASÍ í október - Samræmd launastefna

Eins og fram hefur komið í fréttum þá sakaði miðstjórn ASÍ mig um að hafa tekið þing ASÍ sem haldið var í október nánast í gíslingu með endalausum og síendurteknum ræðuhöldum sem tekið hefðu upp mikinn tíma, tafið þingstörf og haft áhrif á möguleika annarra til að tjá sig
04.nóv. 2012 - 13:27 Vilhjálmur Birgisson

FME skýrsla – búið að skerða lífeyrisréttindi um 130 milljarða frá hruni

Á þingi Alþýðusambands Íslands í lok október voru lífeyrismál umtalsvert til umfjöllunar enda eru ASÍ og SA búin að gera samkomulag sem er fólgið í því að iðgjöld í lífeyrissjóði á hinum almenna vinnumarkaði verði hækkuð úr 12% í 15,5% frá árinu 2014-2020.
26.okt. 2012 - 22:21 Vilhjálmur Birgisson

Hvar er skjaldborgin?

Í fréttum hefur komið fram að Íslandsbanki hefur hafið endurútreikning á lánum einstaklinga og fyrirtækja sem bankinn telur að falli undir dóma Hæstaréttar frá 15. febrúar og 18. október sl. Um er að ræða ólögmæt gengistryggð lán sem lántakar hafa greitt af í samræmi við gildandi skilmála á hverjum tíma.
25.okt. 2012 - 15:44 Vilhjálmur Birgisson

Stjórnendur Eimskips skammist ykkar aftur

Það er þyngra en tárum taki að fyrirtæki sem skilur eftir sig eyðileggingarslóð upp á 117 milljarða króna skuli voga sér að misbjóða almenningi hér á landi með þessari ákvörðun sinni er lýtur að kaupréttarsamningum lykilstjórnenda.
23.okt. 2012 - 15:06 Vilhjálmur Birgisson

Gjá breyttist í hyldýpi – ræða á ASÍ þingi

Þing Alþýðusamband Íslands var haldið 17. – 19. október síðastliðinn. Verkalýðsfélag Akraness lagði fram nokkrar ályktanir og tillögur á þessu þingi og ein sú brýnasta sem félagið lagði fyrir þingið var ályktun um afnám verðtryggingar á neytendalánum hér á landi. En orðrétt hljóðaði ályktunin með eftirfarandi hætti: Þing Alþýðusambands Íslands skorar á Alþingi Íslendinga að afnema verðtryggingu á neytendalánum til einstaklinga og heimila enda er hér um að ræða samfélagslegt mein sem leikið hefur skuldsett heimili skelfilega á liðnum árum. Einnig skorar þing ASÍ á Alþingi að sett verði þak á vexti vegna húsnæðislána.

Vilhjálmur Birgisson

Fæddur 5. ágúst 1965. Fjögurra barna faðir og Skagamaður í húð og hár. Hefur alla tíð unnið verkamannavinnu þar til hann tók við formennsku í Verkalýðsfélagi Akraness 19. nóvember 2003.

Er óflokksbundinn og hefur þá trú að forystumenn í verkalýðshreyfingunni eigi ekki að vera eyrnamerktir stjórnmálaflokkum. Hefur brennandi áhuga þjóðfélagsmálum og segir sína meiningu umbúðalaust.

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 09.5.2013
Barmafull kokteilglös full af fordómum
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 11.5.2013
Magnþrungin ræða
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 12.5.2013
Good old times are back
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 10.5.2013
Vantraust á forseta ASÍ
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 09.5.2013
Báknið er of stórt
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 13.5.2013
Óskiljanleg ákvörðun hjá Garcia á Players
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 13.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 5. hola - Myndband
Þórhallur Heimisson
Þórhallur Heimisson - 12.5.2013
Fimmti hringur Vítis
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 13.5.2013
Grenningarhollráð Sverris
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2013
Lærðu vipp úr háu grasi - Myndband
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.5.2013
Kúgun, flekun og nauðgun
Fleiri pressupennar