08. feb. 2010 - 09:02Unnur H. Jóhannsdóttir

Skatturinn rannsakar smábókhald í 5 ár

Unnur telur enga von til þess að hún verði á lífi þegar dómur fellur um fjárglæfrastarfssemi, skattsvik og aðra plógsstarfssemi þeirra sem voru á toppnum í Hruninu. Það er einfaldlega kalt mat.  Unnur lenti nefnilega í skattinum, réttara sagt tók Skattstjórinn í Reykjavík bókhald Unnar til rannsóknar fyrir fimm árum. Til þess að gera langa sögu stutta vann Unnur þá sem verktaki í fjölmiðlageiranum. Það var tvennt sem Skattstjórinn í Reykjavík taldi vert að rannsaka almennt í geiranum, annars vegar hvort að þeir sem væru í raun og veru að vinna sem fastir starfsmenn og ættu að vera launþegar samkvæmt lögum væru að vinna sem verktakar hjá fyrirtækjum og hins vegar var verið að kanna hvort fjölmiðlamenn í verktöku væru að telja rétt fram. Já, jafnvel hjá starfsmönnum fjórða valdsins gætu fundist skattsvikarar.

Árið 2005 vildi Skattstjórinn í Reykjavík fá bókhald Unnar frá árinu 2003. Það var auðvelt að leggja það fram enda ekki mikið að vöxtum, rúmaðist í þunnri Egla möppu en með fylgdi hálf A4 síða þar sem Unnur gerði grein fyrir því helsta í því. Líður nú og bíður og ekkert heyrist frá Skattstjóranum í Reykjavík árið 2005. Ekki heldur árið 2006. Ekki heldur árið 2007, 2008 eða 2009.  Snemma árs 2010 átti Unnur afmæli og tveimur dögum síðar fær hún seðil frá Póstinum um að hún eigi þar pakka. Með tilhlökkun í brjósti keyrði hún á Appelsínunni sinni upp á pósthús, framvísar miðanum og stígur fram á tærnar af eftirvæntingi. Tilhlökkunin hins vegar snarminnkaði þegar hún fékk pakkann, innpakkaðan í brúnan pappír, merktan Skattstjóranum í Reykjavík.

Unnur reif umbúðirnar utan af pakkann og viti konur og menn – þarna var Egla mappann. Það var þó afmælisgjöf! En þó. Límd við möppuna var orðsending:

„Kallað var eftir meðfylgjandi gögnum í framhaldi af skoðun skattstjóra á málefnum yðar. Ríkisskattstjóri hefur lokið skoðun á meðfylgjandi gögnum.“

Unni finnst vitaskuld tær snilld að geta sagt jafn mikið án þess að segja nokkuð. Unnur hefur ekki hugmynd um hvort Skattstjórinn í Reykjavík muni árið 2015 rukka hana um endurgreiðslu eða hvort málinu sé lokið. En það sem Unnur vill benda á er þetta: Taki það embætti skatttstjóra fimm ára að rannsaka bókhald í lítill Egla möppu, er þá nokkur von til þess að það taki minna en 100 ár að rannsaka bókhald allra þeirra hrunfyrirtækja, hvers bókhald nær áreiðanlega samfellt allan þjóðveg hringveg 1?

Unnur ætlar samt að fylgjast vel með af himnum, þar verður stofnaður sérstakur áhugahópur um að ljúka málinu. Það eru áreiðanlega fleiri en hún sem vilja sjá öll kurl koma til grafar.



14.mar. 2010 - 17:00 Unnur H. Jóhannsdóttir

Er verkfallsvopnið orðið úrelt baráttutæki?

Það hefði sennilega enginn trúað því að óreyndu að stéttarfélög færu í verkföll eins og árar í þjóðfélaginu. Nú þegar verkföll bæði flugumferðastjóra og flugvirkja eru í brennidepli er ekki úr vegi að rifja upp sögu þessa baráttutæki verkalýðsins, einkum hér á landi.
10.mar. 2010 - 11:00 Unnur H. Jóhannsdóttir

Þeir ræna lífum

Þeir eru feður, bræður, makar og unnustar. Þeim er sama um sál og líkama mæðra sinna, systra, eiginkvenna og unnusta. Þeir taka burtu sál þeirra og hjarta, trúna og vonina á lífið – þeir selja eða leigja þær eins og hverja aðra verslunarvöru í kynlífsánauð og hirða ábatann, vitandi að dómskerfi alþjóðasamfélagins er götótt og konum óhliðstætt.

08.mar. 2010 - 09:01 Unnur H. Jóhannsdóttir

Þjóðin enn klofin í afstöðu gagnvart Icesave

Eitt nei þykir nú merkilegra öllum öðrum en það eru nei-in sem talin voru upp úr kjörkössunum í okkar fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslu – um hvað var hún aftur? Já, lög um lánasamning við Breta og Hollendinga. Við skuldum þeim víst peninga, erum sem sagt skuldunautar eftir kerfishrun íslensku bankanna í haustið 2008 en síðan þá höfum við leitað allra leiða til þess að greiða sem minnst, eðlilega.
05.mar. 2010 - 18:00 Unnur H. Jóhannsdóttir

Þjóðaratkvæðagreiðslan sem fór forgörðum

Á morgun er merkilegur dagur. Á morgun upplifir Unnur í fyrsta sinn virkt lýðræði.  Á morgun  má hún kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslu, þeirri sjöundu frá því að landið hlaut fullveldi. Unnur verður samt að segjast eins og er að hún klórar sér í hausnum því höfðingjar landsins, forsætisráðherranum  Jóhönnu  Sigurðardóttur, finnst þetta ekki merkilegri gjörningur en það hún ætlar að sitja heim og hundsa  kosningarnar og sama ætlar sennilega  Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherrann að gera.
26.feb. 2010 - 10:25 Unnur H. Jóhannsdóttir

Kynlegt karlakarp

Hannes skrifar, Hreinn  svarar,  Stefán þegir, Matthías ritar og  Sigurjón staðfestir. Sumir birta trúnaðarupplýsingar aðrir ekki. Þátturinn „kynlegt karlakarp“ er nýr á Pressunni og eins og góðar sápuóperur tekur hann undarlegustu beygjur og nýjar sögupersónur reglulega kynntar til leiks. Sem einlægur aðdáandi Leiðarljóss fylgist Unnur spennt með þessari nýju sápu. Hún er að reyna að átta sig á kjarnanum, um hvað þátturinn snýst og telur sig vera komin með svarið. Davíð nokkurn Oddsson, eða Dabba kóng.

23.feb. 2010 - 21:00 Unnur H. Jóhannsdóttir

Þrjár konur – þrjár bækur um ástandið í heimalöndum þeirra

Það er stundum sagt að konur láti lítið að sér kveða í stjórnmálaumræðum en þegar nánar er skoðað er raunin önnur. Undanfarin misseri hafa þrjár konur sent frá sér jafnmargar  metnaðarfullar  bækur um ættjörð sína, sögu og þær breytingar sem þar eru að eiga sér stað. Það sem ef til vill skilur þessar bækur frá hefðbundnum bókum um stjórnmál er sú ástríða sem einkennir skrif þeirra og djúpa þrá til þess að vekja lesandann  af hugsanlegum doða og fá hann til finna til ástar á lýðræðinu, því sem þær trúa að sé fullkomnasta stjórnarform sem við mannfólkið ráðum við. 
16.feb. 2010 - 21:30 Unnur H. Jóhannsdóttir

Hin ástin og hjákonan

Unnur ákvað að vera jákvæð í dag. Í því skyni ákvað hún að setja öll jákvæð dægurmál dagsins ofan í handtöskuna sína, þessa elskulegu hjákonu sína sem höndlar allar aðstæður. Hún opnaði því handtöskuskápinn sinn og viti og skilji allar konur, það ultu einar tuttugu út. Sumum, sérstaklega karlmönnum, kann að þykja það mikið en það er tilefni fyrir hverja handtösku. Sumar bera merki frægra hönnuða eins og Gucci og Valentino, aðrar eru hluti af vörulínu eins og Benetton og Sisley og svo eru aðrar sem bera ekki nein merki.

26.jan. 2010 - 07:00 Unnur H. Jóhannsdóttir

Eru uppsagnir reynslumikils fjölmiðlafólks áhyggjuefni?

Uppsagnir tuga starfsmanna vekja enn á ný upp spurningar um hlutverk fjölmiðla í samfélaginu. Hinn umdeildi fræðimaðurinn Marshall McLuhan hélt því fram í upphafi sjöunda áratugarins að stafrófið væri merkilegasta uppfinning mannsins og að prent Gutenbergs seint á 15. öld hefði hrundið af stað framvindu, sem hann kallaði reyndar ósköp, í formi vísinda, tækni, fjölmiðla, einstaklingshyggju, þjóðernishyggju, ríkisbákns, kommúnisma, kapitalisma og svo aðeins fátt eitt væri upptalið.

19.jan. 2010 - 23:00 Unnur H. Jóhannsdóttir

Pólítik prófkjöranna og leyniþjónustunnar

Unnur hefur oft velt fyrir sér hvað  fær fólk til þess að starfa í stjórnmálum. Það er einhver munur á atvinnustjórnmálamönnum og svo þeim sem prófa þetta einu sinni og svo aldrei aftur, en hver hann er er Unni hulin ráðgáta.

06.jan. 2010 - 20:00 Unnur H. Jóhannsdóttir

Forsetinn reyndi að afla sér vinsælda

Ólafur Ragnar Grímsson var einmana. Það stendur framan á glanstímariti í öllum helstu stórmörkuðum landsins. Einmana á Bessastöðum. Hversu freistandi er það ekki, fyrir mann sem er einmana, og getur á einfaldan hátt eignast allt að 60.000 vini í einni svipan, aðeins með því að segja NEI. Hann stóðst ekki freistinguna, hann ýtti á neyðarhnappinn, hann ýtti á STOP.

03.jan. 2010 - 16:00 Unnur H. Jóhannsdóttir

Forsetinn með þjóðina í gíslingu

Á nýju ári ber að líta fram á við. Á nýju ári bera flestir í von í brjósti um betri tíð og tækifæri – og ekki síður nú eru væntingarnar meiri. Eitt versta ár lengi er að baki, árið sem þjóðin varð nær gjaldþrota, ekki aðeins efnislega heldur líka andlega, tilfinniningalega og siðlega. Árið 2010 er ekki bara tala, hún er flott tala, tignarleg, líkt og árið 2000 þegar væntingarnar voru miklar. En staðan nú er allt önnur en þá.

29.des. 2009 - 07:00 Unnur H. Jóhannsdóttir

Mannfall Íslendinga í Heimstyrjöldinni síðari

Myndin „Árásin á Goðafoss” sem sýnd var á jóladag var fyrir margra hluta sakir merkileg mynd, ekki síst vegna myndefnisins sem var einstakt. Það verður forvitnilegt að sjá seinni hlutann þar sem rætt verður við fólkið sem komst af. ,,Árásin á Goðafoss” Hún beindi líka sjónum að mannfalli Íslendinga í síðari heimsstyrjöldinni sem sjaldan er talað um í öllum efnahagslegum gróðanum sem stríðið færði þjóðinni. 

24.des. 2009 - 08:00 Unnur H. Jóhannsdóttir

Jesús Kristur og jólin - jólakveðja

Nú eru að ganga í garð, hin helga hátíð, sem við tileinkum predikaranum Jesús Kristi frá Nasaret. Hann er talinn vera fæddur um það bil 4-6 árum f. kr. og látinn 29-33 e.kr. Flestir sagnfræðingar viðurkenna að hann hafi verið til. Kristnir menn trúa því að Jesús Kristur sé eingetin sonur Guðs og Messías, sem þýðir frelsari. Jarðneskir foreldrar hans voru María og Jósef. Í hebresku þýðir nafnið hans, Jahve bjargar en í grísku, hinn smurði. Jesús Kristur er hluti af þrenningarkenningunni, það er Föðurinn, sonurinn og hinn heilagi andi.

19.des. 2009 - 09:00 Unnur H. Jóhannsdóttir

Hvað er að þessari þjóð?

Unnur skilur ekki íslenska þjóð. Mánuðum saman er hún búin að kveina og kvarta undan kreppunni, já svo að sumir eru komnir með krampa í magann. Aðrir hafa þrammað á Þjóðminjasafnið til þess að finna gömul og nógu kjarnyrt orð til þess að kalla hálfvitana, asnana og fíflin nýjum, krassandi nöfnum. Engin örlög eru nóg vond fyrir þá sem íslensk alþýða telur völd að þessari kreppu og engin orð nógu hástemmd eða lýsandi fyrir stjórnmálafíflin sem koma okkur ekki út úr henni.

 

16.des. 2009 - 07:00 Unnur H. Jóhannsdóttir

Leyndardómar lestursins

Hún átti sér þann draum heitastan að vera með eldrautt hár og ganga í stutterma, köflóttum kjólum naumhyggjunnar. Henni var alveg sama þótt hún yrði klaufabárður eins og hetjan hennar, Anna í Grænuhlíð. Unnur vildi bara vera eins og Anna, stelpan sem gömlu systkinin í Kanada ættleiddu.

 

13.des. 2009 - 10:59 Unnur H. Jóhannsdóttir

Hefur þú ekki efni á jólunum?

Nú eru jólin að ganga í garð, hátíð sem við Íslendingar tökum yfirleitt með trompi, hvort sem við trúum á Jesú Krist eða ekki. Þetta er okkar ljósahátíð í myrkrinu, ef til vill leið til þess að lifa það af og leyfa sér svolítinn munað. Það er gott og blessað en reyndar hefur Unni aldri fundist Íslendingar þurfa jólin til, þeir eru einfaldlega munaðarseggir en á ljósahátíðinni er eins og munaðurinn stigmagnist.
07.des. 2009 - 10:24 Unnur H. Jóhannsdóttir

I save, I save

„Sæll afi, hvað segirðu í dag,“ spurði Daníel Óðinsson sem afinn í huganum kallaði alltaf spjátrunginn af því hann mundi yfirleitt ekki nafnið hans í fyrstu. „Það sama og venjulega,“ ansaði gamli maðurinn. „Ekkert.“ Daníel var í sinni venjulegu skylduheimsókn og spurði sjálfan sig í huganum hvernig karlinn myndi snupra hann í dag.
02.des. 2009 - 08:41 Unnur H. Jóhannsdóttir

Fátækt er heilsuspillandi og dýr

Hún var einkennileg fyrirsögnin á pistli Teits Guðmundssonar læknis og framkvæmdastjóra Heilsuverndar ehf. ,,Heilsan er fátækra manna fasteign,” hér á Pressunni fyrir skömmu, enda þekktara að fátækt hafi fremur neikvæð áhrif á heilsufar en jákvæð. Það er rétt hjá lækninum að peningar og völd skipta litlu máli ef ekki kemur til gott andlegt og líkamlegt atgervi en að er líka staðreynd að þetta tvennt getur skipt máli þegar kemur að aðgengi þeirra, sem minna eiga ef peningum, að heilbrigðiskerfi getur verið skert, jafnvel kerfi eins og hinu norræna þar sem jafnræði á að vera aðalmerki. 
24.nóv. 2009 - 08:54 Unnur H. Jóhannsdóttir

Davíð Oddsson fær falleinkunn

Unnur skilur stundum ekki íslenska blaðamennsku. Samt hefur hún starfað við fagið í nær tíu ár og ku hafa þriggja ára menntun í því að baki. Íslensk blaðamennska virðist stundum ekki lúta neinum lögmálum eða boðorðum. Aðgengi almennings að fjölmiðlum virðist heldur ekki alltaf fara eftir fréttnæmi máls (reyndar er fréttamatið einnig frekar þröngt, ef út í það er farið sem og hinn litli hópur álitsgjafa) heldur hvort að viðkomandi þekkir einhvern inn á einhverjum fjölmiðli.

Unnur H. Jóhannsdóttir
Kennari og blaðamaður að mennt, nemur nú fötlunarfræði við Háskóla Íslands og hyggst ljúka M.A námi-í blaðamennsku áður en langt um líður, ásamt því að munda pennann stöku sinnum í pistlum hér á Pressunni.

Unnur hefur áhuga á öllu sem viðkemur mannlegu eðli og óeðli og hvílík uppspretta af sögum sem þessi skepna er – þess vegna elskar Unnur hana! Viðfangsefni Unnar geta verið allt frá því sem hún hefur vit á sem og því sem hún ætti að þegja um – en því hefur hún sjaldnast vit á. Á dagskrá hennar verða því mannleg mál; allt frá stjórnmálum, þjóðfélagsmálum, umhverfismálum, kennslu og uppeldi, tísku og innhússhönnun, sögu og heimspeki til fötlunar- og kynjafræða – og svo eitthvað þarna á milli ...

Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 15.3.2010
Hugleiðingar vegna orða Jurshevskis
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 12.3.2010
Hvað kosta íslenskar konur?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 11.3.2010
VBS fallinn ári eftir ríkisstyrk
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit