12. ágú. 2012 - 11:26Þórhallur Heimisson

Kristin trú og samkynhneigð

Það er margt merkilegt sem kemur í ljós þegar menn lesa orð Jesú Krists.

Til dæmis minnist Jesús Kristur aldrei á samkynhneigð eða samkynhneigða. Hann talar reyndar aldrei um kynhneigð manna til eða frá. Honum var slétt sama hvort menn væru samkynhneigðir eða gagnkynhneigðir. Í augum Jesú erum við fyrst og fremst Guðs börn, hvort sem við erum hvít eða svört, karlar eða konur, rauðhærð eða dökkhærð, samkynhneigð eða gagnkynhneigð. Það undirstrikar hann oft og iðulega með orðum sínum og gerðum.

Við megum ekki gleyma því að samkynhneigð var mjög ríkjandi í austur hluta Rómaveldis á tímum Jesú. Jesú bjó í Galíleu og Júdeu sem voru rómversk skattlönd þar sem gyðingar voru í meirihluta íbúa. Allt í kringum Júdeu á dögum Jesú voru margfalt fjölmennari ríki en land gyðinga. Þar voru til dæmis hinar svokölluðu „Tíu borgir“ þar sem Grikkir réðu ríkjum frá fornu fari. Grikkir höfðu reyndar ráðið yfir Júdeu að mestu frá tímum Alexanders mikla. Hjá Grikkjum og í þeirra menningarheimi var samkynhneigð ekkert tiltökumál.

Jesús stytti sér oft leið í gegnum borgirnar tíu á ferðum sínum, en aldrei minnist hann samt á þetta atriði.

Hann hefur þó efalaust þekkt vel fordæmingarorð Gamla testamentisins í garð samkynhneigðra. Um þau voru helstu andstæðingar Jesú aftur á móti ekki jafn þögulir og fordæmdu þeir Grikkina m.a. vegna frjálslyndis þeirra gagnvart samkynhneigðum. Jesús tók aldrei þátt í slíkum árásum.

Árásir á samkynhneigða í dag víða um veröldina eru oft dulbúnar í kristilegan búning, með tilvitnunum í Biblíutexta, bæði úr Gamla testamentinu og hinu Nýja. Þannig hefur það verið um langar aldir og er enn eins og dæmin sanna. Þeir sem slíkt stunda gleyma því aftur á mót að við kristnir menn eigum að lesa lögmál hins gamla sáttmála og bréf Nýja testamentisins í ljósi orða og kenningar Jesú. Í ræðum sínumi segir Jesús m.a. „dæmið ekki svo að þér verðið ekki dæmdir“, „þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig“ og „allt sem þér því viljið að aðrir menn gjöri yður, það skulið þér og þeim gjöra“.

Hann undirstrikar þannig að kærleikurinn skuli hafður að leiðarljósi í lífinu, kærleikurinn sem dæmir ekki. Þessu voru margir samtímamenn Jesú  ósammála og þess vegna meðal annars var hann krossfestur.

Jesús lét lífið vegna kærleika síns til okkar manna. Ofbeldismenn krossfestu hann vegna þess að þeir óttuðust boðskap hans.

Hvað ákvarðar gjörðir þínar og skoðanir?

Kærleikurinn styrkir þig og eflir og einnig þá sem þú kemur fram við af kærleika.  Óttinn minnkar þig og náunga þinn.

Þú verður að læra að þekkja í sundur kærleikann og óttann og velja annað hvort sem fyrirmynd þína.  Og hér er þumalputtaregla sem þú getur notað: Boðskapur Jesú er alltaf byggður á kærleika, fjallar alltaf um kærleika. Hómófóbía snýst alltaf um ótta. Þess vegna ekki hægt að vera bæði kristinn og hómófób. En það er ekkert mál að vera bæði kristinn og samkynhneigður.

Mundu:

Guð er kærleikur.

Þú ert elskaður eins og þú ert.

Óttastu ekki!



19.maí 2013 - 09:20 Þórhallur Heimisson

Hvítasunnan á marga strengi í hörpu sinni

Flest vitum við hvers vegna haldið er upp á jól og páska. Á jólum fögnum við kristnir menn fæðingu frelsarans Jesú í heiminn.
12.maí 2013 - 12:00 Þórhallur Heimisson

Fimmti hringur Vítis

Á fjórtándu öld samdi ítalska skáldið Dante hið fæga söguljóð sitt „Divine Comedy“ eða hinn Guðdómlega gamanleik, eins og það heitir á íslensku. Þar segir hann frá ferð sinni í gegnum sali Helvítis, Hreinsunareldsins og Himnaríkis. Hvort ferðin er farin í leiðslu eða draumi – eða í raunveruleikanum – það er erfitt að segja. Og frásögnina má túlka bæði bókstaflega og sem líkingu um ferð sálarinnar til Guðs - hina eilífu leit mannsins að sannleikanum.
22.apr. 2013 - 21:49 Þórhallur Heimisson

Að vera prestur

Að vera prestur er eitthvað sem maður er allt lífið og allan sólahringinn. Ekki spurning.  Ekkert 9-5 starf sem sagt.
16.apr. 2013 - 15:44 Þórhallur Heimisson

Trúarbragðafræði - einskis virði?

Í ljós hefur komið ì könnunum meðal frambjóðenda í ár hjá DV að fjölmargir þeirra vilja ekki hafa trúarbragðafræðslu í skólum, eða er alveg sama um slíkt.
10.apr. 2013 - 09:15 Þórhallur Heimisson

Sorg og sorgarviðbrögð

Sorgin er flókið fyrirbæri og ekki auðvelt að komast til botns í henni.
05.apr. 2013 - 10:52 Þórhallur Heimisson

Biblían - hvað er nú það?

Þótt Biblían sé grundvallarrit kristinnar trúar eru kannski margir sem þekkja hana ekki vel og aðrir sem þurfa á því að halda að fríska aðeins upp á þekkingu sína; rifja upp það sem þeir vissu fyrir.
25.mar. 2013 - 15:10 Þórhallur Heimisson

Páskar: Kristin trú er fyrst og fremst upprisutrú

Kristin trú er fyrst og fremst upprisutrú, trú á sigur lífsins yfir dauðanum, að lífið endi ekki við dauðans dyr, heldur muni hinn upprisni Jesús Kristur leiða okkur frá dauðanum til lífsins hjá Guði.
16.mar. 2013 - 09:21 Þórhallur Heimisson

Boðunardagur Maríu

Sunnudaginn 17. mars ber að þessu sinni upp á boðunardag Maríu, en boðunardagur Maríu er frá fornu fari hinn 25. mars. Á siðbreytingartímanum færðist hann á sunnudaginn fyrir 25. mars. Sá sunnudagur er aftur á móti Pálmasunnudagur í ár, 24. mars.
29.jan. 2013 - 17:15 Þórhallur Heimisson

Icesave og ESB

Sigur Íslands í deilunni við Breta, Hollendinga og Efnahagsbandalagið um Icesave- reikningana, minnir okkur á hversu litlu getur oft munað að við glötum frelsi okkar og fullveldi.
23.jan. 2013 - 10:39 Þórhallur Heimisson

Hjónanámskeið í 17 ár

Á þessum vetri eru liðin 17 ár frá því að hjónanámskeið voru fyrst haldin á vegum Hafnarfjarðarkirkju, en fyrsta námskeiðið var haldið haustið 1996. Þá var ætlunin að bjóða upp á eitt eða tvö námskeið, en vegna mikillrar og stöðugrar aðsóknar eru námskeiðin enn í gangi.
05.jan. 2013 - 16:40 Þórhallur Heimisson

Velferðarsamfélag eða neyðarsamfélag?

Þetta hefur reyndar lengi verið svona hér á landi. Að ríkið hafi ekki staðið við skyldur sínar gagnvart hinum minnstu bræðrum okkar og systrum. Hrunið er engin afsökun.
13.des. 2012 - 17:00 Þórhallur Heimisson

Jólagjöf handa pörum í kulnandi sambandi

Við vitum öll að mörgum gengur illa að næra ástina í hjónabandinu og sambúðinni. Allt of mörg hjónabönd lenda í erfiðleikum og blindgötu.
04.des. 2012 - 17:08 Þórhallur Heimisson

Friðarjól

Jólin eiga sér fjölbreytilegan aðdraganda. Aðventan sem nú er hafin í raun orðin menningarhátíð, þar sem sundurleitustu efni eru reidd fram til gleði og ánægju. Svo er í smáu ekki síður en stóru. Þetta á við bæði á landinu okkar bláa sem hér í Svíþjóð þar sem ég dvel um þessar mundir. Ég bý í Dölunum þar sem fegurð hins endalausa greniskógar Skandinavíuskagans mætir jólaljósunum og úr verður hreinasta paradís á aðventu - eins og að búa í jólakorti.
16.nóv. 2012 - 09:10 Þórhallur Heimisson

Hjónabönd og fjölskyldur á köldum klaka

Fjölskylduhagir eru margir og mismunandi í samfélaginu okkar í dag.
01.nóv. 2012 - 14:38 Þórhallur Heimisson

Allra heilagra messa

Þann 1. og 2. nóvember heldur kirkjan upp á tvær af sínum stærstu hátíðum, allra heilagra og allra sálna messu. Allra heilagra messa á sér fornar rætur í kirkjunni og ber upp á 1. nóvember ár hvert. Í fornkirkjunni var snemma tekið upp á þeim sið að koma saman við gröf þeirra sem liðið höfðu píslarvætti fyrir trú sína á dánardægri þeirra.
28.okt. 2012 - 22:23 Þórhallur Heimisson

10 leiðir til betra lífs - fjórði hluti

Þá er kominn tími til að halda áfram með vangavelturnar um það hvernig maður getur látið sér líða betur - lifað betra lífi. Þetta verður þá fjórði pistillinn um þetta málefni hér á Pressunni.
20.okt. 2012 - 09:34 Þórhallur Heimisson

Saga manngildishugjsónar kristninnar - á kjördegi.

Litlu eftir að kristni var lögtekin á Íslandi setti Alþingi á Þingvöllum við Öxará lög um tíund, fyrsta opinbera skattinn í sögu þessa lands. Fjórðungur tíundarinnar rann óskiptur til fátækra, og sýnir sú staðreynd þá siðbreytni, sem ríkjandi var innan heimskirkjunnar á hámiðöldum.
25.sep. 2012 - 10:28 Þórhallur Heimisson

Englar og djöflar

Nú geri ég smá hlé á pistlunum um leiðirnar tíu til betra lífs en birti þess í stað sýnishorn úr bók minni „Hin mörgu andlit kristninnar“ sem kemur út í næsta mánuði hjá Sölku.
13.sep. 2012 - 11:40 Þórhallur Heimisson

Tíu leiðir til betra lífs - þriðji hluti - áföll

Margir lenda í því að fara í einhverskonar andlega „fósturstellingu“ eftir áfall. Geta enga björg sér veitt og sjá ekki leið út úr vandanum en sökkva niður í andlegt svartnætti. Smátt og smátt getur hin andlega vanlíðan umbreyst í sjúkdóma, bæði andlega og líkamlega.
05.sep. 2012 - 15:03 Þórhallur Heimisson

Tíu leiðir til að lifa lífinu lifandi - Annar hluti

Eitt af því sem oft gerir okkur erfitt fyrir í samskiptum við aðra er persónulegur „farangur“ sem við dröttumst með í gegnum lífið og dregur okkur niður. Þar á ég við hverskonar minnimáttarkennd, vonbrigði, kvíða, reiði og neikvæða reynslu. Við erum öll svo viðkvæm og auðsæranleg.

Þórhallur Heimisson
Þórhallur Heimisson er fæddur 30.07.61. Hann er sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju en hefur auk þess annast hjónaráðgjöf um árabil, gefið út bækur um trúmál, hjónaband og sambúð og sagnfræði, ritað pistla, gert útvarpsþætti og kennt í KHÍ og HÍ. Veturinn 2012 - 2013 mun Þórhallur dvelja í Svíþjóð og starfa sem kirkjuhirðir í sænsku kirkjunni i Falun.
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 09.5.2013
Barmafull kokteilglös full af fordómum
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 11.5.2013
Magnþrungin ræða
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 12.5.2013
Good old times are back
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 10.5.2013
Vantraust á forseta ASÍ
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 09.5.2013
Báknið er of stórt
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 13.5.2013
Óskiljanleg ákvörðun hjá Garcia á Players
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 13.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 5. hola - Myndband
Þórhallur Heimisson
Þórhallur Heimisson - 12.5.2013
Fimmti hringur Vítis
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 13.5.2013
Grenningarhollráð Sverris
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2013
Lærðu vipp úr háu grasi - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.5.2013
Kúgun, flekun og nauðgun
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 15.5.2013
Rangfeðruð skammaskrif
Fleiri pressupennar