02. feb. 2012 - 19:00Þórarinn Jón Magnússon
Eftirlitsstofnanir í eina sæng

Hugmynd að útihurð stofnunarinnar. Teikning: ÞJM
Fjölmörg og ólík dæmi sanna að opinberar eftirlitsstofnanir hafa alls ekki verið að sinna eftirlitshlutverki sínu sem skildi. Sama hvort horft er til fjármála- eða matvælaeftirlits, innflutnings á brjóstapúðum, áburði eða salti. Þetta eru margar stofnanir með vaxandi fjölda starfsmanna í sístækkandi húsakynnum.Væri ekki ráð að steypa þessum gagnslitlu stofnunum í eina, fækka starfsmönnum verulega og koma þeim fyrir undir einu þaki? Í rauninni þyrfti stofnunin ekki að vera nema einn myndarlegur afgreiðslusalur þar sem menn gætu komið og fengið gúdderaðar og stimplaðar hjá nokkrum liprum afgreiðslumönnum heimildir til hvers kyns innflutnings og framleiðslu. (Ekki má ríkiskassinn við því að verða af stimpilgjöldunum.)
Aðkoman má vera glæsileg og útidyrnar gætu verið í stíl við Valþjófsstaðahurðina á Arnarhvoli þar sem fjármálaráðuneytið er til húsa. Stór viðarhurð með viðeigandi útskurði sem ég leyfi mér að gera hér tillögu að.
29.des. 2011 - 20:00
Þórarinn Jón Magnússon
Sú ákvörðun véhjólasamtakanna, Hell Angels og Outlaws, að velja höfuðstöðvum sínum stað í Hafnarfirði hefur valdið höfundi þessa pistils nokkrum heilabrotum, sem telur tvær skýringar líklegastar.
23.des. 2011 - 18:00
Þórarinn Jón Magnússon
Hvað átti forsætisráðherra við þegar deilt var um meintan landflótta landsmanna? Var hún að horfa fram á veginn þegar prófessor Ágúst Einarsson á Bifröst var að horfa til síðustu 100 ára? Ef svo er vaknar sú spurning hvenær tímabært verði að lagfæra skjaldarmerkið okkar.
16.des. 2011 - 19:00
Þórarinn Jón Magnússon
Stjórnendur HB Granda hafa lag á að sannfæra sjálfa sig um réttmæti vænna arðgreiðslna sér til handa á sama tíma og starfsmennirnir skulu jafnvel hlunnfarnir um umsamdar launahækkanir - hvað þá auka jólabónusa.
21.sep. 2011 - 18:00
Þórarinn Jón Magnússon
Rík ástæða er til að mæta tilboði Kínverjans Huangs Nubo með fullri tortryggni. Ég meina, hvað annað en vafasamur tilgangur getur legið að baki tilraunar erlends kaupsýslumanns til að fjárfesta hér á landi fyrir tugi milljarða? Það vill hann gera þrátt fyrir að fyrir liggi að Ísland fær verstu einkunn allra vestrænna ríkja í nýju áhættumati sem gert er af marktækum aðilum fyrir fjárfesta.
07.apr. 2011 - 19:00
Þórarinn Jón Magnússon
Á sama tíma og erlendir sparifjáreigendur lögðu fé inn á reikninga Landsbankans í Hollandi og Bretlandi til ávöxtunar á umsömdum innlánsvöxtum hópuðust íslenskir viðskiptavinir bankans í útibúin hér heima og tóku myntkörfulán fyrir bifreiðum og heilu einbýlishúsunum. Lán sem þeir treystu á að Guð og gengið hækkaði ekki upp úr öllu valdi. Nú skal sparifjáreigendunum erlendis sýndur fingurinn. Hver gabbaði hvern mest?
21.mar. 2011 - 17:00
Þórarinn Jón Magnússon
Bæri mér að bregðast við ef einhverjir kveiktu eld í forstofu sameignar fjölbýlishúss sem ég ætti í heima í? Hvers vegna ætti ég að rjúka til og slökkva eld sem einhverjir aðrir hafa kveikt? Ég ætla ekki að brenna mig á því að prinsipp blindi mig.
01.feb. 2011 - 15:30
Þórarinn Jón Magnússon
Arabar hafa keypt tölvur í milljónavís undanfarið og fjölgað að sama skapi gríðarlega ört á Facebook og Twitter. Þar var byltingin í Túnis undirbúin með skilaboðum manna á milli og einnig í Egyptalandi og Jemen. En var lagt á ráðin á ráðstefnu sem Google bauð til í Búdapest síðastliðið haust?
26.sep. 2010 - 14:00
Þórarinn Jón Magnússon
Hryggilegt hefur verið að fylgjast með stanslausum fréttum af siðblindu hjá hempuklæddum og spariklæddum mönnum, sem okkur er ætlað að bera virðingu fyrir. Jafnvel þurfti páfinn nýlega að biðjast opinberlega afsökunar á sínum mönnum. Má ég þá biðja um gömlu góðu fréttatímana.
07.sep. 2010 - 12:00
Þórarinn Jón Magnússon
Þó að uppsláttarrit heyri nú að mestu sögunni til, sökum þess hve greiðan aðgang fólk hefur í dag að hvers konar upplýsingum á netinu, þá stóðst ég nú ekki mátið og keypti í gær eitt slíkt rit í fyrsta skipti síðan á síðustu öld. Það má eiginlega segja að útgefandinn hafi farið í föt fórnarlambsins.