31. maí 2012 - 22:39Sverrir Björn Þráinsson
Kæri heilsuþyrsti lesandi. Borðarðu meira undir vissum kringumstæðum? Komdu þér þá úr þeim!
Síðastliðið ár hef ég hamrað nokkrum sinnum á sömu hlutunum í hinum og þessum pistlum varðandi ofát, offitu, hreyfingarleysi og vananum sem oft virðist tengja þessa hluti saman.
Mjög algengt hjá matarfíklinum er að borða á sig gat undir vissum kringumstæðum eins og t.d. með sjónvarpinu, í bílnum, á vissum stað í vinnunni og í raun hvar sem er sem skapast hefur viss vani að sækja.
Þú kaupir alltaf stóran Nóa Kropp á videoleigunni, ekki af því þig langar í það á þeirri stundu, heldur vegna þess að þú gerir alltaf það sama... stöðnun og rútínufesta sem hefur snúist í andhverfu sína.
Nokkrar leiðir til að breyta um lífsstíl og þá er ég bara að tala um vanann að þessu sinni, sem er ekki síður mikilvægt verkefni, því allt helst þetta í hendur.
Ertu vanur að keyra framhjá Aktu Taktu eða Bæjarins beztu á leiðinni heim úr vinnu og pikkar þar upp mat til að graðka í þig rétt áður en þú sest til átu heima við? Þá verðurðu að leggja það á þig að fara aðra leið heim og vittu til, þú munt ekki finna fyrir hungri, því þetta er eins og þegar við venjum börnin okkar af snuði eða pela, „out of sight, out of mind“.
Færðu þér alltaf samloku, bland í poka eða eitthvað þvíumlíkt með sjónvarpinu á kvöldin og getur ekki hugsað þér að sleppa því að borða með letirammanum? Þá verðurðu að leggja það á þig að slökkva á sjónvarpinu og gera eitthvað annað, því þar muntu ekki sækja í mat því það er ekki „vaninn“.
Að detta úr rútínu og stíga út fyrir þægindahringinn sem þú hefur myndað þér með oft á tíðum skelfilegum afleiðingum getur verið það besta fyrir þig ef þú kannast við þessa hluti hér að ofan og er eins og ég kalla það „auðvelda leiðin til að missa kíló og smeygja sér í nýjan lífsstíl“ því um leið og þú hefur breytt þessum venjum eða öðrum sem kalla á slíkt hið sama þá munu fleiri slæmar venjur hverfa eins og dögg fyrir sólu.
Eigið góða vikurest og munið: nammidagur þýðir ekki hamslaust át þá 24 klukkutíma, betra er að útbúa sér uppáhaldsmáltíðina sína og segja það svo gott. Vatn í stað goss og ávexti í stað sælgætis.