19. okt. 2011 - 17:00Sverrir Björn Þráinsson

Hlöðuball Klaufa í miðri borg vakti verðskuldaða heimsathygli

Við Íslendingar erum duglegir við að koma okkur á heimskortið, enda minnsta stórþjóð heims og orðtakið „miðað við höfðatölu“ er okkur tamt að læra líkt og að lesa og skrifa.

Kántrýsveitin Klaufar hélt á dögunum hlöðuball innan um alla trafíkina í Kópavoginum þar sem sveitamenningunni var troðið í stórborgina við gríðarlegan fögnuð viðstaddra.

Kántrítónlistin er okkur Íslendingum ekki í blóð borin og hafa ljósvakarmiðlar verið tregir við að hleypa þessari tegund tónlistar í sitt loft með þeim afleiðingum að miklir fordómar hafa skapast gagnvart kántrítónlist og hefur hún hingað til þótt hallærisleg og að þeir sem hana stundi hljóti að vera illa gefnir. Þetta er vanviska á hæsta plani.

Þeir sem koma með slíkar fullyrðingar átta sig sjálfsagt ekki á því að söngvarar á borð við Björgvin Halldórsson, Geirmund Valtýsson, Helga Björnsson og KK eru allir kántrísöngvarar.

Það sannast með tilkomu kántrýsveitarinnar Klaufa að nú er nýtt tímabil í uppsiglingu, Kántrítímabilið, því þeim hefur tekist að taka áhrifin frá Nashville, mekka kántrísins inn í íslenska tónlistarmenningu og smekklega setja víkingablæ í tónlist sína, þannig að útkoman er séríslensk en um leið alamerísk.

Um 500 manns sóttu hlöðuballið á skemmtistaðnum SPOT og fóru allir brosandi út og höfðu dyraverðir staðarins orð á því að sjaldan hafi ball verið svo vel sótt um leið og engin slagsmál eða stimpingar hafi brotist út allt kvöldið. Kántrítónlistinni fylgir nefnilega gleði, hamingja og vinátta. Má því með sanni segja að áhugi á kántrí sé hollur fyrir líkama og sál.

Klaufarnir Birgir Nielsen, Guðmundur Annas Árnason, Friðrik Sturluson, Kristján Grétarsson og fetilgítarundrið Sigurgeir Sigmundsson gáfu nýverið frá sér nýja smáskífu, Ást og Áfengi og viti menn, það fór rakleiðis á „playlista“ útvarpsstöðvanna.

Það segir okkur aðeins eitt. Klaufar eru að bjarga kántrítónlistinni með því að gera hana nýstárlega og höfða til allra aldurshópa en um leið halda í aldagamla uppskrift gamla kántrísins.

Gárungar í Nashville sýndu hlöðuballinu mikinn áhuga og var þessi viðburður ekki lengi að fréttast vestur um haf en flestir sem sáu atburðinn auglýstan trúðu ekki að þetta væri hægt og ætla þessir vösku drengir, Klaufarnir okkar að halda út í heim á nýju ári með glænýja plötu og vitja örlaga sinna, örlaga íslenska kúrekans.

Nashville söngkonan Kelcy Lee, sem hefur skotist upp á stjörnuhiminn kántrítónlistarinnar á methraða hafði orð á því við umboðsmann kántrýsveitarinnar að Nashville væri svo sannarlega opin fyrir nýjungum og svona band ætti heima á meðal þeirra bestu. Má því með sanni segja að framtíðin sé björt hjá Kántrýsveitinni Klaufum.

Tökum hattinn ofan fyrir Klaufum, bjargvættum íslenska kántrísins.

Hér fyrir neðan má heyra nýja lagið frá Klaufum, Ást og Áfengi og bendi ég kántríaðdáendum á heimasíðu þeirra Klaufa á facebook hér.




13.maí 2013 - 12:07 Sverrir Björn Þráinsson

Grenningarhollráð Sverris

Um leið og þú vaknar, drekktu stórt vatnsglas, farðu út að skokka/ganga í 30 mín og borðaðu strax í kjölfarið trefjaríkan morgunverð s.s Hafragraut með léttmjólk út á eða próteindrykk
28.apr. 2013 - 17:21 Sverrir Björn Þráinsson

Út með öfgafulla megrunarkúra, inn með fræðslu og skynsemi

Kæri heilsuþyrsti lesandi.
17.mar. 2013 - 10:00 Sverrir Björn Þráinsson

Ný nálgun á matarfíkn – Þú ert enginn sjúklingur

Mikið er rætt um þennan „sjúkdóm” matarfíkn og að fólk er heltekið og stjórnað af þessum grimma sjúkdómi. Umræðan og sjúkdómsvæðingin er komin út í öfgar og gefur fólki þann leiða afarkost að skýla sér bakvið mein,  sem svo auðveldlega má stjórna með hugarvinnu og markvissri lífsendurskipulagningu
04.jan. 2013 - 16:00 Sverrir Björn Þráinsson

Var áramótaheitið að breyta um lífsstíl og grennast? Lestu þá

Kæri heilsuþyrsti lesandi. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.

29.nóv. 2012 - 15:30 Sverrir Björn Þráinsson

17 leiðir til að fyrirbyggja þyngdaraukningu yfir hátíðarnar

Kæri heilsuþyrsti lesandi. Handan við hornið er síðasti mánuður ársins

12.okt. 2012 - 11:41 Sverrir Björn Þráinsson

Ekkert er bannað í grenningu, heilbrigð skynsemi er lykillinn að árangri

Kæri heilsuþyrsti lesandi. Megrunarkúrar hafa í gegnum tíðina einkennst af boðum og bönnum og eru samkvæmt minni skilgreiningu ”tímabundinn orkusparnaður með garanteraðri orkuúttekt síðar”
02.okt. 2012 - 10:00 Sverrir Björn Þráinsson

Setur þú raunhæf markmið? –Sannleikurinn um þyngdartap

Ein af aðalástæðum þess að fólk gefst upp í grenningu og lífsstílsbreytingu er sú að markmið eru sett allt of hátt í byrjun og án handleiðslu fagfólks.
16.sep. 2012 - 09:39 Sverrir Björn Þráinsson

Ókeypis hitaeiningaskrá fyrir ÞIG.

Ókeypis hitaeiningaskrá fyrir ÞIG.
07.sep. 2012 - 08:00 Sverrir Björn Þráinsson

Hollráð Grenningar - 1.hluti

Hjá matarfíklinum byrjar fíknin ekki að „kikka inn“ fyrr en hann er orðinn saddur, þá er eins og opnist önnur gátt í vömbinni og púkinn er laus. Þar sem hann eldaði svangur eru afgangarnir þeim mun meiri þegar fjölskyldan hefur staðið upp frá borði og húsbóndinn byrjar að narta á meðan hann gengur frá.
01.sep. 2012 - 18:38 Sverrir Björn Þráinsson

Ætlar þú að grennast í vetur?

Staðreyndin er sú að það er komið haust, það kólnar úti, grillveislunum fækkar og ófáir þúsundkallarnir fást nú fyrir það að henda bjórdósunum í endurvinnsluna.

Sverrir Björn Þráinsson
Grenningarráðgjafi með persónulega reynslu af matarfíkn og offitu.
http://www.facebook.com/sverrirfitness
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 09.5.2013
Barmafull kokteilglös full af fordómum
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 11.5.2013
Magnþrungin ræða
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 12.5.2013
Good old times are back
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 10.5.2013
Vantraust á forseta ASÍ
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 09.5.2013
Báknið er of stórt
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 13.5.2013
Óskiljanleg ákvörðun hjá Garcia á Players
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 13.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 5. hola - Myndband
Þórhallur Heimisson
Þórhallur Heimisson - 12.5.2013
Fimmti hringur Vítis
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 13.5.2013
Grenningarhollráð Sverris
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2013
Lærðu vipp úr háu grasi - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.5.2013
Kúgun, flekun og nauðgun
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 15.5.2013
Rangfeðruð skammaskrif
Fleiri pressupennar