03. des. 2011 - 15:00Sverrir Björn Þráinsson

Dreifðu jólaátinu á einn mánuð, ekki eina viku

Kæri heilsuþyrsti lesandi, og allar hinar endurnar líka, 

Nú þegar það líður að jólasteikinni og maníska ofátinu sem fylgir þessum síðustu dögum ársins er ýmislegt sem gott er að hafa í huga.

Ef þú engan veginn ræður við þig, étur á þig skammdegisþunglyndið sem veldur svo enn meira þunglyndi og feitabollu“komplexum“ skaltu vera við því búinn að björgunarhringurinn poppi upp úr buxnastrengnum eigi síðar en strax í jólabyrjun.

Salt-og sykurmagnið sem við innbyrðum á þessum örfáu dögum á sér enga hliðstæðu í heiminum því allur matur sem á að vera íslenskur hefðarmatur er rammsaltur og fituríkur, því eitt sinn vorum við dugnaðarþjóð sem vann myrkrana á milli við ömurlegar aðstæður og þurfti fitu, en nú étum við enn sama matinn og springum úr spiki því eina hreyfingin sem við fáum er rasskinnalyfting við viðrekstur og 10 skrefa ganga út í bíl.

Við þessu er hægt að sporna, en það kostar „nennu“ og vilja.

Í sambandi við jólin þá mæli ég með því að átinu sé dreift jafnt og þétt yfir mánuðinn svo að líkaminn fari ekki beint í varnarstöðu. Ekki byrja átið á Þorláksmessu með kransæðakítti og megnsöltum, úldnum fiski, fara svo beint í dragsaltan hamborgarhrygginn með rjómasósunni og sykur-smjörhúðuðu kartöflunum, þaðan beint í hangikjötið með tilheyrandi salti og bryðja svo Machintosh inn á milli og sprengja utan af þér öll föt.

Ég mæli með því að þú hreinlega skellir þér á jólahlaðborð í byrjun desember og þannig fá þetta ímyndaða átdaður út úr „systeminu“. Þannig minnkar tilhlökkunin í úttroðsluna. Fólk sem fær sér léttan jólamat yfir mánuðinn er í mun minni hættu að hreinlega deyja á jólunum því eins og lýsingarnar gefa til kynna hér að ofan er saltneysla okkar næstum lífshættulega ýkt og ekki fyrir hjartveika. Ekki er ólíklegt að fólk sem tekur jólin út á örfáum máltíðum þyngist um góð 3-7kg, jafnvel meira af bjúg.

Nú þegar þetta er komið á hreint þá segi ég við þig: Hreyfðu þig meira en venjulega yfir hátíðarnar. Farðu út í ferska lofið, labbaðu, skokkaðu, gerðu eitthvað til að hjálpa líkamanum að vinna úr öllum þessum ofunna mat. Klukkutímabrennsla á dag yfir hátíðarnar ásamt styrktarþjálfun inn á milli ætti að jafna út jólin og mögulega hamla því að þú tapir heilsu og viti á þessu áti.

Trúið mér, ég tala af reynslu.

Ef þú vilt fylgja mínum ráðleggingum segi ég eitt í viðbót: Fáðu þér nýjan fisk og kartöflur í staðinn fyrir skötuna og allt sem fylgir henni. Kalkún í staðinn fyrir hamborgarhrygginn og notaðu matreiðslurjóma í sósuna í staðinn fyrir venjulegan. Allir borða hangikjöt og skal ekkert koma í staðinn fyrir það, en þú hefur þá með fiskinum og kalkúninum unnið þér fyrir smásalti sem fylgir hangikjötinu. Hafðu dagana milli jóla og nýárs eins venjulega og hægt er, hreinsaðu líkamann með nægri vatnsdrykkju, nóg af grænu og hreyfingu. 

Gleðileg jól og verði ykkur að góðu.



13.maí 2013 - 12:07 Sverrir Björn Þráinsson

Grenningarhollráð Sverris

Um leið og þú vaknar, drekktu stórt vatnsglas, farðu út að skokka/ganga í 30 mín og borðaðu strax í kjölfarið trefjaríkan morgunverð s.s Hafragraut með léttmjólk út á eða próteindrykk
28.apr. 2013 - 17:21 Sverrir Björn Þráinsson

Út með öfgafulla megrunarkúra, inn með fræðslu og skynsemi

Kæri heilsuþyrsti lesandi.
17.mar. 2013 - 10:00 Sverrir Björn Þráinsson

Ný nálgun á matarfíkn – Þú ert enginn sjúklingur

Mikið er rætt um þennan „sjúkdóm” matarfíkn og að fólk er heltekið og stjórnað af þessum grimma sjúkdómi. Umræðan og sjúkdómsvæðingin er komin út í öfgar og gefur fólki þann leiða afarkost að skýla sér bakvið mein,  sem svo auðveldlega má stjórna með hugarvinnu og markvissri lífsendurskipulagningu
04.jan. 2013 - 16:00 Sverrir Björn Þráinsson

Var áramótaheitið að breyta um lífsstíl og grennast? Lestu þá

Kæri heilsuþyrsti lesandi. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.

29.nóv. 2012 - 15:30 Sverrir Björn Þráinsson

17 leiðir til að fyrirbyggja þyngdaraukningu yfir hátíðarnar

Kæri heilsuþyrsti lesandi. Handan við hornið er síðasti mánuður ársins

12.okt. 2012 - 11:41 Sverrir Björn Þráinsson

Ekkert er bannað í grenningu, heilbrigð skynsemi er lykillinn að árangri

Kæri heilsuþyrsti lesandi. Megrunarkúrar hafa í gegnum tíðina einkennst af boðum og bönnum og eru samkvæmt minni skilgreiningu ”tímabundinn orkusparnaður með garanteraðri orkuúttekt síðar”
02.okt. 2012 - 10:00 Sverrir Björn Þráinsson

Setur þú raunhæf markmið? –Sannleikurinn um þyngdartap

Ein af aðalástæðum þess að fólk gefst upp í grenningu og lífsstílsbreytingu er sú að markmið eru sett allt of hátt í byrjun og án handleiðslu fagfólks.
16.sep. 2012 - 09:39 Sverrir Björn Þráinsson

Ókeypis hitaeiningaskrá fyrir ÞIG.

Ókeypis hitaeiningaskrá fyrir ÞIG.
07.sep. 2012 - 08:00 Sverrir Björn Þráinsson

Hollráð Grenningar - 1.hluti

Hjá matarfíklinum byrjar fíknin ekki að „kikka inn“ fyrr en hann er orðinn saddur, þá er eins og opnist önnur gátt í vömbinni og púkinn er laus. Þar sem hann eldaði svangur eru afgangarnir þeim mun meiri þegar fjölskyldan hefur staðið upp frá borði og húsbóndinn byrjar að narta á meðan hann gengur frá.
01.sep. 2012 - 18:38 Sverrir Björn Þráinsson

Ætlar þú að grennast í vetur?

Staðreyndin er sú að það er komið haust, það kólnar úti, grillveislunum fækkar og ófáir þúsundkallarnir fást nú fyrir það að henda bjórdósunum í endurvinnsluna.

Sverrir Björn Þráinsson
Grenningarráðgjafi með persónulega reynslu af matarfíkn og offitu.
http://www.facebook.com/sverrirfitness
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 09.5.2013
Barmafull kokteilglös full af fordómum
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 11.5.2013
Magnþrungin ræða
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 12.5.2013
Good old times are back
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 10.5.2013
Vantraust á forseta ASÍ
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 09.5.2013
Báknið er of stórt
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 13.5.2013
Óskiljanleg ákvörðun hjá Garcia á Players
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 13.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 5. hola - Myndband
Þórhallur Heimisson
Þórhallur Heimisson - 12.5.2013
Fimmti hringur Vítis
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 13.5.2013
Grenningarhollráð Sverris
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 09.5.2013
Alþýðuspeki um atvinnufrelsi
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2013
Lærðu vipp úr háu grasi - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.5.2013
Kúgun, flekun og nauðgun
Fleiri pressupennar