14. jún. 2012 - 20:50Sverrir Björn Þráinsson

16 einfaldar lífsreglur til að grennast og viðhalda kjörþyngd

Kæri heilsuþyrsti lesandi.

Hengdu þetta plagg á ísskápshurðina og hafðu ávallt sýnilegt.

Hér koma 16 lífsreglur sem gott er að fara eftir til að grennast og viðhalda árangri að grenningu lokinni.

 

1.       Aldrei fara út úr húsi á morgnana án þess að hafa borðað morgunmat

2.       Þambaðu eitt vatnsglas á undan hverri máltíð. Þá borðarðu skynsamlegar og hollar.

3.       Borðaðu 5-6 máltíðir á dag. 3 kjarnamáltíðir (morgun-,hádegis-og kvöld) og 2 smámáltíðir

4.       VARASTU eftirfarandi nema á tyllidögum að hámarki einu sinni í viku: Gosdrykki, sælgæti, skyndibita og áfengi

5.       Þegar þú skipuleggur daginn, taktu frá 1 klukkustund tileinkaða hreyfingu og líkamsrækt.

6.       ALDREI kaupa í matinn svangur/svöng. Fáðu þér ávöxt eða léttan próteindrykk fyrir verslunarleiðangur. Þú sparar ófáar hitaeiningarnar og þúsundkallana.

7.       Aldrei hafa bílinn sem fyrsta val. Labbaðu það sem þú getur labbað og notaðu bíl í neyð. 1 kílómeter er um það bil 1,700 skref.

8.       Borðaðu eitthvað úr öllum fæðuflokkum dag hvern. Fjölbreytni í stað einhæfni í matarvali tryggir að þú fáir ekki leið á lífsstílnum og fallir í skyndibitagryfjuna á ný.

9.       3x33% reglan er mikilvæg. 8 tíma svefn, 8 tíma vinna, 8 tíma fjölskyldustund.

10.   EINU SINNI Á DISKINN og ekki falla í freistni. Skammtaðu þér skynsamlega á diskinn og láttu það gott heita. Ef þú átt erfitt með að standast ofátsfreistingu stattu þá upp frá borðinu og andaðu að þér fersku lofti eða fáðu þér smáslurk af munnskoli til að eyða græðgistilfinningunni.

11.   Taktu börnin þér til fyrirmyndar. Þau borða sjaldnast meira en þau þurfa og þau vilja hreyfa sig eftir kvöldmatinn. Gerðu slíkt hið sama og skelltu þér út að leika með krökkunum eða í  kósý göngutúr með frúnni/kallinum.

12.   Stundaðu kynlíf með maka þínum að lágmarki 1-2 sinnum í viku. Gott er að krydda það líkt og matinn reglulega.

13.   ALDREI byrgja inn í þér tilfinningar eða reiði. Algengt er að ofátsfíkn þróist út frá innbyrgðri vanlíðan sem þú sópar síðan yfir með ruslfæði. Tjáðu vanlíðan þína við þann sem henni veldur.

14.   Vertu vandlátur á matinn sem þú borðar og lestu utan á umbúðir. Ekki vera feimin/n við að kurteisislega hafna mat sem þér er boðinn, það er EKKI dónaskapur að segja NEI TAKK.

15.   STRESS er einn versti óvinur heilsumelsins.  Útrýmdu einum „stressfaktor“ í einu þangað til þú finnur aukna innri ró. Dæmi: Taktu bara fyrir 1 DAG Í EINU og látum hverjum og einum nægja sína þjáningu. Einfalt? Já, en alveg ótrúlega árangursríkt.

16.   GERÐU EITTHVAÐ Á HVERJUM DEGI SEM LÆTUR ÞÉR LÍÐA VEL, ÞÚ ÁTT ÞAÐ SKILIÐ.

 

Þú ert skapari þinna örlaga og þinnar gæfu smiður. Láttu ekki aðra um að stjórna þínu lífi og fylgdu ávallt sannfæringu þinni. Ef þú temur þér skynsemi, áreiðanleika, brosmildi, kurteisi, virðingu, hógværð og þolinmæði eru þér nær allir vegir færir og það er ALDREI of seint að stýra lífinu til betri vegar.




20.maí 2013 - 17:30 Sverrir Björn Þráinsson

Leyndarmálin bak við minn árangur í þyngdartapi. Hvernig missir maður 60 kg?

Kæri heilsuþyrsti lesandi. Hver er galdurinn?
13.maí 2013 - 12:07 Sverrir Björn Þráinsson

Grenningarhollráð Sverris

Um leið og þú vaknar, drekktu stórt vatnsglas, farðu út að skokka/ganga í 30 mín og borðaðu strax í kjölfarið trefjaríkan morgunverð s.s Hafragraut með léttmjólk út á eða próteindrykk
28.apr. 2013 - 17:21 Sverrir Björn Þráinsson

Út með öfgafulla megrunarkúra, inn með fræðslu og skynsemi

Kæri heilsuþyrsti lesandi.
17.mar. 2013 - 10:00 Sverrir Björn Þráinsson

Ný nálgun á matarfíkn – Þú ert enginn sjúklingur

Mikið er rætt um þennan „sjúkdóm” matarfíkn og að fólk er heltekið og stjórnað af þessum grimma sjúkdómi. Umræðan og sjúkdómsvæðingin er komin út í öfgar og gefur fólki þann leiða afarkost að skýla sér bakvið mein,  sem svo auðveldlega má stjórna með hugarvinnu og markvissri lífsendurskipulagningu
04.jan. 2013 - 16:00 Sverrir Björn Þráinsson

Var áramótaheitið að breyta um lífsstíl og grennast? Lestu þá

Kæri heilsuþyrsti lesandi. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.

29.nóv. 2012 - 15:30 Sverrir Björn Þráinsson

17 leiðir til að fyrirbyggja þyngdaraukningu yfir hátíðarnar

Kæri heilsuþyrsti lesandi. Handan við hornið er síðasti mánuður ársins

12.okt. 2012 - 11:41 Sverrir Björn Þráinsson

Ekkert er bannað í grenningu, heilbrigð skynsemi er lykillinn að árangri

Kæri heilsuþyrsti lesandi. Megrunarkúrar hafa í gegnum tíðina einkennst af boðum og bönnum og eru samkvæmt minni skilgreiningu ”tímabundinn orkusparnaður með garanteraðri orkuúttekt síðar”
02.okt. 2012 - 10:00 Sverrir Björn Þráinsson

Setur þú raunhæf markmið? –Sannleikurinn um þyngdartap

Ein af aðalástæðum þess að fólk gefst upp í grenningu og lífsstílsbreytingu er sú að markmið eru sett allt of hátt í byrjun og án handleiðslu fagfólks.
16.sep. 2012 - 09:39 Sverrir Björn Þráinsson

Ókeypis hitaeiningaskrá fyrir ÞIG.

Ókeypis hitaeiningaskrá fyrir ÞIG.
07.sep. 2012 - 08:00 Sverrir Björn Þráinsson

Hollráð Grenningar - 1.hluti

Hjá matarfíklinum byrjar fíknin ekki að „kikka inn“ fyrr en hann er orðinn saddur, þá er eins og opnist önnur gátt í vömbinni og púkinn er laus. Þar sem hann eldaði svangur eru afgangarnir þeim mun meiri þegar fjölskyldan hefur staðið upp frá borði og húsbóndinn byrjar að narta á meðan hann gengur frá.

Sverrir Björn Þráinsson
Grenningarráðgjafi með persónulega reynslu af matarfíkn og offitu.
http://www.facebook.com/sverrirfitness
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 21.5.2013
Nú er nóg komið!
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 21.5.2013
Umdeildur
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 22.5.2013
Að fenginni áminningu
Kári Stefánsson
Kári Stefánsson - 22.5.2013
Óheft tjáningarþörf
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 22.5.2013
Umsátrinu um heimilin er lokið
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 15.5.2013
Rangfeðruð skammaskrif
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2013
Pétur Pétursson
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 20.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 6. hola - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 18.5.2013
Ógleymanleg heimsókn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 20.5.2013
Myndband af mér í Brasilíu
Fleiri pressupennar