09. júl. 2012 - 10:30Sverrir Björn Þráinsson
Kæri heilsuþyrsti lesandi.
Reglulega í dagsins önn og amstri grípur um okkur gríðarleg svengd þar sem við segjum við okkur, „svakalega er ég svangur, ég gæti borðað heilan hest“ eða „nú ætla ég sko að borða“.
Hvenær gerist þetta?
Jú, þegar of langt er liðið frá síðustu máltíð, hvort sem það gerist viljandi eða óviljandi. Við þessar kringumstæður virðist ógjörningur að skapa sjálfsstjórn og hafa aga á fæðuvali, því líkaminn öskrar, og þá yfirleitt á óhollustu, bras, fitu og sætindi.
VIÐ ÞESSU ERU AUÐVELDAR LAUSNIR.
Til að alfarið fyrirbyggja þessar aðstæður getur þú gert eftirfarandi:
1. Borðað staðgóðan morgunverð, næringarríkan svo sem hafragraut eða Weetabix. Cheerios eða Cocoa Puffs inniheldur gríðarlegt magn af sykri og er í raun ekki neitt neitt ef þú mylur einingarnar í skál. Veljum sykurskertan, trefjaríkan og næringarríkan morgunverð.
2. Borðaðu á 3-4 tíma fresti. Þannig tryggirðu að þú „urlist" ekki úr hungri og þar með verður fæðuvalið ósjálfrátt hollara.
3. Hafðu meðferðis banana, epli eða peru hvert sem þú ferð. Það fer ekki mikið fyrir því og gott að grípa í ef þú finnur hungrið nálgast.
4. Drekktu vatn reglulega yfir daginn og forðastu gosdrykki nema til hátíðarbrigða.
5. Þegar þú finnur að þú hefur enga stjórn yfir fæðuvalinu þá ertu í "urlinu" en örvæntu ekki. Prófaðu í þessu ástandi að skella í þig einum tilbúnum próteindrykk. Bíddu svo í 15 mínútur. Hversu svangur ertu í raun? Ég vissi það, þú velur skynsamlega fæðu eftir inntöku drykkjarins og 15 mínútna biðina.
6. Yfirlett grípur um sig þetta svakahungur á óæskilegum tímum og stundum er eingöngu um að ræða þorsta. fáðu þér vatnsglas þegar svengdin er óeðlilega mikil og borðaðu svo. Þú munt borða minna.
7. Aldrei kaupa í matinn svangur. Skelltu í þig einum banana áður en þú gengur inn í búðina eða léttri máltíð. Það mun koma þér á óvart hversu mikla peninga og enn fleiri hitaeiningar þú sparar í innkaupunum.
8. Forðastu að eiga sætindi heima við nema á þeim dögum sem þú ákveður að séu "nammidagar" og jafnvel á þeim dögum, passaðu þig að eyðileggja ekki heila viku með stjórnlausu áti.
9. Búðu til klukkutíma á hverjum degi til að hreyfa þig. Eftir næga inntöku súrefnis og heilbrigða hreyfingu, hvort sem hún fer fram inni á líkamsræktarstöð, úti í guðsgrænni náttúrunni eða jafnvel göngutúr á sótsvartu malbikinu þá finnurðu strax breytingu á matarvenjum.
10.Smeigðu þér inn í nýjan lífsstíl og borðaðu ferskt grænmeti með hverri máltíð og leyfðu því að taka 33% pláss á diskinum hjá þér. Fylling sem kostar sárafáar hitaeiningar og er meðal annars uppistaða góðrar heilsu ásamt heilbrigðum matarvenjum.
11.Góð regla er að hreyfa sig eftir kvöldmatinn og fyrirbyggja þannig kvöldnartið.
12.Slökkvum snemma á sjónvarpinu og fáum 8 tíma svefn á hverri nóttu, en það eitt gerir kraftaverk þegar við ætlum að grennast og breyta um lífsstíl.
Góðar stundir.