13. nóv. 2009 - 09:22Sturla Böðvarsson

Er Þorsteinn að ganga í Samfylkinguna?

Ég var ekki vaknaður í gærmorgun þegar árrisull lesandi Morgunblaðsins á Snæfellsnesi hringdi.  Hann þurfti ekki að kynna sig áður en hann sagði. „Er Þorsteinn Pálsson að ganga í Samfylkinguna“?

„Ha,“ stundi ég upp.  „Ertu ekki búinn  að lesa Moggann bætti hann við?“ Ég varð að viðurkenna að það hafði ég ekki gert, enda vaknaði ég við hringinguna  og sagði eins og vinur minn einn sem mætti of seint í vinnuna: „Ég get nú ekki byrjað að vinna við að lesa Moggann  fyrr en ég vakna.“ „Sæktu blaðið,“ var svarið. „Hann er á síðu sex, blessaður.“

Eftir að hafa flett upp á síðu sex í Mogganum og skoðað myndina, sem blasti þar við mér, og lesið myndatextann, var mér satt að segja brugðið. Utanríkisráðherrann virtist ánægður með bráð sína! Hann var að kveðja Þorstein Pálsson eftir fyrsta fund nefndarinnar sem er ætlað á vegum Samfylkingarinnar og á ábyrgð VG að véla okkur inn í Evrópusambandið. Ég skyldi vel spurningu vinar míns sem hringdi. Hann kaus Davíð sem formann vorið 1991. Hann vissi hvern ég kaus!  Og hann taldi rétt að ég fengi tækifæri til þess að skýra stöðuna frá sjónarhorni stuðningsmanns fyrrverandi formanns flokkins sem nú var  kominn í þjónustu Össurar Skarphéðinssonar.

Það er nær óskiljanlegt að fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokkins skuli láta véla sig til þeirra verka að ganga erinda þeirra Össurar og Jóhönnu Sigurðardóttur í fullkominni andstöðu við þá stefnu sem Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hefur mótað. Sú afstaða er byggð á samþykkt Landsfundar Sjálfstæðisflokksins. Núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins  vildi því aðeins ganga til viðræðna við Evrópusambandið  að áður færi fram þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort við ættum að hefja viðræður og þjóðin fengi tækifæri til þess að átta sig á kostum og göllum aðildar  og þeim forsendum sem viðræður ættu að ganga út á. Með því ættu forystumenn Evrópusambandsins ekki að þurfa að efast um heilindin í viðræðunum ef þjóðin samþykkti aðildarviðræður og ríkisstjórnin hefði þannig óskorað umboð. En þjóðin var ekki spurð.  Þess í stað var  skipuð viðræðunefnd án þess að flokkarnir utan stjórnarinnar fengju tækifæri til þess að koma að málum. Kratarnir í Samfylkingunni höfnuðu þjóðaratkvæðagreiðslu.

Það er kaldhæðni örlaganna  að það skuli hafa verið  kratarnir í Samfylkingunni, sem ásamt Steingrími Hermannssyni með aðstoð núverandi forseta lýðveldisins,  ráku rýtingin í bak hins unga forsætisráðherra í septembermánuði  árið1988. Stjórn Þorsteins Pálssonar féll og við tók stjórn sem keyrði allt í strand með skattglaðasta fjármálaráðherra sem þekkst hafði uns Steingrímur J. Sigfússon mætti til leiks. Annað sinni var komið í bakið á formanninum unga þegar Davíð Oddsson felldi hann úr formannsstólnum skömmu fyrir kosningarnar 1991.

Þorsteinn Pálsson tók við Sjálfstæðisflokknum við erfiðar aðstæður hjá flokknum eftir mikinn klofning og sundrungu. Það var mat sanngjarnra manna að hann hafi ekki fengið nægjanlegt svigrúm og stuðning til þess að ná fótfestu innan flokksins vegna þeirra sem voru óþreyjufullir og vildu harðari pólitík og sókndjarfari formann. Það töldu menn sig fá með Davíð Oddssyni.

Bjarni Benediktsson tók við Sjáfstæðisflokknum við enn erfiðari aðstæður en nokkur annar formaður fyrr og síðar. Það hefði því mátt ætla að fyrrverandi formenn flokksins hefðu skilning á því að hann þurfi stuðning og frið til þess að styrkja stöðu sína til þess að takast á við að efla flokkinn og skapa sátt um stefnuna og forystu flokkins.  Hann þarf ekki á því að halda að fyrrverandi formenn gangi gegn honum á ögurstundu í stærstu málum samtímans, þar á meðal  spurningunni  um aðild að Evrópusambandinu.

Ég get ekki séð hvaða nauðir ráku Þorstein Pálsson til þess að setjast við borðið með starfsmönnum utanríkisráðuneytisins og sérstökum áhugamönnum um að við sættum okkur við Icesave-samninginn. En lengi má manninn reyna. Vonandi kemur að því að hann skýri það fyrir okkur gömlum stuðningsmönnum sínum á hvaða leið hann er og hversvegna hann telur okkur þurfa að fara upp í hraðlest Össurar Skarphéðinssonar til Brussel og fórna m.a. því sem hann hafði svo vel gert sem sjávarútvegsráðherra. Ég bíð spenntur eftir að lesa eða heyra þær skýringar. Hann skuldar mér skýringar og væntanlega fleirum sem trúað hafa á dómgreind hans og hyggindi.



28.sep. 2010 - 08:43 Sturla Böðvarsson

Bréf mitt til þingmannanefndarinnar

Að undanförnu hafa bæði Mbl.is og Fréttablaðið birt glefsur úr svarbréfi mínu til Atla Gíslasonar formanns þingnefndarinnar sem fjallað hefur um skýrslu  Rannsóknarnefndar Alþingis. Bréf mitt er hluti þeirra þingskjala sem nefndin hefur birt. Vegna fyrirspurna til mín og athugasemda í bloggheimum tel ég rétt að birta bréfið í heild sinni hér á Pressunni þar sem ég hef skrifað undanfarin misseri. Bréfið fer hér á eftir eins og það var sent til þingsins.
30.apr. 2010 - 15:55 Sturla Böðvarsson

Hlynur Bæringsson

Körfuknattleikslið Snæfells kom heim í Stykkishólm í nótt með Íslandsmeistara titilinn. Áður hafði liðið  unnið Bikarmeistara titilinn. Það er ástæða til þess að óska Snæfellsliðinu, þjálfara þess Inga Þór Steinþórssyni og forustu Ungmennafélagsins Snæfells  til hamingju með þennan stórkostlega sigur og einstæða árangur.
30.apr. 2010 - 10:35 Sturla Böðvarsson

Ný samgönguáætlun Dags B. Eggertssonar


26.apr. 2010 - 17:00 Sturla Böðvarsson

Útvegsmenn rógsins

Í nútímanum þar sem hagsæld og menntun hefur ráðið  ríkjum, þrátt fyrir allt, hefur komist á  legg stétt manna sem gerir út  á róginn og illt umtal um náungan. Rógur gegn samferðarmönnum og illmælgi er orðinn atvinnuvegur.
07.apr. 2010 - 11:49 Sturla Böðvarsson

Undarleg umræða um Rannsóknarnefnd Alþingis

Það er sérkennilegt að fylgjast með því hvernig ýmsir aðilar reyna að koma höggi á Rannsóknarnefnd Alþingis þegar hún er að leggja loka hönd á rannsóknarskýrsluna um bankahrunið.
02.mar. 2010 - 12:12 Sturla Böðvarsson

Leiðtoginn og Kolbrún Bergþórsdóttir

Kolbrún Bergþórsdóttir

Fátt er mikilvægara lýðræðinu en traustir og trúverðugir  fjölmiðlar.

22.feb. 2010 - 10:40 Sturla Böðvarsson

Við þurfum þjóðarleiðtoga!

Ríkisstjórn Jóhönnu er tvístruð og landið virðist stjórnlaust. Landið virðist stjórnlaust. Ríkisstjórnin er tvístruð og henni hefur ekki tekist að vinna í samræmi við samkomulagið við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn, ekki í samræmi við eigin áform og ekki samkvæmt hinu mikilvæga samkomulagi sem Stöðugleikasáttmálinn gerir ráð fyrir. Og það er nánast engu komið í verk á vegum fagráðuneytanna sem séð verður. Forsvarmenn atvinnulífsins og almenningur bíður en sér engar lausnir af hálfu stjórnvalda á þeim vanda sem bankahrunið hefur haft í för með sér. Þessi staða er mjög alvarleg ekki síst þegar aðstæður eru eins og þær eru í samfélaginu.
06.jan. 2010 - 10:00 Sturla Böðvarsson

Þegar hatur og hefnd ræður för

Allir sanngjarnir menn viðurkenna að verkefni Alþingis og ríkisstjórnar er risavaxið eftir bankahrunið.  En í því verkefni gildir eins og í öllum verkum að „veldur hver á heldur.“ Frá því ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna (VG) tók við  hef ég fylgst með framvindu stjórnmálanna úr fjarlægð. Framganga forystumanna stjórnarinnar veldur mér furðu og miklum vonbrigðum. Af mörgu er að taka.  Það sem ég tel vera hættulegast við vinnubrögðin er hversu augljóst  hatrið er  og sá hefndarhugur sem virðist ráða för og þá einkum hjá fjármálaráðherranum og þeim sem næst honum standa. Það er nánast reynt að  „tryggja“ ágreining um öll mál. Slík framganga kann ekki góðri lukku að stýra. Sérstaklega eins og aðstæðurnar  eru í stjórnmálunum á Íslandi um þessar mundir. Það er hinsvegar  ekki beint hægt að segja að vinnubrögðin komi á óvart.
30.nóv. 2009 - 15:24 Sturla Böðvarsson

Umhverfisvottað Ísland

Drápuhlíðarfjall Sunnudaginn 8. júní árið 2008 var efnt til  hátíðar á Snæfellsnesi. Tilefnið var  að sveitarfélögin á Snæfellsnesi höfðu fengið svokallaða Green Globe-vottun.
06.nóv. 2009 - 10:00 Sturla Böðvarsson

Árásin á Alþingi

Í vikunni var brotin rúða í Alþingishúsinu. Árásaraðilarnir voru handteknir.  Ofbeldissinnaðir mótmælendur hafa reyndar látið lítið fyrir sér fara við Austurvöll eftir að minnihlutastjórnin var mynduð í febrúar og Vinstri grænir settust í ríkisstjórn.
03.nóv. 2009 - 10:06 Sturla Böðvarsson

Beðið eftir stjórnarflokkunum

Eins og oft áður er mikið rætt um nauðsyn þess að byggja upp flutningakerfið í landinu með lagningu betri vega. Jafnframt er litið til þess að slíkar framkvæmdir skapi mikla atvinnu á meðan framkvæmdum stendur. En skortur á fjármagni setur slíkum áformum miklar skorður eins og oft áður. Það þekkir undirritaður vel. Á átta ára  ferli sem samgönguráherra  stóð ég frami  fyrir því að þurfa að fresta framkvæmdum í þágu stöðugleika og til þess að hægt væri að jafna fjárlagahalla. Ég hef því ríkan skilning á þröngri stöðu samgönguráðherra til að setja af stað öll þau mörgu verk sem eru á samgönguáætlun og beðið er eftir. Engu að síður hafa orðið miklar framfarir í vegamálum um landið allt síðustu tuttugu árin sem bæta búsetu skilyrði. En það er samt marg ógert við  endurbætur á samgöngukerfinu.
15.okt. 2009 - 10:37 Sturla Böðvarsson

Blogg og persónuníð á vefmiðlum

Í síðustu viku var fjallað um það í Fréttablaðinu hversu erfitt það er að loka á persónuníð á netinu. Samkvæmt umfjöllun blaðsins eru Persónuvernd og dómsmálaráðuneyti að skoða leiðir til enn hertari aðgerða til að bæta persónuvernd á netinu.
09.okt. 2009 - 16:22 Sturla Böðvarsson

Fjárlagafrumvarpið og atvinnuvegirnir

Öllum má ljóst vera að ríkisstjórnin og Alþingi eiga við mikinn vanda að etja vegna bankakreppunnar og þeirra alvarlegu atburða sem skekja efnahagskerfi okkar. Því er mikilvægt að leita skynsamlegra leiða við stjórn þjóðarskútunnar og fara leið samráðs á milli atvinnulífins, ríkisvaldsins og stjórnmálaflokkanna þegar fjárlagafrumvarp næsta árs er til meðferðar á Alþingi.
28.sep. 2009 - 10:44 Sturla Böðvarsson

Rannsóknarnefnd Alþingis er að störfum

Síðasta haust setti Alþingi  lög um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna síðla ársins 2008 og tengdra atburða. Lögin tóku gildi 18. desember 2008 og skipaði forsætisnefnd Alþingis í kjölfarið nefndina sem hefur starfað síðan. Verkefni hennar hafa ekki verið böðuð í ljósi fjölmiðla. Ég geri ráð fyrir að verkefni hennar sé þeim mun umfangsmeira og trúverðugra án þess að ég viti nokkuð um það en get mér þess til.
17.sep. 2009 - 21:06 Sturla Böðvarsson

Fórn eða björgunaraðgerð?


Hversu illa sem íslenskir viðskiptajöfrar hafa komið fram á markaðstorgum Evrópu, þar sem enginn er annars bróðir í leik, þá réttlætti það ekki að Bretar og Norðurlandaþjóðirnar beittu afli sínum gegn íslensku þjóðinni þegar við  leituðum á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þeirrar alþjóðastofnunar sem við höfum verið aðilar að frá stofnun og höfum treyst.  

Sturla Böðvarsson
Fyrrverandi forseti Alþingis og samgönguráðherra.
Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 5.hola - Myndband
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.5.2012
Stoltir af steranotkun
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 15.5.2012
Grýttur jarðvegur
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 15.5.2012
Gott hjá Ólínu
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2012
Dómur yfir hælisleitendum
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 15.5.2012
Árangur í einu orði
Ólafur Margeirsson
Ólafur Margeirsson - 15.5.2012
Er vaxtahækkun svarið?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Fleiri pressupennar