06. nóv. 2009 - 10:00Sturla Böðvarsson
Árásin á Alþingi
Í vikunni var brotin rúða í Alþingishúsinu. Árásaraðilarnir voru handteknir. Ofbeldissinnaðir mótmælendur hafa reyndar látið lítið fyrir sér fara við Austurvöll eftir að minnihlutastjórnin var mynduð í febrúar og Vinstri grænir settust í ríkisstjórn.
Það leiðir hugann að því hvernig málin þróuðust s.l. haust þegar bankarnir hrundu og óvissa og skelfing greip um sig meðal landsmanna. Almenningur mótmælti eins og við var að búast. Við þær aðstæður var tækifærið hins vegar gripið, þjóðin afvegaleidd og fólki ýtt út í aðgerðir og jafnvel ofbeldi sem ekki er séð fyrir endann á.
Þeir atburðir allir, aðdragandi þeirra og eftirköst, valda mörgum áhyggjum. Það er þess vegna nauðsynlegt að fram fari umræða um aðdragandann allann en líka framgöngu sumra við þessar aðstæður, og þá ekki síst stjórnmálamanna sem hreykja sér af því að tengjast svokölluðum aðgerðasinnum.
Á þingfundinum 4. febrúar s.l. flutti ég sem forseti Alþingis, ræðu eftir að tilkynnt hafði verið um myndun minnihlutastjórnarinnar:
„Áður en gengið er til dagskrár vil ég bjóða ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur velkomna til starfa og óska ráðherrum velfarnaðar í mikilvægum störfum. Ég vona að þeir eigi gott samstarf við Alþingi. Jafnframt þakka ég ráðherrum í ríkisstjórn Geirs Haarde fyrir samstarfið og óska þeim alls hins besta. Héðan frá Alþingi sendum við Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, góðar kveðjur.
Mikil umskipti hafa nú orðið í íslenskum stjórnmálum. Ríkisstjórn sem naut stuðnings meira en tveggja þriðju hluta þingmanna hefur sagt af sér og við tekur minnihlutastjórn tveggja flokka. Alþingiskosningar verða í vetrarlok. Ríkisstjórnir koma og fara, það er hluti af lýðræðinu og þeirri stjórnskipan sem við búum við í landinu og kosningar verða eigi síðar en á fjögurra ára fresti, en Alþingi stendur hvað sem á dynur.
Ég verð að viðurkenna fyrir þingheimi héðan úr stól forseta Alþingis, að ég hef verið mjög hugsi yfir atburðum síðustu vikna við Alþingishúsið og er sannarlega ekki einn um það. Veggir þinghússins hafa verið útbíaðir, rúður brotnar í tugatali og ruðst hefur verið inn í það með ofbeldi. Í stjórnarskránni segir að eigi megi raska friði Alþingis né frelsi. Þess vegna hljótum við að harma þessa atburði. Við höfum mótað okkur leikreglur í samfélaginu á löngum tíma. Þeim má vissulega breyta en menn verða að fara með friði, annars er voðinn vís. Ég vona í lengstu lög að atburðirnir við Alþingishúsið að undanförnu boði ekki nýja siði í íslenskum stjórnmálum. Alþingi er hornsteinn íslenskrar stjórnskipunar. Þangað velur íslenska þjóðin sína fulltrúa. Stöndum vörð um Alþingi.“
Svo mörg voru þau orð. Í kjölfar árásanna á Alþingishúsið þar sem starfsmenn Alþingis og einkum lögreglumenn urðu fyrir meiðslum, voru einstaklingar handteknir af lögreglu og færðir til yfirheyrslu í samræmi við landslög. Ekkert hefur heyrst af því hvaða meðferð þau mál hafa fengið hjá lögreglu, ákæruvaldinu og dómstólum.
Það var öllum ljóst sem voru starfandi í Alþingishúsinu þegar aðgerðir náðu hámarki að einhverjir þingmenn Vinstri grænna voru virkir gerendur og fylgdust grannt með þeim atburðum sem áttu sér stað við Austurvöll.
Nú sitja þingmenn flokksins í ríkisstjórn og hafa mikil völd og áhrif. Þeir eru jafnframt að beita sér fyrir miklum breytingum á sviði dóms-og lögreglumála. Það eru mjög skiptar skoðanir um hvort þær breytingar styrkja eða veikja lögregluna og dómstólana í landinu. Er það ekki umhugsunarefni? Og dómsmálaráðherra hefur ekkert pólitískt bakland og virðist verða undir í þeim ramma slag sem stendur um útgjalda heimildir ráðuneyta.
En er það ekki líka í samræmi við margrædda opna stjórnsýslu sem sitjandi ríkisstjórn boðar, að hún hvetji og gefi lögreglunni tækifæri til að upplýsa um afdrif þeirra mála sem varða brot á stjórnarskránni vegna árása á Alþingishúsið?
Það hafa verið haldnir fréttamannafundir af minna tilefni.
02.feb. 2013 - 16:58
Sturla Böðvarsson
Það hafa verið hörmulegir tímar í stjórnmálum frá því minnihlutastjórnin tók við 1. febrúar 2009.
16.des. 2012 - 10:16
Sturla Böðvarsson
Sjálfsævisaga Svavars Gestssonar er komin út. Svo sem vænta mátti er bókin læsileg og vel skrifuð. Ég geri ráð fyrir því að bæði samherjar Svavars sem og andstæðingar hans í stjórnmálum, sem þekkja vel til, telji sig hafa sitthvað að segja um gang mála og dóma Svavars um menn og málefni. Svavar hefur frá mörgu að segja af löngum ferli stjórnmálaafskipta. Hann dregur skemmtilega fram árin á Þjóðviljanum og hann rekur prýðilega raunasögu vinstrihreyfingarinnar á Íslandi. Ég ég hafði lúmskt gaman af að lesa þau skrif, ekki síst vegna þess að ég var nýbúinn að lesa þá stórmerkilegu bók Þórs Whiteheads, Sovét-Ísland Óskalandið. Þrátt fyrir að bókina skrifi fyrrum ritstjóri Þjóðviljans er hún ærlega skrifuð, en ekki er við því að búast að sjálfstæðismenn skrifi undir alla hluti sem í bókinni birtast.
18.nóv. 2012 - 16:15
Sturla Böðvarsson
Illugi Gunnarsson alþingismaður Reykvíkinga hefur af mikilli einlægni sameinað stjórnmálaáhugann, hagfræðimenntun sína og hina listrænu taug tónlistarinnar, sem hann fékk í vöggugjöf. Það er væntanlega skýringin á því að hann á svo marga stuðningsmenn og vini úr svo ólíkum áttum.
07.nóv. 2012 - 21:13
Sturla Böðvarsson
Skip sem siglir um ólgusjó þarf samhenta áhöfn og traustan mann við stýrið sem lætur ekki hrekjast af leið. Sama gildir um þjóðarskútuna. Stjórnmálamönnum okkar hefur verið trúað fyrir að stýra henni.
27.okt. 2012 - 17:58
Sturla Böðvarsson
Páll Magnússon útvarpsstjóri er í mikilli vörn þessa dagana. Hann og telur mikla þörf fyrir að verjast vegna skrifa ritsjóra Morgunblaðsins. Hann virðist óttast beittar ritstjórnargreinar og Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins.
28.sep. 2010 - 08:43
Sturla Böðvarsson
Að undanförnu hafa bæði Mbl.is og Fréttablaðið birt glefsur úr svarbréfi mínu til Atla Gíslasonar formanns þingnefndarinnar sem fjallað hefur um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Bréf mitt er hluti þeirra þingskjala sem nefndin hefur birt. Vegna fyrirspurna til mín og athugasemda í bloggheimum tel ég rétt að birta bréfið í heild sinni hér á Pressunni þar sem ég hef skrifað undanfarin misseri. Bréfið fer hér á eftir eins og það var sent til þingsins.
30.apr. 2010 - 15:55
Sturla Böðvarsson
Körfuknattleikslið Snæfells kom heim í Stykkishólm í nótt með Íslandsmeistara titilinn. Áður hafði liðið unnið Bikarmeistara titilinn. Það er ástæða til þess að óska Snæfellsliðinu, þjálfara þess Inga Þór Steinþórssyni og forustu Ungmennafélagsins Snæfells til hamingju með þennan stórkostlega sigur og einstæða árangur.
30.apr. 2010 - 10:35
Sturla Böðvarsson
26.apr. 2010 - 17:00
Sturla Böðvarsson
Í nútímanum þar sem hagsæld og menntun hefur ráðið ríkjum, þrátt fyrir allt, hefur komist á legg stétt manna sem gerir út á róginn og illt umtal um náungan. Rógur gegn samferðarmönnum og illmælgi er orðinn atvinnuvegur.
07.apr. 2010 - 11:49
Sturla Böðvarsson
Það er sérkennilegt að fylgjast með því hvernig ýmsir aðilar reyna að koma höggi á Rannsóknarnefnd Alþingis þegar hún er að leggja loka hönd á rannsóknarskýrsluna um bankahrunið.
02.mar. 2010 - 12:12
Sturla Böðvarsson
Fátt er mikilvægara lýðræðinu en traustir og trúverðugir fjölmiðlar.
22.feb. 2010 - 10:40
Sturla Böðvarsson
Landið virðist stjórnlaust. Ríkisstjórnin er tvístruð og henni hefur ekki tekist að vinna í samræmi við samkomulagið við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn, ekki í samræmi við eigin áform og ekki samkvæmt hinu mikilvæga samkomulagi sem Stöðugleikasáttmálinn gerir ráð fyrir. Og það er nánast engu komið í verk á vegum fagráðuneytanna sem séð verður. Forsvarmenn atvinnulífsins og almenningur bíður en sér engar lausnir af hálfu stjórnvalda á þeim vanda sem bankahrunið hefur haft í för með sér. Þessi staða er mjög alvarleg ekki síst þegar aðstæður eru eins og þær eru í samfélaginu.
06.jan. 2010 - 10:00
Sturla Böðvarsson
Allir sanngjarnir menn viðurkenna að verkefni Alþingis og ríkisstjórnar er risavaxið eftir bankahrunið. En í því verkefni gildir eins og í öllum verkum að „veldur hver á heldur.“ Frá því ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna (VG) tók við hef ég fylgst með framvindu stjórnmálanna úr fjarlægð. Framganga forystumanna stjórnarinnar veldur mér furðu og miklum vonbrigðum. Af mörgu er að taka. Það sem ég tel vera hættulegast við vinnubrögðin er hversu augljóst hatrið er og sá hefndarhugur sem virðist ráða för og þá einkum hjá fjármálaráðherranum og þeim sem næst honum standa. Það er nánast reynt að „tryggja“ ágreining um öll mál. Slík framganga kann ekki góðri lukku að stýra. Sérstaklega eins og aðstæðurnar eru í stjórnmálunum á Íslandi um þessar mundir. Það er hinsvegar ekki beint hægt að segja að vinnubrögðin komi á óvart.
30.nóv. 2009 - 15:24
Sturla Böðvarsson
Sunnudaginn 8. júní árið 2008 var efnt til hátíðar á Snæfellsnesi. Tilefnið var að sveitarfélögin á Snæfellsnesi höfðu fengið svokallaða Green Globe-vottun.
13.nóv. 2009 - 09:22
Sturla Böðvarsson
Ég var ekki vaknaður í gærmorgun þegar árrisull lesandi Morgunblaðsins á Snæfellsnesi hringdi. Hann þurfti ekki að kynna sig áður en hann sagði. „Er Þorsteinn Pálsson að ganga í Samfylkinguna“?
03.nóv. 2009 - 10:06
Sturla Böðvarsson
Eins og oft áður er mikið rætt um nauðsyn þess að byggja upp flutningakerfið í landinu með lagningu betri vega. Jafnframt er litið til þess að slíkar framkvæmdir skapi mikla atvinnu á meðan framkvæmdum stendur. En skortur á fjármagni setur slíkum áformum miklar skorður eins og oft áður. Það þekkir undirritaður vel. Á átta ára ferli sem samgönguráherra stóð ég frami fyrir því að þurfa að fresta framkvæmdum í þágu stöðugleika og til þess að hægt væri að jafna fjárlagahalla. Ég hef því ríkan skilning á þröngri stöðu samgönguráðherra til að setja af stað öll þau mörgu verk sem eru á samgönguáætlun og beðið er eftir. Engu að síður hafa orðið miklar framfarir í vegamálum um landið allt síðustu tuttugu árin sem bæta búsetu skilyrði. En það er samt marg ógert við endurbætur á samgöngukerfinu.
15.okt. 2009 - 10:37
Sturla Böðvarsson
Í síðustu viku var fjallað um það í Fréttablaðinu hversu erfitt það er að loka á persónuníð á netinu. Samkvæmt umfjöllun blaðsins eru Persónuvernd og dómsmálaráðuneyti að skoða leiðir til enn hertari aðgerða til að bæta persónuvernd á netinu.
09.okt. 2009 - 16:22
Sturla Böðvarsson
Öllum má ljóst vera að ríkisstjórnin og Alþingi eiga við mikinn vanda að etja vegna bankakreppunnar og þeirra alvarlegu atburða sem skekja efnahagskerfi okkar. Því er mikilvægt að leita skynsamlegra leiða við stjórn þjóðarskútunnar og fara leið samráðs á milli atvinnulífins, ríkisvaldsins og stjórnmálaflokkanna þegar fjárlagafrumvarp næsta árs er til meðferðar á Alþingi.
28.sep. 2009 - 10:44
Sturla Böðvarsson
Síðasta haust setti Alþingi lög um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna síðla ársins 2008 og tengdra atburða. Lögin tóku gildi 18. desember 2008 og skipaði forsætisnefnd Alþingis í kjölfarið nefndina sem hefur starfað síðan. Verkefni hennar hafa ekki verið böðuð í ljósi fjölmiðla. Ég geri ráð fyrir að verkefni hennar sé þeim mun umfangsmeira og trúverðugra án þess að ég viti nokkuð um það en get mér þess til.