16. mar. 2010 - 10:00Sigrún Einars

Skammastu þín Sigrún!

Þú átt aldrei eftir að finna þér karlmann!

Þú átt aldrei eftir að finna þér karlmann! Getty Images

Ég hef verið skömmuð svolítið undanfarið.  Einn sendi mér póst og sagði mér að ég hafi verið vond við karlmenn með lélega sjálfsmynd í pistlinum Strákar, engan svona aumingjaskap!  Þar tala ég um höfnun og hegðun sumra karlmanna þegar þeir koma svona fram.  Þetta var kannski full sterkt til orða tekið hjá mér, það var alls ekki ætlunin að gera lítið úr veikleika manna.  En mér finnst samt að menn sem eru komnir yfir þrítugt eigi að vera orðnir nógu þroskaðir til að átta sig á því að léleg sjálfsmynd er sjálfseyðandi og að ef þeir hafa eitthvað vit í kollinum að þá leiti þeir leiða til að lagfæra það.  Sjálfs síns vegna, það er ömurlegt að lifa lífi sínu í fangelsi í sínu eigin sjálfi.  Þeir sem ekki hafa tök á því að takast á við þetta vandamál, sama hver ástæðan er, eru hreinlega ekki þannig staddir andlega að heilbrigðar konur hefðu áhuga á að stofna til náinna kynna við þá.

Átt aldrei eftir að finna þér karlmann

Annar sagði mér að enginn karlmaður myndi vilja deita mig og eiga á hættu að enda sem saga á bloggi daginn eftir.  Að ég myndi aldrei finna mér karlmann.  Hann var reyndar „svolítið“ fullur en fólk segir oft það sem í brjósti þeirra býr þegar það er undir áhrifum áfengis svo ég ætla að ganga út frá því að hann hafi verið að meina það sem hann sagði.  Bar hann mig saman við aðrar konur sem skrifa svipaða pistla á öðrum miðlum og tjá sig mjög frjálslega um karlmenn sem þær hafa kynnst. 

Ég verð samt að standa með sannfæringu minni í þessu máli, ég get ekki skrifað um annað en reynslu mína, bæði persónulega og í gegnum vinkonur mínar og aðrar konur sem ég þekki.  Annars væri ég bara að bulla og þá gæti ég alveg eins sleppt þessu.  Hinsvegar passa ég mig á því að virða einkalíf fólks og þeirra persónu og breyti öllum atriðum sem gætu leitt til þess að viðkomandi þekkist.  Og ég tala ekki niðrandi til fólks, hvorki til einstakra manna né almennt.  Ef einhver telur sig hafa lesið eitthvað slíkt út úr orðum mínum, þá biðst ég afsökunar, það er alls ekki meiningin. 

Brennd af neikvæðri reynslu?

Enn annar skammaði mig svo fyrir að gera lítið úr karlmönnum, sagði það skína í gegnum alla mína pistla að ég væri brennd af neikvæðri reynslu og að ég ætti að opna huga minn fyrir því að það væri til fullt af almennilegum karlmönnum.  Honum finnst ég setja konur á stall og karla í svaðið með skrifum mínum.  Við hann, og ykkur sem eruð á sama máli, verð ég að segja:  Hættið að reyna að lesa á milli línanna og lesið orðin sjálf sem ég skrifa.  Það sem ég segi er nákvæmlega það sem ég meina, þið eruð að sóa orku í að reyna að sálgreina mig með því að reyna að finna duldar merkingar orða minna.  Hinsvegar gagnrýni ég hiklaust neikvæða hegðun sem ég upplifi oft og verður hver að taka það til sín sem á. 

Mér fannst þessi gagnrýni reyndar mest óverðskulduð því ég er ekki einungis minnst fordómafulla manneskja sem þið gætuð kynnst heldur fæ ég oft skammir frá vinkonum mínum fyrir að sýna karlmönnum of mikinn skilning.  Þar að auki kemur hún frá manni sem ég hef kynnst ágætlega og varð fyrir vonbrigðum með að hann skyldi lesa mig svona vitlaust.  Auðvitað hef ég kynnst mínum skerfi af lélegum mönnum sem koma illa fram við konur en ég hef líka kynnst miklu fleiri mönnum sem eru almennilegir og koma vel fram við sína konu.  Menn eru eins misjafnir og þeir eru margir og mér dettur ekki í hug að setja alla undir einn hatt bara vegna þess að einhverjir nokkrir hafa komið illa fram við mig.   

Konur eru ekki betri en karlar

Þó ég sé sjálf kona þá er ég ekki rauðsokka og ég styð ekki konur einungis vegna þess að þær eru konur.  Neikvæð hegðun er neikvæð hegðun, hvort sem það eru konur eða karlar sem í hlut eiga.  Ég hlífi ekki vinkonum mínum þegar ég tel þær koma illa fram við sína menn og ef mér finnst þær vera að fara yfir strikið þá læt ég þær heyra það.  Hinsvegar er öll mín reynsla bundin mínu kyni, ég er ekki að deita konur, ég hef enga reynslu í þeim efnum til að byggja á og skrifa um.  En ég hef skrifað örfáa pistla um neikvæða hegðun kvenna (sá nýjasti; Hvað kosta íslenskar konur?) eða komið eitthvað inná það í öðrum pistlum.  Ég hef líka bent konum á að líta í eigin barm og skoða eigin hegðun þegar þær eru að kvarta yfir öllum þessum „skíthælum“ sem þær segja karlmenn vera.

Það er þó augljóst að þið sem gagnrýnduð mig þekkið ykkur í þessum pistli, ef þið lesið hann, enda er það líka allt í lagi.  Ég er ekki að nafngreina ykkur né að gera lítið úr ykkur eða ykkar skoðunum.  Ég er einungis að bregðast við orðum ykkar og svara gagnrýninni og þið hljótið að geta staðið undir því sem þið sögðuð.  Ef þið meintuð það. 




31.ágú. 2010 - 20:16 Sigrún Einars

Að læra að elska - eða bara elska

Fyrr á öldum voru hjónabönd iðulega hagkvæmnisambönd, sértaklega í efri stéttum þjóðfélaga um heim allan.  Í æðstu stéttum voru þetta hrein og klár viðskiptasambönd og ástin látin mæta afgangi. Í lægri stéttum snérist þetta meira um hagkvæmni og sjálfsbjargarviðleitni. Menn völdu sér konur eftir hæfileika þeirra til að ala þeim börn og reka heimili, konur (eða feður þeirra) völdu menn sem gátu veitt þeim og börnum þeirra lífsviðurværi.
28.ágú. 2010 - 15:00 Sigrún Einars

Hafnaðu og gerðu það rétt

Hvernig getur maður verið heiðarlegur og hreinskilinn án þess að særa fólk?  Er hægt að segja eitthvað neikvætt um aðra manneskju án þess að hún taki það til sín og líði illa með það?  Hvernig líður þér þegar einhver segir við þig að þú sért ekki nógu heimilisleg, ekki nógu flott, ekki nógu ungleg, of feimin, of löt eða með of stóran rass?
26.ágú. 2010 - 17:00 Sigrún Einars

Að velja sér ísskáp

Þegar maður ætlar að fara að kaupa sér ísskáp þá er maður með ákveðnar hugmyndir um hvernig hann þarf að vera og hvernig maður vill að hann sé.  Í fyrsta lagi þarf hann auðvitað að passa í plássið sem hann á að standa í.  Svo vill maður kannski frekar krómaðan ísskáp en hvítan.  Eða jafnvel svartan.  Sumir vilja hafa lítið frystihólf inní ísskápnum, aðrir vilja stærri frystiskáp neðan á ísskápnum og enn aðrir vilja tvöfaldan risa.
14.ágú. 2010 - 12:25 Sigrún Einars

Um vændispistilinn

Ég vogaði mér að koma með innlegg í vændisumræðuna um daginn þar sem ég viðra skoðun sem samræmist ekki viðurkenndum skoðunum kvensamfélagsins á því máli.  Ólíkar skoðanir eiga rétt á sér og ég nenni ekki að vera meðvirk og játa skoðanir sem samræmast ekki minni eigin sannfæringu.  Það kom mér nú samt á óvart að ég fékk aðeins einn skammarpóst, átti von á fleirum.
13.ágú. 2010 - 13:17 Sigrún Einars

Hamingjusama druslan

Eitt sinn var það þannig að konur fengu á sig druslustimpil sem höfðu átt marga bólfélaga um ævina en karlar hlutu virðingarsess í röðum annara karldýra.  Nú finnst mér eins og þetta sé að breytast aðeins.  Ekki til hins betra samt, því konur fá enn á sig druslustimpil en karlmenn líka.
08.ágú. 2010 - 13:00 Sigrún Einars

Þú elskar mig meira en ég elska þig

Ég hef kynnst óteljandi mönnum um ævina og sumum nánar en öðrum, örfáum mjög náið.  Ég hef óteljandi oft orðið hrifin af mönnum, stundum mjög hrifin og jafnvel kannski ástfangin einu sinni eða tvisvar.  Það er gaman að kynnast nýjum mönnum og það er góð tilfinning að vera hrifin, betri að vera mjög hrifin en langbest að vera ástfangin. 
07.ágú. 2010 - 09:00 Sigrún Einars

Ertu gunga eða töffari?

Ein vinsælasta sambandsslitaaðferð sem ég veit um er Aumingjaleiðin.  Þetta er aðferðin sem flestir nota því hún er auðveldust fyrir gerandann.  Það eru meira að segja margir sem vita hreinlega ekki að það eru til aðrar aðferðir.
04.ágú. 2010 - 21:00 Sigrún Einars

Meira um vændi

Vændi hefur verið tíðrætt undanfarið og mönnum orðið svo heitt í hamsi í umræðunni að þeir eru farnir að tjá löngun sína til að berja mann og annan.  Ekki beint gæfulegt viðhorf það, að menn með ólíkar skoðanir en maður sjálfur þurfi á rassskellingu að halda.
03.jún. 2010 - 18:00 Sigrún Einars

Frá lesendum: Í sárum

Þetta er sárt að upplifa en það gerir illt verra að velta sér uppúr hlutum sem við fáum ekki breytt og leyfa reiði og biturleika að safnast upp í hjarta okkar.  Ekki leyfa neikvæðri reynslu að gera úr þér neikvæða manneskju.  Öll lífsreynsla er góð lífsreynsla, þó okkur finnist það ekki akkúrat á meðan við erum að ganga í gegnum hana.
01.jún. 2010 - 14:00 Sigrún Einars

Að hætta saman

Ég þekki tvær konur sem eru að ganga í gegnum „sambandsslit“ um þessar mundir.  Þó að samböndin hafi verið gjörólík þá er ferlið eftir að því líkur nokkurn vegin það sama hjá báðum.  Önnur var að hitta mann reglulega í nokkra mánuði og var þetta orðið nokkuð alvarlegt, allavega í hennar augum.  Hin var að hitta mann óreglulega í nokkra mánuði og varð aldrei neitt alvarlegt.
28.maí 2010 - 19:00 Sigrún Einars

Sjúk ást

Þegar þú meiðir konuna þína er annar maður að óska þess að hann fengi að njóta ásta með henni.  Þegar þú færð konuna þína til að gráta er annar maður að stela frá henni brosum.
25.maí 2010 - 17:00 Sigrún Einars

Hræddir menn

Konur eru tilfinningaverur, ekki einungis höfum við fullt frelsi til að tjá tilfinningar okkar, heldur er hreinlega ætlast til þess að við séum tilfinninganæmar.  Karlmenn eru það líka en hafa ekki sama frelsi og við til að tjá sig um það.  Þeim er ætlað að vera harðir og hrjúfir.
19.maí 2010 - 20:00 Sigrún Einars

Flagð undir fögru skinni

Ég veit um tvö mjög alvarleg dæmi þess að menn hafi villt á sér heimildir og nýtt sér tilfinningar konu til að ná einhverju óheiðarlegu fram gegn þeim.
18.maí 2010 - 18:00 Sigrún Einars

Hættulegar konur og hræddir menn

Ég lenti í mjög svo áhugaverðum og skemmtilegum samræðum við vin minn um daginn.  Umræðuefnið var hvers vegna karlmenn virðast stundum hreinlega hræðast sumar konur.  Þetta er maður sem ferðast um á hávaðasömum tryllitækjum, veiðir sér til matar, drekkur kaffið sitt bleksvart og glímir við óvinveitta í aukavinnu.  Rammíslenskur nútíma víkingadurgur sem ekkert hræðist.  Nema hættulegar konur.
12.maí 2010 - 19:00 Sigrún Einars

Litla Gunna og litli Jón

Litla Gunna og litli Jón héldu nýlega uppá 40 ára brúðkaupsafmæli sitt.  Mörg sambönd sem endast svo lengi hafa löngu glatað ljómanum, eru löngu hætt að vera spennandi, fólk hangir saman því þeim kemur vel saman og það er svo mikil fyrirhöfn og vesen að skilja.
11.maí 2010 - 16:00 Sigrún Einars

Stefnubreyting

Ég fæ alltaf reglulega pósta frá konum sem eru að fríka út því að „kærastinn“ hagar sér ekki eins og þeim finnst að hann eigi að gera.  Hann hringir ekki nógu oft, svarar ekki sms-um, er ekki nógu rómantískur, skipuleggur frítíma sinn án þess að gera ráð fyrir þér og þú veist aldrei hvað hann er að gera þegar þið eruð ekki saman.
07.maí 2010 - 22:00 Sigrún Einars

Öruggt kynlíf

Kynlíf er gott en það getur líka verið varasamt og jafnvel hættulegt.  Óæskilega þungun ætla ég ekki að ræða hér, konur sem eru á pillunni eða nota aðrar reglulegar getnaðarvarnir þurfa ekki að hafa áhyggjur af slíku.
Það eru allir þessir kynsjúkdómar sem ég vil ræða. 
06.maí 2010 - 16:00 Sigrún Einars

Rassakall

Okkar elskulega ilhýra á ekki til neitt fallegt orð yfir það sem, á ensku, er kallað booty call.  Bein þýðing er ekki mjög smart en samt fyndin svo ég ætla að halda mig við hana.
04.maí 2010 - 13:00 Sigrún Einars

Lesendabréf: Óskalistinn

Kannski er ég bara ekki að fatta þetta ferli, kannski er ég bara svona skrýtinn í þessu en mitt aðal markmið er að finna konu sem mér líður vel með, það skiptir ekki meginmáli við hvað hún vinnur, hvað hún er há, hvort hún hefur áhuga á flestum eða öllum mínum áhugamálum osv.frvs.
03.maí 2010 - 20:00 Sigrún Einars

Svona á að gera þetta!

Sönn saga sem ég sel ekki dýrari en ég keypti hana:  Maður gengur inn á skemmtistað og það fyrsta sem hann sér er gullfalleg kona við fatahengið.  Maginn á honum tekur heilhring og hann missir andann.  En samt gerist eitthvað inní honum sem tekur ekkert mark á þessum líkamlegu viðbrögðum við að sjá þessa fallegu konu. 
02.maí 2010 - 17:00 Sigrún Einars

Lesendabréf: Sjúkleg afbrýðissemi

Nú var mælirinn orðinn fullur hjá mér, ég hafði engan áhuga á að vera í sambandi við mann sem fylgdist með hverju skrefi mínu og varpaði á mig sprengju í hvert sinn sem ég gerði eitthvað sem ýtti undir öryggisleysi hans.
01.maí 2010 - 15:00 Sigrún Einars

Karlmennskan

Í den voru þeir álitnir mikil karlmenni sem héldu utan í margra missera ferðalög á tréskipum og vógu mann og annan þegar að æru þeirra var vegið.  Í því fólst mikill heiður að láta lífið í orrustu og menn sem höguðu sér eins og berserkir dagsdaglega, þó ekki væri sveppatíðin, voru auðvitað mestu karlmenninn.
30.apr. 2010 - 18:00 Sigrún Einars

Kraftaverkasambönd

Eitt sinn, fyrir margt löngu, eyddi ég nokkrum dögum úti á landi með skemmtilegu fólki sem hafði skráð sig á námskeið saman.  Þetta var stór hópur og fjölbreyttur og af því að ég er svo mikill manneskjuskoðari (það má búa til ný orð þegar þess þarf) þá var ég allveg í essinu mínu innan um allt þetta nýja fólk sem ég hafði aldrei hitt áður. 
29.apr. 2010 - 14:00 Sigrún Einars

Þörf vs þrá

Það getur verið erfitt að átta sig á tilfinningum sínum jafnvel þó maður telji sig þekkja sjálfan sig nokkuð vel.  Ég geri líka ráð fyrir því að tilfinningaríkir einstaklingar eiga enn erfiðara með þetta, kannski vegna þess að það eru stöðugt einhverjar tilfinningar á flögri og maður getur hreinlega ekki verið að greina allar tilfinningar, alltaf hreint.
26.apr. 2010 - 15:00 Sigrún Einars

Að kyssa konu

Maður hefði haldið að reynslan og aldurinn kenndi mönnum að kyssa en þær væntingar hafa aðeins valdið mér vonbrigðum.  Það er ekkert sjálfgefið að þroskaður og reynslumikill karlmaður geti kysst vel.  Alltof margir fullorðnir karlmenn kunna einfaldlega ekki að kyssa konu.
23.apr. 2010 - 16:00 Sigrún Einars

Afsakið mig samkynhneigðir

Mér verður oft hugsað til samkynhneigðra þegar ég skrifa pistlana mína.  Ég tala um æskilega framkomu kynjanna í garð hvors annars, sambönd, kynlíf osv.frvs.  En öllum mínum skrifum er ósjálfrátt beint að gagnkynhneigðum.  Þar sem ég skrifa út frá eigin reynslu er þetta eiginlega bara óhjákvæmilegt.
21.apr. 2010 - 14:30 Sigrún Einars

Ást vs. hrifning

Við getum auðveldlega hrifist af tónlist, kvikmyndum, list, stöðum, bókum, ljóðum, lykt, dýrum osv.frvs, ekki síður en einstaklingum af báðum kynjum, án tillits til kynhneigðar okkar.  Hrifningin getur auðvitað verið mismikil og fólk er misjafnlega hrifnæmt.  Sumir heillast auðveldlega af öllu mögulegu á meðan ekkert virðist hreyfa við öðrum.
15.apr. 2010 - 14:00 Sigrún Einars

Uns dauðinn aðskilur okkur

Hugmyndin um hjónaband er mjög falleg í mínum huga, a.m.k. í þeirri mynd sem Walt Disney birti mér.  Öskubuska, Þyrnirós og Mjallhvít giftust allar prinsunum sínum og lifðu svo hamingjusamar til æviloka.  Þessi fallegu ævintýri höfðu svo mikil áhrif á mig að ég var sannfærð um að ekkert væri göfugra til en hjónabandið og auðvitað voru öll hjónabönd fullkominn.
11.apr. 2010 - 20:00 Sigrún Einars

Orðabók kynjanna: Ástarjátningar

Ég var alltof mikið að flýta mér þegar ég sendi út spurningalistann á dögunum því ég gleymdi alveg að spyrja karlmenn hvað þeir meina þegar þeir segja „Ég elska þig“ og spurði bara konurnar.  Ég ætla samt að leyfa mér að álykta, út frá þeirri reynslu að karlmenn eru síst líklegir til að ofnota þessa játningu, að þeir meini nákvæmlega það sama og konur þegar þeir segja þetta, nefninlega að hann elskar þig.
08.apr. 2010 - 08:00 Sigrún Einars

Sterk sambönd - hamingjusamt fólk

Í síðasta pistli talaði ég um öll illa förnu samböndin sem ég verð vitni að í kringum mig og hversu leitt mér þykir að horfa upp á þetta.  Ég fór eiginlega bara á bömmer þegar ég uppgötvaði hversu mörg sambönd ég veit um sem standa hreinlega á brauðfótum.  En þá mundi ég eftir einu pari sem er svo til fyrirmyndar að ég bara mátti til með að tjá mig um þau líka. 

Sigrún Einars
Samskiptahugsuður og stefnumótagúrú.

Meistarapróf úr Lífsins skóla.

Eilífðarverkefni:  Þvottur, uppvask og að breyta sjálfri mér áður en ég get farið að breyta heiminum.

Er lúmskt fyndin ef vel er að gáð. Elska landið mitt, fólkið mitt og lífið mitt.

Re-examine all you have been told and dismiss what insults your soul eftir Walt Whitman breytti lífi mínu.

Reynslusögur, þitt álit? Netfangið er: sigruneinars@yahoo.com

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit