06. feb. 2012 - 08:00Ragga Nagli

Spegill, spegill herm þú mér

Hvað sjá konur þegar þær líta í spegil?

Hvernig lítur sjálfsmyndin út sem svamlar í gráa efninu?


Sérðu hnausþykk læri í gallabuxunum og breiða kálfa í nýjustu stígvélatískunni?

Rassinn alltof suðlægur og mittið eins og símastaur?

Múffutoppur yfir gallabuxnastrengnum?

Verkamannahendur og þvottur ofan á þvottabrettinu?

Aumingja með enga sjálfsstjórn sem datt í súkkulaðirúsínupakkann á þriðjudaginn?

Með samviskubit í ræktinni því það tekur tíma frá fjölskyldunni,
Samviskubit yfir að vinna yfirvinnu og missa af æfingu.
Samviskubit yfir að setja ungann í barnapössunina meðan hamagangur er tekinn eftir vinnu.


Við konur erum áskrifendur að samviskubiti, með FIMM háskólagráður í sjálfsniðurrifi og fremjum slík hryðjuverk á sjálfsmyndinni að Hamas liðar myndu ráða okkur á staðnum.

Við sjáum ekki hrausta konu sem rífur í járn til jafns við drengina, pumpar armbeygjur án þess að blikka auga og sprettar úr spori eins og sléttuúlfur.

Við hugsum ekki um okkur sem kjarnakvendi sem spígsporar hnarreist og sprengfull af sjálfstrausti um lyftingasalinn með sigg í lófum og svita í brók eftir erfiðið?

Hraust og sterk valkyrja sem beygir eins og berserkur, deddar af offorsi og slítur upp járnið í bekknum rymjandi eins og rostungur.


Konu sem þrátt fyrir annir í vinnu og heimili hugsar um mataræðið og gúllar hollustu mest allan tímann með nokkur súkkulaðidansspor og flatbökur tilbúnar á hliðarlínunni til að næra púkann og viðurkennir hann sem hluta af sjálfinu.

Að vera heilbrigð og hraust er ekki nógu gott. 

Það þarf að öfundast útí náungann “af því hún getur borðað nammi alla daga og samt verið mjó.”

Hvað er öfundsvert við að gúffa í sig óhollustu sjö daga vikunnar og stuðla að hærri blóðsykri, blóðfitu og kólesteróli?

Hvað er eiginlega öfundsvert við að vera "mjór"?


Grannur að utan er svo langt frá að vera hraustur að innan.

Í mörgum tilfellum eru hinir grönnu í lélegu líkamlegu formi því það vantar holdarfarið sem ytri hvata og drífur marga áfram til að valhoppa í lífsstílnum.

 

Af hverju hanga væntingar og draumar kvenna um sjálfsmyndina eins og gínur á húsþökum hjá félögum Nýdönskum.

Jafn óraunhæfar og fjarlægar og styrking íslenskrar krónu.


Skilaboðin sem dynja á kvinnum samtímans eru að þær eigi að vera innankroppuð hræ sem sötra græna djúsa til að dítoxa öllu sem nokkurn tíma hefur runnið ofan í kokið.

Þú átt að vera komin aftur í brækur númer núll sautján tímum eftir barnsburð.
Þú átt að missa 10 kíló á tveimur vikum, annars ertu ekki verðug í samfélagi mannanna.
Læri mega ekki snertast við göngu, armar líkjast ofelduðu spaghetti og rifbein talin aftan frá.

Þér skuluð algjört fráhald dýrka frá súkkulaði, kökum, snúðum, glúteini, mjólk, kartöflum, rauðu kjöti, brauði, hvítu hveiti, sykri, því slíkt er afkvæmi undirheimaguðsins.
Þú skalt ganga um með innantóm sultaraugu eftir fleiri vikur af prótínkúr, djúsasötri, kolvetnasvelti og duftslafri því matvælin sem eru “leyfileg” má telja á fingrum annarar.

Væskilslegur horaður skrokkur innanétinn af sulti, fóðraður á duftpillum og fljótandi fæði er jafn öflugur í ræktinni og þriggja daga gömul borðtuska.  

KONA! Girtu þig í brók, snýttu samviskubitinu útum nösina, veiddu sjálfsmyndina upp úr tojlettinu og skoðaðu naflann á þér.

Sterkir rassvöðvar hjálpa þér að rífa upp réttstöðuna.
Þeir komast ekki fyrir í örþunnum pönnukökurassi.

Það þarf þykk læri til að beygja eins og skepna. Vannærð fyrirsætulæri skjálfa undir stönginni.


Breiðar hendur slíta upp þyngdirnar í bekknum.

Stórar axlir pressað meira.

Þykkir kálfar spæna upp sprettina.



Þú ert að byggja upp þinn besta líkama, ekki besta líkama jarðkúlunnar.
Þinn besti líkami getur aldrei passað í piparkökuform útlitsbrenglaðra horrenglumiðlanna… né ætti það nokkurn tíma að vera markmiðið.


















22.maí 2012 - 10:40 Ragga Nagli

Rútínurask

Það þarf ekki að þýða skipulagningu á G8 fundi að ætla að hreyfa sig í fríinu.
18.maí 2012 - 09:21 Ragga Nagli

Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT

Hvað gera bændur þegar löngunin ætlar holdið lifandi að éta?
Nú þá skellir maður í bráðholla og löglega súkkulaðiköku.
15.maí 2012 - 09:08 Ragga Nagli

Grýttur jarðvegur

Margir klóra sér í skallanum yfir hvers vegna þeir ná ekki árangri þrátt fyrir blóðsúthellingar og tárvota hvarma. Þá er ráð að endurskoða aðferðirnar, leita ráða og læra af feilsporum annarra. 
11.maí 2012 - 16:15 Ragga Nagli

Blæðandi steinar

Það getur verið auðveldara að draga blóð úr grjóthnullungi með ryðgaðri saumnál en að breyta venjum sínum. 
Vani er eitthvað sem við gerum á ómeðvitaðri sjálfsstjórn – líka fæðuval – líka óhollt fæðuval. 
08.maí 2012 - 09:00 Ragga Nagli

Hollar hindberjapönnsur - UPPSKRIFT

Bláber, hindber, rifsber, blæjuber, brómber, jarðarber... og Naglinn bíður með fiðrildi í maganum eftir kirsuberjunum sem eru algjörlega uppáhalds. 
05.maí 2012 - 18:28 Ragga Nagli

Gjemli gjemli

Naglinn hefur sagt það áður og segir það aftur.... aldur er bara númer. 
Þú ræður hvað þú ert gamall/gömul útfrá hvernig þú velur að lifa lífinu.
02.maí 2012 - 09:05 Ragga Nagli

Bleyta bakvið sneplana?

Naglinn gefur nýgræðingum á hollustubrautinni sem og þeim sem eru að byrja aftur eftir langt hlé, góð ráð til að halda sig við efnið og gera þetta að lífsstíl.

27.apr. 2012 - 18:00 Ragga Nagli

Þú ert (ekki) það sem þú hugsar

Um hvað ertu að hugsa núna? Hvað þig langar í eina sveitta slæsu með pepp-svepp og hvítlauksolíu?
25.apr. 2012 - 10:00 Ragga Nagli

Aldó frændi

Það er eitt sem Naglanum leiðist alveg stórkostlega og það er þegar sárasaklausum almúganum er talin trú um að aðhyllast þurfi öfgastefnur í ætt við manifestasjón Hamas-liða til að fá "flatan maga" eða "stinnan rass". 
23.apr. 2012 - 15:30 Ragga Nagli

Kúpubrjótur

Allir og amma þeirra vilja stóra og sterka handleggi enda er fátt eins táknrænt um stæltan skrokk.  
20.apr. 2012 - 19:00 Ragga Nagli

Heilsu-vöfflur - UPPSKRIFT

Hver fær ekki nostalgíu hroll niður hryggjarsúluna við að sökkva tönnunum í heita vöfflu?
Þá getur nú verið gott að eiga hauk í horni með súper fljótlegar Heilsuvöfflur. Þessar eru unaðslegar í morgunsárið, í hádeginu, já eða bara í desa eftir kvöldmat. 
17.apr. 2012 - 10:50 Ragga Nagli

Gemmér í nös

Þegar þú hélst að þú hefðir séð allan sjúkleikann undir sólinni þegar kemur að skyndilausnum og magískum aðferðum til að tálga smérið þá færðu það óþvegið í smettið með einhverju almesta rugli sem hafa dunið á sjónhimnunni.
14.apr. 2012 - 17:00 Ragga Nagli

Hjálparhönd

Naglinn átti voða bágt í gær. Mígandi rigning úti, pínu illt í mallanum og nennan að fara í ræktina var undir fótunum á keisaramörgæs á Suðurskautinu. 
12.apr. 2012 - 11:15 Ragga Nagli

Gulrótaka einstæðingsins

Gulrótakaka fyrir einstæðing á undir fimm mínútum…. og ekki nema skitnar 140 karólínur í kvikindinu. Svo það má vel slátra alle sammen með góðri samvisku og frábær kostur eftir átökin við járnið.
10.apr. 2012 - 13:00 Ragga Nagli

Hversdagshetjan

Lesendur og allir sem þekkja Naglann vita að hverskyns afsakanir, væl, kvart og kvein yfir að geta ekki stundað heilsusamlegt líferni sprengir æð í augnbotnunum af pirringi.
04.apr. 2012 - 13:00 Ragga Nagli

Keyser Söze

Það er ekki gaman þegar við erum í sorg og sút að neita okkur um lífsins gúrmeti. 
Þess vegna sker það í hjartað þegar fólk velkist í vafa hvort það eigi að fá sér páskaegg. 
01.apr. 2012 - 22:00 Ragga Nagli

Þýskt gæðastál

Já gott fólk, aldur er sannarlega hugarástand.  
Johanna Quaas, elsti fimleikaiðkandi heims er 86 ára....áttatíu og sex ára segir Naglinn og skrifar.
28.mar. 2012 - 12:00 Ragga Nagli

Það sem enginn sér

Um hvað snýst lífsstíllinn þinn? Ertu ein(n) af þeim sem byrjar daginn ofan á vigtinni með kökk í hálsi, klípur í kvið átján sinnum á dag, og grætur yfir spegilmyndinni. 
11.mar. 2012 - 16:00 Ragga Nagli

Sykurlaust peru-döðlu chutney-UPPSKRIFT

Hér er uppskrift af sykurlausu peru og döðlu chutney sem er guðdómlegt hrært út í tilbúinn hafragraut. Búðu þig undir að sleikja skálina. 


08.mar. 2012 - 09:00 Ragga Nagli

Ekkert tyggja má

Nú er illt í efni, ekkert tyggja má. Ef marka má miðlana þarf sótsvartur almúginn að vara sig á mýmörgum matvælum því krabbameinið og fitan lúra handan við hornið. 

Ragga Nagli

Ragnhildur Þórðardóttir er heilsugúrú og lifir og hrærist í öllu sem viðkemur hreyfingu, hollu mataræði og heilsusamlegu líferni.

Námsferill:
Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1999
B.A í sálfræði við Háskóla Íslands 2004
ACE einkaþjálfara próf 2004
M.Sc í Health Psychology við University of Surrey 2007
Cand. Psych við Háskólann í Kaupmannahöfn 2013

Hún kallar sig Röggu Nagla, ekki af því hún er heljarmenni að burðum, heldur vegna óbeitar á afsökunum, væli og almennum aumingjaskap þegar kemur að því að stunda heilbrigt líferni.

Hér lætur hún gamminn geysa um dásemdir þess að hreyfa sig og borða hollt og einstaka bölsót fær að fylgja með.

Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar