02. jún. 2012 - 09:00Ragga Nagli
Hollur Frappó - UPPSKRIFT
Sólin derrir sig heldur betur á Mörbúann þessi dægrin.
Jón Sigurðsson fær flottan félagsskap á Austurvelli frá hlýrabolum, sandölum og skaðbrenndum bringum.
Þegar gula skonsan mætir á svæðið er púkinn oft ekki langt undan og gargar á allskonar fyrir aumingja því við erum jú skilyrt fyrir gúmmulaði í sólinni…hver fer í ísbíltúr í slyddu og norðan átján?
Og fátt meira svalandi í steikjandi hitanum en brakandi ferskt frappucino.
En eitt svoleiðis kvikindi getur innihaldið 4-500 kaloríur
Ef þú vilt ekki smyrja þig með aukakarólínum úr sykri og fitu er hér uppskrift að einum laufléttum og hollum frappó
1 bolli möndlumjólk/sojamjólk/beljumjólk
1-2 tsk skyndikaffi
1-2 tsk gervisæta (Stevia, Splenda, Sukrin)
5-6 ísmolar
1 msk sykurlaust vanillu eða karamellu síróp (DaVinci/Torani )
Henda öllu gumsinu saman í blandara og röra eins og vindurinn í 60-90 sek.
Toppa með fitulausu Cool Whip (fæst í Hagkaupum) og ef þú vilt ganga á villtu hliðinni drippaðu smá sykurlausu
súkkulaðisírópi yfir det hele.
Njótið þeirrar gulu og munið eftir sólarvörninni.
24.jún. 2012 - 07:10
Ragga Nagli
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir vann nýlega silfur í bekkpressu á Evrópumeistaramóti unglinga í kraftlyftingum sem fram fór í Danmörku.
22.jún. 2012 - 08:42
Ragga Nagli
Ein sú svakalegasta grautarkombinasjón var uppgötvuð í vikunni og snætt þrjá daga í röð í einskærri gleði sem sprengdi alla hamingjustuðla heimsins.
19.jún. 2012 - 15:30
Ragga Nagli
Þegar kemur að árangri er tvennt sem ber höfuð, herðar, hné, og tær yfir allt annað.
Þú þarft að hafa markmið og þú þarft að hafa plan. Þetta tvennt lafir á sömu spýtunni.
14.jún. 2012 - 09:20
Ragga Nagli
Margir af lærisveinum Naglans finnst hentugt að grípa í prótínstykki eða önnur svokölluð "heilsustykki" milli mála.
12.jún. 2012 - 12:00
Ragga Nagli
Alltof margir mæta á æfingu með egóið uppi á háalofti bísperrtir eins og páfugl í makaleit … “nú skal sko taka á því og refsa stálinu sem aldrei fyrr.”
Svo er hamast og hnoðast á járninu og því böðlað upp hroðvirknislega með hraða sem gæti klofið atóm
10.jún. 2012 - 10:00
Ragga Nagli
Naglinn júblar samstarfi Steinars Aðalbjörnssonar næringarfræðings og Krónunnar og fleiri verslana að setja upp leiðbeiningar um hvað sé hæfilegt magn af sælgæti.
29.maí 2012 - 13:00
Ragga Nagli
Annað hvort ertu í hollustunni eða með kokteilsósu út á kinn, það er ekkert grátt svæði, enginn diplómatískur millivegur.
24.maí 2012 - 18:00
Ragga Nagli
Naglinn er með blæti, patólógískt og pervertískt blæti fyrir hvers kyns bragðauka sem gerir mat meira djúsí og kósý.
22.maí 2012 - 10:40
Ragga Nagli
Það þarf ekki að þýða skipulagningu á G8 fundi að ætla að hreyfa sig í fríinu.
18.maí 2012 - 09:21
Ragga Nagli
Hvað gera bændur þegar löngunin ætlar holdið lifandi að éta?
Nú þá skellir maður í bráðholla og löglega súkkulaðiköku.
15.maí 2012 - 09:08
Ragga Nagli
Margir klóra sér í skallanum yfir hvers vegna þeir ná ekki árangri þrátt fyrir blóðsúthellingar og tárvota hvarma. Þá er ráð að endurskoða aðferðirnar, leita ráða og læra af feilsporum annarra.
11.maí 2012 - 16:15
Ragga Nagli
Það getur verið auðveldara að draga blóð úr grjóthnullungi með ryðgaðri saumnál en að breyta venjum sínum.
Vani er eitthvað sem við gerum á ómeðvitaðri sjálfsstjórn – líka fæðuval – líka óhollt fæðuval.
08.maí 2012 - 09:00
Ragga Nagli
Bláber, hindber, rifsber, blæjuber, brómber, jarðarber... og Naglinn bíður með fiðrildi í maganum eftir kirsuberjunum sem eru algjörlega uppáhalds.
05.maí 2012 - 18:28
Ragga Nagli
Naglinn hefur sagt það áður og segir það aftur.... aldur er bara númer.
Þú ræður hvað þú ert gamall/gömul útfrá hvernig þú velur að lifa lífinu.
02.maí 2012 - 09:05
Ragga Nagli
Naglinn gefur nýgræðingum á hollustubrautinni sem og þeim sem eru að byrja aftur eftir langt hlé, góð ráð til að halda sig við efnið og gera þetta að lífsstíl.
27.apr. 2012 - 18:00
Ragga Nagli
Um hvað ertu að hugsa núna? Hvað þig langar í eina sveitta slæsu með pepp-svepp og hvítlauksolíu?
25.apr. 2012 - 10:00
Ragga Nagli
Það er eitt sem Naglanum leiðist alveg stórkostlega og það er þegar sárasaklausum almúganum er talin trú um að aðhyllast þurfi öfgastefnur í ætt við manifestasjón Hamas-liða til að fá "flatan maga" eða "stinnan rass".
23.apr. 2012 - 15:30
Ragga Nagli
Allir og amma þeirra vilja stóra og sterka handleggi enda er fátt eins táknrænt um stæltan skrokk.
20.apr. 2012 - 19:00
Ragga Nagli
Hver fær ekki nostalgíu hroll niður hryggjarsúluna við að sökkva tönnunum í heita vöfflu?
Þá getur nú verið gott að eiga hauk í horni með súper fljótlegar Heilsuvöfflur. Þessar eru unaðslegar í morgunsárið, í hádeginu, já eða bara í desa eftir kvöldmat.