02. feb. 2012 - 09:00Ragga Nagli

Grunnbrennslan

Grunnbrennsluhraði (basal metabolic rate (BMR)) er sú orkuþörf sem líkaminn þarf til að lifa af án þess að hreyfa legg né lið. Mætti segja sá fjöldi af hitaeiningum sem þyrfti að dæla í skrokkinn meðan við liggjum í dauðadái. Grunnbrennsluhraði er yfirleitt mældur meðan líkaminn er í hvíldarástandi en samt vakandi og 12 tímum eftir síðustu máltíð, eða um leið og þú vaknar og áður en morgunmatur er slafraður.

Fæstir hafa aðgang að hágæðamælingagræjum, en það má líka áætla grunnbrennslu út frá nokkrum lykilbreytum: aldri, kyni, hæð, þyngd og fitufríum massa eða vöðvamassa sem er gríðarmikilvæg breyta í þessu ferli og sú sem ákvarðar einstaklingsmuninn.

Hinir ýmsu þættir hafa áhrif á grunnbrennsluhraðann.


Svefn: Þegar við sofum er meiri virkni í vöðvum en þegar við erum vakandi og afslöppuð. Á næturnar er viðgerðarferlið nefnilega í bullandi gangi og verið að sparsla í niðurtætta vöðvana eftir átökin í ræktinni.



Vöðvar: Því meiri vöðvamassi því hærri grunnbrennsla. Það er vegna þess að vöðvavefur er mun virkari vefur en fituvefur. Hann krefst því meiri orku sem aftur hækkar grunnbrennsluna. Og hvað byggir kjöt á grindina? Nú auðvitað járnrífingar!


Þjálfun: Járnrífingar hækka grunnbrennsluhraðinn og því meiri ákefð því meira þýtur kvikindið upp. Þolæfingar keyra hann upp aðeins að agnarlitlu leyti og gott þol hefur lítið að segja fyrir hærri grunnbrennsluhraða miðað við fitufrían massa. Þess vegna er ráðlegt að setja í forgang að rífa í járn eins og berserkar til að setja hana í fimmta gír.


Aldur: Unglömbin hafa hærri grunnbrennsluhraða en ellismellirnir. Eftir því sem við eldumst þá hægist á maskínunni um tíu prósent á hverjum áratug, sem þýðir eitt prósent á ári. Til að bæta ekki á sig óþarfa fitu með aldrinum vegna hægari grunnbrennslu þarf því annaðhvort að minnka magn matarins í eða rífa í járn til að auka vöðvamassa og keyra upp grunnbrennsluna. Naglinn kýs hið síðarnefnda.



Líkamsbygging: Flatarmál líkamans, ekki þyngd. Sá sem er 90 kg og 1,90 á hæð hefur hærri grunnbrennslu en maður sem er 1,70 og 90 kg. Sá sem er hærri losar út meiri varma í gegnum stærra flatarmál húðar en sá sem minni er.

Kyn: Karlmenn hafa hraðari grunnbrennslu en konur. Ekki sanngjarnt en þannig er það…. Oftar en ekki hafa þeir stærra flatarmál en við skonsurnar, meiri vöðvamassa og auðvitað öðruvísi hormónabúskapur.


Melting: Þegar við troðum næringu í trýnið hefur það áhrif á grunnbrennsluhraðann. Meltingarferli, vökvaflæði og fleira hækkar grunnbrennsluna og því er ráðlegt að gúlla marga litla snæðinga yfir daginn.


Megrun: Föstuástand eða langvarandi tímabil þar sem örfáar hitaeiningar fara inn í maskínuna lækkar grunnbrennsluna því vöðvarnir rýrna.  Skyndikúrar hægja því á grunnbrennslunni vegna þess að kjötið hypjar sig úr húsinu.  Þeir eiga því miklu auðveldara með að bæta á sig kíloum aftur eftir að megrun lýkur en fyrir. Skyndikúrar uppskera því ekkert annað en hlandblautan skó, svekkta grunnbrennslu og enn fleiri kiló í skottinu seinna meir.

Það er semsagt fatalt að stunda eingöngu þolæfingar og kroppa eins og kjölturakki í snæðingana því þá verður grunnbrennslan miður sín. Til að halda henni í stuði með guði verðum við að refsa járninu, byggja upp vöðvamassa, hvílast vel og borða nóg en oft og lítið í einu.




22.maí 2012 - 10:40 Ragga Nagli

Rútínurask

Það þarf ekki að þýða skipulagningu á G8 fundi að ætla að hreyfa sig í fríinu.
18.maí 2012 - 09:21 Ragga Nagli

Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT

Hvað gera bændur þegar löngunin ætlar holdið lifandi að éta?
Nú þá skellir maður í bráðholla og löglega súkkulaðiköku.
15.maí 2012 - 09:08 Ragga Nagli

Grýttur jarðvegur

Margir klóra sér í skallanum yfir hvers vegna þeir ná ekki árangri þrátt fyrir blóðsúthellingar og tárvota hvarma. Þá er ráð að endurskoða aðferðirnar, leita ráða og læra af feilsporum annarra. 
11.maí 2012 - 16:15 Ragga Nagli

Blæðandi steinar

Það getur verið auðveldara að draga blóð úr grjóthnullungi með ryðgaðri saumnál en að breyta venjum sínum. 
Vani er eitthvað sem við gerum á ómeðvitaðri sjálfsstjórn – líka fæðuval – líka óhollt fæðuval. 
08.maí 2012 - 09:00 Ragga Nagli

Hollar hindberjapönnsur - UPPSKRIFT

Bláber, hindber, rifsber, blæjuber, brómber, jarðarber... og Naglinn bíður með fiðrildi í maganum eftir kirsuberjunum sem eru algjörlega uppáhalds. 
05.maí 2012 - 18:28 Ragga Nagli

Gjemli gjemli

Naglinn hefur sagt það áður og segir það aftur.... aldur er bara númer. 
Þú ræður hvað þú ert gamall/gömul útfrá hvernig þú velur að lifa lífinu.
02.maí 2012 - 09:05 Ragga Nagli

Bleyta bakvið sneplana?

Naglinn gefur nýgræðingum á hollustubrautinni sem og þeim sem eru að byrja aftur eftir langt hlé, góð ráð til að halda sig við efnið og gera þetta að lífsstíl.

27.apr. 2012 - 18:00 Ragga Nagli

Þú ert (ekki) það sem þú hugsar

Um hvað ertu að hugsa núna? Hvað þig langar í eina sveitta slæsu með pepp-svepp og hvítlauksolíu?
25.apr. 2012 - 10:00 Ragga Nagli

Aldó frændi

Það er eitt sem Naglanum leiðist alveg stórkostlega og það er þegar sárasaklausum almúganum er talin trú um að aðhyllast þurfi öfgastefnur í ætt við manifestasjón Hamas-liða til að fá "flatan maga" eða "stinnan rass". 
23.apr. 2012 - 15:30 Ragga Nagli

Kúpubrjótur

Allir og amma þeirra vilja stóra og sterka handleggi enda er fátt eins táknrænt um stæltan skrokk.  
20.apr. 2012 - 19:00 Ragga Nagli

Heilsu-vöfflur - UPPSKRIFT

Hver fær ekki nostalgíu hroll niður hryggjarsúluna við að sökkva tönnunum í heita vöfflu?
Þá getur nú verið gott að eiga hauk í horni með súper fljótlegar Heilsuvöfflur. Þessar eru unaðslegar í morgunsárið, í hádeginu, já eða bara í desa eftir kvöldmat. 
17.apr. 2012 - 10:50 Ragga Nagli

Gemmér í nös

Þegar þú hélst að þú hefðir séð allan sjúkleikann undir sólinni þegar kemur að skyndilausnum og magískum aðferðum til að tálga smérið þá færðu það óþvegið í smettið með einhverju almesta rugli sem hafa dunið á sjónhimnunni.
14.apr. 2012 - 17:00 Ragga Nagli

Hjálparhönd

Naglinn átti voða bágt í gær. Mígandi rigning úti, pínu illt í mallanum og nennan að fara í ræktina var undir fótunum á keisaramörgæs á Suðurskautinu. 
12.apr. 2012 - 11:15 Ragga Nagli

Gulrótaka einstæðingsins

Gulrótakaka fyrir einstæðing á undir fimm mínútum…. og ekki nema skitnar 140 karólínur í kvikindinu. Svo það má vel slátra alle sammen með góðri samvisku og frábær kostur eftir átökin við járnið.
10.apr. 2012 - 13:00 Ragga Nagli

Hversdagshetjan

Lesendur og allir sem þekkja Naglann vita að hverskyns afsakanir, væl, kvart og kvein yfir að geta ekki stundað heilsusamlegt líferni sprengir æð í augnbotnunum af pirringi.
04.apr. 2012 - 13:00 Ragga Nagli

Keyser Söze

Það er ekki gaman þegar við erum í sorg og sút að neita okkur um lífsins gúrmeti. 
Þess vegna sker það í hjartað þegar fólk velkist í vafa hvort það eigi að fá sér páskaegg. 
01.apr. 2012 - 22:00 Ragga Nagli

Þýskt gæðastál

Já gott fólk, aldur er sannarlega hugarástand.  
Johanna Quaas, elsti fimleikaiðkandi heims er 86 ára....áttatíu og sex ára segir Naglinn og skrifar.
28.mar. 2012 - 12:00 Ragga Nagli

Það sem enginn sér

Um hvað snýst lífsstíllinn þinn? Ertu ein(n) af þeim sem byrjar daginn ofan á vigtinni með kökk í hálsi, klípur í kvið átján sinnum á dag, og grætur yfir spegilmyndinni. 
11.mar. 2012 - 16:00 Ragga Nagli

Sykurlaust peru-döðlu chutney-UPPSKRIFT

Hér er uppskrift af sykurlausu peru og döðlu chutney sem er guðdómlegt hrært út í tilbúinn hafragraut. Búðu þig undir að sleikja skálina. 


08.mar. 2012 - 09:00 Ragga Nagli

Ekkert tyggja má

Nú er illt í efni, ekkert tyggja má. Ef marka má miðlana þarf sótsvartur almúginn að vara sig á mýmörgum matvælum því krabbameinið og fitan lúra handan við hornið. 

Ragga Nagli

Ragnhildur Þórðardóttir er heilsugúrú og lifir og hrærist í öllu sem viðkemur hreyfingu, hollu mataræði og heilsusamlegu líferni.

Námsferill:
Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1999
B.A í sálfræði við Háskóla Íslands 2004
ACE einkaþjálfara próf 2004
M.Sc í Health Psychology við University of Surrey 2007
Cand. Psych við Háskólann í Kaupmannahöfn 2013

Hún kallar sig Röggu Nagla, ekki af því hún er heljarmenni að burðum, heldur vegna óbeitar á afsökunum, væli og almennum aumingjaskap þegar kemur að því að stunda heilbrigt líferni.

Hér lætur hún gamminn geysa um dásemdir þess að hreyfa sig og borða hollt og einstaka bölsót fær að fylgja með.

Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar