01. feb. 2012 - 11:00Róbert Trausti Árnason

Raunsæið er pínlegt og ekki er allt sem sýnist

Einhversstaðar verður maður að byrja þegar óþægilegar staðreyndir eru skoðaðar. Ekki er sjálfgefið að smáþjóðin Ísland geti öllu lengur staðið á eigin fótum. 

Og ljóst er að ekki þarf mikið að breytast í kringum okkur til þess að tilraunin um frjálst og fullvalda Ísland sem hófst 1944  fari út um þúfur.  

Gott samband við nágranna er okkur nauðsynlegt til að lifa sem þjóð á sama tíma og við erum varnarlítil gegn erlendum yfirgangi,  áhrifum og breytingum. 

Smæðina verður að taka alvarleg þegar rætt er um þjóðaröryggi.  Smæð okkar er staðreynd.  Óþægileg staðreynd satt best að segja því miklar takmarkanir felast í smæðinni.  

Umræða um þjóðaröryggi verður að taka mið af þessari óumflýjanlegu staðreynd. 

Ísland er og verður veikburða vegna fámennis og takmarkaðra möguleika á sérhæfingu.

Íslendingar verða svo lengi sem þeir vilja vera sjálfstæðir og fullvalda að takast á við þá spurningu hvaða þjónustu ríkið megnar að veita og hvaða þjónustu sækja verður annað.

Ísland getur ekki byggt upp hervarnir svipaðar þeim sem gerast með stærri þjóðum og því ekki haldið uppi sömu varnarstarsfssemi og þær þjóðir.  

Augljósasti þátturinn sem við höfum látið öðrum þjóðum eftir til að sinna fyrir okkur er þjóðaröryggið.  

Þjóðaröryggi er því málefni sem rétt er að íslensk stjórnvöld hafi sem reglubundið viðfangsefni.  

Í heimi hraðfara breytinga, alþjóðavæðingar og hraðstígra tækniframfari í hernaði  er slíkt reglubundið 
verkefni nauðsynlegt sem hluti af ábyrgð stjórnvalda.   

Þó er væntingin um þjóðarsátt um öryggis- og varnarmál  tálsýn.  Gleymum því ekki.

Nú á þingmannanefnd  að móta tillögur um þjóðaröryggsistefnu á grundvelli íslenska her- og vopnleysisins.  

Og nefndin á að taka mið af ýmsu sem tilheyrir gærdeginum, ef svo má segja, við að skilgreina meginforsendur þjóðaröryggisstefnunnar í næstu framtíð og greina markmið og leiðir til þess að ná þeim meginforsendum.  

Réttast er að byrja á smæðinni.  Við getum aldrei hegðað okkur eins og stórþjóðir. 

Ég fullyrði á Ísland hefur sjaldan staðið á vandasamari tímamótum.  

Þingmannanefndin á því að móta tillögur um þjóðaröryggisstefnu á grundvelli smæðarinnar. 

Ekki á grundvelli her-  og vopnleysisins.



19.apr. 2012 - 13:00 Róbert Trausti Árnason

Lindir gremjunnar

Innsýn glöggskyggns manns í íslenska þjóðarsál er vel þeginn því íslensk manngerð og þjóðarsál eru tvær torræðar gátur nú á hnignunartíma 1. lýðveldisins þegar nýjar hræringar  og kvalarteygjur bankahrunsins takast á. 
14.apr. 2012 - 09:00 Róbert Trausti Árnason

Fölnaður draumur um forystu

Sérhverri tillögu um að beina gáfuðu námsfólki frá heldur lítilsgildum hugvísindum til raunvísinda er samstundis andmælt úr hópi þeirra sem halda vilja í íslenska erfðamenningu. Efnahagsstaðreyndir lífsins ná ekki að þagga niður þessi andmæli. 
25.mar. 2012 - 18:00 Róbert Trausti Árnason

Hrun og uppgjör

Eru Íslendingar þjóð í uppnámi? Nýr félagsskapur á Íslandi og oddvitar hans skynja að svo sé  og  bjóða fram evrópufasisma í séríslenskum búningi. Félagskapurinn rétt eins og sannur evrópufasismi er ekki til vinstri, er ekki til hægri og er ekki á miðjuni. Er heldur að sögn oddvita hans ný evrópufasísk hugsun í séríslenskum búningi sem boðar almúganum hugsun sem gengur út á að skilgreina vandmál íslensks samfélags og bjóða altækar lausnir  evrópufasimanns út frá sérstöðu íslensks samfélags og almúgahagsmuna.   
09.feb. 2012 - 09:00 Róbert Trausti Árnason

Kanavaldið og íslensk undirgefni

Þingmannanefnd alþingis mun í álitsgerð um þjóðaröryggi Íslands væntanlega taka ótvíræða afstöðu til þeirrar veigamiklu spurningar hvort varnarsamningurinn frá 1951 þjóni hagsmunum Íslands og Atlantshafsbandalagsins, NATO.
05.feb. 2012 - 16:30 Róbert Trausti Árnason

Horft út um gluggann

Í dag 5. febrúar lýkur öryggismálaráðstefnunni hér í München en þessi ráðstefna hefur verið árlegur viðburður frá 1962 eða í fimmtíu ár. Sú var tíðin að enginn oddviti innan ESB-NATO lét sig vanta á þessa ráðstefnu. En kanslari sambandslýðveldisins Þýsklands kýs frekar að vera í alþýðulýðveldinu Kína en í München. Þessi fjarvera Angelu Merkel staðfestir hvar  gamla Evrópa er á vegi stödd. Daður samferðamanna minna á Íslandi við alþýðulýðveldið Kína er slæmt en það daður fellur í skuggann vegna þess að allir í gömlu Evrópu eru að daðra við alþýðulýðveldið Kína.

23.jan. 2012 - 14:00 Róbert Trausti Árnason

Beina Íslendingar sjónum sínum norður eftir fyrir Ísland eða fyrir aðra?

Umboð sitjandi ríkisstjórnar á Íslandi er að renna sitt skeið. Þingkosningar fara fram í apríl 2013 ef ekki fyrr. Taugatitrings gætir í stjórnmálunum og allt útlit er fyrir að lýðskrumsflokkar raski hefðbundnu munstri fjórflokkanna með gylliboðum. Ný staða mun því óhjákvæmilega setja mark sitt á kosningabaráttuna en ennþá getur enginn getið sér til um hver áhrifin munu verða í reynd. Kosningarnar munu,  með öðru,  snúast um ESB aðildarumsóknin.  
07.jan. 2012 - 17:00 Róbert Trausti Árnason

„Hugsun Maó-Tse-tungs er leiðarhnoði“.

Ég nefni plágu sem ég tel valda mistökum kínverskra fjárfesta á Íslandi því eitthvað hefur á skort um hyggindi þeirra eða þeir þá verið óheppnir í vali samstarfsmanna. Niccolo Machiavelli skrifaði um svona plágu - samstarfsmenn sem hann kallaði smjaðrara sem séu eins og mý á mykjuskán.  
31.des. 2011 - 16:00 Róbert Trausti Árnason

Uppreisn og upprisa einstaklingsins

Mér er orðið ljóst eftir rúmlega sextíu ára lífshlaup á Íslandi að margt er mér ekki enn orðið ljóst. Það gildir nefnilega um mig að ég veit aldrei nóg. En það kemur ekki að sök.  
23.des. 2011 - 14:00 Róbert Trausti Árnason

Afbakaður veruleiki

Okkur hefur lengi verið sagt að dómsdagur nálgist. Við séum aðeins að upplifa fyrstu hræðilegu atburðina í langri röð væntanlegra vistfræðilegra stórslysa sem við eigum eftir að verða fyrir. Megininntak umhverfisstefnu Vinstri-grænna byggir á þessari sannfæringu.  


Róbert Trausti Árnason
Stúdentspróf í Reykjavík. BA próf frá Háskóla Íslands í stjórnmálafræði og MA próf frá Queen´s háskólanum í Ontario í Kanada í alþjóðasamskiptum.
Vann með háskólanámi hjá Ríkisútvarpinu. Hóf að loknu námi í Kanada störf hjá NATO í höfuðstöðvum þess í Belgíu. Starfsmaður í íslensku utanrikisþjónustunni um árabil, m.a. sendiherra í Danmörku og ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu. Forsetaritari 1999-2000. Framkvæmdastjóri Keflavíkurverktaka um skeið, starfsmaður Samtaka atvinnulífsins í Brussel frá árinu 2008.
Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar