28. jún. 2012 - 13:34Róbert Trausti Árnason
Hvers konar skepna er ríkið?
Sá valdsmaður á Íslandi sem vill blekkja kjósendur finnur alltaf skara af mannskap sem vill láta blekkjast. Því er aldrei skortur á auðtrúa kjósendum sem gína við agni. Blekkingar valdsmannsins bera alltaf tilætlaðan árangur því hann gjörþekkir þessa hlið mannlífsins. Ég veit að þeim mönnum farnast jafnan best í skammann tíma í íslenskri pólitík sem fara að dæmi bæði refsins og ljónsins og kunna að breiða yfir flærð sína með leikni í lymskulegri hræsni og djörfu falsi.
Ég sé að forsætisráðherrann hefur tileinkað sér hegðun annars dýrsins. Forsætisráðherrann hefur ekkert lært af refnum en allt lært af ljóninu. Forsætisráðherrann hefur ljónið eitt að fyrirmynd og hann skortir því hyggindi. Af þessu leiðir að forsætisráðherrann má ekki og mun ekki halda orð sín af því það er honum í óhag og hann gefur sér auðvitað við sérhvert tækifæri einhverja afsökun til að hann þurfi ekki að standa við orð sín eins og þá afsökun að brott séu fallnar allar ástæður þess að hann gaf heit sín. Ég get nefnt ótal dæmi sem sýna að margir samningar og mörg heit hafa verið þverbrotin af hálfu forsætisráðherrans.
Ég er sammála þeim sem segja að það sé lofsvert ef forsætisráðherrann heldur vel heit sín og er hreinskiptinn en ekki undirförull. Samt er það svo að reynslan sýnir okkur að sá forsætisráðherra sem kemur engu til leiðar er einmitt sá hinn sami og metur einskis gefin loforð, kann að vefja öðrum um fingur sér og er ofjarl allra þeirra sem virða lögin og leikreglurnar. Forsætisráðherrann lætur svo ráðgjafa og smjaðrara finna lögmætar aðferðir til að fegra bresti sín.
Það er mér því augljóst að í huga forsætisráðherrans er aðeins um tvennt að ræða í stjórnmálabaráttu líðandi stundar á Íslandi. Annað hvort að láta lögin ráða eða nakið valdið ráða! Hefur ekki forsætisráðherrann valið síðari kostinn?
14.jan. 2013 - 18:00
Róbert Trausti Árnason
Vegna þrautseigju, æðruleysis og vinnusemi þjóðarinnar stöndum við okkur bara nokkuð vel. Enda veltur mest á okkur sjálfum hvernig tekist hefur til. En vant er við vondum að sjá. Hvaða óheillaþróun er það innan Samfylkingarinnar sem býr að baki skrifum Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í áramótahugleiðingu þann 31.desember 2012?
10.des. 2012 - 22:06
Róbert Trausti Árnason
Eftir lestur um Putaland dettur manni þetta í hug. Ísland byggja tvö þjóðríki. Stóra-Ísland sem vill nána samvinnu við útlönd. Og Litla-Ísland sem vill sem minnst samneyti við útlönd.
26.jún. 2012 - 11:14
Róbert Trausti Árnason
Sofandaháttur okkar Íslendinga gagnvart lögbrotum þessara tveggja ráðaherra kann að vera orðlagður en nú er allt á fleygiferð í þessu landi. Lögbrot verða vonandi ekki látin liggja í þagnargildi. Jafnvel þó að það liggja í eðli stöku Íslendinga að þybbast gegn þeirri staðreynd að ráðherrar hafa ekki rétt til að brjóta lögin.
23.jún. 2012 - 16:33
Róbert Trausti Árnason
Eitt af alvarlegustu vandamálum Samfylkingarinnar er að samræma ósveigjanlegan formann flokksins breytilegum kringumstæðum því flokkurinn sálast ef hann lagar sig ekki að breyttum viðhorfum kjósenda. „Þú getur kysst mig á rassinn upp að það“ eins og gestgjafinn á kaffihúsinu Bikarinn orðar það.
08.jún. 2012 - 13:32
Róbert Trausti Árnason
Ég deili ekki við menn um sannleiksgildi Íslendingasagna. En enginn ágreiningur þarf að vera um hve fræðandi þær eru.
19.apr. 2012 - 13:00
Róbert Trausti Árnason
Innsýn glöggskyggns manns í íslenska þjóðarsál er vel þeginn því íslensk manngerð og þjóðarsál eru tvær torræðar gátur nú á hnignunartíma 1. lýðveldisins þegar nýjar hræringar og kvalarteygjur bankahrunsins takast á.
14.apr. 2012 - 09:00
Róbert Trausti Árnason
Sérhverri tillögu um að beina gáfuðu námsfólki frá heldur lítilsgildum hugvísindum til raunvísinda er samstundis andmælt úr hópi þeirra sem halda vilja í íslenska erfðamenningu. Efnahagsstaðreyndir lífsins ná ekki að þagga niður þessi andmæli.
25.mar. 2012 - 18:00
Róbert Trausti Árnason
Eru Íslendingar þjóð í uppnámi? Nýr félagsskapur á Íslandi og oddvitar hans skynja að svo sé og bjóða fram evrópufasisma í séríslenskum búningi. Félagskapurinn rétt eins og sannur evrópufasismi er ekki til vinstri, er ekki til hægri og er ekki á miðjuni. Er heldur að sögn oddvita hans ný evrópufasísk hugsun í séríslenskum búningi sem boðar almúganum hugsun sem gengur út á að skilgreina vandmál íslensks samfélags og bjóða altækar lausnir evrópufasimanns út frá sérstöðu íslensks samfélags og almúgahagsmuna.
09.feb. 2012 - 09:00
Róbert Trausti Árnason
Þingmannanefnd alþingis mun í álitsgerð um þjóðaröryggi Íslands væntanlega taka ótvíræða afstöðu til þeirrar veigamiklu spurningar hvort varnarsamningurinn frá 1951 þjóni hagsmunum Íslands og Atlantshafsbandalagsins, NATO.