05. feb. 2012 - 16:30Róbert Trausti Árnason

Horft út um gluggann

Í dag 5. febrúar lýkur öryggismálaráðstefnunni hér í München en þessi ráðstefna hefur verið árlegur viðburður frá 1962 eða í fimmtíu ár. Sú var tíðin að enginn oddviti innan ESB-NATO lét sig vanta á þessa ráðstefnu. En kanslari sambandslýðveldisins Þýsklands kýs frekar að vera í alþýðulýðveldinu Kína en í München. Þessi fjarvera Angelu Merkel staðfestir hvar  gamla Evrópa er á vegi stödd. Daður samferðamanna minna á Íslandi við alþýðulýðveldið Kína er slæmt en það daður fellur í skuggann vegna þess að allir í gömlu Evrópu eru að daðra við alþýðulýðveldið Kína.

Árið 1932 eða fyrir réttum áttatíu tíu árum kom Zippo kveikjarinn fyrst á markað, Guðbergur Bergsson rithöfundur fæddist í Grindavík,  Paul von Hindenburg varð forseti Veimarlýðveldsins, félag íslenskra hljómlistarmanna var stofnað, framsókn japana í Kína var óstöðvandi og Gúttóslagurinn í Reykjavík og uppgangur þýska nasistaflokksins voru á allra vörum heima á Íslandi.  Hvað skyldi sextugur íslendingur fæddur 1861 hafa hugsað um sinn samtíma árið 1932 þegar hann horfði út um gluggann? Ég veit það ekki en nú horfi ég sextugur íslenskur evrópubúi út um gluggan og reyni að átta mig á því sem er að gerast allt í kringum mig.  Ég hef á minni ævi aðeins komist að einum illum sannleika – að veikleiki okkar íslendinga er sá að við viljum hvorki þekkja stærð okkar né viljum við þekkja smæð okkar.  

Við vorum á réttri leið allt fram til 1.desember árið 1918.  En svo bar okkur af leið og við stofnuðum lýðveldi á Íslandi árið 1944 sem er háskalegasta samfélagstilraun sem íslendingar hafa nokkru sinni gert frá því íslenska þjóðveldið leið undir lok. Samferðamenn mínir eru sumir kappsamir við þá iðju að semja eftirmæli um allt milli himins og jarðar. Ég læt þeim slíkt eftir en ég hef ekki þrek til þess að semja eftirmæli um eitt eða neitt enda hef ég tekið þátt í of mörgum pólitískum væringum þannig að minningar mínar eru því of litaðar til þess að vera til nokkurs gagns.  Skítt með það!

Ég vík aftur að ráðstefnunni hér í München.  Hún markar ekki önnur tímamót en þau að enn hjarir hún fimmtug rétt eins og Davos ráðstefnan í Sviss sem sömuleiðis hjarir rúmlega fertug.  En báðar sýna glöggt öll merki um að gamla Evrópa er komin á breytingaaldurinn en sá aldur læddist upp að álfunni óforvarendis eins og ófyrirleitinn þjófur að nóttu sem hleypur á brott með verðmæti.  
 
Gamla Evrópa stendur á vandasömum tímamótum og ekki blasa við neinir góðir kostir því það eru líkur á að ESB-NATO samfélagstilraunin sé að mistakast.  Amerískur ráðherra talaði um gömlu Evrópu og fékk bágt fyrir.  Nóg um það.  Hvert er ég að fara með þessum samlíkingum?  Ég er ekki að fara eitt eða neitt.  Ég er eingöngu að benda á framundan eru atburðir innan gömlu-ESB-NATO-Evrópu sem knýja á um að á Íslandi taki kjósendur, þingflokkar og stjórnvöld ákvarðanir um hvort íslendingar vilja vera  innan eða utan gömlu ESB-NATO-Evrópu, með eða án varnarsamningsins við Bandaríkin og  vilja vera áfram í samfélagi Evrópuþjóða eða standa utan þess.  

Ég gleymi því þó ekki að íslendingar geta auðveldlega sleppt öllum slíkum ákvörðunum.  Og látið reka á reiðanum því slík eru forréttindi smæðarinnar að sníða sér stakk eftir vexti og gera ekkert sem stundum er besti kosturinn í stöðunni.  Íslendingar geta líka breytt formi samfélagsins eða einfaldlega sætt sig við það að íslenska þjóðin hættir að vera til.  



19.apr. 2012 - 13:00 Róbert Trausti Árnason

Lindir gremjunnar

Innsýn glöggskyggns manns í íslenska þjóðarsál er vel þeginn því íslensk manngerð og þjóðarsál eru tvær torræðar gátur nú á hnignunartíma 1. lýðveldisins þegar nýjar hræringar  og kvalarteygjur bankahrunsins takast á. 
14.apr. 2012 - 09:00 Róbert Trausti Árnason

Fölnaður draumur um forystu

Sérhverri tillögu um að beina gáfuðu námsfólki frá heldur lítilsgildum hugvísindum til raunvísinda er samstundis andmælt úr hópi þeirra sem halda vilja í íslenska erfðamenningu. Efnahagsstaðreyndir lífsins ná ekki að þagga niður þessi andmæli. 
25.mar. 2012 - 18:00 Róbert Trausti Árnason

Hrun og uppgjör

Eru Íslendingar þjóð í uppnámi? Nýr félagsskapur á Íslandi og oddvitar hans skynja að svo sé  og  bjóða fram evrópufasisma í séríslenskum búningi. Félagskapurinn rétt eins og sannur evrópufasismi er ekki til vinstri, er ekki til hægri og er ekki á miðjuni. Er heldur að sögn oddvita hans ný evrópufasísk hugsun í séríslenskum búningi sem boðar almúganum hugsun sem gengur út á að skilgreina vandmál íslensks samfélags og bjóða altækar lausnir  evrópufasimanns út frá sérstöðu íslensks samfélags og almúgahagsmuna.   
09.feb. 2012 - 09:00 Róbert Trausti Árnason

Kanavaldið og íslensk undirgefni

Þingmannanefnd alþingis mun í álitsgerð um þjóðaröryggi Íslands væntanlega taka ótvíræða afstöðu til þeirrar veigamiklu spurningar hvort varnarsamningurinn frá 1951 þjóni hagsmunum Íslands og Atlantshafsbandalagsins, NATO.
01.feb. 2012 - 11:00 Róbert Trausti Árnason

Raunsæið er pínlegt og ekki er allt sem sýnist

Einhversstaðar verður maður að byrja þegar óþægilegar staðreyndir eru skoðaðar. Ekki er sjálfgefið að smáþjóðin Ísland geti öllu lengur staðið á eigin fótum. 
23.jan. 2012 - 14:00 Róbert Trausti Árnason

Beina Íslendingar sjónum sínum norður eftir fyrir Ísland eða fyrir aðra?

Umboð sitjandi ríkisstjórnar á Íslandi er að renna sitt skeið. Þingkosningar fara fram í apríl 2013 ef ekki fyrr. Taugatitrings gætir í stjórnmálunum og allt útlit er fyrir að lýðskrumsflokkar raski hefðbundnu munstri fjórflokkanna með gylliboðum. Ný staða mun því óhjákvæmilega setja mark sitt á kosningabaráttuna en ennþá getur enginn getið sér til um hver áhrifin munu verða í reynd. Kosningarnar munu,  með öðru,  snúast um ESB aðildarumsóknin.  
07.jan. 2012 - 17:00 Róbert Trausti Árnason

„Hugsun Maó-Tse-tungs er leiðarhnoði“.

Ég nefni plágu sem ég tel valda mistökum kínverskra fjárfesta á Íslandi því eitthvað hefur á skort um hyggindi þeirra eða þeir þá verið óheppnir í vali samstarfsmanna. Niccolo Machiavelli skrifaði um svona plágu - samstarfsmenn sem hann kallaði smjaðrara sem séu eins og mý á mykjuskán.  
31.des. 2011 - 16:00 Róbert Trausti Árnason

Uppreisn og upprisa einstaklingsins

Mér er orðið ljóst eftir rúmlega sextíu ára lífshlaup á Íslandi að margt er mér ekki enn orðið ljóst. Það gildir nefnilega um mig að ég veit aldrei nóg. En það kemur ekki að sök.  
23.des. 2011 - 14:00 Róbert Trausti Árnason

Afbakaður veruleiki

Okkur hefur lengi verið sagt að dómsdagur nálgist. Við séum aðeins að upplifa fyrstu hræðilegu atburðina í langri röð væntanlegra vistfræðilegra stórslysa sem við eigum eftir að verða fyrir. Megininntak umhverfisstefnu Vinstri-grænna byggir á þessari sannfæringu.  


Róbert Trausti Árnason
Stúdentspróf í Reykjavík. BA próf frá Háskóla Íslands í stjórnmálafræði og MA próf frá Queen´s háskólanum í Ontario í Kanada í alþjóðasamskiptum.
Vann með háskólanámi hjá Ríkisútvarpinu. Hóf að loknu námi í Kanada störf hjá NATO í höfuðstöðvum þess í Belgíu. Starfsmaður í íslensku utanrikisþjónustunni um árabil, m.a. sendiherra í Danmörku og ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu. Forsetaritari 1999-2000. Framkvæmdastjóri Keflavíkurverktaka um skeið, starfsmaður Samtaka atvinnulífsins í Brussel frá árinu 2008.
Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar