07. feb. 2010 - 08:00Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
Leikföng eða list?

http://davidhorvath.blogspot.com/
Designer toys eða Hönnuð leikföng eru fyrirbæri sem hefur ekki verið lengi á sjónarsviðinu. Við könnumst flest við leikfangasafnara, með hillur og veggi fulla af Star Wars leikföngum eða súperhetjum. Þó að þau leikföng hafa upprunalega verið ætluð börnum þá hafa þau öðlast aukin verðmæti í gegnum söfnun og eftirspurn. Designer Toys eru hins vegar hönnuð með söfnun í huga og eru því oft aðeins framleidd í fáum eintökum og ætluð unglingum og fullorðnum.
Designer toys skutu fyrst upp kollinum á síðari hluta 10. áratugarins en síðan þá hefur þróast í kringum þau stórt samfélag listamanna, framleiðslufyrirtækja, verslana og safna sem einbeita sér einungis að þessum sérstöku leikföngum. Það má segja að Designer Toys séu eins konar blanda af list og leikföngum.
Hugmyndirnar hafa þróast í allar áttir og í dag má finna leikföngin úr ýmis konar efnivið. Vínill er oftast notaður og stundum er talað um vínil fígúrur en restina má finna úr öllum efnum, jafnvel náttúrulegum og bæði hörðum og mjúkum.
Skemmtileg stefna í Designer toys heiminum er DIY eða Do it yourself. Þar kemur m.a. fígúran Munny til sögu sem er alveg hvít vínil fígúra sem hver og einn skreytir eftir sínu höfði. Þegar ég bjó í Bandaríkjunum tók ég þátt í Munny keppni þar sem keppendur keyptu sér Munny fígúru og skreyttu, að lokum var haldin keppni og sýning þar sem mátti finna ótrúlegustu útkomur.
Önnur stefna sem hefur notið mikilla vinsælda eru svo kölluð Blind Box. Þeim má líkja við gömlu Garbage Pail Kids eða körfuboltaspjöldin þar sem maður keypti pakkann án þess að vita alveg um innihaldið. Í Blind Box koma vanalega nokkur leikföng til greina en kassarnir eru vel lokaðir þannig að kaupandinn veit ekki hvað hann fær fyrr en hann hefur borgað.
Designer toys hafa notið mikilla vinsælda í heimi Popplistar og haldast oft hönd í hönd við málverk eða prentverk. M.a. hafa popplistamennirnir Yoshitomo Nara, Takashi Murakami, Mark Ryden og Gary Baseman allir gefið frá sér vínil fígúrur. Þetta kemur sér vel því fyrir þá sem ekki hafa efni á upprunalegu verkunum og geta þá safnað að sér fjöldaframleiddu leikföngunum í staðinn.
Nokkrar góðar búðir sem sérhæfa sig í hönnuðum leikföngum:
http://www.kidrobot.com/
http://www.magic-pony.com/
http://www.munkyking.com/
http://www.myplasticheart.com/
http://rotofugi.com
Skemmtilegt blog um hönnuð leikföng:
http://plasticandplush.com/
09.jan. 2010 - 07:00
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
Ég gleymi því seint þegar ég fékk að kynnast Detroit borg í fyrsta skipti. Mér leið eins og ég hefði keyrt inní draugaborg. Í sumum hverfum var annað hvert hús yfirgefið eða að hruni komið, í miðborginni sjálfri voru endalausar tómar byggingar: skólar, sjúkrahús, skrifstofubygginar, hótel, lestarstöðvar, leikhús, fjölbýlishús. Allt tómt og yfirgefið. Inní þessum húsum má ennþá finna ótrúlegustu hluti sem skildir hafa verið eftir, en það er líkt og að fólk hafi einfaldlega staðið upp einn daginn og ákveðið að fara.
06.des. 2009 - 10:00
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
Ég er manneskja sem elskar smáhluti. Mér finnst ég aldrei eiga of mikið af þeim og get fallið fyrir einhverju sérstöku hvort sem það er í stór- eða flóamarkaði. Eftir að ég kynntist manninum mínum sem er mikill minimalisti, þá hef ég uppgötvað hvað það getur líka verið gott að minnka við sig dót og umkringja sig með þeim hlutum sem manni þykir mest vænt um. Það er oft gott að vera ekki með óþarfa áreiti í kringum sig og hafa frekar þá hluti sem maður nýtur þess að sjá.
22.nóv. 2009 - 20:52
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
Það er gaman að sjá hvað íslensk vöruhönnun er orðin fjölbreytt og skemmtileg og hve mikið hún hefur aukist seinustu árin. Núna er tilvalið að versla heima fyrir jólin og það er sko ekki leiðinlegt að fá fallega, íslenska hönnun í pakkann. Sjálf væri ég alveg til í að renna mér á einu stykki Dalvíkursleða í snjónum og sitja svo á mjúkum Fuzzy kolli og narta í smákökur úr Eyrarós þegar heim er komið.
Íslensk hönnun hefur þróast undir áhrifum frá gömlum aðferðum og gildum og þess vegna eiga Íslendingar auðvelt með að tengja við hana og umkringja sig með henni. Vel geymt handverkið okkar virðist virka vel með nýjum aðferðum og útkoman verður oftast mjög stílhrein og smekkleg með góðu jafnvægi á milli gamals og nýs.
07.nóv. 2009 - 20:26
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
Hvað er góð hönnun er spurning sem erfitt er að svara. Það væri kannski betra að byrja með spurningu eins og hvað er hönnun yfirleitt þar sem hugtakið hönnun er í dag notað yfir allt of marga hluti. Þegar ég er spurð að þessari spurningu þá dettur mér alltaf fyrst í hug módernisminn og þá sérstaklega Eames hjónin. Á tímum módernismans fór hönnun að verða stílhreinni og hlutirnir fóru að snúast um notkun og þægindi framar útliti en útkoman varð þrátt fyrir það húsgögn með mjög sterkan og einkennandi stíl.
Hönnun á tímum módernismans var allt, allt önnur en hún er í dag, þetta var spennandi tími með nýjum efnum og aðferðum og gott jafnvægi myndaðist á milli handbragðs og fjöldaframleiðslu.
31.okt. 2009 - 06:00
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
Það eru til ótal leiðir til að skreyta veggina heima hjá sér hvort sem það er með málverkum, ljósmyndum, stjökum og styttum eða jafnvel gamla, góða veggfóðrinu. Veggjaskraut kemur og fer í tískubylgjum. Fyrir nokkrum árum var vinsælt að þekja heilu veggina með stórum myndum af skógum og fjallatindum sem gaf þá tilfinningu að maður væri með aðra veröld heima í stofu. Ljósmyndir og málverk á vegginn er alltaf klassískt og veggfóður getur verið skemmtileg tilbreyting hvort sem það er á einn vegg eða alla.
Málverk geta verið dýr og veggfóður tímafrek en nýjasta lausnin í veggjaskreytingum leysir bæði þessi vandamál.
23.okt. 2009 - 11:17
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
Mér finnst alltaf gaman að uppgötva nýja hönnuði og eyði þónokkrum tíma á dag að skoða hönnunarblogg og aðrar síður tengdar hönnun. Það eru svo ótrúlega margir að gera góða hluti og þess vegna finnst mér rosalega gott að taka daglega skoðunarferð um netið til að ná mér í innblástur og sjá hvað er nýmóðins.
Það er hægt að segja að hönnun sé svolítið eins og tónlist: þeir stóru og frægu koma af og til með nýtt efni sem þeir vinna oftast út frá kröfum fyrirtækja með mikið fjármagn á bak við sig. Margir þeirra missa marks og það má segja það að sálin hverfi stundum svolítið úr sköpuninni eða þá að við sjáum það sama aftur og aftur.
16.okt. 2009 - 11:44
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
Þegar daginn fer að stytta er kjörið að hafa það notalegt og dekra við sjálfan sig. Þó að íslenska sumarið sé yndislegt þá er alltaf eitthvað svo sjarmerandi við það þegar byrjar að kólna og dimma. Þegar ég bjó í Bandaríkjunum var það birtan sem ég saknaði mest við Ísland. Ekki bara birtan á sumrin heldur líka þessi sérstaka birta sem kemur á veturna og passar svo ótrúlega vel við snjóinn og kyrrðina. Hér á eftir koma átta leiðir til að auka á notalegheitin í rökkrinu.
21.sep. 2009 - 21:05
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
Í síðustu viku opnaði sýning í Hafnarhúsinu sem ég hef beðið eftir lengi. Sýningin ber nafnið Innpökkuð herbergi Yoshitomo Nara + YNG og er samstarf japanska listamannsins Yoshitomo Nara og hópsins Graf sem samanstendur af listamönnum og hönnuðum. Sýningin hefur farið víða en er einstök í hvert sinn, með fjölbreyttum verkum og mismunandi uppsetningu. Það sem þær eiga allar sameiginlegt er að smíðuð eru minni rými innan salsins í þeim er komið fyrir bæði málverkum, skissum og skúlptúrum.
15.sep. 2009 - 12:29
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
Flestir hafa orðið fyrir áhrifum frá japanskri menningu á einn eða annan hátt. Hvort sem það eru manga teiknimyndasögur, stórkostlegur arkitektúr eða hátæknihraðlestar þá tekst Japan að koma með frumlegar og framandi hugmyndir sem þekkjast hvergi annars staðar í heiminum. Japan er einnig þekkt fyrir fágað handbragð í list og hönnun og eru gamlar aðferðir og gildi oft tekin áfram og sett í nútímalegri búning.
Í lok september mun ég halda af stað í mína fyrstu ferð til Japan og því langar mig að tala aðeins um hefðbundinn, japanskan skrautmun, Kokeshi dúkkuna.
08.sep. 2009 - 15:20
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
Bright Times eða Bjartir tímar eru skemmtilegir kertastjakar sem hollenski hönnuðurinn Tord Boontje hannaði nýlega fyrir fyrirtækið Artecnica. Kertastjakarnir eru tölvuskornir úr örþunnri stálplötu og koma fjórir mismunandi saman í pakka. Eins og margar aðrar vörur eftir Boontje þá pakkast kertastjakarnir flatt og kaupandinn sér um það að beygja þá í rétt form og eins og honum sýnist.