07. sep. 2009 - 21:36Anna Claessen
Velkomin til Vínarborgar
„Hello…. Vienna Calling”
Ópera, Freud, Schnitzel, Mozart, Götuvagnar, Sacher terta, U-bahn, Staatsoper, Habsburgkastalar, kaffihús, vínarvals,Stephansdom, Dóná, Sameinuðu þjóðirnar, Falco, Riesenrad, þetta eru bara nokkrir hlutir sem Vínarborg er þekkt fyrir.
Það er þó nokkrir hlutir sem þú tekur ekki eftir fyrr en þú býrð í Vínarborg:
- Á dyrabjöllunum og nafnskiltum er ætíð skrifad Mag/Dr ef manneskjan hefur unnið sér inn þá titla. Titlar skipta MIKLU máli í Austurríki.
- Vínarbúum er mjög annt um umhverfið svo þeir endurvinna allt rusl.
- Vínarbúar eru sparsamir svo þeir taka innkaupapoka eða körfu að heiman og fara með í búðina þegar þeir versla. Margir taka einnig hádegismat með sér í vinnuna.
- Drykkir eru oftast „gespritzt", þá er bætt við sódavatni.
- Vinsæll áfengur drykkur er red bull/vodka... aðallega því red bull kemur frá Salzburg í Austurríki.
- Maturinn hér er oft „gefüllt", þ.e. fylltur med káli, skinku, kjöti, súkkulaði, osti, eða öðru álíka.
- Ekki búast við að að geta borgað með kreditkorti eða jafnvel debetkorti á veitingastöðum, þeir taka einungis við peningum.
- Partýmatur er m.a. hvitt brauð med smurðri papriku og gúrku.
- Austurríkismenn borða ekki einungis venjulegt snitzel med kartöflusalati heldur setja snitzel lika á brauð og borða það þannig.
- Það er kaþólsk hefð að hafa fisk á föstudögum
- Öll bíóhús sýna bíómyndir á þýsku, til að sjá kvikmyndir á frummálinu þarf að sækja sérstök kvikmyndahús. Sama með sjónvarp, allt á þýsku fyrir utan einstakar fréttastöðvar. Ef viðtöl eru tekin á ensku, kemur inn þýsk rödd til að útskýra hvað er verið að segja.
- Á sunnudögum og frídögum er næstum allt lokað, fyrir utan tyrkneskar búðir og einstaka bensínstöðvar.
- Ekki búast við þjónustu likt og á Íslandi. Það er ekki „customer comes first" hjá þeim. Ef eitthvað er að þá verða Austurríkismenn svaka pirraðir á óþægilegum spurningum.
- Klósettið er öðruvísi og vaskurinn er í öðru herbergi.
- Engar amerískar pizzur er að finna á veitingastöðum, einungis ítalskar.
- Vinnudagarnir eru venjulega frá 9 til 5:30, því þú þarft að vinna upp tímann sem er skylda að taka í hádegishlé.
- Austurríkismenn fylgja reglum mjög stift, engin furða því lögreglan er mjög hörð og o það er auðvelt að fá sekt.
- Þegar austurríkismenn segja brandara þá breytist tónninn/svipbrigði lítið sem ekki neitt. Kímnigáfa þeirra er þó nokkuð ólík okkar.
- Austurríkismenn eiga það til að vera mjög mikið á móti innflytjendum (sbr. gott fylgi stjórnmálamanna sem berjast gegn útlendingum). Það finnst mér áhugavert, þar sem flestir eiga hér ættir að rekja til útlanda.
- Fólk er mjög neikvætt hér, kvartar mikið.
- Samskipti er oftast pirringur og reiðin kemur fljótt a yfirborðið. Kurteis neikvæðni er sýnileg í bréfaskrifum með þérun „Sie" og „mit freundlichen Grüssen" (vinalegri kveðju) þrátt fyrir að hótanir eða neitun komi fyrir í bréfinu.
- Margar mállýskur eru hér í gangi. Zwei (tveir) er til dæmis borið fram Zwo eða Zwa. Verst finnst mér þegar þeir tala djúpt og opna varla munninn. Ég gæti ekki einu sinni skilið það á íslensku.
Það eru þó nokkrir hlutir sem ég dýrka við Vín; það hve falleg borgin er, það er yndislegt að sitja í görðunum að lesa góða bók eða sitja á kaffihúsi með góðum vinum.
Það besta við Vín er þó hve róleg og örugg borgin er þrátt fyrir 2 milljónir manna sem búa hérna. Samgöngukerfið er líka frábært, lengsta sem maður þarf að bíða er 10 mínutur að kvöldi til og ef maður missir af götuvagninum þá fer maður bara í u-bahn.
Vínarbúar geta stundum gert mann brjálaðan með neikvæðni sinni og pirringi, en þá þarf maður bara að ganga um í þessu fallega, rólega umhverfi og þá gleymir maður öllu sem er leiðinlegt.
27.ágú. 2010 - 16:30
Anna Claessen
Þessi fyrirsögn náði athygli þinni ekki satt? Þetta er það sem við fjölmiðlafólk gerum. Setjum spennandi titla, sem eiga stundum ekki beint við til að ná til ykkar.
02.jún. 2010 - 16:00
Anna Claessen
“Hvaðan ertu?” spurði Austurríkisbúi mig, “Íslandi” svaraði ég og það kom strax svipur á manninn sem sagði: “svo þú ert ástæðan fyrir að fjölskyldumeðlimur minn var fastur…. “ og nöldrið hélt áfram þannig að hugur minn fór að reika. Kannski hjálpaði það manninum að pirrast út í mig, einstakling frá Íslandi, en auðvitað hafði ég ekkert með málið að gera og því væri nær fyrir hann að pirrast út í náttúruöflin sjálf.
06.apr. 2010 - 10:40
Anna Claessen
Vissir þú að eggjaskurnin er tákn grafarinnar sem Jesús var lagður í á föstudaginn langa en reis svo upp frá á páskadag. Þess vegna borðum við páskaegg. Magnað, ekki satt?
23.feb. 2010 - 07:00
Anna Claessen
Íslendingar hafa Bolludag, Sprengidag og Öskudag, í Austurríki er Fasching.
13.feb. 2010 - 08:00
Anna Claessen
Fyrir fjórum árum dreymdi austurríska vinkonu mína eftirfarandi draum:
Hún var á skipi sem var að fara frá Þýskalandi. Hún var inni í klefanum sínum þegar bankað var á dyrnar hennar. Hún leit í gægjugatið til að sjá hver væri fyrir utan og sá andlit, sem hún þekkti ekki. Um leið og maðurinn varð þess var að einhver var við dyrnar sagði hann “Ekki yfirgefa mig, ég elska þig”
07.feb. 2010 - 15:00
Anna Claessen
Á pressunni var grein um daginn þar sem fjallað var um að Twitter væri einungis fyrir útvalda en ekki fyrir almenning. Þar sem ég nota báða þessa samskiptamiðla langar mig að benda á nokkur atriði sem útskýra muninn á þessu tvennu.
31.jan. 2010 - 21:00
Anna Claessen
Hér í Vínarborg er ég umkringd útlendingum. Kærasti minn er frá Kosovo, vinkonur mínar frá Rúmeníu og Póllandi. Þar sem flest þeirra koma frá fyrrum kommúnista og stríðslöndum, finnst ekki mikið til koma þegar ég tala um kreppuna á Íslandi. Þau hafa heldur betur séð það svartara, sérstaklega eftir fall múrsins, þar sem verðbólgan var 90%, fólk gat ekki keypt brauð og mjólk (hvað þá annað) og í Kosovo er enn 60% atvinnuleysi. Við hliðina á þessum tölum er kreppan á Íslandi ekki merkileg.
24.jan. 2010 - 07:00
Anna Claessen
Hver er ekki kominn með nóg af neikvæðni, hvort sem það sé í fjölmiðlum eða hjá almenningi?
11.jan. 2010 - 22:30
Anna Claessen
“Ísland er í lagi, Ísland er í lagi, er í lagi Ísland?
Útrásarvíkingar klæddir fangagöllum í handjárnum með Evu Joly í bílstjórasætinu. Endirinn á áramótaskaupinu 2009 gaf okkur Íslendingum allavega það sem ríkistjórnin hefur enn ekki náð að gefa okkur. Okkar Hollywood endi.
02.jan. 2010 - 16:20
Anna Claessen
Heimurinn missti margar af helstu stjörnum síðari tíma á þessu ári, þ.á.m Michael Jackson, John Hughes, Patrick Swayze, Farrah Fawcett, Walter Cronkite, Natasha Richardson, Bea Arthur, Ed McMahon, Don Hewitt, Brittany Murphy, Adam Goldstein, Dom DeLouise, Ted Kennedy, Eunice Shriver og fleiri.
28.des. 2009 - 07:00
Anna Claessen
„Velkomin heim“ segir kvenmannsrödd í hátalaranum í Icelandair flugvélinni er við lendum á Keflavíkurflugvelli. Íslendingar erlendis geta allir sammála um það að það er ekki til betri orð til að taka á móti okkur er við lendum á þessu ástsæla landi okkar eftir margra mánaða eða jafnvel áralanga bið.
19.des. 2009 - 08:00
Anna Claessen
Jólahefðir Austurríkismanna eru mjög svipaðar íslenskum fyrir utan Nikolaus, Krampus, Christkind og vitringana þrjá.
Að kvöldi 5. desember fer Heilagur Nikolaus (klæddur biskupsklæðum og með staf) á milli húsa og gefur börnum litlar gjafir í skóna þeirra í gluggum eða dyrum, á meðan Krampus (ill vera með horn) minnir börnin að hegða sér vel, því annars mega þau búast við barsmíðum. Þessa kumpána má sjá gangandi um helstu verslunargötur sama kvöld (líkt og myndin).
12.des. 2009 - 10:00
Anna Claessen
Jólaljós alls staðar, jólatónlist, aðventukransar, hringekja fyrir börnin og básar að selja ýmsan jólaglaðning…. Velkomin á Christkindlmarkt
Á ári hverju má finna jólamarkaði á völdum stöðum í Austurríki með jólaljós hátt og lágt og básum sem selja ýmsar jólavörur og mat. Það vinsælasta á markaðnum er þó jólaglöggið, glühwein, en þá safnast fullorðnirnir oftast saman í drykk og spjall. Sannkölluð jólaveröld.
06.des. 2009 - 20:50
Anna Claessen
iPodinn minn er stútfullur af jólatónlist, á hverjum degi horfi ég á jólaþætti og kvikmyndir og nýt jólaljósanna úti. Ég bakaði meira að segja piparkökur. Þrátt fyrir allt þetta á ég enn erfitt með að koma mér í jólaskapið.
30.nóv. 2009 - 08:17
Anna Claessen
Ég man vel eftir þegar ég hitti fyrsta Íslendinginn í Vínarborg. Það var mánuði eftir að ég kom hingað. Við töluðum fyrst saman á ensku þar til við komumst að því að við vorum báðar frá Íslandi. Við hlógum mikið að þessu og töluðum saman um heima og geima líkt og bestu vinkonur.
19.nóv. 2009 - 12:30
Anna Claessen
Þann 9. nóvember sl. fögnuðu Þjóðverjar því að 20 ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins. Af því tilefni var risastórum domino kubbum komið fyrir þar sem múrinn stóð eitt sinn og þeim svo velt við til þess að sýna hvernig kommúnistastjórnir í Austur-Evrópu féllu hver á fætur annarri árið 1989.
01.nóv. 2009 - 23:19
Anna Claessen
Hápunktur brúðkaupsveislunnar er yfirleitt þegar brúðhjónin koma saman í fyrsta sinn sem hjón og dansa hinn klassíska brúðarvals.
24.okt. 2009 - 10:19
Anna Claessen
Hver þekkir ekki Söngvaseið eða The Sound of Music? Austurríkisbúar !!! Ótrúlegt en satt.
02.okt. 2009 - 13:21
Anna Claessen
„Hvad siger du?” spurði ég danskan kærasta systur minnar þegar ég hitti þau í Kaupmannahöfn, svaka stolt af dönskukunnáttu minni.
17.sep. 2009 - 08:35
Anna Claessen
Google býður upp á marga sniðuga hluti, þ.á.m gmail, fréttir, gögn, heimasíður, blogg, picasa, kort, o.fl. Það besta við google forritin er að þau eru ókeypis og auðveld svo allir geta notað þau.