13. sep. 2009 - 11:31Anna Claessen

Starfsviðtöl = áheyrnarpróf

Kreppan er komin til Austurríkis…..eða svo finnst mér, sem er ein af mörgum sem eru að leita sér að nýrri vinnu og finn ekkert nema skammtímastörf í mesta lagi 6 mánuði (oftast í gegnum vinnumiðlanir).

Vegna margra viðtala sem ég var að fara í, bað ég við vini mína ásamt núverandi vinnufélaga um ráð.  Þau höfðu mismunandi skoðanir á því hvernig ég ætti að vera en voru þó sammála um að ég ætti að gera eftirfylgjandi:

  • Klæðast elegant fatnaði, helst svörtum buxum og hvítri skyrtu
  • Svörtum, háum hælum
  • Hafa lítinn farða.
  • Enga hringlaga eyrnalokka eða of mikla skartgripi
  • Segja að ég kynni allt sem krafist væri í lýsingunni á starfinu.

Ég sagðist ekki geta verið fölsk í kynningunni, ég yrði að vera ég sjálf.

Þá sagði vinnufélagi minn Tom í sjokki: „Nei í guðanna bænum, ekki vera þú sjálf.”

Hann sagði mér frá vini sínum sem sagðist kunna SQL þrátt fyrir að hann kynni það ekki.  Hann fékk starfið að lokum, lærði það í frítíma sínum  og vinnur þar enn í dag. Tom benti mér á að fólk eins og vinur hans séu að keppa á móti mér og þess vegna þurfi ég að spila sama leik.

Versta spurningin fannst mér þó: „Hvar sérðu sjálfa þig eftir 5 ár?”

Ég sagðist ekki vita hvað ég væri að gera á næsta ári hvað þá eftir fimm ár. Pólska vinkona mín Agnieszka sagði mér þá frá sögu af pabba sínum, sem var að taka viðtal við konu og spurði hana þessar spurningar. Konan svaraði að hún sæi sig með sína eigin fjölskyldu.

Hvað heldurðu að pabbi hennar hafi gert?

Hann réð hana ekki því hann vildi ekki þurfa að finna aðra manneskju meðan hún yrði í fæðingarorlofi og hún gæti ekki einbeitt sér nægilega í vinnunni. Agnieszka sagði það ekki vera sanngjarnt en svona væri þetta í Póllandi og örugglega svipað í Austurríki.

Það fékk mig til að hugsa: Eru starfsviðtöl þá eins og áheyrnarpróf fyrir leikrit, þar sem þú reynir að setja þig í spor persónunnar eftir bestu getu.

Eða ættir þú að taka áhættuna og kynna sjálfa þig eins og þú raunverulega ert?




23.feb. 2010 - 07:00 Anna Claessen

Fasching

Íslendingar hafa Bolludag, Sprengidag og Öskudag, í Austurríki er Fasching.

13.feb. 2010 - 08:00 Anna Claessen

Aron er draumur

Aron Pálmarsson

Fyrir fjórum árum dreymdi austurríska vinkonu mína eftirfarandi draum:

Hún var á skipi sem var að fara frá Þýskalandi.  Hún var inni í klefanum sínum þegar bankað var á dyrnar hennar.  Hún leit í gægjugatið til að sjá hver væri fyrir utan og sá andlit, sem hún þekkti ekki.  Um leið og maðurinn varð þess var að einhver var við dyrnar sagði hann “Ekki yfirgefa mig, ég elska þig”

07.feb. 2010 - 15:00 Anna Claessen

Facebook vs Twitter

Fylgist þú með stjörnunum á twitter?

Á pressunni var grein um daginn þar sem fjallað var um að Twitter væri einungis fyrir útvalda en ekki fyrir almenning.  Þar sem ég nota báða þessa samskiptamiðla langar mig að benda á nokkur atriði sem útskýra muninn á þessu tvennu.

31.jan. 2010 - 21:00 Anna Claessen

Síðasta stríð Íslendinga var Þorskastríðið

Hér í Vínarborg er ég umkringd útlendingum.  Kærasti minn er frá Kosovo, vinkonur mínar frá Rúmeníu og Póllandi.  Þar sem flest þeirra koma frá fyrrum kommúnista og stríðslöndum, finnst ekki mikið til koma þegar ég tala um kreppuna á Íslandi.  Þau hafa heldur betur séð það svartara, sérstaklega eftir fall múrsins, þar sem verðbólgan var 90%, fólk gat ekki keypt brauð og mjólk (hvað þá annað) og í Kosovo er enn 60% atvinnuleysi. Við hliðina á þessum tölum  er kreppan á Íslandi ekki merkileg.

24.jan. 2010 - 07:00 Anna Claessen

Lífgaðu upp á daginn

Hver er ekki kominn með nóg af neikvæðni, hvort sem það sé í fjölmiðlum eða hjá almenningi?

11.jan. 2010 - 22:30 Anna Claessen

Ísland er í lagi?

“Ísland er í lagi, Ísland er í lagi, er í lagi Ísland?

Útrásarvíkingar klæddir fangagöllum í handjárnum með Evu Joly í bílstjórasætinu. Endirinn á áramótaskaupinu 2009 gaf okkur Íslendingum allavega það sem ríkistjórnin hefur enn ekki náð að gefa okkur. Okkar Hollywood endi.

02.jan. 2010 - 16:20 Anna Claessen

2009 Fall Stjarnanna

Heimurinn missti margar af helstu stjörnum síðari tíma á þessu ári, þ.á.m Michael Jackson, John Hughes, Patrick Swayze, Farrah Fawcett, Walter Cronkite, Natasha Richardson, Bea Arthur, Ed McMahon, Don Hewitt, Brittany Murphy, Adam Goldstein, Dom DeLouise, Ted Kennedy, Eunice Shriver og fleiri.

28.des. 2009 - 07:00 Anna Claessen

„Velkomin heim“

„Velkomin heim“ segir kvenmannsrödd í hátalaranum í Icelandair flugvélinni er við lendum á Keflavíkurflugvelli. Íslendingar erlendis geta allir sammála um það að það er ekki til betri orð til að taka á móti okkur er við lendum á þessu ástsæla landi okkar eftir margra mánaða eða jafnvel áralanga bið.
19.des. 2009 - 08:00 Anna Claessen

Jólahefðir Austurríkismanna

©wienweb.at, Jacqueline Kacetl

Jólahefðir Austurríkismanna eru mjög svipaðar íslenskum fyrir utan Nikolaus, Krampus, Christkind og vitringana þrjá.

Að kvöldi 5. desember fer Heilagur Nikolaus (klæddur biskupsklæðum og með staf) á milli húsa og gefur börnum litlar gjafir í skóna þeirra í gluggum eða dyrum, á meðan Krampus (ill vera með horn) minnir börnin að hegða sér vel, því annars mega þau búast við barsmíðum. Þessa kumpána má sjá gangandi um helstu verslunargötur sama kvöld (líkt og myndin).

 

 

12.des. 2009 - 10:00 Anna Claessen

Jólamarkaðir (Christkindlmarkt)

Jólaljós alls staðar, jólatónlist, aðventukransar, hringekja fyrir börnin og básar að selja ýmsan jólaglaðning…. Velkomin á Christkindlmarkt

Á ári hverju má finna jólamarkaði á völdum stöðum í Austurríki með jólaljós hátt og lágt og básum sem selja ýmsar jólavörur og mat. Það vinsælasta á markaðnum er þó jólaglöggið, glühwein, en þá safnast fullorðnirnir oftast saman í drykk og spjall. Sannkölluð jólaveröld.

 

06.des. 2009 - 20:50 Anna Claessen

Jólastemmning

iPodinn minn er stútfullur af jólatónlist, á hverjum degi horfi ég á jólaþætti og kvikmyndir og nýt jólaljósanna úti. Ég bakaði meira að segja piparkökur. Þrátt fyrir allt þetta á ég enn erfitt með að koma mér í jólaskapið.
30.nóv. 2009 - 08:17 Anna Claessen

Ekki sama hvar maður er Íslendingur

Ég man vel eftir þegar ég hitti fyrsta Íslendinginn í Vínarborg. Það var mánuði eftir að ég kom hingað.  Við töluðum fyrst saman á ensku þar til við komumst að því að við vorum báðar frá Íslandi. Við hlógum mikið að þessu og töluðum saman um heima og geima líkt og bestu vinkonur.
19.nóv. 2009 - 12:30 Anna Claessen

Falli Berlínarmúrsins fagnað og ég með ;)

Þann 9. nóvember sl. fögnuðu Þjóðverjar því að 20 ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins. Af því tilefni var risastórum domino kubbum komið fyrir þar sem múrinn stóð eitt sinn og þeim svo velt við til þess að sýna hvernig kommúnistastjórnir í Austur-Evrópu féllu hver á fætur annarri árið 1989.
01.nóv. 2009 - 23:19 Anna Claessen

Heyrir brúðarmarsinn sögunni til?

Hápunktur brúðkaupsveislunnar er yfirleitt þegar brúðhjónin koma saman í fyrsta sinn sem hjón og dansa hinn klassíska brúðarvals.
24.okt. 2009 - 10:19 Anna Claessen

Austurríkisbúar og Söngvaseiður

Hver þekkir ekki Söngvaseið eða The Sound of Music? Austurríkisbúar !!!  Ótrúlegt en satt.
02.okt. 2009 - 13:21 Anna Claessen

Blekkingin: Hvad siger du?

„Hvad siger du?” spurði ég danskan kærasta systur minnar þegar ég hitti þau í Kaupmannahöfn, svaka stolt af dönskukunnáttu minni. 
17.sep. 2009 - 08:35 Anna Claessen

igoogle

Google býður upp á marga sniðuga hluti, þ.á.m  gmail, fréttir, gögn, heimasíður, blogg, picasa, kort, o.fl. Það besta við google forritin er að þau eru ókeypis og auðveld svo allir geta notað þau.
09.sep. 2009 - 20:54 Anna Claessen

Obama: Hugsjónamaður eða fjölmiðlamaður?

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna gaf sér á dögunum tima frá sínu annasama starfi til að tala við nemendur í gagnfræðiskólanum Wakefield í Arlington, Vestur Virginíu í tilefni byrjunar skólaársins. Þessi ræða var svo sýnd á heimasíðu Hvíta Hússins og voru skólar í Bandaríkjunum hvattir til að sýna hana.
07.sep. 2009 - 21:36 Anna Claessen

Velkomin til Vínarborgar

„Hello…. Vienna Calling”

Ópera, Freud, Schnitzel, Mozart, Götuvagnar, Sacher terta, U-bahn, Staatsoper, Habsburgkastalar, kaffihús, vínarvals,Stephansdom, Dóná, Sameinuðu þjóðirnar, Falco, Riesenrad, þetta eru bara nokkrir hlutir sem Vínarborg er þekkt fyrir.

Það er þó nokkrir hlutir sem þú tekur ekki eftir fyrr en þú býrð í Vínarborg.

Anna Claessen
Fjölmiðlafræðingur og danskennari, búsett í Vín, Austurríki. anna.claessen@gmail.com

www.brighten-your-day.com
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 07.3.2010
Þegar mér stóð ekki
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Skvísukosningin hafin fyrir Miss febrúar!
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 07.3.2010
Stóra blekkingin
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 09.3.2010
Steingrímur afhjúpar bjánaskap
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Þegar á reynir er ástin ekki sönn
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 06.3.2010
Farvel Jóhanna!
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson - 08.3.2010
Eitruð leikföng!
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
,,Hot sex pills"
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
Böðlar kerfisins
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 07.3.2010
Ríkisstjórn án þjóðar
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 07.3.2010
Strákar, engan svona aumingjaskap!
Magnús Geir Eyjólfsson
Magnús Geir Eyjólfsson - 08.3.2010
Ginningarfífl flokkanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson - 09.3.2010
Getum við treyst brennuvarginum fyrir kyndlinum?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 08.3.2010
Stjórnarkreppa
Ágústa Johnson
Ágústa Johnson - 09.3.2010
Ert þú „Allt eða ekkert” týpan?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
Rifið í lóðin
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit