31. jan. 2010 - 21:00Anna Claessen
Síðasta stríð Íslendinga var Þorskastríðið
Hér í Vínarborg er ég umkringd útlendingum. Kærasti minn er frá Kosovo, vinkonur mínar frá Rúmeníu og Póllandi. Þar sem flest þeirra koma frá fyrrum kommúnista og stríðslöndum, finnst ekki mikið til koma þegar ég tala um kreppuna á Íslandi. Þau hafa heldur betur séð það svartara, sérstaklega eftir fall múrsins, þar sem verðbólgan var 90%, fólk gat ekki keypt brauð og mjólk (hvað þá annað) og í Kosovo er enn 60% atvinnuleysi. Við hliðina á þessum tölum er kreppan á Íslandi ekki merkileg.
Ég fór í viðtal um daginn hjá FM4, sem er útvarpsstöð í Vínarborg, vegna Icesave málsins og átti ég erfitt með að koma útvarpsmanninum í skilning um af hverju þessi kreppa er okkur svona erfið. Ég benti honum á eftirfarandi
-
Í fyrsta lagi höfum við ekki átt í útistöðum við aðrar þjóðir síðan í þorskastríðinu
-
Í öðru lagi treystum við ríkisstjórninni okkar, en komumst svo að því að hún hafði brugðist okkur hrapalega líkt og þegar góður vinur svíkur
-
Í þriðja lagi fórum við frá því að vera ein ríkasta þjóð í heimi yfir í að vera ein sú skuldugasta og því ætti að vera auðvelt að skilja gremju okkar
Við erum að mörgu leyti ólík öðrum þjóðum, því við erum ekki vön því að ríkistjórnin bregðist okkur, bankarnir okkar verði gjaldþrota, ekki vön að standa í deilum við aðrar þjóðir. Við höfum lagt hart að okkur við að byggja upp landið og gera það að einu ríkasta svo það er ósköðp eðlilegt að við eigum erfitt með að horfa á það falla niður. Við treystum hvort öðru, en með kreppunni hvarf það traust út í buskann. Okkur finnst við hafa verið rænd.
Mér finnst Íslendingar standa sig mjög vel, berjast fyrir okkar rétti og við erum að meta fjölskyldu og vini í stað þess að horfa aðeins á veraldleg gæði. Ég trúi því að þegar maður gengur í gegnum erfiða tíma verði maður sterkari fyrir vikið og ég veit að Ísland mun komast aftur á toppinn.
Ég, líkt og aðrir Íslendingar hlakka til þegar Icesave umræðunni lýkur, svo við getum fengið lán og byggt upp efnahaginn, þar til Eva Joly finnur og beitir sér fyrir því að hinir seku verði dæmdir og síðast en ekki síst til við setjum lög sem koma í veg fyrir að svona nokkuð geti gerst aftur.
Þangað til….njótið samverunnar og kosti kreppunnar.
27.ágú. 2010 - 16:30
Anna Claessen
Þessi fyrirsögn náði athygli þinni ekki satt? Þetta er það sem við fjölmiðlafólk gerum. Setjum spennandi titla, sem eiga stundum ekki beint við til að ná til ykkar.
02.jún. 2010 - 16:00
Anna Claessen
“Hvaðan ertu?” spurði Austurríkisbúi mig, “Íslandi” svaraði ég og það kom strax svipur á manninn sem sagði: “svo þú ert ástæðan fyrir að fjölskyldumeðlimur minn var fastur…. “ og nöldrið hélt áfram þannig að hugur minn fór að reika. Kannski hjálpaði það manninum að pirrast út í mig, einstakling frá Íslandi, en auðvitað hafði ég ekkert með málið að gera og því væri nær fyrir hann að pirrast út í náttúruöflin sjálf.
06.apr. 2010 - 10:40
Anna Claessen
Vissir þú að eggjaskurnin er tákn grafarinnar sem Jesús var lagður í á föstudaginn langa en reis svo upp frá á páskadag. Þess vegna borðum við páskaegg. Magnað, ekki satt?
23.feb. 2010 - 07:00
Anna Claessen
Íslendingar hafa Bolludag, Sprengidag og Öskudag, í Austurríki er Fasching.
13.feb. 2010 - 08:00
Anna Claessen
Fyrir fjórum árum dreymdi austurríska vinkonu mína eftirfarandi draum:
Hún var á skipi sem var að fara frá Þýskalandi. Hún var inni í klefanum sínum þegar bankað var á dyrnar hennar. Hún leit í gægjugatið til að sjá hver væri fyrir utan og sá andlit, sem hún þekkti ekki. Um leið og maðurinn varð þess var að einhver var við dyrnar sagði hann “Ekki yfirgefa mig, ég elska þig”
07.feb. 2010 - 15:00
Anna Claessen
Á pressunni var grein um daginn þar sem fjallað var um að Twitter væri einungis fyrir útvalda en ekki fyrir almenning. Þar sem ég nota báða þessa samskiptamiðla langar mig að benda á nokkur atriði sem útskýra muninn á þessu tvennu.
24.jan. 2010 - 07:00
Anna Claessen
Hver er ekki kominn með nóg af neikvæðni, hvort sem það sé í fjölmiðlum eða hjá almenningi?
11.jan. 2010 - 22:30
Anna Claessen
“Ísland er í lagi, Ísland er í lagi, er í lagi Ísland?
Útrásarvíkingar klæddir fangagöllum í handjárnum með Evu Joly í bílstjórasætinu. Endirinn á áramótaskaupinu 2009 gaf okkur Íslendingum allavega það sem ríkistjórnin hefur enn ekki náð að gefa okkur. Okkar Hollywood endi.
02.jan. 2010 - 16:20
Anna Claessen
Heimurinn missti margar af helstu stjörnum síðari tíma á þessu ári, þ.á.m Michael Jackson, John Hughes, Patrick Swayze, Farrah Fawcett, Walter Cronkite, Natasha Richardson, Bea Arthur, Ed McMahon, Don Hewitt, Brittany Murphy, Adam Goldstein, Dom DeLouise, Ted Kennedy, Eunice Shriver og fleiri.
28.des. 2009 - 07:00
Anna Claessen
„Velkomin heim“ segir kvenmannsrödd í hátalaranum í Icelandair flugvélinni er við lendum á Keflavíkurflugvelli. Íslendingar erlendis geta allir sammála um það að það er ekki til betri orð til að taka á móti okkur er við lendum á þessu ástsæla landi okkar eftir margra mánaða eða jafnvel áralanga bið.
19.des. 2009 - 08:00
Anna Claessen
Jólahefðir Austurríkismanna eru mjög svipaðar íslenskum fyrir utan Nikolaus, Krampus, Christkind og vitringana þrjá.
Að kvöldi 5. desember fer Heilagur Nikolaus (klæddur biskupsklæðum og með staf) á milli húsa og gefur börnum litlar gjafir í skóna þeirra í gluggum eða dyrum, á meðan Krampus (ill vera með horn) minnir börnin að hegða sér vel, því annars mega þau búast við barsmíðum. Þessa kumpána má sjá gangandi um helstu verslunargötur sama kvöld (líkt og myndin).
12.des. 2009 - 10:00
Anna Claessen
Jólaljós alls staðar, jólatónlist, aðventukransar, hringekja fyrir börnin og básar að selja ýmsan jólaglaðning…. Velkomin á Christkindlmarkt
Á ári hverju má finna jólamarkaði á völdum stöðum í Austurríki með jólaljós hátt og lágt og básum sem selja ýmsar jólavörur og mat. Það vinsælasta á markaðnum er þó jólaglöggið, glühwein, en þá safnast fullorðnirnir oftast saman í drykk og spjall. Sannkölluð jólaveröld.
06.des. 2009 - 20:50
Anna Claessen
iPodinn minn er stútfullur af jólatónlist, á hverjum degi horfi ég á jólaþætti og kvikmyndir og nýt jólaljósanna úti. Ég bakaði meira að segja piparkökur. Þrátt fyrir allt þetta á ég enn erfitt með að koma mér í jólaskapið.
30.nóv. 2009 - 08:17
Anna Claessen
Ég man vel eftir þegar ég hitti fyrsta Íslendinginn í Vínarborg. Það var mánuði eftir að ég kom hingað. Við töluðum fyrst saman á ensku þar til við komumst að því að við vorum báðar frá Íslandi. Við hlógum mikið að þessu og töluðum saman um heima og geima líkt og bestu vinkonur.
19.nóv. 2009 - 12:30
Anna Claessen
Þann 9. nóvember sl. fögnuðu Þjóðverjar því að 20 ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins. Af því tilefni var risastórum domino kubbum komið fyrir þar sem múrinn stóð eitt sinn og þeim svo velt við til þess að sýna hvernig kommúnistastjórnir í Austur-Evrópu féllu hver á fætur annarri árið 1989.
01.nóv. 2009 - 23:19
Anna Claessen
Hápunktur brúðkaupsveislunnar er yfirleitt þegar brúðhjónin koma saman í fyrsta sinn sem hjón og dansa hinn klassíska brúðarvals.
24.okt. 2009 - 10:19
Anna Claessen
Hver þekkir ekki Söngvaseið eða The Sound of Music? Austurríkisbúar !!! Ótrúlegt en satt.
02.okt. 2009 - 13:21
Anna Claessen
„Hvad siger du?” spurði ég danskan kærasta systur minnar þegar ég hitti þau í Kaupmannahöfn, svaka stolt af dönskukunnáttu minni.
17.sep. 2009 - 08:35
Anna Claessen
Google býður upp á marga sniðuga hluti, þ.á.m gmail, fréttir, gögn, heimasíður, blogg, picasa, kort, o.fl. Það besta við google forritin er að þau eru ókeypis og auðveld svo allir geta notað þau.