19. des. 2009 - 08:00Anna Claessen
Jólahefðir Austurríkismanna

©wienweb.at, Jacqueline Kacetl
Jólahefðir Austurríkismanna eru mjög svipaðar íslenskum fyrir utan Nikolaus, Krampus, Christkind og vitringana þrjá.
Að kvöldi 5. desember fer Heilagur Nikolaus (klæddur biskupsklæðum og með staf) á milli húsa og gefur börnum litlar gjafir í skóna þeirra í gluggum eða dyrum, á meðan Krampus (ill vera með horn) minnir börnin að hegða sér vel, því annars mega þau búast við barsmíðum. Þessa kumpána má sjá gangandi um helstu verslunargötur sama kvöld (líkt og myndin).
Á aðfangadag 24. desember fá börnin gjafir frá Christkind, barni með gullið hár og vængi sem tákna nýfædda jesúbarnið. Annars eru hefðir Austurríkismanna svipaðar á aðfangadag, þeir skreyta jólatréð, syngja sálma, skiptast á gjöfum og borða sérstakan jólamat. Trúaðar fjölskyldur lesa úr Biblíunni og fara í messu.
Þann 6. janúar kríta bændur nöfn vitringa á hurðir, C fyrir Caspar, M fyrir Melchoir, og B fyrir Balthazar, sem eiga að verja fólkið gegn veikindum næsta árið. Aðrir segja að þetta sé latína fyrir “Jesús blessi þetta hús” (“Christus mansionem benedicat”)
Þegar ég var að lesa mér til um jólahefðir Austurríkismanna komst ég að því að lagið „Heims um ból“ var samið í Austurríki þann 24. desember árið 1818 af Franz Gruber og var við ljóð Joseph Franz Mohr sem heitir “Stille Nacht”. Sú útgafa var þó aðeins öðruvísi. Lagið eins og við þekkjum það í dag er frá árinu 1832, þökk sé söngvurum frá Zillertal í Austurríki.
Eftir að ég skrifaði greinina um jólamarkaðina las ég að 70 síður eru tileinkaðar “Pro-Christkind” á Facebook. Þar vilja menn banna bandarísku ímyndina af Jólasveininum (Santa Claus) og hvetja foreldra til að segja sögur af Christkind og munu verðlauna búðir og jólamarkaði sem banna jólasveina og hreindýr. Þessi herferð hefur staðið í um 5 ár en þökk sé Facebook og Twitter eru fleiri þátttakendur þetta árið. Hópurinn mótmælti núna á götum Graz og ætla að gera slíkt hið sama í Vínarborg.
Gamli jólamarkaðurinn, Freyung, í Vínarborg er fyrsti jólamarkaðurinn sem notar ekki neinar jólasveinaskreytingar vegna þess að þær teljast ekki nógu hefðbundnar. Jólalög eins og “Jingle Bells” og “Last Christmas” hafa einnig verið tekin af spilalistanum. Í staðinn eru notuð lög sungin af kórum. Margir vegfarenda eru hins vegar mjög ósáttir við að sjá límmiðana “Enginn jólasveinn” sem markaðurinn selur. Eigandinn sagði hins vegar að það væru margir markaðir að það væri í lagi að einn væri hefðbundinn, sérstaklega þar sem Christkindlmarkt vitnar ekki í jólasveininn.
Fyrst fannst mér þetta fáránlegt en fór svo að hugsa um okkar hefðir heima á Íslandi. Ég man hversu erfitt ég átti að útskýra þær fyrir útlendingum. Hversu mikið hafa okkar eigin sögur breyst? Íslensku jólasveinarnir eru ekki klæddir í rauðu og hvítu, heldur eru það áhrif frá Bandaríkjunum og jólalögin eru ekki alltaf alíslensk. Það sannast því sem endranær að sinn er siður í hverju landi.
23.feb. 2010 - 07:00
Anna Claessen
Íslendingar hafa Bolludag, Sprengidag og Öskudag, í Austurríki er Fasching.
13.feb. 2010 - 08:00
Anna Claessen
Fyrir fjórum árum dreymdi austurríska vinkonu mína eftirfarandi draum:
Hún var á skipi sem var að fara frá Þýskalandi. Hún var inni í klefanum sínum þegar bankað var á dyrnar hennar. Hún leit í gægjugatið til að sjá hver væri fyrir utan og sá andlit, sem hún þekkti ekki. Um leið og maðurinn varð þess var að einhver var við dyrnar sagði hann “Ekki yfirgefa mig, ég elska þig”
07.feb. 2010 - 15:00
Anna Claessen
Á pressunni var grein um daginn þar sem fjallað var um að Twitter væri einungis fyrir útvalda en ekki fyrir almenning. Þar sem ég nota báða þessa samskiptamiðla langar mig að benda á nokkur atriði sem útskýra muninn á þessu tvennu.
31.jan. 2010 - 21:00
Anna Claessen
Hér í Vínarborg er ég umkringd útlendingum. Kærasti minn er frá Kosovo, vinkonur mínar frá Rúmeníu og Póllandi. Þar sem flest þeirra koma frá fyrrum kommúnista og stríðslöndum, finnst ekki mikið til koma þegar ég tala um kreppuna á Íslandi. Þau hafa heldur betur séð það svartara, sérstaklega eftir fall múrsins, þar sem verðbólgan var 90%, fólk gat ekki keypt brauð og mjólk (hvað þá annað) og í Kosovo er enn 60% atvinnuleysi. Við hliðina á þessum tölum er kreppan á Íslandi ekki merkileg.
24.jan. 2010 - 07:00
Anna Claessen
Hver er ekki kominn með nóg af neikvæðni, hvort sem það sé í fjölmiðlum eða hjá almenningi?
11.jan. 2010 - 22:30
Anna Claessen
“Ísland er í lagi, Ísland er í lagi, er í lagi Ísland?
Útrásarvíkingar klæddir fangagöllum í handjárnum með Evu Joly í bílstjórasætinu. Endirinn á áramótaskaupinu 2009 gaf okkur Íslendingum allavega það sem ríkistjórnin hefur enn ekki náð að gefa okkur. Okkar Hollywood endi.
02.jan. 2010 - 16:20
Anna Claessen
Heimurinn missti margar af helstu stjörnum síðari tíma á þessu ári, þ.á.m Michael Jackson, John Hughes, Patrick Swayze, Farrah Fawcett, Walter Cronkite, Natasha Richardson, Bea Arthur, Ed McMahon, Don Hewitt, Brittany Murphy, Adam Goldstein, Dom DeLouise, Ted Kennedy, Eunice Shriver og fleiri.
28.des. 2009 - 07:00
Anna Claessen
„Velkomin heim“ segir kvenmannsrödd í hátalaranum í Icelandair flugvélinni er við lendum á Keflavíkurflugvelli. Íslendingar erlendis geta allir sammála um það að það er ekki til betri orð til að taka á móti okkur er við lendum á þessu ástsæla landi okkar eftir margra mánaða eða jafnvel áralanga bið.
12.des. 2009 - 10:00
Anna Claessen
Jólaljós alls staðar, jólatónlist, aðventukransar, hringekja fyrir börnin og básar að selja ýmsan jólaglaðning…. Velkomin á Christkindlmarkt
Á ári hverju má finna jólamarkaði á völdum stöðum í Austurríki með jólaljós hátt og lágt og básum sem selja ýmsar jólavörur og mat. Það vinsælasta á markaðnum er þó jólaglöggið, glühwein, en þá safnast fullorðnirnir oftast saman í drykk og spjall. Sannkölluð jólaveröld.
06.des. 2009 - 20:50
Anna Claessen
iPodinn minn er stútfullur af jólatónlist, á hverjum degi horfi ég á jólaþætti og kvikmyndir og nýt jólaljósanna úti. Ég bakaði meira að segja piparkökur. Þrátt fyrir allt þetta á ég enn erfitt með að koma mér í jólaskapið.
30.nóv. 2009 - 08:17
Anna Claessen
Ég man vel eftir þegar ég hitti fyrsta Íslendinginn í Vínarborg. Það var mánuði eftir að ég kom hingað. Við töluðum fyrst saman á ensku þar til við komumst að því að við vorum báðar frá Íslandi. Við hlógum mikið að þessu og töluðum saman um heima og geima líkt og bestu vinkonur.
19.nóv. 2009 - 12:30
Anna Claessen
Þann 9. nóvember sl. fögnuðu Þjóðverjar því að 20 ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins. Af því tilefni var risastórum domino kubbum komið fyrir þar sem múrinn stóð eitt sinn og þeim svo velt við til þess að sýna hvernig kommúnistastjórnir í Austur-Evrópu féllu hver á fætur annarri árið 1989.
01.nóv. 2009 - 23:19
Anna Claessen
Hápunktur brúðkaupsveislunnar er yfirleitt þegar brúðhjónin koma saman í fyrsta sinn sem hjón og dansa hinn klassíska brúðarvals.
24.okt. 2009 - 10:19
Anna Claessen
Hver þekkir ekki Söngvaseið eða The Sound of Music? Austurríkisbúar !!! Ótrúlegt en satt.
02.okt. 2009 - 13:21
Anna Claessen
„Hvad siger du?” spurði ég danskan kærasta systur minnar þegar ég hitti þau í Kaupmannahöfn, svaka stolt af dönskukunnáttu minni.
17.sep. 2009 - 08:35
Anna Claessen
Google býður upp á marga sniðuga hluti, þ.á.m gmail, fréttir, gögn, heimasíður, blogg, picasa, kort, o.fl. Það besta við google forritin er að þau eru ókeypis og auðveld svo allir geta notað þau.
13.sep. 2009 - 11:31
Anna Claessen
Kreppan er komin til Austurríkis…..eða svo finnst mér, sem er ein af mörgum sem eru að leita sér að nýrri vinnu og finn ekkert nema skammtímastörf í mesta lagi 6 mánuði (oftast í gegnum vinnumiðlanir).
09.sep. 2009 - 20:54
Anna Claessen
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna gaf sér á dögunum tima frá sínu annasama starfi til að tala við nemendur í gagnfræðiskólanum Wakefield í Arlington, Vestur Virginíu í tilefni byrjunar skólaársins. Þessi ræða var svo sýnd á heimasíðu Hvíta Hússins og voru skólar í Bandaríkjunum hvattir til að sýna hana.
07.sep. 2009 - 21:36
Anna Claessen
„Hello…. Vienna Calling”
Ópera, Freud, Schnitzel, Mozart, Götuvagnar, Sacher terta, U-bahn, Staatsoper, Habsburgkastalar, kaffihús, vínarvals,Stephansdom, Dóná, Sameinuðu þjóðirnar, Falco, Riesenrad, þetta eru bara nokkrir hlutir sem Vínarborg er þekkt fyrir.
Það er þó nokkrir hlutir sem þú tekur ekki eftir fyrr en þú býrð í Vínarborg.