11. jan. 2010 - 22:30Anna Claessen
Ísland er í lagi?
“Ísland er í lagi, Ísland er í lagi, er í lagi Ísland?
Útrásarvíkingar klæddir fangagöllum í handjárnum með Evu Joly í bílstjórasætinu. Endirinn á áramótaskaupinu 2009 gaf okkur Íslendingum allavega það sem ríkistjórnin hefur enn ekki náð að gefa okkur. Okkar Hollywood endi.
Því miður lítur ekki út fyrir að þessi sýn sé að rætast í bráð. Útrásarvíkingar eru margir hverjir erlendis með afskrifaðar skuldir á meðan almenningur á að borga brúsann. Ekki hjálpaði að hlusta á fréttirnar. Ég horfði líka á kryddsíldina og varð bara þunglynd og reið. Það var sama hvað ég hlustaði. Það var alltaf ICESAVE, ICESAVE, ICESAVE…endalaust tal en ekkert útskýrt.
Ég er enn að bíða eftir að sjá “Icesave for dummies” útgefið þannig að ég skilji hvað á að velja og hverjar eru afleiðingar valsins. Það þyrfti að bæta upplýsingagjöf til almennings og koma upp vefsíðu þar sem finna má allar upplýsingar um málið. Það hjálpar ekki að ýta þessu að almenning, að tala um þetta endalaust því þá fær fólk ógeð á þessu og mun segja já bara til að losna undan umræðunni.
Svo er það auðvitað hið sjálfsagða, að setja ný lög sem koma í veg fyrir að svona nokkuð geti gerst aftur. Að nokkrir aðilar geti stofnað banka, keypt endalaust, afskrifað og sett á þjóðina þannig að hún verði gjaldþrota og orðspor hennar erlendis eyðilagt er algjörlega fráleitt. Við erum búin að gera börnunum nógu mikinn grikk, eða eins og stóð á einum Dogma bolnum “Hver á að borga skuldir Íslands? Essasú”
Ég hlakka til að sjá hvað verður svo úr vinnunni hjá Evu Joly. Mér finnst hún vera fyrir Íslendinga það sem Barack Obama er Bandaríkjunum eða VON. Að það náist að hreinsa allan skítinn líkt og Jóhanna og Steingrímur voru sýnd gera í áramótaskaupinu.
Þangað til horfi ég aftur og aftur á myndbandið, og syng "Ísland er í lagi"
23.feb. 2010 - 07:00
Anna Claessen
Íslendingar hafa Bolludag, Sprengidag og Öskudag, í Austurríki er Fasching.
13.feb. 2010 - 08:00
Anna Claessen
Fyrir fjórum árum dreymdi austurríska vinkonu mína eftirfarandi draum:
Hún var á skipi sem var að fara frá Þýskalandi. Hún var inni í klefanum sínum þegar bankað var á dyrnar hennar. Hún leit í gægjugatið til að sjá hver væri fyrir utan og sá andlit, sem hún þekkti ekki. Um leið og maðurinn varð þess var að einhver var við dyrnar sagði hann “Ekki yfirgefa mig, ég elska þig”
07.feb. 2010 - 15:00
Anna Claessen
Á pressunni var grein um daginn þar sem fjallað var um að Twitter væri einungis fyrir útvalda en ekki fyrir almenning. Þar sem ég nota báða þessa samskiptamiðla langar mig að benda á nokkur atriði sem útskýra muninn á þessu tvennu.
31.jan. 2010 - 21:00
Anna Claessen
Hér í Vínarborg er ég umkringd útlendingum. Kærasti minn er frá Kosovo, vinkonur mínar frá Rúmeníu og Póllandi. Þar sem flest þeirra koma frá fyrrum kommúnista og stríðslöndum, finnst ekki mikið til koma þegar ég tala um kreppuna á Íslandi. Þau hafa heldur betur séð það svartara, sérstaklega eftir fall múrsins, þar sem verðbólgan var 90%, fólk gat ekki keypt brauð og mjólk (hvað þá annað) og í Kosovo er enn 60% atvinnuleysi. Við hliðina á þessum tölum er kreppan á Íslandi ekki merkileg.
24.jan. 2010 - 07:00
Anna Claessen
Hver er ekki kominn með nóg af neikvæðni, hvort sem það sé í fjölmiðlum eða hjá almenningi?
02.jan. 2010 - 16:20
Anna Claessen
Heimurinn missti margar af helstu stjörnum síðari tíma á þessu ári, þ.á.m Michael Jackson, John Hughes, Patrick Swayze, Farrah Fawcett, Walter Cronkite, Natasha Richardson, Bea Arthur, Ed McMahon, Don Hewitt, Brittany Murphy, Adam Goldstein, Dom DeLouise, Ted Kennedy, Eunice Shriver og fleiri.
28.des. 2009 - 07:00
Anna Claessen
„Velkomin heim“ segir kvenmannsrödd í hátalaranum í Icelandair flugvélinni er við lendum á Keflavíkurflugvelli. Íslendingar erlendis geta allir sammála um það að það er ekki til betri orð til að taka á móti okkur er við lendum á þessu ástsæla landi okkar eftir margra mánaða eða jafnvel áralanga bið.
19.des. 2009 - 08:00
Anna Claessen
Jólahefðir Austurríkismanna eru mjög svipaðar íslenskum fyrir utan Nikolaus, Krampus, Christkind og vitringana þrjá.
Að kvöldi 5. desember fer Heilagur Nikolaus (klæddur biskupsklæðum og með staf) á milli húsa og gefur börnum litlar gjafir í skóna þeirra í gluggum eða dyrum, á meðan Krampus (ill vera með horn) minnir börnin að hegða sér vel, því annars mega þau búast við barsmíðum. Þessa kumpána má sjá gangandi um helstu verslunargötur sama kvöld (líkt og myndin).
12.des. 2009 - 10:00
Anna Claessen
Jólaljós alls staðar, jólatónlist, aðventukransar, hringekja fyrir börnin og básar að selja ýmsan jólaglaðning…. Velkomin á Christkindlmarkt
Á ári hverju má finna jólamarkaði á völdum stöðum í Austurríki með jólaljós hátt og lágt og básum sem selja ýmsar jólavörur og mat. Það vinsælasta á markaðnum er þó jólaglöggið, glühwein, en þá safnast fullorðnirnir oftast saman í drykk og spjall. Sannkölluð jólaveröld.
06.des. 2009 - 20:50
Anna Claessen
iPodinn minn er stútfullur af jólatónlist, á hverjum degi horfi ég á jólaþætti og kvikmyndir og nýt jólaljósanna úti. Ég bakaði meira að segja piparkökur. Þrátt fyrir allt þetta á ég enn erfitt með að koma mér í jólaskapið.
30.nóv. 2009 - 08:17
Anna Claessen
Ég man vel eftir þegar ég hitti fyrsta Íslendinginn í Vínarborg. Það var mánuði eftir að ég kom hingað. Við töluðum fyrst saman á ensku þar til við komumst að því að við vorum báðar frá Íslandi. Við hlógum mikið að þessu og töluðum saman um heima og geima líkt og bestu vinkonur.
19.nóv. 2009 - 12:30
Anna Claessen
Þann 9. nóvember sl. fögnuðu Þjóðverjar því að 20 ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins. Af því tilefni var risastórum domino kubbum komið fyrir þar sem múrinn stóð eitt sinn og þeim svo velt við til þess að sýna hvernig kommúnistastjórnir í Austur-Evrópu féllu hver á fætur annarri árið 1989.
01.nóv. 2009 - 23:19
Anna Claessen
Hápunktur brúðkaupsveislunnar er yfirleitt þegar brúðhjónin koma saman í fyrsta sinn sem hjón og dansa hinn klassíska brúðarvals.
24.okt. 2009 - 10:19
Anna Claessen
Hver þekkir ekki Söngvaseið eða The Sound of Music? Austurríkisbúar !!! Ótrúlegt en satt.
02.okt. 2009 - 13:21
Anna Claessen
„Hvad siger du?” spurði ég danskan kærasta systur minnar þegar ég hitti þau í Kaupmannahöfn, svaka stolt af dönskukunnáttu minni.
17.sep. 2009 - 08:35
Anna Claessen
Google býður upp á marga sniðuga hluti, þ.á.m gmail, fréttir, gögn, heimasíður, blogg, picasa, kort, o.fl. Það besta við google forritin er að þau eru ókeypis og auðveld svo allir geta notað þau.
13.sep. 2009 - 11:31
Anna Claessen
Kreppan er komin til Austurríkis…..eða svo finnst mér, sem er ein af mörgum sem eru að leita sér að nýrri vinnu og finn ekkert nema skammtímastörf í mesta lagi 6 mánuði (oftast í gegnum vinnumiðlanir).
09.sep. 2009 - 20:54
Anna Claessen
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna gaf sér á dögunum tima frá sínu annasama starfi til að tala við nemendur í gagnfræðiskólanum Wakefield í Arlington, Vestur Virginíu í tilefni byrjunar skólaársins. Þessi ræða var svo sýnd á heimasíðu Hvíta Hússins og voru skólar í Bandaríkjunum hvattir til að sýna hana.
07.sep. 2009 - 21:36
Anna Claessen
„Hello…. Vienna Calling”
Ópera, Freud, Schnitzel, Mozart, Götuvagnar, Sacher terta, U-bahn, Staatsoper, Habsburgkastalar, kaffihús, vínarvals,Stephansdom, Dóná, Sameinuðu þjóðirnar, Falco, Riesenrad, þetta eru bara nokkrir hlutir sem Vínarborg er þekkt fyrir.
Það er þó nokkrir hlutir sem þú tekur ekki eftir fyrr en þú býrð í Vínarborg.