19. nóv. 2009 - 12:30Anna Claessen

Falli Berlínarmúrsins fagnað og ég með ;)

Þann 9. nóvember sl. fögnuðu Þjóðverjar því að 20 ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins. Af því tilefni var risastórum domino kubbum komið fyrir þar sem múrinn stóð eitt sinn og þeim svo velt við til þess að sýna hvernig kommúnistastjórnir í Austur-Evrópu féllu hver á fætur annarri árið 1989.

Það var þó ekki það eina sem var gert í tilefni stórafmælisins.  Á Potsdamer Platz voru nokkrir veggir gamla múrsins til sýnis og gátu vegfarendur keypt sér póstkort og áritanir með stimplum sem þurfti á tímum múrsins til að komast yfir landamærin. Á Alexanderplatz var sýning sem fjallaði um tímann eftir fall múrsins, friðsælu mótmælin, pólítikina og viðbrögð fólksins.  Uppáhaldsmyndin mín þar var sígarettuauglýsing þar sem Elvis sýnir ungri konu sígarettupakka og slagorðið er Test the West. Talandi um að nota heimsatburð til markaðsetningar.

Það vildi svo til að ég var stödd í Berlín vikuna fyrir fögnuðinn. Ég vissi ekki af hátíðahöldunum en komst fljótt að því þegar ég var að taka mynd af vinkonu minni fyrir framan East Side Gallery (þar sem leifar Berlínarmúrsins eru) og norsk fréttakona tók mynd af okkur og sagði okkur hvað stæði til. Hún var að skrifa grein um atburðinn og ekki sú eina. Nokkru  seinna komu nemendur kvikmyndaskóla í Berlín og tóku viðtal við okkur.  Þar sem við héldum leið okkar að Brandenburgarhliðinu (sem er talin táknmynd sameiningar Þýskalands), þá viti menn, að fjölmiðlmenn tóku aftur viðtal við okkur. Í þetta sinn var það ZDF sem spurði okkur  spurninga í tilefni þess að stórhljómsveitin U2 ætluði að koma fram við hliðið daginn eftir fyrir evrópsku tónlistarhátíð MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Talandi um að vera á réttum stað á réttum tíma! Það hjálpaði svo sem líka til að veðrið var leiðinlegt þannig að það voru fáir á ferli fyrir fjölmiðlafólk til að tala við.

Því miður missti ég af domin0-kubbunum og aðalhátíðinni þann 9.nóvember en var þar í anda. Horfði á fjöldann af heimildarmyndum um múrinn og komst að ýmsu sem ég hafði ekki vitað áður.  Ég er ekki viss um að margir viti að ef það hefði ekki verið fyrir mistök Günter Schabowski, austur-þýska liðsforingjans fyrrverandi, um nýjar ferðareglur fyrir Austur-Þjóðverja, þá hefði múrinn ef til vill ekki fallið þennan dag. Ótrúlegt hvað litlir hlutir geta stundum skipt sköpum.

Nemi í Berlín orðaði það best:
1989/90  þýddi fyrir mig að núna hafði ég frelsi og tækifæri til að gera það sem ég vildi. Fyrir kynslóð foreldra minna þýddi það hins vegar miklar breytingar sem margir eru ekki enn vanir í dag.



27.ágú. 2010 - 16:30 Anna Claessen

Fjölmiðlar á Íslandi = fávitar

Þessi fyrirsögn náði athygli þinni ekki satt? Þetta er það sem við fjölmiðlafólk gerum. Setjum spennandi titla, sem eiga stundum ekki beint við til að ná til ykkar.
02.jún. 2010 - 16:00 Anna Claessen

Eyjafjallajökull…. Erlendis

“Hvaðan ertu?” spurði Austurríkisbúi mig, “Íslandi” svaraði ég og það kom strax svipur á manninn sem sagði: “svo þú ert ástæðan fyrir að fjölskyldumeðlimur minn var fastur…. “ og nöldrið hélt áfram þannig að hugur minn fór að reika.  Kannski hjálpaði það manninum að pirrast út í mig, einstakling frá Íslandi, en auðvitað hafði ég ekkert með málið að gera og því væri nær fyrir hann að pirrast út í náttúruöflin sjálf.
06.apr. 2010 - 10:40 Anna Claessen

Páskamarkaðir, kanínur og egg

Vissir þú að eggjaskurnin er tákn grafarinnar sem Jesús var lagður í á föstudaginn langa en reis svo upp frá á páskadag. Þess vegna borðum við páskaegg. Magnað, ekki satt?
23.feb. 2010 - 07:00 Anna Claessen

Fasching

Íslendingar hafa Bolludag, Sprengidag og Öskudag, í Austurríki er Fasching.

13.feb. 2010 - 08:00 Anna Claessen

Aron er draumur

Aron Pálmarsson

Fyrir fjórum árum dreymdi austurríska vinkonu mína eftirfarandi draum:

Hún var á skipi sem var að fara frá Þýskalandi.  Hún var inni í klefanum sínum þegar bankað var á dyrnar hennar.  Hún leit í gægjugatið til að sjá hver væri fyrir utan og sá andlit, sem hún þekkti ekki.  Um leið og maðurinn varð þess var að einhver var við dyrnar sagði hann “Ekki yfirgefa mig, ég elska þig”

07.feb. 2010 - 15:00 Anna Claessen

Facebook vs Twitter

Fylgist þú með stjörnunum á twitter?

Á pressunni var grein um daginn þar sem fjallað var um að Twitter væri einungis fyrir útvalda en ekki fyrir almenning.  Þar sem ég nota báða þessa samskiptamiðla langar mig að benda á nokkur atriði sem útskýra muninn á þessu tvennu.

31.jan. 2010 - 21:00 Anna Claessen

Síðasta stríð Íslendinga var Þorskastríðið

Hér í Vínarborg er ég umkringd útlendingum.  Kærasti minn er frá Kosovo, vinkonur mínar frá Rúmeníu og Póllandi.  Þar sem flest þeirra koma frá fyrrum kommúnista og stríðslöndum, finnst ekki mikið til koma þegar ég tala um kreppuna á Íslandi.  Þau hafa heldur betur séð það svartara, sérstaklega eftir fall múrsins, þar sem verðbólgan var 90%, fólk gat ekki keypt brauð og mjólk (hvað þá annað) og í Kosovo er enn 60% atvinnuleysi. Við hliðina á þessum tölum  er kreppan á Íslandi ekki merkileg.

24.jan. 2010 - 07:00 Anna Claessen

Lífgaðu upp á daginn

Hver er ekki kominn með nóg af neikvæðni, hvort sem það sé í fjölmiðlum eða hjá almenningi?

11.jan. 2010 - 22:30 Anna Claessen

Ísland er í lagi?

“Ísland er í lagi, Ísland er í lagi, er í lagi Ísland?

Útrásarvíkingar klæddir fangagöllum í handjárnum með Evu Joly í bílstjórasætinu. Endirinn á áramótaskaupinu 2009 gaf okkur Íslendingum allavega það sem ríkistjórnin hefur enn ekki náð að gefa okkur. Okkar Hollywood endi.

02.jan. 2010 - 16:20 Anna Claessen

2009 Fall Stjarnanna

Heimurinn missti margar af helstu stjörnum síðari tíma á þessu ári, þ.á.m Michael Jackson, John Hughes, Patrick Swayze, Farrah Fawcett, Walter Cronkite, Natasha Richardson, Bea Arthur, Ed McMahon, Don Hewitt, Brittany Murphy, Adam Goldstein, Dom DeLouise, Ted Kennedy, Eunice Shriver og fleiri.

28.des. 2009 - 07:00 Anna Claessen

„Velkomin heim“

„Velkomin heim“ segir kvenmannsrödd í hátalaranum í Icelandair flugvélinni er við lendum á Keflavíkurflugvelli. Íslendingar erlendis geta allir sammála um það að það er ekki til betri orð til að taka á móti okkur er við lendum á þessu ástsæla landi okkar eftir margra mánaða eða jafnvel áralanga bið.
19.des. 2009 - 08:00 Anna Claessen

Jólahefðir Austurríkismanna

©wienweb.at, Jacqueline Kacetl

Jólahefðir Austurríkismanna eru mjög svipaðar íslenskum fyrir utan Nikolaus, Krampus, Christkind og vitringana þrjá.

Að kvöldi 5. desember fer Heilagur Nikolaus (klæddur biskupsklæðum og með staf) á milli húsa og gefur börnum litlar gjafir í skóna þeirra í gluggum eða dyrum, á meðan Krampus (ill vera með horn) minnir börnin að hegða sér vel, því annars mega þau búast við barsmíðum. Þessa kumpána má sjá gangandi um helstu verslunargötur sama kvöld (líkt og myndin).

 

 

12.des. 2009 - 10:00 Anna Claessen

Jólamarkaðir (Christkindlmarkt)

Jólaljós alls staðar, jólatónlist, aðventukransar, hringekja fyrir börnin og básar að selja ýmsan jólaglaðning…. Velkomin á Christkindlmarkt

Á ári hverju má finna jólamarkaði á völdum stöðum í Austurríki með jólaljós hátt og lágt og básum sem selja ýmsar jólavörur og mat. Það vinsælasta á markaðnum er þó jólaglöggið, glühwein, en þá safnast fullorðnirnir oftast saman í drykk og spjall. Sannkölluð jólaveröld.

 

06.des. 2009 - 20:50 Anna Claessen

Jólastemmning

iPodinn minn er stútfullur af jólatónlist, á hverjum degi horfi ég á jólaþætti og kvikmyndir og nýt jólaljósanna úti. Ég bakaði meira að segja piparkökur. Þrátt fyrir allt þetta á ég enn erfitt með að koma mér í jólaskapið.
30.nóv. 2009 - 08:17 Anna Claessen

Ekki sama hvar maður er Íslendingur

Ég man vel eftir þegar ég hitti fyrsta Íslendinginn í Vínarborg. Það var mánuði eftir að ég kom hingað.  Við töluðum fyrst saman á ensku þar til við komumst að því að við vorum báðar frá Íslandi. Við hlógum mikið að þessu og töluðum saman um heima og geima líkt og bestu vinkonur.
01.nóv. 2009 - 23:19 Anna Claessen

Heyrir brúðarmarsinn sögunni til?

Hápunktur brúðkaupsveislunnar er yfirleitt þegar brúðhjónin koma saman í fyrsta sinn sem hjón og dansa hinn klassíska brúðarvals.
24.okt. 2009 - 10:19 Anna Claessen

Austurríkisbúar og Söngvaseiður

Hver þekkir ekki Söngvaseið eða The Sound of Music? Austurríkisbúar !!!  Ótrúlegt en satt.
02.okt. 2009 - 13:21 Anna Claessen

Blekkingin: Hvad siger du?

„Hvad siger du?” spurði ég danskan kærasta systur minnar þegar ég hitti þau í Kaupmannahöfn, svaka stolt af dönskukunnáttu minni. 
17.sep. 2009 - 08:35 Anna Claessen

igoogle

Google býður upp á marga sniðuga hluti, þ.á.m  gmail, fréttir, gögn, heimasíður, blogg, picasa, kort, o.fl. Það besta við google forritin er að þau eru ókeypis og auðveld svo allir geta notað þau.

Anna Claessen

B.A. í fjölmiðlafræði frá Webster ameríska háskólanum í Vín, Austurríki

www.brighten-your-day.com
"I believe that everything happens for a reason. People change so that you can learn to let go. Things go wrong so that you can appreciate when they go right. You believe less so that you eventually learn to trust no one but yourself. Sometimes good things fall apart so better things can fall together." (Marilyn Monroe)

www.facebook.com/claessen1

anna.claessen@gmail.com

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit