07. feb. 2010 - 15:00Anna Claessen

Facebook vs Twitter

Fylgist þú með stjörnunum á twitter?

Fylgist þú með stjörnunum á twitter?

Á pressunni var grein um daginn þar sem fjallað var um að Twitter væri einungis fyrir útvalda en ekki fyrir almenning.  Þar sem ég nota báða þessa samskiptamiðla langar mig að benda á nokkur atriði sem útskýra muninn á þessu tvennu.

Flestir þekkja samskiptamiðilinn Facebook, sem er búin að fara sigurför um Ísland og allan heiminn.  Margir nota þar tækifærið til þess að endurnýja kynni við fyrrum skólafélaga, vini og fleiri ásamt því að geta séð hvað þeir eru að bralla.

Fyrir þá sem nota Facebook, er Twitter  eins og fréttaveita (status update).  Þar er hægt að uppfæra færslu (update) og þá er hún á síðunni þinni (profile).  Þessi boð berast til þeirra sem hafa valið að fylgjast með þér.  Á sama hátt getur þú ýmist fundið fólk (find people) og fylgt þeim (ýta á follow takkann) þannig að þú færð uppfærslur þeirra eða þá að það sendir þér skilaboð(direct messages) eða svar (@notendanafn þitt) frá þeirra síðu. Þú getur svarað þeim en þá birtist það á forsíðu þinni (profile). Þannig er allt sem þú gerir a Twitter er sýnt líkt og á Facebook.  Þú getur síðan breytt ýmsu s.s. bakgrunni og mynd í stillingum (settings).  Þetta er í raun ekki erfitt en þar sem þú þekkir líklega ekki eins marga á Facebook eins og Twitter, þá er þetta líklega ekki eins skemmtilegt.

Twitter hefur ekki náð viðlíka hylli og Facebook á Íslandi.  Helst eru það íslenskir tónlistarmenn sem kannast meira við þennan samskiptamiðil þar sem hann er góður fyrir fólk sem vill eiga sér fylgjendur en þurfa ekki að hafa mikil samskipti við þá. Þess vegna notar fræga fólkið Twitter mikið (m.a. Barack Obama, Lady Gaga, Oprah Winfrey, Eva Longoria, Neil Patrick Harris og fleiri).  Að fylgjast með þessu er líkt og að lesa slúðurblöð en fréttirnar eru raunverulega frá stjörnunum.  Það má sjá á þessum lista:  http://www.celebritytweet.com/.  Það er því full ástæða til að hvetja fyrirtæki og þekkta einstaklinga til að nota Twitter til þess að sinna ákveðnum upplýsinga og auglýsingaþætti.

Ég nota Twitter (www.twitter.com/aclaessen) aðallega til að fylgjast með fræga fólkinu.  Mér finnst gaman að geta sent stjörnunum einstaka sinnum skilaboð.  Það væri líka gaman að fá skilaboð eða uppástungur frá Pressulesendum, sérstaklega þar sem ekki er athugasemdadálkur á Pressusíðunni.

Ég er sammála áðurnefndri grein  og finnst að Facebook sé betri fyrir hinn almenna notanda þar sem sú síða er auðveldari í notkun og býður upp á meiri möguleika.



23.feb. 2010 - 07:00 Anna Claessen

Fasching

Íslendingar hafa Bolludag, Sprengidag og Öskudag, í Austurríki er Fasching.

13.feb. 2010 - 08:00 Anna Claessen

Aron er draumur

Aron Pálmarsson

Fyrir fjórum árum dreymdi austurríska vinkonu mína eftirfarandi draum:

Hún var á skipi sem var að fara frá Þýskalandi.  Hún var inni í klefanum sínum þegar bankað var á dyrnar hennar.  Hún leit í gægjugatið til að sjá hver væri fyrir utan og sá andlit, sem hún þekkti ekki.  Um leið og maðurinn varð þess var að einhver var við dyrnar sagði hann “Ekki yfirgefa mig, ég elska þig”

31.jan. 2010 - 21:00 Anna Claessen

Síðasta stríð Íslendinga var Þorskastríðið

Hér í Vínarborg er ég umkringd útlendingum.  Kærasti minn er frá Kosovo, vinkonur mínar frá Rúmeníu og Póllandi.  Þar sem flest þeirra koma frá fyrrum kommúnista og stríðslöndum, finnst ekki mikið til koma þegar ég tala um kreppuna á Íslandi.  Þau hafa heldur betur séð það svartara, sérstaklega eftir fall múrsins, þar sem verðbólgan var 90%, fólk gat ekki keypt brauð og mjólk (hvað þá annað) og í Kosovo er enn 60% atvinnuleysi. Við hliðina á þessum tölum  er kreppan á Íslandi ekki merkileg.

24.jan. 2010 - 07:00 Anna Claessen

Lífgaðu upp á daginn

Hver er ekki kominn með nóg af neikvæðni, hvort sem það sé í fjölmiðlum eða hjá almenningi?

11.jan. 2010 - 22:30 Anna Claessen

Ísland er í lagi?

“Ísland er í lagi, Ísland er í lagi, er í lagi Ísland?

Útrásarvíkingar klæddir fangagöllum í handjárnum með Evu Joly í bílstjórasætinu. Endirinn á áramótaskaupinu 2009 gaf okkur Íslendingum allavega það sem ríkistjórnin hefur enn ekki náð að gefa okkur. Okkar Hollywood endi.

02.jan. 2010 - 16:20 Anna Claessen

2009 Fall Stjarnanna

Heimurinn missti margar af helstu stjörnum síðari tíma á þessu ári, þ.á.m Michael Jackson, John Hughes, Patrick Swayze, Farrah Fawcett, Walter Cronkite, Natasha Richardson, Bea Arthur, Ed McMahon, Don Hewitt, Brittany Murphy, Adam Goldstein, Dom DeLouise, Ted Kennedy, Eunice Shriver og fleiri.

28.des. 2009 - 07:00 Anna Claessen

„Velkomin heim“

„Velkomin heim“ segir kvenmannsrödd í hátalaranum í Icelandair flugvélinni er við lendum á Keflavíkurflugvelli. Íslendingar erlendis geta allir sammála um það að það er ekki til betri orð til að taka á móti okkur er við lendum á þessu ástsæla landi okkar eftir margra mánaða eða jafnvel áralanga bið.
19.des. 2009 - 08:00 Anna Claessen

Jólahefðir Austurríkismanna

©wienweb.at, Jacqueline Kacetl

Jólahefðir Austurríkismanna eru mjög svipaðar íslenskum fyrir utan Nikolaus, Krampus, Christkind og vitringana þrjá.

Að kvöldi 5. desember fer Heilagur Nikolaus (klæddur biskupsklæðum og með staf) á milli húsa og gefur börnum litlar gjafir í skóna þeirra í gluggum eða dyrum, á meðan Krampus (ill vera með horn) minnir börnin að hegða sér vel, því annars mega þau búast við barsmíðum. Þessa kumpána má sjá gangandi um helstu verslunargötur sama kvöld (líkt og myndin).

 

 

12.des. 2009 - 10:00 Anna Claessen

Jólamarkaðir (Christkindlmarkt)

Jólaljós alls staðar, jólatónlist, aðventukransar, hringekja fyrir börnin og básar að selja ýmsan jólaglaðning…. Velkomin á Christkindlmarkt

Á ári hverju má finna jólamarkaði á völdum stöðum í Austurríki með jólaljós hátt og lágt og básum sem selja ýmsar jólavörur og mat. Það vinsælasta á markaðnum er þó jólaglöggið, glühwein, en þá safnast fullorðnirnir oftast saman í drykk og spjall. Sannkölluð jólaveröld.

 

06.des. 2009 - 20:50 Anna Claessen

Jólastemmning

iPodinn minn er stútfullur af jólatónlist, á hverjum degi horfi ég á jólaþætti og kvikmyndir og nýt jólaljósanna úti. Ég bakaði meira að segja piparkökur. Þrátt fyrir allt þetta á ég enn erfitt með að koma mér í jólaskapið.
30.nóv. 2009 - 08:17 Anna Claessen

Ekki sama hvar maður er Íslendingur

Ég man vel eftir þegar ég hitti fyrsta Íslendinginn í Vínarborg. Það var mánuði eftir að ég kom hingað.  Við töluðum fyrst saman á ensku þar til við komumst að því að við vorum báðar frá Íslandi. Við hlógum mikið að þessu og töluðum saman um heima og geima líkt og bestu vinkonur.
19.nóv. 2009 - 12:30 Anna Claessen

Falli Berlínarmúrsins fagnað og ég með ;)

Þann 9. nóvember sl. fögnuðu Þjóðverjar því að 20 ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins. Af því tilefni var risastórum domino kubbum komið fyrir þar sem múrinn stóð eitt sinn og þeim svo velt við til þess að sýna hvernig kommúnistastjórnir í Austur-Evrópu féllu hver á fætur annarri árið 1989.
01.nóv. 2009 - 23:19 Anna Claessen

Heyrir brúðarmarsinn sögunni til?

Hápunktur brúðkaupsveislunnar er yfirleitt þegar brúðhjónin koma saman í fyrsta sinn sem hjón og dansa hinn klassíska brúðarvals.
24.okt. 2009 - 10:19 Anna Claessen

Austurríkisbúar og Söngvaseiður

Hver þekkir ekki Söngvaseið eða The Sound of Music? Austurríkisbúar !!!  Ótrúlegt en satt.
02.okt. 2009 - 13:21 Anna Claessen

Blekkingin: Hvad siger du?

„Hvad siger du?” spurði ég danskan kærasta systur minnar þegar ég hitti þau í Kaupmannahöfn, svaka stolt af dönskukunnáttu minni. 
17.sep. 2009 - 08:35 Anna Claessen

igoogle

Google býður upp á marga sniðuga hluti, þ.á.m  gmail, fréttir, gögn, heimasíður, blogg, picasa, kort, o.fl. Það besta við google forritin er að þau eru ókeypis og auðveld svo allir geta notað þau.
13.sep. 2009 - 11:31 Anna Claessen

Starfsviðtöl = áheyrnarpróf

Kreppan er komin til Austurríkis…..eða svo finnst mér, sem er ein af mörgum sem eru að leita sér að nýrri vinnu og finn ekkert nema skammtímastörf í mesta lagi 6 mánuði (oftast í gegnum vinnumiðlanir).
09.sep. 2009 - 20:54 Anna Claessen

Obama: Hugsjónamaður eða fjölmiðlamaður?

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna gaf sér á dögunum tima frá sínu annasama starfi til að tala við nemendur í gagnfræðiskólanum Wakefield í Arlington, Vestur Virginíu í tilefni byrjunar skólaársins. Þessi ræða var svo sýnd á heimasíðu Hvíta Hússins og voru skólar í Bandaríkjunum hvattir til að sýna hana.
07.sep. 2009 - 21:36 Anna Claessen

Velkomin til Vínarborgar

„Hello…. Vienna Calling”

Ópera, Freud, Schnitzel, Mozart, Götuvagnar, Sacher terta, U-bahn, Staatsoper, Habsburgkastalar, kaffihús, vínarvals,Stephansdom, Dóná, Sameinuðu þjóðirnar, Falco, Riesenrad, þetta eru bara nokkrir hlutir sem Vínarborg er þekkt fyrir.

Það er þó nokkrir hlutir sem þú tekur ekki eftir fyrr en þú býrð í Vínarborg.

Anna Claessen
Fjölmiðlafræðingur og danskennari, búsett í Vín, Austurríki. anna.claessen@gmail.com

www.brighten-your-day.com
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Skvísukosningin hafin fyrir Miss febrúar!
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 09.3.2010
Steingrímur afhjúpar bjánaskap
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Þegar á reynir er ástin ekki sönn
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
,,Hot sex pills"
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Bryndís Gyða Grímsdóttir - 10.3.2010
Smokey eyes: Þegar þú vilt vera extra mikil gyðja - MYNDBAND
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
Böðlar kerfisins
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ágústa Johnson
Ágústa Johnson - 09.3.2010
Ert þú „Allt eða ekkert” týpan?
Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson - 09.3.2010
Getum við treyst brennuvarginum fyrir kyndlinum?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
Rifið í lóðin
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 08.3.2010
Stjórnarkreppa
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit