02. okt. 2009 - 13:21Anna Claessen

Blekkingin: Hvad siger du?

„Hvad siger du?” spurði ég danskan kærasta systur minnar þegar ég hitti þau í Kaupmannahöfn, svaka stolt af dönskukunnáttu minni.  

Hann leit á mig með furðusvip og sagðist ekkert hafa sagt. Ég varð auðvitað hissa en þá sagði systir mín mér að maður segði aðeins „Hvad siger du?” þegar maður vildi að viðkomandi myndi endurtaka það sem hann hefði sagt.

Ég varð kjaftstopp. Ég var svo viss um þetta þar sem ég hafði lært þetta í skólanum. Þetta er eitt af því fyrsta sem maður lærir og það fyrsta sem ég segi við Dani.

Þetta barst svo seinna í tal þegar ég talaði við danskan mann frænku minnar. Hann hló og sagði „Nú þegar þú segir þetta hef ég tekið eftir að Íslendingar segja þetta oft við mig.”

Mér leið betur við að heyra að þetta væri ekki bara ég sem talaði ranga dönsku en fór aftur á móti að efast um gæði dönskukennslunnar sem ég fékk í skólanum.

Hversu margir Íslendingar eru að skemmta Dönum eða pirra þá með rangri dönsku?

Góðverk dagsins er þess vegna að upplýsa ykkur, kæru pressulesendur, að í stað þess að segja:

„Hvad siger du?”

Þá eigum við að segja:

 „Hvordan går det?”


23.feb. 2010 - 07:00 Anna Claessen

Fasching

Íslendingar hafa Bolludag, Sprengidag og Öskudag, í Austurríki er Fasching.

13.feb. 2010 - 08:00 Anna Claessen

Aron er draumur

Aron Pálmarsson

Fyrir fjórum árum dreymdi austurríska vinkonu mína eftirfarandi draum:

Hún var á skipi sem var að fara frá Þýskalandi.  Hún var inni í klefanum sínum þegar bankað var á dyrnar hennar.  Hún leit í gægjugatið til að sjá hver væri fyrir utan og sá andlit, sem hún þekkti ekki.  Um leið og maðurinn varð þess var að einhver var við dyrnar sagði hann “Ekki yfirgefa mig, ég elska þig”

07.feb. 2010 - 15:00 Anna Claessen

Facebook vs Twitter

Fylgist þú með stjörnunum á twitter?

Á pressunni var grein um daginn þar sem fjallað var um að Twitter væri einungis fyrir útvalda en ekki fyrir almenning.  Þar sem ég nota báða þessa samskiptamiðla langar mig að benda á nokkur atriði sem útskýra muninn á þessu tvennu.

31.jan. 2010 - 21:00 Anna Claessen

Síðasta stríð Íslendinga var Þorskastríðið

Hér í Vínarborg er ég umkringd útlendingum.  Kærasti minn er frá Kosovo, vinkonur mínar frá Rúmeníu og Póllandi.  Þar sem flest þeirra koma frá fyrrum kommúnista og stríðslöndum, finnst ekki mikið til koma þegar ég tala um kreppuna á Íslandi.  Þau hafa heldur betur séð það svartara, sérstaklega eftir fall múrsins, þar sem verðbólgan var 90%, fólk gat ekki keypt brauð og mjólk (hvað þá annað) og í Kosovo er enn 60% atvinnuleysi. Við hliðina á þessum tölum  er kreppan á Íslandi ekki merkileg.

24.jan. 2010 - 07:00 Anna Claessen

Lífgaðu upp á daginn

Hver er ekki kominn með nóg af neikvæðni, hvort sem það sé í fjölmiðlum eða hjá almenningi?

11.jan. 2010 - 22:30 Anna Claessen

Ísland er í lagi?

“Ísland er í lagi, Ísland er í lagi, er í lagi Ísland?

Útrásarvíkingar klæddir fangagöllum í handjárnum með Evu Joly í bílstjórasætinu. Endirinn á áramótaskaupinu 2009 gaf okkur Íslendingum allavega það sem ríkistjórnin hefur enn ekki náð að gefa okkur. Okkar Hollywood endi.

02.jan. 2010 - 16:20 Anna Claessen

2009 Fall Stjarnanna

Heimurinn missti margar af helstu stjörnum síðari tíma á þessu ári, þ.á.m Michael Jackson, John Hughes, Patrick Swayze, Farrah Fawcett, Walter Cronkite, Natasha Richardson, Bea Arthur, Ed McMahon, Don Hewitt, Brittany Murphy, Adam Goldstein, Dom DeLouise, Ted Kennedy, Eunice Shriver og fleiri.

28.des. 2009 - 07:00 Anna Claessen

„Velkomin heim“

„Velkomin heim“ segir kvenmannsrödd í hátalaranum í Icelandair flugvélinni er við lendum á Keflavíkurflugvelli. Íslendingar erlendis geta allir sammála um það að það er ekki til betri orð til að taka á móti okkur er við lendum á þessu ástsæla landi okkar eftir margra mánaða eða jafnvel áralanga bið.
19.des. 2009 - 08:00 Anna Claessen

Jólahefðir Austurríkismanna

©wienweb.at, Jacqueline Kacetl

Jólahefðir Austurríkismanna eru mjög svipaðar íslenskum fyrir utan Nikolaus, Krampus, Christkind og vitringana þrjá.

Að kvöldi 5. desember fer Heilagur Nikolaus (klæddur biskupsklæðum og með staf) á milli húsa og gefur börnum litlar gjafir í skóna þeirra í gluggum eða dyrum, á meðan Krampus (ill vera með horn) minnir börnin að hegða sér vel, því annars mega þau búast við barsmíðum. Þessa kumpána má sjá gangandi um helstu verslunargötur sama kvöld (líkt og myndin).

 

 

12.des. 2009 - 10:00 Anna Claessen

Jólamarkaðir (Christkindlmarkt)

Jólaljós alls staðar, jólatónlist, aðventukransar, hringekja fyrir börnin og básar að selja ýmsan jólaglaðning…. Velkomin á Christkindlmarkt

Á ári hverju má finna jólamarkaði á völdum stöðum í Austurríki með jólaljós hátt og lágt og básum sem selja ýmsar jólavörur og mat. Það vinsælasta á markaðnum er þó jólaglöggið, glühwein, en þá safnast fullorðnirnir oftast saman í drykk og spjall. Sannkölluð jólaveröld.

 

06.des. 2009 - 20:50 Anna Claessen

Jólastemmning

iPodinn minn er stútfullur af jólatónlist, á hverjum degi horfi ég á jólaþætti og kvikmyndir og nýt jólaljósanna úti. Ég bakaði meira að segja piparkökur. Þrátt fyrir allt þetta á ég enn erfitt með að koma mér í jólaskapið.
30.nóv. 2009 - 08:17 Anna Claessen

Ekki sama hvar maður er Íslendingur

Ég man vel eftir þegar ég hitti fyrsta Íslendinginn í Vínarborg. Það var mánuði eftir að ég kom hingað.  Við töluðum fyrst saman á ensku þar til við komumst að því að við vorum báðar frá Íslandi. Við hlógum mikið að þessu og töluðum saman um heima og geima líkt og bestu vinkonur.
19.nóv. 2009 - 12:30 Anna Claessen

Falli Berlínarmúrsins fagnað og ég með ;)

Þann 9. nóvember sl. fögnuðu Þjóðverjar því að 20 ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins. Af því tilefni var risastórum domino kubbum komið fyrir þar sem múrinn stóð eitt sinn og þeim svo velt við til þess að sýna hvernig kommúnistastjórnir í Austur-Evrópu féllu hver á fætur annarri árið 1989.
01.nóv. 2009 - 23:19 Anna Claessen

Heyrir brúðarmarsinn sögunni til?

Hápunktur brúðkaupsveislunnar er yfirleitt þegar brúðhjónin koma saman í fyrsta sinn sem hjón og dansa hinn klassíska brúðarvals.
24.okt. 2009 - 10:19 Anna Claessen

Austurríkisbúar og Söngvaseiður

Hver þekkir ekki Söngvaseið eða The Sound of Music? Austurríkisbúar !!!  Ótrúlegt en satt.
17.sep. 2009 - 08:35 Anna Claessen

igoogle

Google býður upp á marga sniðuga hluti, þ.á.m  gmail, fréttir, gögn, heimasíður, blogg, picasa, kort, o.fl. Það besta við google forritin er að þau eru ókeypis og auðveld svo allir geta notað þau.
13.sep. 2009 - 11:31 Anna Claessen

Starfsviðtöl = áheyrnarpróf

Kreppan er komin til Austurríkis…..eða svo finnst mér, sem er ein af mörgum sem eru að leita sér að nýrri vinnu og finn ekkert nema skammtímastörf í mesta lagi 6 mánuði (oftast í gegnum vinnumiðlanir).
09.sep. 2009 - 20:54 Anna Claessen

Obama: Hugsjónamaður eða fjölmiðlamaður?

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna gaf sér á dögunum tima frá sínu annasama starfi til að tala við nemendur í gagnfræðiskólanum Wakefield í Arlington, Vestur Virginíu í tilefni byrjunar skólaársins. Þessi ræða var svo sýnd á heimasíðu Hvíta Hússins og voru skólar í Bandaríkjunum hvattir til að sýna hana.
07.sep. 2009 - 21:36 Anna Claessen

Velkomin til Vínarborgar

„Hello…. Vienna Calling”

Ópera, Freud, Schnitzel, Mozart, Götuvagnar, Sacher terta, U-bahn, Staatsoper, Habsburgkastalar, kaffihús, vínarvals,Stephansdom, Dóná, Sameinuðu þjóðirnar, Falco, Riesenrad, þetta eru bara nokkrir hlutir sem Vínarborg er þekkt fyrir.

Það er þó nokkrir hlutir sem þú tekur ekki eftir fyrr en þú býrð í Vínarborg.

Anna Claessen
Fjölmiðlafræðingur og danskennari, búsett í Vín, Austurríki. anna.claessen@gmail.com

www.brighten-your-day.com
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Skvísukosningin hafin fyrir Miss febrúar!
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 09.3.2010
Steingrímur afhjúpar bjánaskap
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Þegar á reynir er ástin ekki sönn
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
,,Hot sex pills"
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson - 08.3.2010
Eitruð leikföng!
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
Böðlar kerfisins
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Magnús Geir Eyjólfsson
Magnús Geir Eyjólfsson - 08.3.2010
Ginningarfífl flokkanna
Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson - 09.3.2010
Getum við treyst brennuvarginum fyrir kyndlinum?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Bryndís Gyða Grímsdóttir - 10.3.2010
Smokey eyes: Þegar þú vilt vera extra mikil gyðja - MYNDBAND
Ágústa Johnson
Ágústa Johnson - 09.3.2010
Ert þú „Allt eða ekkert” týpan?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
Rifið í lóðin
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 08.3.2010
Stjórnarkreppa
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Róbert Trausti Árnason
Róbert Trausti Árnason - 08.3.2010
Hef ég misst af einhverju?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit