24. okt. 2009 - 10:19Anna Claessen

Austurríkisbúar og Söngvaseiður

-The hills are alive with the sound of music...

Hver þekkir ekki Söngvaseið eða The Sound of Music?

Austurríkisbúar !!!  Ótrúlegt en satt.

Þrátt fyrir að The Sound of Music hafi verið tekin upp í Salzburg í Austurríki hafa flestir Austurríkisbúar ekki séð myndina. Margir þverneita að sjá hana, aðallega vegna þess að það eru nasistar í henni.

Austurríkismenn neita enn að hafa nokkuð komið nærri nasismanum og eru því viðkvæmir gagnvart öllu sem tengir þá við hann.  Þetta er þrátt fyrir að Hitler sjálfur hafi verið frá Austurríki og búið lengi vel í Vínarborg. Þeir líta á sig sem fórnarlömb nasismans. Þess vegna vilja Austurríkisbúar láta túrista fókusera á menninguna sína en ekki á nasistatímann.

Einmitt þess vegna finnst mér The Sound of Music sýna Austurríki svo vel og maður gleymir fljótt nasistapartinum af myndinni því það er svo góð tónlist og fallegt landslag.

Það gæti líka verið vegna þess að myndin var byggð á raunverulegum manneskjum.  Fyrir þá sem hafa áhuga að vita meira um þetta folk og muninn á þeim og fólkinu í kvikmyndinni, lítið þá á þetta.

Það er fleira í myndinni sem er að mínu mati mjög austurrískt.  Kirkjan og hlýðni við reglur eru áberandi.  Þess vegna finnst mér að Austurríkisbúar ættu að sjá myndina, ekki bara vegna þess að hún er góð heldur vegna þess að næstum allir ferðamenn sem koma til Austurríkis, sérstaklega Salzburg, tala um myndina og spyrja, en fá engin svör.



06.sep. 2010 - 12:00 Anna Claessen

Fulltrúi Íslands erlendis

“Vá, þú ert fyrsta manneskja sem ég hitti frá Íslandi.” Á þeirri stundu líður mér eins og ég ætti að vera klædd eins og fjallkonan með borða eins og fegurðardrottningarnar sem segir Iceland, lesa úr Íslendingasögunum og gefa fólki harðfisk, lakkrís og skyr
27.ágú. 2010 - 16:30 Anna Claessen

Fjölmiðlar á Íslandi = fávitar

Þessi fyrirsögn náði athygli þinni ekki satt? Þetta er það sem við fjölmiðlafólk gerum. Setjum spennandi titla, sem eiga stundum ekki beint við til að ná til ykkar.
02.jún. 2010 - 16:00 Anna Claessen

Eyjafjallajökull…. Erlendis

“Hvaðan ertu?” spurði Austurríkisbúi mig, “Íslandi” svaraði ég og það kom strax svipur á manninn sem sagði: “svo þú ert ástæðan fyrir að fjölskyldumeðlimur minn var fastur…. “ og nöldrið hélt áfram þannig að hugur minn fór að reika.  Kannski hjálpaði það manninum að pirrast út í mig, einstakling frá Íslandi, en auðvitað hafði ég ekkert með málið að gera og því væri nær fyrir hann að pirrast út í náttúruöflin sjálf.
06.apr. 2010 - 10:40 Anna Claessen

Páskamarkaðir, kanínur og egg

Vissir þú að eggjaskurnin er tákn grafarinnar sem Jesús var lagður í á föstudaginn langa en reis svo upp frá á páskadag. Þess vegna borðum við páskaegg. Magnað, ekki satt?
23.feb. 2010 - 07:00 Anna Claessen

Fasching

Íslendingar hafa Bolludag, Sprengidag og Öskudag, í Austurríki er Fasching.

13.feb. 2010 - 08:00 Anna Claessen

Aron er draumur

Aron Pálmarsson

Fyrir fjórum árum dreymdi austurríska vinkonu mína eftirfarandi draum:

Hún var á skipi sem var að fara frá Þýskalandi.  Hún var inni í klefanum sínum þegar bankað var á dyrnar hennar.  Hún leit í gægjugatið til að sjá hver væri fyrir utan og sá andlit, sem hún þekkti ekki.  Um leið og maðurinn varð þess var að einhver var við dyrnar sagði hann “Ekki yfirgefa mig, ég elska þig”

07.feb. 2010 - 15:00 Anna Claessen

Facebook vs Twitter

Fylgist þú með stjörnunum á twitter?

Á pressunni var grein um daginn þar sem fjallað var um að Twitter væri einungis fyrir útvalda en ekki fyrir almenning.  Þar sem ég nota báða þessa samskiptamiðla langar mig að benda á nokkur atriði sem útskýra muninn á þessu tvennu.

31.jan. 2010 - 21:00 Anna Claessen

Síðasta stríð Íslendinga var Þorskastríðið

Hér í Vínarborg er ég umkringd útlendingum.  Kærasti minn er frá Kosovo, vinkonur mínar frá Rúmeníu og Póllandi.  Þar sem flest þeirra koma frá fyrrum kommúnista og stríðslöndum, finnst ekki mikið til koma þegar ég tala um kreppuna á Íslandi.  Þau hafa heldur betur séð það svartara, sérstaklega eftir fall múrsins, þar sem verðbólgan var 90%, fólk gat ekki keypt brauð og mjólk (hvað þá annað) og í Kosovo er enn 60% atvinnuleysi. Við hliðina á þessum tölum  er kreppan á Íslandi ekki merkileg.

24.jan. 2010 - 07:00 Anna Claessen

Lífgaðu upp á daginn

Hver er ekki kominn með nóg af neikvæðni, hvort sem það sé í fjölmiðlum eða hjá almenningi?

11.jan. 2010 - 22:30 Anna Claessen

Ísland er í lagi?

“Ísland er í lagi, Ísland er í lagi, er í lagi Ísland?

Útrásarvíkingar klæddir fangagöllum í handjárnum með Evu Joly í bílstjórasætinu. Endirinn á áramótaskaupinu 2009 gaf okkur Íslendingum allavega það sem ríkistjórnin hefur enn ekki náð að gefa okkur. Okkar Hollywood endi.

02.jan. 2010 - 16:20 Anna Claessen

2009 Fall Stjarnanna

Heimurinn missti margar af helstu stjörnum síðari tíma á þessu ári, þ.á.m Michael Jackson, John Hughes, Patrick Swayze, Farrah Fawcett, Walter Cronkite, Natasha Richardson, Bea Arthur, Ed McMahon, Don Hewitt, Brittany Murphy, Adam Goldstein, Dom DeLouise, Ted Kennedy, Eunice Shriver og fleiri.

28.des. 2009 - 07:00 Anna Claessen

„Velkomin heim“

„Velkomin heim“ segir kvenmannsrödd í hátalaranum í Icelandair flugvélinni er við lendum á Keflavíkurflugvelli. Íslendingar erlendis geta allir sammála um það að það er ekki til betri orð til að taka á móti okkur er við lendum á þessu ástsæla landi okkar eftir margra mánaða eða jafnvel áralanga bið.
19.des. 2009 - 08:00 Anna Claessen

Jólahefðir Austurríkismanna

©wienweb.at, Jacqueline Kacetl

Jólahefðir Austurríkismanna eru mjög svipaðar íslenskum fyrir utan Nikolaus, Krampus, Christkind og vitringana þrjá.

Að kvöldi 5. desember fer Heilagur Nikolaus (klæddur biskupsklæðum og með staf) á milli húsa og gefur börnum litlar gjafir í skóna þeirra í gluggum eða dyrum, á meðan Krampus (ill vera með horn) minnir börnin að hegða sér vel, því annars mega þau búast við barsmíðum. Þessa kumpána má sjá gangandi um helstu verslunargötur sama kvöld (líkt og myndin).

 

 

12.des. 2009 - 10:00 Anna Claessen

Jólamarkaðir (Christkindlmarkt)

Jólaljós alls staðar, jólatónlist, aðventukransar, hringekja fyrir börnin og básar að selja ýmsan jólaglaðning…. Velkomin á Christkindlmarkt

Á ári hverju má finna jólamarkaði á völdum stöðum í Austurríki með jólaljós hátt og lágt og básum sem selja ýmsar jólavörur og mat. Það vinsælasta á markaðnum er þó jólaglöggið, glühwein, en þá safnast fullorðnirnir oftast saman í drykk og spjall. Sannkölluð jólaveröld.

 

06.des. 2009 - 20:50 Anna Claessen

Jólastemmning

iPodinn minn er stútfullur af jólatónlist, á hverjum degi horfi ég á jólaþætti og kvikmyndir og nýt jólaljósanna úti. Ég bakaði meira að segja piparkökur. Þrátt fyrir allt þetta á ég enn erfitt með að koma mér í jólaskapið.
30.nóv. 2009 - 08:17 Anna Claessen

Ekki sama hvar maður er Íslendingur

Ég man vel eftir þegar ég hitti fyrsta Íslendinginn í Vínarborg. Það var mánuði eftir að ég kom hingað.  Við töluðum fyrst saman á ensku þar til við komumst að því að við vorum báðar frá Íslandi. Við hlógum mikið að þessu og töluðum saman um heima og geima líkt og bestu vinkonur.
19.nóv. 2009 - 12:30 Anna Claessen

Falli Berlínarmúrsins fagnað og ég með ;)

Þann 9. nóvember sl. fögnuðu Þjóðverjar því að 20 ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins. Af því tilefni var risastórum domino kubbum komið fyrir þar sem múrinn stóð eitt sinn og þeim svo velt við til þess að sýna hvernig kommúnistastjórnir í Austur-Evrópu féllu hver á fætur annarri árið 1989.
01.nóv. 2009 - 23:19 Anna Claessen

Heyrir brúðarmarsinn sögunni til?

Hápunktur brúðkaupsveislunnar er yfirleitt þegar brúðhjónin koma saman í fyrsta sinn sem hjón og dansa hinn klassíska brúðarvals.
24.okt. 2009 - 10:19 Anna Claessen

Austurríkisbúar og Söngvaseiður

Hver þekkir ekki Söngvaseið eða The Sound of Music? Austurríkisbúar !!!  Ótrúlegt en satt.
02.okt. 2009 - 13:21 Anna Claessen

Blekkingin: Hvad siger du?

„Hvad siger du?” spurði ég danskan kærasta systur minnar þegar ég hitti þau í Kaupmannahöfn, svaka stolt af dönskukunnáttu minni. 
17.sep. 2009 - 08:35 Anna Claessen

igoogle

Google býður upp á marga sniðuga hluti, þ.á.m  gmail, fréttir, gögn, heimasíður, blogg, picasa, kort, o.fl. Það besta við google forritin er að þau eru ókeypis og auðveld svo allir geta notað þau.
13.sep. 2009 - 11:31 Anna Claessen

Starfsviðtöl = áheyrnarpróf

Kreppan er komin til Austurríkis…..eða svo finnst mér, sem er ein af mörgum sem eru að leita sér að nýrri vinnu og finn ekkert nema skammtímastörf í mesta lagi 6 mánuði (oftast í gegnum vinnumiðlanir).
09.sep. 2009 - 20:54 Anna Claessen

Obama: Hugsjónamaður eða fjölmiðlamaður?

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna gaf sér á dögunum tima frá sínu annasama starfi til að tala við nemendur í gagnfræðiskólanum Wakefield í Arlington, Vestur Virginíu í tilefni byrjunar skólaársins. Þessi ræða var svo sýnd á heimasíðu Hvíta Hússins og voru skólar í Bandaríkjunum hvattir til að sýna hana.
07.sep. 2009 - 21:36 Anna Claessen

Velkomin til Vínarborgar

„Hello…. Vienna Calling”

Ópera, Freud, Schnitzel, Mozart, Götuvagnar, Sacher terta, U-bahn, Staatsoper, Habsburgkastalar, kaffihús, vínarvals,Stephansdom, Dóná, Sameinuðu þjóðirnar, Falco, Riesenrad, þetta eru bara nokkrir hlutir sem Vínarborg er þekkt fyrir.

Það er þó nokkrir hlutir sem þú tekur ekki eftir fyrr en þú býrð í Vínarborg.
1 

Anna Claessen

B.A. í fjölmiðlafræði frá Webster ameríska háskólanum í Vín, Austurríki

www.brighten-your-day.com
"I believe that everything happens for a reason. People change so that you can learn to let go. Things go wrong so that you can appreciate when they go right. You believe less so that you eventually learn to trust no one but yourself. Sometimes good things fall apart so better things can fall together." (Marilyn Monroe)

www.facebook.com/claessen1

anna.claessen@gmail.com

Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 09.9.2010
Hanna Kristín missti 60 kíló! MYNDIR
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 06.9.2010
Hórur, eiturlyf og sambandsslit
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 06.9.2010
Sjálfhverfasti Íslendingurinn?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 07.9.2010
Eigum við að tala um tengsl...?
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 08.9.2010
Sigrún Pálína árið 1996
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 08.9.2010
Skilnaður - Eyðilagðir vinahópar
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Bryndís Gyða Grímsdóttir - 08.9.2010
Nokkrar baksviðsmyndir
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 06.9.2010
Katy í Samkeppni Samúels
Jón Steinsson
Jón Steinsson - 09.9.2010
Nýtur þjóðin arðsins nú þegar?
Gunnar Gunnarsson
Gunnar Gunnarsson - 08.9.2010
Í blíðu og stríðu – bara fyrir stráka?
Aðsend grein
Aðsend grein - 05.9.2010
Örn Karlsson: Kaffið í Brasilíu
Kolbrún Baldursdóttir
Kolbrún Baldursdóttir - 06.9.2010
Með tærnar þar sem Ragna hafði hælana?
Jón Ríkharðsson
Jón Ríkharðsson - 07.9.2010
Yfirgripsmikil vanþekking á efnahagsmálum
Unnur H. Jóhannsdóttir
Unnur H. Jóhannsdóttir - 06.9.2010
Drápshælar og aðrar kenjar vetrartískunnar 2010
Aðsend grein
Aðsend grein - 09.9.2010
Vilhjálmur Egilsson: Þriðja hrunið?
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 07.9.2010
Í föt fórnarlambsins
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 09.9.2010
Pólitískar ákærur
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit