15.mar. 2010 - 07:00
Kolbrún Baldursdóttir
Samkvæmt rannsóknum er áætlað að 4% barna stami og 1% fullorðinna. Stam er afar erfið máltruflun sem hefur oftar en ekki neikvæð áhrif á sálræna líðan þess sem stamar og gildir þá einu hvort stamið er lítið eða mikið.
08.mar. 2010 - 06:00
Kolbrún Baldursdóttir
Svo lengi sem menn muna hefur flugfreyjustarfið verið draumastarf fjölmargra ungra kvenna. Síðasta áratuginn hefur það einnig færst í aukana að piltar/menn sækjast í að starfa sem flugþjónar. Starfið hefur á sér ákveðinn ævintýrablæ sem felst ekki hvað síst í þeirri staðreynd að þeir sem starfa í háloftunum eru á ferð og flugi út um allan heim.
28.feb. 2010 - 00:00
Kolbrún Baldursdóttir
Það er sennilega aldrei eins tímabært og nauðsynlegt og nú en að hugsa til baka og rifja upp hvernig forfeður og mæður okkar lifðu. Þrautseigjan, eljan og krafturinn bjó meðal þorra íslendinga því stór hluti þeirra lifði oft við erfiðar aðstæður bæði kulda, vosbúð og fátækt.
26.feb. 2010 - 07:00
Kolbrún Baldursdóttir
Líkt og foreldrum ber að tryggja öryggi barna sinna inni á heimilinu, ber skólanum að tryggja öryggi þeirra á skólatíma. Ég tel að fleiri skólar en færri sinni þessari skyldu með sóma. Með reglulegu millibili berast þó tíðindi af því að barn hafi orðið fyrir alvarlegu einelti án þess að skólinn hafi getað stöðvað og unnið úr málinu með þeim hætti að viðunandi teljist fyrir þolanda.
21.feb. 2010 - 00:00
Kolbrún Baldursdóttir
Fátt er eins eðlilegt fullorðnu fólki en löngun og þrá til að eignast barn. Barnleysi getur verið sársaukafullt vandamál. Þeir sem glíma við ófrjósemi verja oft mörgum árum af fullorðinslífi sínu í tilraunir til að eignast barn.
14.feb. 2010 - 00:00
Kolbrún Baldursdóttir
Fyrsta árið í háskóla er ekki alltaf dans á rósum. Nýnema bíða oft alls kyns skakkaföll og hindranir. Þeir leggja af stað í þessa vegferð, flest hver full væntinga en uppgötva síðan stundum all harkalega að leiðin er hvorki bein né greið. Viðbrigðin að koma í háskóla eru gríðarleg.
12.feb. 2010 - 13:30
Kolbrún Baldursdóttir
Skynjun á fegurð er persónubundin og einstaklingsmiðuð. Það sem einum finnst ljótt, finnst öðrum fallegt. Sérhvert samfélag hefur þó skilgreint og þróað með tímanum grófa staðla og viðmið um hvað sé fagurt og hvað felist í hamingju. Hvort tveggja er þó afstætt, háð persónuleika, umhverfi, smekk og stíl hvers og eins.
25.jan. 2010 - 09:30
Kolbrún Baldursdóttir
Hvar liggja mörkin á milli kaupgleði og kaupæðis?
Mörgum þykir afar gaman að ganga um verslunarmiðstöðvar, skoða gluggaútstillingar en enn fleirum finnst gaman að fara inn í verslanir, skoða hluti, máta föt og kaupa síðan eitthvað sem þeim þykir fallegt. Kaupgleði er mjög einstaklingsbundin.
15.jan. 2010 - 21:00
Kolbrún Baldursdóttir
Börn eru börn til 18 ára. Það er hlutverk foreldra /umönnunaraðila þeirra að gæta að velferð þeirra þar til þau ná þessum aldri. Að gæta að velferð barna sinna getur þýtt margt. Fyrstu árin reynir mest á að gæta þeirra þannig að þau fari sér ekki að voða. Að veita þeim ást, umhyggju og örvun eru viðvarandi nauðsynlegir uppeldisþættir ef barn á að eiga þess kost að þroskast eðlilega og geta nýtt styrkleika sína til fulls. Þegar börnin stálpast og nálgast unglingsárin koma æ sterkar inn uppeldisþættir í formi fræðslu og leiðbeiningar til að unglingarnir læri að vega og meta aðstæður eigi þeir að geta varist ytri vá af hvers kyns tagi.
07.jan. 2010 - 11:00
Kolbrún Baldursdóttir
Bretar og Hollendingar virðast hafa hreðjartak á íslensku þjóðinni allavega eins og stöðu mála er lýst í fjölmiðlum. Það er ónotaleg tilfinning að eiga svo mikið undir öðrum þjóðum komið. Hverjar verða afleiðingarnar ef þessar þjóðir ákveða að líta á Íslendinga sem frekt og vanþakklátt fólk sem eigi fátt annað skilið en að vera sett út í kuldann til að skjálfa og skammast sín.
04.jan. 2010 - 10:40
Kolbrún Baldursdóttir
PMT stendur fyrir „Parent Management Training“, sem er aðferð fyrir foreldra og aðra sem koma að uppeldi.
23.des. 2009 - 10:00
Kolbrún Baldursdóttir
Jólin, hátíð barnanna eru að koma. Tilhlökkun og eftirvæntingu er þó ekki að finna í hjörtum allra barna.
Hópur barna kvíðir nefnilega jólunum. Þar á meðal eru börn foreldris/foreldra sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða. Í þessum pistli langar mig að fjalla sérstaklega um börn foreldra sem hafa litla eða enga stjórn á áfengisneyslu sinni. Um jól drekka þessir foreldrar oft meira en ella.
21.des. 2009 - 00:00
Kolbrún Baldursdóttir
Handan við hornið eru jólin og margir nú í óða önn að kaupa jólagjafirnar. Í pakka barnanna leynast oft leikföng. En leikföng eru ekki bara leikföng.
Gríðarlegt úrval er til af allskonar leikföngum. Það er ekki bara dúkka og bíll heldur ótal annað dót sem kallar á mismunandi viðbrögð barnsins bæði á sviði vitsmunar og hreyfifærni.
14.des. 2009 - 09:00
Kolbrún Baldursdóttir
Það fylgir því mikil ábyrgð að eignast gæludýr. Flestir mynda við þau djúp tengsl og komi eitthvað fyrir þau er harmur heimilisfólksins og ekki hvað síst barnanna oft mikill.
Einn mikilvægasti hluti uppeldis er að kenna börnum að vera góð við minnimáttar, þar á meðal dýr. Dýrin treysta á umönnunaraðila sína og öll tilvera þeirra er undir eigendunum komin
30.nóv. 2009 - 16:17
Kolbrún Baldursdóttir
Fréttin um ummæli tónlistarmannsins Friðriks Ómars Hjörleifssonar um að samkynhneigt fólk fái ekki að syngja með kór Fíladelfíusafnaðarins á jólatónleikum kallar fram ýmsar hugsanir og vangaveltur er varða samkynhneigð og trúfélög. Forstöðumaður Fíladelfíusafnaðarins var í sjónvarpinu inntur eftir því hvort þetta væri rétt. Svaraði hann því til að þeir væru velkomnir, leituðu þeir sér aðstoðar.
28.nóv. 2009 - 16:15
Kolbrún Baldursdóttir
Nú höfum við fjórir einstaklingar farið í tvígang á þessu ári á fund í Heilbrigðisráðuneytinu og kynnt þeim sérhannaða hugmynd til lausnar í eineltismálum í þeim tilvikum þar sem þolandi og aðstandendur hans telja sig ekki hafa fengið úrlausn sinna mála í skólanum.
25.nóv. 2009 - 10:41
Kolbrún Baldursdóttir
23.nóv. 2009 - 07:59
Kolbrún Baldursdóttir
Tímabil meðgöngu er í hugum flestra tímabil gleði og eftirvæntingar. En það er ekki ávallt þannig og geta ástæður verið margar. Ein þeirra er ofbeldi á meðgöngu. Meðganga er þannig ekki alltaf tími öryggis og friðsældar í öllum samböndum heldur getur þvert á móti verið kveikjan að ofbeldi eða gert það ofbeldi sem fyrir er verra.
20.nóv. 2009 - 08:14
Kolbrún Baldursdóttir
Hve margir vita að það eru 125 milljónir manna með Psoriasis í heiminum og á Íslandi er allt að níu þúsund manns greindir með sjúkdóminn og enn fleiri ef þeir eru taldir með sem glíma við aðra exemsjúkdóma.
13.nóv. 2009 - 13:56
Kolbrún Baldursdóttir
Myndin „Alger Sveppi og leitin að Villa“ er ef til vill ekki ákjósanleg fyrir ung börn sem eru viðkvæm og kvíðin. Ég hef undanfarna viku fengið inn á borð til mín tvö mál þar sem foreldrar tjáðu sig um að sjá mikið efir því að hafa farið með barnið sitt á þessa mynd.
12.nóv. 2009 - 08:43
Kolbrún Baldursdóttir
Í viðtali við sjónvarpsmanninn Sölva Tryggvason segir Ingibjörg Sólrún að hún telji „að reiðin sé mjög vont afl og að hún eigi erfiðast með að fyrirgefa sjálfri sér í kringum hrunið og að hafa átt þátt í því að kalla fram alla þá reiði sem varð í samfélaginu."
09.nóv. 2009 - 09:39
Kolbrún Baldursdóttir
Flest vitum við hvernig tilfinning það er að mæta dónalegri framkomu frá aðila í þjónustugeiranum eða í samskiptum við aðra ókunnuga einstaklinga.
02.nóv. 2009 - 09:59
Kolbrún Baldursdóttir
Í könnun sem Rannsókn og Greining gerðu í febrúar á þessu ári kemur fram að ekki séu skýr merki um að líðan barna á Íslandi sé að breytast til verri vegar þrátt fyrir það erfiða þjóðfélagsástand sem ríkt hefur í kjölfar hrunsins 2008.
28.okt. 2009 - 21:59
Kolbrún Baldursdóttir
Maður fyllist óhugnaði þegar hlustað er á fréttir um smölun villikinda.
26.okt. 2009 - 07:29
Kolbrún Baldursdóttir
Hvernig geta foreldrar og skóli sameinast um að fræða börnin um með hvaða hætti þau geta varist áreiti einstaklinga sem hafa það að ásetningi að vinna þeim mein?
23.okt. 2009 - 12:38
Kolbrún Baldursdóttir
Í könnun sem Rannsókn og greining gerðu í febrúar á þessu ári kemur fram að ekki hafi komið fram skýr merki um að líðan barna á Íslandi sé að breytast til verri vegar þrátt fyrir það erfiða þjóðfélagslega ástand sem ríkt hefur.
19.okt. 2009 - 09:25
Kolbrún Baldursdóttir
Heimilisofbeldi er eitt af þeim vandamálum sem er hvað mest falið. Þess vegna er erfitt að gera sér grein fyrir algengi þess.
16.okt. 2009 - 23:30
Kolbrún Baldursdóttir
Fréttir af mótmælum fyrir utan heimili Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra vekja hjá mér sorg. Mér finnst ömurlegt að vita til þess hversu langt sumir mótmælendur eru tilbúnir að ganga. Það eru mörk, já takmörk í þessu sem öðru. Ekki má gleyma að á heimilinu er fjölskyldan.
14.okt. 2009 - 13:47
Kolbrún Baldursdóttir
Það er orðið knýjandi að ljúka Icesave og komast upp úr þeim hjólförum sem þjóðarvagninn hefur verið fastur í svo mánuðum skiptir. Meðan við hjökkum í þessari stöðu er erfitt fyrir hinn almenna borgara að hugsa til framtíðar.