23. nóv. 2009 - 13:36Klara Arndal

Samkynja klefar

Ég varð vitni að því í sundi í dag að kona ein tók syni sína tvo með sér í sturtu. Þeir voru sex og átta ára. Í sömu andrá og ég hugsaði hvað þetta væri notalegt fyrir móðir og drengi að vera saman kom baðvörður askvaðandi og vildi vita hversu gamlir drengirnir væru. Næst var haldin ræða um að þetta væri ekki leyfilegt. Drengirnir máttu ekki vera þarna með móður sinni.

Hvers vegna ekki?

Snýst þetta um að gera börnin sjálfstæð eins snemma og hægt er eða snýst þetta um að gera líkama hins kynsins að einhverju dónalegu sem þarf að fela? Kannski snýst þetta um eitthvað allt annað sem mér dettur hreinlega ekki í hug.

Sjálf á ég átta ára dreng. Við megum ekki lengur fylgjast að í búningsklefann. Mér þykir það leitt. Hann fær góða sjálfstæðisþjálfun heima hjá sér,  í skólanum og í íþróttum þar sem hann klæðir sig í og úr og fer í sturtu alveg sjálfur. Af hverju má hann ekki eiga notalega stund með móður sinni í sundi? Af hverju mátti konan í dag ekki nostra við drengina sína, þvo þeim bakvið eyrun og sjá til þess að sundskýlurnar séu undnar áður en þær eru settar í töskuna?

Fyrst ég er byrjuð að æsa mig yfir þessu ætla ég að taka málið alla leið. Ég vil fá þrjár tegundir af búningsklefum í sundlaugar landsins. Fyrir konur, fyrir karla og fyrir fjölskylduna. Kannski heldur fólk að ef til væru búningsklefar fyrir bæði kynin að kynlíf yrði stundað upp við hverja hárþurrku og handklæðarekka, en ég held ekki.

Ég er á því að samkynjaklefar myndu lyfta hinni tilbúnu dulúð sem aðskilnaðurinn býr til um líkama kynjanna, þeir myndu auka nærveru barna og foreldra og jafnvel styrkja sambönd fólk. 



09.mar. 2010 - 11:11 Klara Arndal

Buxnaböl

Ég skil ekki hvernig fullvaxta kvenmaður á að passa í og líta vel út í mjaðmabuxum þar sem strengurinn rétt nær yfir skapahárin. Ég er með brotna sjálfsmynd þegar kemur að gallabuxum. Aldrei hefur mér tekist að finna gallabuxur sem uppfylla hin tvö mikilvægu skilyrði sem mér finnst skipta mestu máli þegar kemur að síðbuxum: Að þær klæði mig og séu þægilegar. Mér hefur oft fundist ég eitthvað afbrigðileg þegar ég heyri fólk tala um að það geti áreynslulaust gengið inn í verslun og keypt sér gallabuxur sem passa.
04.mar. 2010 - 10:50 Klara Arndal

„Mamma, sparkaðu aftur í bakið á mér“

Börn eru yndisleg, mitt þó alveg sérstaklega!

Ég dáist að þeirri einlægni og þeim einfaldleika sem ríkir í samskiptum þeirra við annað fólk. Synd hvað það breytist með tímanum.

04.feb. 2010 - 12:00 Klara Arndal

Mig vantar plan

Ég áttaði mig á því fyrir skemmstu að ég er ekki lengur með plan. Tilfinningin er óþægileg.

Hérna áður fyrr var maður ávallt að vinna að einhverju ákveðnu. Á yngri árum snérist planið um að klára skólann, byrja í nýjum og svo klára hann. Næst snérist planið um að fá vinnu, flytjast erlendis og svo heim aftur, næla sér í gæjann, eignast barn, losa sig við gæjann, kaupa sér íbúð, mennta sig meira og finna sér nýja og betri vinnu.

20.jan. 2010 - 10:00 Klara Arndal

Takmörkuð tilboð í sólina

Nú eru ferðaskrifstofur farnar að auglýsa girnileg tilboð til útlanda og eins og komið hefur fram í fjölmiðlum er fullt  í margar þessara ferða. Með auglýsingunum fylgja fallegar myndir af hvítum ströndum og bláu hafi. Allt saman mjög freistandi. Þegar smáa letrið er skoðað kemur í ljós að mörg þessara tilboða gilda aðeins fyrir tvo fullorðna og tvö börn, eða hina svokölluðu kjarnafjölskyldu.

04.jan. 2010 - 12:00 Klara Arndal

Ég er Neytiri

Þegar ég sá hann fyrst var ég í vafa um hvort ég ætti að bjarga honum. Í dag þakka ég mínu allra heilagasta fyrir að hafa gert það. Hann var líkur mér á margann hátt,  hávaxinn, stæltur, fimur, ákveðinn og óhræddur, en á sama tíma svo frábrugðinn öllum þeim mönnum sem ég hef kynnst í gegnum tíðina.

28.des. 2009 - 11:00 Klara Arndal

Jól í París 3.hluti

Þá fer að styttast í heimferð. Það verður dapurlegt að kveðja stórborgina en á sama tíma ofsalega notalegt að komast heim aftur.

24.des. 2009 - 10:00 Klara Arndal

Jól í París 2. hluti

Ég hef aldrei verið neinn sérstakur aðdáandi Frakklands. Það má þó ekki skiljast sem svo að ég hafi eitthvað á móti landi eða þjóð. Í hroka mínum hef ég einfaldlega ekki verið mikið fyrir staði  þar sem ég get ekki tjáð mig almennilega eða skilið það sem við mig er sagt.

 

20.des. 2009 - 07:00 Klara Arndal

Jól í París, I. hluti

Hrikalega snemma í gærmorgun hófst jólaævintýrið mitt. Klukkan hálf sex að morgni lagði ég af stað til Parísar þar sem ég ætla að eyða jólunum í ár. Það er alltaf gaman að prófa nýja og spennandi hluti og ég fékk að gera það strax í Leifsstöð. Vélinni seinkaði um þrjár klukkustundir vegna veðurs í útlandinu þannig að mín lagðist endilöng á bekk og steinsofnaði, svona eins og túristarnir gera stundum. Þá er ég búin að prófa það og get nú hakað við það á lífslistanum mínum.

30.nóv. 2009 - 10:12 Klara Arndal

Hugrekki og innblástur frá söguhetjum heimsbókmenntanna

Fyrir um þrettán árum síðan tók ég hnausþykka bók að láni á bókasafninu í Kaupmannahöfn, þar sem ég bjó. Mér fannst þær rúmlega fjórtánhundruð blaðsíður sem biðu mín frekar yfirþyrmandi en þar sem þetta var sögufræg bók ákvað ég að reyna. Eftir að hafa lesið fyrstu blaðsíðurnar var ekki aftur snúið.
10.nóv. 2009 - 20:29 Klara Arndal

Paul Simon?

Mér finnst ég tiltölulega nýútskrifuð úr gaggó. Í mínum heimi eru aðeins örfá ár síðan bjórinn var leyfður og Rick Astley er enn pínu heitur.
02.nóv. 2009 - 10:04 Klara Arndal

Á þetta virkilega að vera svona?

Í þær tíu mínútur sem ég að meðaltali næ að halda mér vakandi þegar skriðið er uppí  á kvöldin reyni ég reglulega að kíkja í bók. Nú er ég að lesa sjálfsævisögu bandarískrar konu sem orðaði svo snilldarlega þá spurningu sem brunnið hefur á vörum mínum undanfarið: „Getur verið að þetta líf eigi einungis að snúast um skyldur?“
26.okt. 2009 - 22:18 Klara Arndal

Með undirspil í lífinu

Ég fór á sinfóníutónleika í síðustu viku þar sem spiluð var kvikmyndatónlist eftir John Williams. Ég keypti miða með margra vikna fyrirvara og var með fiðring í maganum af tilhlökkun allt fram að stóra deginum. Herra Williams hefur verið mikill áhrifavaldur í mínu lífi nánast frá því ég man eftir mér og mikið af hans tónlist á sér stóran stað í hjarta mínu.

Klara Arndal
Blaðakona, fyrrum ritstýra, framhaldskólakennari, flugfreyja og móðir.
klaraarndal@gmail.com
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 16.3.2010
Meig utan í lögreglubíl í miðbænum
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 15.3.2010
Hugleiðingar vegna orða Jurshevskis
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 12.3.2010
Hvað kosta íslenskar konur?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 16.3.2010
Fórnarlömb eða kúlulánakóngar?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 16.3.2010
Skammastu þín Sigrún!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Grunaður maður er ekki sekur
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit