24. des. 2009 - 10:00Klara Arndal

Jól í París 2. hluti

www.parislogue.com

Ég hef aldrei verið neinn sérstakur aðdáandi Frakklands. Það má þó ekki skiljast sem svo að ég hafi eitthvað á móti landi eða þjóð. Í hroka mínum hef ég einfaldlega ekki verið mikið fyrir staði  þar sem ég get ekki tjáð mig almennilega eða skilið það sem við mig er sagt.

Ég er þó farin að hallast að því að ég og hin franska þjóð eigum meira sameiginlegt en mig áður hafði grunað. Þessi hugsun sló mig þegar ég fór í fyrsta sinn í matvörumarkaðinn í hverfinu mínu og gekk fram á himnaríki eða réttara sagt, fullan kæli af búðing. Kælir þessi dekkar heilan vegg og þarna má finna ótal tegundir af vanillu- , súkkulaði-  og karamellubúðing, berjabúðing og alls konar búðing.

Hér er líka hægt að kaupa Parma skinku og rauðvín án þess að þurfa að veðsetja bæði bíl og bú og það nýti ég mér svo sannarlega.

Í tengslum við þessa matarumræðu þá hef ég tekið eftir því að á veitingastöðum, dýrum sem ódýrum, er hollur matur vænn hluti af  matseðlinum og sumstaðar eru gulrótastönglar bornir fram með bjór- og vínveitingum. Það er kannski ekki af ástæðulausu að franskar konur fitna ekki, eða hvað var það nú sem bókin heitir? En svona í alvöru talað þá hef ég ekki séð eina feita manneskju í borginni síðan ég kom og það hlýtur að vera góð ástæða fyrir því.

Eins og gefur að skilja þá er ég hæst ánægð með matarmenninguna hérna og það virðist eiga vel við mig að snæða ristað brauð með Camembert, parmaskinku og kæfubita  „on the side“ og rjúkandi bolla af Cappuccino í morgunmat. Eitt er víst að hér ætla ég að borða vel og verða une petite femme, svona einu sinni á ævinni, eins og þessar frönsku.




21.ágú. 2010 - 09:00 Klara Arndal

Dagbók ferðamanns- seinni hluti

Þegar ég settist aftur upp í rútuna að heimsókn lokinni var ég reið. Ekki aðeins yfir þeim ólýsanlegu hörmungum sem þarna áttu sér stað, heldur einnig yfir því að gyðingar hafa eignað sér þær. Gyðingar hafa gert helförina að sinni eigin og markaðsett  minninguna í sínu nafni.
22.júl. 2010 - 07:00 Klara Arndal

Dagbók ferðamanns- fyrri hluti

Á mínu æskuheimili var mikill áhugi á seinni heimsstyrjöldinni. Miklar vangaveltur voru um hvernig það gat gerst að þjóðverjar næðu að myrða allar þessar milljónir gyðinga. Af hverju stoppaði engin þetta af? Af hverju gerðu gyðingar og hinn almenni þýski borgari ekki meiri uppreisn? Af hverju kom alþjóðasamfélagið ekki fyrr til hjálpar? Hvernig getur manneskjan verið svona grimm? Af hverju, af hverju, af hverju???
07.júl. 2010 - 14:30 Klara Arndal

Makalaus leit

Gæti hugsast að nútímagyðjan sé að skjóta sig í fótinn stefnumót  eftir stefnumóti, en þar sem stoltið, kröfurnar og fullvissan um eigið ágæti er svo mikið er ólíklegt að hún muni nokkurn tíma finna fyrir skotsárunum?!
29.jún. 2010 - 13:00 Klara Arndal

Bannað börnum

Þegar ég var barn snérist tilveran ekki eins mikið um boð og bönn og nú. Það þótti ekkert tiltökumál ef maður sá ekki út um bílrúðurnar í sunnudagsbíltúrnum fyrir tóbaksreyk. Maður dinglaði beltislaus í bílum bróðurpart æskuáranna og hékk eftirlitslaus í sundi tímunum saman frá átta ára aldri. Að sama skapi horfði maður á allt það sama í sjónvarpinu og hinir fullorðnu.
02.jún. 2010 - 11:00 Klara Arndal

Þegar mamma missti vitið á Laugaveginum

Gamla fór í göngu. Kannski ekki frásögufærandi nema hvað að í þetta skiptið ákvað hún að breyta út af vananum og fara nýja leið. Þetta var allt saman úthugsað, upphaf hringsins, endir og lengd. Nýja leiðin mátti alls ekki vera styttri en sú gamla annars væri hún ekki tekin gild og allt færi í uppnám.
09.mar. 2010 - 11:11 Klara Arndal

Buxnaböl

Ég skil ekki hvernig fullvaxta kvenmaður á að passa í og líta vel út í mjaðmabuxum þar sem strengurinn rétt nær yfir skapahárin. Ég er með brotna sjálfsmynd þegar kemur að gallabuxum. Aldrei hefur mér tekist að finna gallabuxur sem uppfylla hin tvö mikilvægu skilyrði sem mér finnst skipta mestu máli þegar kemur að síðbuxum: Að þær klæði mig og séu þægilegar. Mér hefur oft fundist ég eitthvað afbrigðileg þegar ég heyri fólk tala um að það geti áreynslulaust gengið inn í verslun og keypt sér gallabuxur sem passa.
04.mar. 2010 - 10:50 Klara Arndal

„Mamma, sparkaðu aftur í bakið á mér“

Börn eru yndisleg, mitt þó alveg sérstaklega!

Ég dáist að þeirri einlægni og þeim einfaldleika sem ríkir í samskiptum þeirra við annað fólk. Synd hvað það breytist með tímanum.

04.feb. 2010 - 12:00 Klara Arndal

Mig vantar plan

Ég áttaði mig á því fyrir skemmstu að ég er ekki lengur með plan. Tilfinningin er óþægileg.

Hérna áður fyrr var maður ávallt að vinna að einhverju ákveðnu. Á yngri árum snérist planið um að klára skólann, byrja í nýjum og svo klára hann. Næst snérist planið um að fá vinnu, flytjast erlendis og svo heim aftur, næla sér í gæjann, eignast barn, losa sig við gæjann, kaupa sér íbúð, mennta sig meira og finna sér nýja og betri vinnu.

20.jan. 2010 - 10:00 Klara Arndal

Takmörkuð tilboð í sólina

Nú eru ferðaskrifstofur farnar að auglýsa girnileg tilboð til útlanda og eins og komið hefur fram í fjölmiðlum er fullt  í margar þessara ferða. Með auglýsingunum fylgja fallegar myndir af hvítum ströndum og bláu hafi. Allt saman mjög freistandi. Þegar smáa letrið er skoðað kemur í ljós að mörg þessara tilboða gilda aðeins fyrir tvo fullorðna og tvö börn, eða hina svokölluðu kjarnafjölskyldu.

04.jan. 2010 - 12:00 Klara Arndal

Ég er Neytiri

Þegar ég sá hann fyrst var ég í vafa um hvort ég ætti að bjarga honum. Í dag þakka ég mínu allra heilagasta fyrir að hafa gert það. Hann var líkur mér á margann hátt,  hávaxinn, stæltur, fimur, ákveðinn og óhræddur, en á sama tíma svo frábrugðinn öllum þeim mönnum sem ég hef kynnst í gegnum tíðina.

28.des. 2009 - 11:00 Klara Arndal

Jól í París 3.hluti

Þá fer að styttast í heimferð. Það verður dapurlegt að kveðja stórborgina en á sama tíma ofsalega notalegt að komast heim aftur.

20.des. 2009 - 07:00 Klara Arndal

Jól í París, I. hluti

Hrikalega snemma í gærmorgun hófst jólaævintýrið mitt. Klukkan hálf sex að morgni lagði ég af stað til Parísar þar sem ég ætla að eyða jólunum í ár. Það er alltaf gaman að prófa nýja og spennandi hluti og ég fékk að gera það strax í Leifsstöð. Vélinni seinkaði um þrjár klukkustundir vegna veðurs í útlandinu þannig að mín lagðist endilöng á bekk og steinsofnaði, svona eins og túristarnir gera stundum. Þá er ég búin að prófa það og get nú hakað við það á lífslistanum mínum.

30.nóv. 2009 - 10:12 Klara Arndal

Hugrekki og innblástur frá söguhetjum heimsbókmenntanna

Fyrir um þrettán árum síðan tók ég hnausþykka bók að láni á bókasafninu í Kaupmannahöfn, þar sem ég bjó. Mér fannst þær rúmlega fjórtánhundruð blaðsíður sem biðu mín frekar yfirþyrmandi en þar sem þetta var sögufræg bók ákvað ég að reyna. Eftir að hafa lesið fyrstu blaðsíðurnar var ekki aftur snúið.
23.nóv. 2009 - 13:36 Klara Arndal

Samkynja klefar

Ég varð vitni af því í sundi í dag að kona ein tók syni sína tvo með sér í sturtu. Þeir voru sex og átta ára. Í sömu andrá og ég hugsaði hvað þetta væri notalegt fyrir móðir og drengi að vera saman kom baðvörður askvaðandi og vildi vita hversu gamlir drengirnir væru. Næst var haldin ræða um að þetta væri ekki leyfilegt. Drengirnir máttu ekki vera þarna með móður sinni.
10.nóv. 2009 - 20:29 Klara Arndal

Paul Simon?

Mér finnst ég tiltölulega nýútskrifuð úr gaggó. Í mínum heimi eru aðeins örfá ár síðan bjórinn var leyfður og Rick Astley er enn pínu heitur.
02.nóv. 2009 - 10:04 Klara Arndal

Á þetta virkilega að vera svona?

Í þær tíu mínútur sem ég að meðaltali næ að halda mér vakandi þegar skriðið er uppí  á kvöldin reyni ég reglulega að kíkja í bók. Nú er ég að lesa sjálfsævisögu bandarískrar konu sem orðaði svo snilldarlega þá spurningu sem brunnið hefur á vörum mínum undanfarið: „Getur verið að þetta líf eigi einungis að snúast um skyldur?“
26.okt. 2009 - 22:18 Klara Arndal

Með undirspil í lífinu

Ég fór á sinfóníutónleika í síðustu viku þar sem spiluð var kvikmyndatónlist eftir John Williams. Ég keypti miða með margra vikna fyrirvara og var með fiðring í maganum af tilhlökkun allt fram að stóra deginum. Herra Williams hefur verið mikill áhrifavaldur í mínu lífi nánast frá því ég man eftir mér og mikið af hans tónlist á sér stóran stað í hjarta mínu.

Klara Arndal
Blaðakona, fyrrum ritstýra, framhaldsskólakennari, flugfreyja og móðir.
klaraarndal@gmail.com
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit