16. apr. 2012 - 00:09Fannar Karvel
Hvað er þetta töframeðal?Tabata heitir fyrirbærið og er nefnt eftir Dr. Izumi Tabata, prófessor við Ristumeikan háskólann í Kyoto. Tabata æfingakerfið er tilkomið vegna landsliðs Japans í skautahlaupi sem notaði þessa aðferð við æfingar.
Samkvæmt rannsóknum Dr. Tabata virkar æfingakerfið vel á bæði loftháða og loftfirrða kerfið og því tilvalið fyrir alla hvort sem þeir eru í boltaíþróttum (loftfirrt), hlaupum (loftháð) eða finnst einfaldlega skemmtilegt að kvelja sjálfan sig
Þessi einstaka æfingaaðferð er einföld, MJÖG einföld;
1) Veldu þér æfingu; T.d. armbeygjur, hnébeygjur o.s.frv.
2) Gerðu eins margar endurtekningar og þú getur í 20 sekúndur.
3) Hvíldu þig í 10 sekúndur.
4) Endurtaktu átta sinnum!
Einfalt, fljótlegt og allt annað en auðvelt!
Getur fjögurra mínútna æfing virkilega gert eitthvað? Heldur betur, hentu þér í gólfið og taktu armbeygjur Tabata style! Æfingin tekur kannski bara fjórar mínútur en talaðu aftur við mig eftir klukkutíma þegar þú hættir að svitna Mundu bara að þú þarf að leggja á þig ALLT sem þú átt og þá á ég við ALLT sem þú átt til að þetta skili tilætluðum árangri.
Að lokum; ekki nóg með það að tabata sé ótrúleg góð fitubrennsluaðferð þá er hún líka mjög góð andleg æfing. Þessar æfingar kenna þér að ná lengra, þola meira og gera það sem þarf til að ná árangri!