27. ágú. 2012 - 11:58Fannar Karvel
Flestir foreldrar reyna að stjórna sykur og fituneyslu barnanna sinna með því að velja holla valkosti á matmálstímum, ég hef amk. enn ekki hitt þá manneskju sem vill börnunum sínum ekki allt það besta.
Vandamálin taka við þegar millimáltíðirnar taka við, þá hafa börnin mun meira um málið að segja og grípa það með sér sem þau vilja.
Þar komum við foreldrarnir aftur til skjalanna, við þurfum að fræða börnin okkar um hvað er hollt og gott og hvað er það alls ekki.
Við þurfum því að setjast í smá rannsóknarvinnu, það er því miður ekki nóg að treysta í blindni því sem framleiðendur segja um vöruna. Þó eitthvað sem fitusnautt er það ekki endilega hollt, það getur nefnilega verið stútfullt af sykri, þetta eru hlutir sem við þurfum að skoða vel og vandlega.
Sem dæmi má nefna samantekt Lýðheilsustöðvar um sykur í ýmsum drykkjum og matvælum, þetta er eitthvað sem við þurfum að sýna börnunum okkar og koma þeimí skilning um að ákveðna hluti ber að varast meðan aðrir eru í fínasta lagi.
Við þurfum ekki að verða næringarfræðingar á einni nóttu, við þurfum hinsvegar að gefa okkur þessar auka mínútur sem skipta máli í uppvexti barnanna okkar og skila þeim út í heiminn með vitneskju um það hvað og hvernig á að borða.
Ein regla sem er alltaf heillavænlegt að hafa í huga; Þeim mun nær náttúrunni sem maturinn er, þeim mun betr