30. maí 2012 - 10:00Fannar Karvel
Það er munur á því að langa að gera eitthvað og að ætla að gera eitthvað;
Langanir eru e-ð sem þú framkvæmir þegar þú hefur tíma og aðstæður eru réttar, kannski gerist það aldrei og þú bíður alltaf eftir réttu aðstæðunum.
Hinsvegar ef þú ætlar að gera e-ð þá skipta aðstæður engu máli, ekki frekar en tími. Þú einfaldlega tekur ekki við afsökunum og býrð til tíma til þess að ná markmiðunum.
Þarna sérðu af hverju sumir ná árangri en hinir ekki; munurinn liggur ekki í ótrúlega flottum prógrömmum, námskeiðum frá Hollywood, berjum frá svörtustu Afríku eða nýjustu skónum.
Munurinn liggur í því hvað þú leyfir þér að hugsa á hverjum degi
Leyfir þú hugsunum einsog; „ég fer eftir vinnu“, „þetta er ekki svo óhollt“ og „eitt skipti skiptir engu“ að skjóta upp kollinum og koma sér fyrir líður ekki á löngu þar til þú liggur í sófanum með pizzuna í annarri og kókglasið í hinni.
Ef þú hinsvegar ýtir þessum hugsunum út og grefur upp uppbyggilegri hugsanir einsog; „mmmmm grilluð lúða með fersku salati í kvöldmat“, „70% súkkulaði er miklu betra“ og „djö**ll er gaman að hlaupa úti í sólinni“.
Hugsaðu rétt og náðu árangri, svo einfalt er það.