03. ágú. 2010 - 11:00Jón Steinsson

Einkavæðing auðlinda: Rök með og á móti

Einkavæðing auðlinda þjóðarinnar er mál málanna þessa dagana og skyldi engan undra. Stór hluti þjóðarinnar segist andvígur slíkri einkavæðingu. Hægrimenn ná hins vegar ekki andanum yfir þessum „sósíalisma“ þjóðarinnar. Er þjóðin dottin í gamaldags forræðishyggju, eða eru kannski einhver „málefnaleg“ rök sem hægt er að færa fyrir því að viðhalda opinberu eignarhaldið á auðlindum þjóðarinnar?

Rök fyrir einkavæðingu

Byrjum á rökum fyrir einkavæðingu. Þau eru vel þekkt. Ríkið er illa til þess fallið að reka fyrirtæki og alveg sérstaklega illa til þess fallið að standa í nýsköpun. Þetta eru mikilvæg rök sem nánast allir fallast á að einhverju leyti. Eða finnst einhver í dag sem telur að ríkið eigi að reka prentsmiðjur, viðtækjaverslanir, bæjarútgerðir og síldarverksmiðjur?

Önnur rök sem heyrst hafa að undanförnu eru að mikilvægt sé að orkufyrirtækin séu einkavædd þar sem ríkið hafi ekki burði til þess að standa straum af þeirri fjárfestingu sem æskilegt er að verði á næstu árum í þessum geira. Ég er ekki jafn sannfærður um mikilvægi þessarar röksemdar. Vissulega er lánshæfismat ríkisins lágt um þessar mundir og því fjármögnun dýrari en hún ætti ef til vill að vera. En ríkisstjórnin hefur sýnt talsverða festu í ríkisfjármálum og því er líklegt að lágt lánshæfismat sé tímabundið vandamál.

Rök gegn einkavæðingu

Ég kann illa við tilfinningarök og gamaldags forræðishyggju. Þess vegna ætla ég að ganga út frá því að markmið okkar eigi að vera að hámarka arð þjóðarinnar af auðlindinni. Frá slíku arðsemissjónarmiði eru helst tvenn rök gegn einkavæðingu. Í fyrsta lagi er ekki víst að við treystum stjórnvöldum til þess að semja við einkaaðila um sölu auðlindanna. Ef stjórnvöld halda illa á spilunum við samningaborðið – hvort sem það er vegna vankunnáttu eða spillingar – fær þjóðin ekki sannvirði fyrir auðlindina.

Hver er reynsla okkar Íslendingar af samningum ríkisins við einkaaðila? Nú hefur loksins verið upplýst að Landsvirkjun hefur árum saman selt erlendum álrisum orku á verði sem hefur verið um 20% undir meðalverði á heimsmarkaði. Flestum er í dag ljóst að miklar brotalamir voru á söluferlinu þegar FBA, Landsbankinn og Búnaðarbankinn voru einkavæddir fyrir áratug, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Og ekki skánar það þegar horft er lengra aftur í tímann (Skýrr, Kögun, Síldarverksmiðjur Ríkisins, o.sv.fr.). Er nema von að stór hlut þjóðarinnar sé andsnúinn einkavæðingu eftir það sem á undan er gengið? Því miður hafa Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn nánast eyðilagt einkavæðingu sem hagstjórnartæki á Íslandi.

Önnur arðsemisrök gegn einkavæðingu koma til vegna þess að stjórnvöld á Íslandi eins og annars staðar skortir trúverðuleika þegar kemur að sölu og/eða langtímaleigu auðlinda. Ef breyttar markaðsaðstæður gerðu það að verkum að aðilinn sem keypti eða leigði auðlindirnar hagnaðist verulega umfram það sem vænta mætti myndi skapast mikill þrýstingur um að skattleggja þann „ofurhagnað“. Áhugasamir kaupendur gera sér grein fyrir þessari hættu og bjóða því lægra verð en vænt verðmæti auðlindanna. Af þessum sökum fær þjóðin ekki sannvirði fyrir auðlindina.

Sérstaða sjávarútvegarins

Ofangreind vandamál eru sérstaklega erfið viðureignar í orkugeiranum. Fyrir því eru nokkrar ástæður. Í fyrsta lagi þurfa fyrirtæki í orkugeiranum að ráðast í risastórar óafturkræfar fjárfestingar. Þessir aðilar vita að samningaaðstaða þeirra gagnvart ríkinu er afskaplega slæm að fjárfestingu lokinni. Þeir hafa því mjög sterka hvata til þess að gera samninga til langs tíma áður en þeir hefjast handa.

Í öðru lagi er því miður ekki hægt að leigja hálfan foss. Af þessum sökum er „fyrningarleiðin“ ekki fær í orkugeiranum. Fyrningarleiðin kemst nálægt því að leysa vandamálin með einkavæðingu sem lýst er hér að ofan. Hún gerir fyrirtækjum að bjóða í auðlindina. Það er eina leiðin sem ríkið hefur til þess að fá fyrirtækin í viðkomandi grein til þess að veita raunsannar upplýsingar um verðmæti auðlindarinnar. Ef fyrningarhlutfallið er lágt (t.d. 5% á ári) er í raun um langtímasamning að ræða sem tryggir nægilega festu til þess að fyrirtæki geti ráðist í stórar fjárfestingar. Og verðið sem fyrirtækin greiða fyrir auðlindina sveiflast sjálfkrafa upp og niður í takt við þann arð sem auðlindin framkallar. Það kemur í veg fyrir „ofurhagnað“ og pólitískan þrýsting um skattlagningu eða þjóðnýtingu þess hagnaðar.

En þar sem ekki er hægt að fyrna nýtingarrétt á fallvötnum og háhitasvæðum um t.d. 5% á ári er fyrningarleiðin ekki fær í orkugeiranum. Einu færu leiðirnar í þeim geira eru „samningaleiðin“ eða opinbert eignarhald. Samningaleiðin hefur því miður alla þá ókosti sem lýst er hér að ofan. Það er því skiljanlegt að stór hluti þjóðarinnar vantreysti samningaleiðinni og vilji heldur opinbert eignarhald.

Varðandi sjávarútveg er staða ríkisins (og þar með þjóðarinnar) sem betur fer mun betri. Það er vegna þess að í sjávarútvegi er hægt að fara fyrningarleiðina og þannig komast að mestu hjá stærstu ókostunum við einkavæðingu auðlinda. Þar sem það skiptir ekki máli hvaða skip veiðir ákveðna aflahlutdeild er hægt að láta fyrirtæki í sjávarútvegi bjóða í aflahlutdeildir og þannig ákvarða sjálf „rétt“ gjald fyrir afnot af auðlindinni – það er gjald sem er jafnt arðinum sem auðlindin skapar (fyrirtækin myndu vitaskuld halda eftir arði af þeim fastafjármunum sem þau leggja í rekstur sinn). Þannig myndi þjóðin fá sannvirði fyrir auðlindina.



03.jún. 2011 - 19:00 Jón Steinsson

Kanadadollar væri góður kostur!

Í morgun birtist áhugaverð frétt á vísi um að áhrifamenn í fjármálaráðuneyti og seðlabanka Kanada hefðu sýnt því mikinn áhuga að Ísland tæki upp kanadadollar sem lögeyri. Ég er í engri aðstöðu til þess að meta áreiðanleika þessarar fréttar (og mér finnst hún satt að segja nokkuð ótrúleg – „too good to be true“ – eins og kaninn myndi segja). En ef hún er rétt þá tel ég að um sé að ræða tækifæri sem við ættum að hreinlega að stökkva á.
26.maí 2011 - 09:00 Jón Steinsson

Boð og bönn í stað markaðslausna

Ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi frumvarp sem gerir talsverðar breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Það er ýmislegt jákvætt í frumvarpinu en margt annað sem er afskaplega neikvætt. Því miður virðast hugmyndir um boð og bönn hafa átt undirtökin í stað hugmynda um markaðslausnir. Það væri unnt að ná markmiðum stjórnvalda um betri aðgang nýliða og að þjóðin njóti auðlindaarðsins að sanngjörnum hluta án þess að hagkvæmni greinarinnar væri fórnað. Sú leið var því miður ekki valin.

10.maí 2011 - 09:00 Jón Steinsson

Er veiðigjald landsbyggðarskattur?

Ein rök sem oft heyrast gegn því að útgerðarmenn greiði fyrir afnot af auðlindum sjávar er að slíkt gjald sé í raun landsbyggðarskattur. Þessi staðhæfing er í besta falli einstaklega villandi. 
05.maí 2011 - 17:00 Jón Steinsson

Njóta sjómenn auðlindaarðsins?

Tryggvi Þór Herbertsson, alþingismaður, skrifaði nýverið grein í Fréttablaðið um „sorgarsögu almenninga.“ Greinin er í flesta staði góð. Þó er eitt atriði sem ég vil gera verulegar athugasemdir við. Í greininni segir Tryggvi: „Sá auðlindaarður sem nú er í fiskveiðum við Íslands skiptist milli útgerða, sjómanna (vegna hlutaskiptakerfisins) og ríkisins í nokkuð jöfnum hlutum.“ Þetta fær ekki staðist. Eða réttara sagt, ekkert – hvorki kenningar né gögn – styður þá staðhæfingu þingmanns að hlutaskiptakerfið leiði til þess að hluti auðlindaarðsins renni til sjómanna.
20.apr. 2011 - 11:00 Jón Steinsson

Þjóðaratkvæði: Mun LÍÚ hafa betur?

Nú virðist stefna í þjóðaratkvæði um kvótann. Það liggur beinast við að kosið verði um hvort staðfesta eigi frumvarp sem hefur verið samþykkt af Alþingi. Þá er í rauninni verið að kjósa um leið Alþingis og leið LÍÚ (óbreytt ástand). Ef þetta verður farvegur þessa máls, skiptir öllu máli hvers eðlis frumvarpið verður sem Alþingi samþykkir.
18.apr. 2011 - 12:00 Jón Steinsson

Leysum kvótadeiluna á hálftíma

Friðrik Arngrímsson segir að unnt sé að leysa kvótadeiluna á hálftíma. Ég sammála honum að mikilvægasta atriðið – að arðurinn renni að sanngjörnum hluta til þjóðarinnar – er tiltölulega einfalt að leysa. Hér er tillaga að lausn:
14.apr. 2011 - 20:00 Jón Steinsson

Einhliða upptaka: Illskársti kosturinn?

Allt of margir „málsmetandi menn“ afskrifa einhliða upptök alþjóðlegs gjaldmiðils sem ótækan kost fyrir okkur í gjaldeyrismálum. Fram að þessu hef ég ekki séð rök sem mér hefur fundist sannfærandi hvað þetta varðar. Um þetta fjallaði ég í grein í Fréttablaðinu fyrr í vikunni sem er aðgengileg hér:
06.apr. 2011 - 11:00 Jón Steinsson

Trójuhestur frá SA í sjávarútvegsmálum

Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram „sáttatillögu“ í sjávarútvegi. Eins og allt annað sem kemur frá SA/LÍÚ er um Trójuhest að ræða. Þessi svokallaða „sáttatillaga“ þeirra gengur í rauninni út á það að breyta kerfinu þannig að auðveldara verði fyrir útgerðarmenn að hrifsa til sín enn stærri hluta af auðlindaarðinum. Það er með ólíkindum hvað SA/LÍÚ eru óforskammaðir að setja fram svona tillögu og kalla hana „sáttatillögu“. 

22.mar. 2011 - 09:00 Jón Steinsson

Orðsending til Samfylkingarinnar

Ágreiningurinn innan ríkisstjórnarinnar varðandi Evrópumál virðist vera orðinn það alvarlegur að óvíst er um áframhaldandi líf stjórnarinnar. Varðandi flest mál hefur líf þessara ríkisstjórnar enga úrslitaþýðingu. Það verður áfram deilt um ESB, um skattkerfið, um velferðarkerfið, um stóriðju og virkjanir og margt fleira þótt þessi ríkisstjórn fari frá. En eitt grundvallarmál í íslenskum stjórnmálum deyr líklega fyrir fullt og allt ef þessi ríkisstjórn fellur. Það er sú hugmynd að útgerðarmenn eigi að greiða markaðsverð fyrir afnota af auðlindum sjávar. Ekkert annað ríkisstjórnarmynstur mun koma slíku í gegn.
31.jan. 2011 - 15:00 Jón Steinsson

Hræðsluáróður Björns Vals

Þá eru línur loksins farnar að skýrast í kvótamálinu. Samfylkingin stendur fast á því stefnumáli flokksins og ríkisstjórnarinnar að kvótinn verði innkallaður á tuttugu árum og boðinn til endurúthlutunar gegn gjaldi. Útgerðarmenn hafa hins vegar fengið nýjan bandamann, Björn Val Gíslason, sem berst af miklu afli fyrir því að þeir haldi forréttindum sínum í nýjum umbúðum.
28.jan. 2011 - 15:00 Jón Steinsson

Tillaga að sátt í sjávarútvegsmálum

Nú hefur LÍÚ tekið alla kjarasamninga í landinu í gíslingu til þess að knýja á um áframhaldandi forréttindi í formi úthlutunar veiðiheimilda gegn gjaldi sem er langt undir verðmæti þeirra. LÍÚ er þannig að hafa kjarabót upp á 50-100 m.kr. á dag af vinnandi fólki á Íslandi.
26.des. 2010 - 12:25 Jón Steinsson

Vísindamaður ársins á Íslandi

Íþróttafréttamenn á Íslandi hafa búið til afskaplega skemmtilega hefð með því að útnefna í lok hvers árs íþróttamann ársins. Tíu íþróttamenn eru tilnefndir. Oftast eru nokkur landsþekkt nöfn á listanum. En síðan eru alltaf líka nokkrir afreksíþróttamenn sem ekki hafa hlotið nærri jafn mikla athygli. Verðlaunin eru því gott tækifæri fyrir venjulega íþróttaáhugamenn til þess að víkka sjóndeildarhringinn og kynnast afreksfólki sem þeir myndu kannski annars ekki taka eftir. Verðlaunin eru þar að auki hið besta tæki til þess að vekja athygli barna og unglinga á góðum fyrirmyndum. Og svo eru þau auðvitað góð hvatning fyrir íþróttamennina sjálfa.

21.nóv. 2010 - 11:14 Jón Steinsson

Hverjir eiga erindi á stjórnlagaþing?

Það er margt frábært fólk í framboði til stjórnlagaþings. Raunar er úrvalið svo gott að nokkur hætta er á því að kjósendur fari á mis við sterka frambjóðendur sem ekki eru þjóðþekktir fyrir. Ég vil vekja athygli á þremur frambjóðendum sem ég tel að eigi sérstaklega erindi á þingið:
27.okt. 2010 - 14:45 Jón Steinsson

Sammála Hreyfingunni

Stjórnvöld hafa nýverið kynnt áform um breytingar á gjaldþrotalögum fyrir einstaklinga. Áformin kveða á um að kröfur fyrnist að tveimur árum liðnum. Þetta er mikilvægt skref í rétta átt sem stjórnvöld hefðu átt að stíga strax haustið 2008. En betra seint en aldrei.
15.okt. 2010 - 09:35 Jón Steinsson

130 milljarða skattahækkun?

Átján prósent niðurfærsla verðtryggðra húsnæðislána myndi kosta Íbúðalánasjóð 130 milljarða króna. Ríkissjóður þyrfti að bæta sjóðnum þessi útgjöld. Niðurfærslan myndi því þýða 130 milljarða ríkisútgjöld. Það er algilt lögmál að aukin ríkisútgjöld kalla á aukna skatta (eða peningaprentun). Skuldaniðurfærslan sem hefur verið í umræðunni síðustu daga jafngildir því 130 milljarða skattahækkun.
12.okt. 2010 - 18:58 Jón Steinsson

Pressan gerir mér grikk

Pressan birti fyrr í dag pistil undir mínu nafni fyrir mistök. Greinin er eftir Jón Ríkharðsson og er aðgengileg hér:
09.sep. 2010 - 10:33 Jón Steinsson

Nýtur þjóðin arðsins nú þegar?


23.ágú. 2010 - 11:26 Jón Steinsson

Af hverju er LÍÚ á móti tilboðsleiðinni?

Forsvarsmenn útgerðarmanna hafa tekið mjög harða afstöðu gegn „tilboðsleiðinni“ í sjávarútvegi. Að þeirra mati er „samningaleiðin“ mun fýsilegri. Ástæðan fyrir þessu er sáraeinföld. Forsvarsmenn LÍÚ gera sér grein fyrir því að það er miklu líklegra að þeim takist að halda auðlindagjaldinu niðri ef samningaleiðin er farin.
17.júl. 2010 - 15:54 Jón Steinsson

Þurfa dómarar að hafa dómgreind?

Ég hef litlu við þetta að bæta; nema kannski að sum mál snúast ekki um réttlæti heldur um hagsæld, það er, hvaða fordæmi er best með tilliti til þess að fólk hafi í framtíðinni rétta hvaða til verðmætasköpunar. Ég myndir því segja að í sumum málum eigi dómarar að spyrja sig: Hvar liggur hagkvæmnin? En í flestum málum er rétta spurningin: Hvar liggur réttlætið?

Jón Steinsson
Er B.A. í hagfræði frá Princeton og doktor í hagfræði frá Harvard. Hann starfar nú sem lektor í hagfræði við Columbia háskóla í New York.

Heimasíða Jóns hjá Columbia-háskóla.
Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar