07. nóv. 2010 - 17:00Jón Ríkharðsson
Sérstætt þing
Á hið háa alþingi hafa valist fimm stjórnmálaflokkar sem hafa ólíkar stefnur, það er vitanlega eðlilegt í lýðræðisríki. En það undarlega er, að á alþingi eru aðeins tveir flokkar sem hafa kunnáttu til að reka þjóðfélagið og kaldhæðni örlaganna er víst sá, að þeir eru í minnihluta.
Samfylkingin fylgir aðallega ríkjandi tískustraumum samtímans hverju sinni og hefur aðeins eina lausn á takteinum, að ganga í Evrópusambandið. Vinstri grænir eru alfarið á móti atvinnusköpun sem mögulega getur gefið af sér hagnað, þeim líkar betur við sprotafyrirtæki sem er mikill áhætturekstur, en getur skilað árangri ef heppni er með í för. Þau lifa í útópískum heimi þar sem hægt er stöðugt að eyða peningum án þess að vinna fyrir þeim, lántökur eru þeim mjög að skapi. Samfylkingin er reyndar einnig veik fyrir lánum, því þau starfa mjög í anda vina sinna sem að útrásinni stóðu.
Hreyfingin sem er afsprengi búsáhaldarbyltingarinnar er einn af þingflokkunum fimm, en þau eru í afneitun. Þau segjast nefnilega ekki vera stjórnmálamenn þótt þau starfi sem slíkir. Oft koma fram undarleg sjónarmið, en af tillitsemi við skoðanafrelsi lýðræðissins skal þeim leyft að halda í þessa annars undarlegu skoðun. Ef ég hef skilið þau rétt þá ætla þau rétt að skreppa á þing til þess eins að breyta þjðfélaginu til hins betra. Ef það tekst þá eru þau máttugri en boðendur kristinnar trúar, því þeir hafa streðað í tvöþúsund ár án þess að hafa komið sínum boðskap almennilega til skila. Ef þeim tekst ætlunarverk sitt þá höfum við íslendingar sannarlega eignast kraftaverkafólk, sem væntanlega verðurþá á ferð og flugi um heiminn þveran og endilangan, til að kenna þjóðum heims hvernig á að færa samfélög til betri vegar.
Svo eru það sjálfstæðis og framsóknarmenn, þau gera sér grein fyrir því að, það þarf að vinna fyrir peningunum. Ef þessir tveir flokkar komast til valda, þá mun þjóðin rísa á ný. Af einhverjum undarlegum ástæðum kallast þessir tveir flokkar "hrunflokkar", en vitað er að fjármálakerfi heimsins hrundi og íslenskir fjármálamenn ollu hruninu með óábyrgum aðgerðum sínum. Vitanlega má segja að fyrrnefndir flokkar hafi gert ýmis mistök sem ekki voru til að bæta ástandið, en það voru víst jafnaðarmennirnir sem skópu lagaumhverfið, ef marka má fyrrum formann Samfylkingarinnar, en hún sagði jafnaðarmenn hafa skapað það lagaumhverfi sem gerði útrásina mögulega. Það sést ef farið er á vef Samfylkingarinnar og ræða formannsins fyrrverandi lesin sem flutt var á landsfundinum árið 2007.
Á þingi eru þrír flokkar sem vita hvernig á að eyða fjármunum og í hvað á að eyða þeim. Þar sitja einnig tveir flokkar sem vita hvernig á að afla peninga og hvernig á að byggja upp gott velferðarkerfi. Þótt við sitjum uppi með afar sérstætt þing um þessar mundir, þá þarf það ekki að vera til frambúðar.
Fólk getur kynnt sér umsagnir um Ísland árin sem ríkisstjórn sjáfstæðis og framsóknarmanna ríkti hér á landi, þá meina ég fyrir daga einkavæðingar bankanna og áður en útrásin fór á fullt. Þá ættu flestir þeir sem búa yfir lágmarks lestrarkunnáttu að vita hvar er best að setja krossin eftir að í kjörklefann er komið.
Það er mikið viturlegra að kynna sér staðreyndir heldur en að treysta spunameisturum "hinnar tæru vinstri stjórnar".
13.mar. 2013 - 14:59
Jón Ríkharðsson
Fyrirsögnin er höfð eftir Stefáni Ólafssyni þar sem hann svarar athugasemd við pistil sinn, er hann ritaði m.a. um gjöf sem Björn Bjarnason átti að hafa fært Háskóla Íslands, eða lofað í tilefni af hundrað ára afmæli skólans.
28.nóv. 2012 - 18:19
Jón Ríkharðsson
Miðað við málflutning sumra vinstri manna, þá telja þeir að allir sem skammist út í þá séu annað hvort hræddir við það sem þeir segja eða hafi eitthvað að fela.
26.nóv. 2012 - 17:54
Jón Ríkharðsson
Ekki þarf langan tíma til að þekkja sófískar aðferðir vinstri manna, auðvelt er að reikna út svörin frá þeim og til þess að einfalda umræðuna skal í upphafi leitast við að svara því sem líklegast kemur frá Stefáni, ef hann bregst á einhvern hátt við skrifum mínum.
23.nóv. 2012 - 14:57
Jón Ríkharðsson
Stefán Ólafsson mun kenna félagsfræði við Háskóla Íslands og líklega er hann með doktorsgráðu í þeirri grein. Væntanlega kann hann skil á því sem hann kennir sínum nemendum og ekki skal efast um að hann sinni starfi sínu með sóma.
27.apr. 2012 - 17:00
Jón Ríkharðsson
Hjarðeðlið hefur fylgt mannkyni frá upphafi og það er ekki alslæmt, en varasamt er að láta það stjórna hugsunum okkar og gjörðum.
20.apr. 2012 - 14:00
Jón Ríkharðsson
Þeir sem að hafa lesið pistlana mína gera sér grein fyrir því, að mitt höfuðmarkmið er að auka vegsemd sjálfstæðisstefnunnar og ég veit að engin stefna önnur getur dugað til að stjórna landinu.
18.apr. 2012 - 21:24
Jón Ríkharðsson
Því miður deili ég ekki gleði margra félaga minna og vina innan Sjálfstæðisflokksins, þótt fygistölur í könnunum skríði upp á við, því þær eru tilkomnar vegna óánægju fólks með ríkisstjórnina. Við eigum að hugsa stórt, því við eigum innistæðu fyrir því, allt undir 50% í skoðnanakönunum er alls ekki gott.
31.mar. 2012 - 16:00
Jón Ríkharðsson
Ríkisstjórnin og spunameistarar hennar, ásamt dyggum stuðningi Hreyfingarinnar keppast við að skrökva því að þjóðinni, að sjálfstæðismenn vilji ekki að þjóðin eigi fiskinn í sjónum.
29.mar. 2012 - 15:00
Jón Ríkharðsson
Vanhæfni ríkisstjórnarinnar á sér margar birtingarmyndir, tilraunir þeirra til að koma með raunhæfar lausnir fyrir sjávarútveginn eru gjörsamlega misheppnaðar.
28.mar. 2012 - 09:00
Jón Ríkharðsson
Í lok landsfundar Sjálfstæðisflokksins í nóvember á síðasta ári, sté ég í pontu og flutti stutta ræðu.
25.mar. 2012 - 10:00
Jón Ríkharðsson
Eðlilegt er, að fólk spyrji að því hvort ég hafi eitthvað nýtt fram að færa, í ljósi þess að ég tilkynni þá ákvörðum mína að sækjast eftir þingsæti fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
21.mar. 2012 - 14:00
Jón Ríkharðsson
Eflaust má telja það óhefðbundna leið að tilkynna hugsanlegt framboð í pistli á Pressunni, en til þess að vekja á sér athygli þarf að leita allra leiða.
20.mar. 2012 - 09:00
Jón Ríkharðsson
Sú mynd sem ég hef af forystu Sjálfstæðisflokksins er mjög góð. Ég þekki ágætlega til allra kjörinna fulltrúa flokksins og hef átt ánægjuleg samskipti við þau.
16.mar. 2012 - 09:00
Jón Ríkharðsson
Bjarni heitinn Benediktsson nefndi það eitt sinn, að sjálfstæðismenn ættu að skrifa söguna sjálfir.
14.mar. 2012 - 09:00
Jón Ríkharðsson
Margoft hefur því verið haldið fram, að enginn stjórnmálamaður hafi viðurkennt mistök í aðdraganda hrunsins.
12.mar. 2012 - 15:00
Jón Ríkharðsson
Sumum þykir harla kynlegt, að maður sem er alinn upp í verkalýðstétt og státar af forfeðrum sem unnu verkamannavinnu til sjós og lands, ásamt landbúnaðarstörfum skuli vera í hópi hörðustu sjálfstæðismanna íslensku þjóðarinnar.
06.mar. 2012 - 09:00
Jón Ríkharðsson
Eitt af aðalsmerkjum vestrænna ríkja er vandað réttarkerfi sem rannsakar öll mál með yfirveguðum hætti. Eftir að rannsókn er lokið, þá taka dómsstólar við og fella að lokum dóm um sekt eða sýknu.
20.des. 2011 - 09:00
Jón Ríkharðsson
Fyrir nokkrum árum tjáði sonur minn mér, að nú hefði ég víst komið tíu englum til að gráta. Það þótti mér afskaplega leiðinlegt, en ég ákvað að spyrja hann að því, hvað ég hefði gert sem olli sorginni hjá blessuðu englunum.
17.nóv. 2011 - 14:00
Jón Ríkharðsson
Eins og allir vita, þá áttu sér stað hryllilegir atburðir um borð í fiskiskipi sumarið 2010. Þar voru kynferðislega brenglaðir sjómenn að veifa getnaðarlim sínum framan í andlit þrettán ára drengs og fleira gerðu þeir til að hrella piltinn.
15.jún. 2011 - 12:00
Jón Ríkharðsson
Í umræðu um þjóðfélagsmálin tala flestir um, að við þyrftum að fá betri stjórnmálamenn, sem eru grandvarir bæði og heiðarlegir með afbrigðum.