Hannes Hólmsteinn Gissurarson
17. apr. 2012 - 22:51Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Viðskipti við alla, valdboð einskis

Að sjálfsögðu eigum við að gera fríverslunarsamning við Kína. Það eigum við líka að gera við Bandaríkin, Kanada, Noreg, Brasilíu, Indland og önnur ríki, sem til þess eru fús. Við megum ekki lokast inni í Evrópu, þótt við séum Evrópuríki og viljum vera það áfram og halda vináttu við frændþjóðir.

En frjáls viðskipti merkja ekki, að við eigum að lúta valdboði stórra ríkja. Þess vegna áttum við ekki að láta kínversku leyniþjónustuna kaupa víðlendi á Íslandi. Það skildi Ögmundur Jónasson. Bestir eru viðurgefendur vinir, segir í Hávamálum.

Snjallast er þetta þó ef til vill orðað í Kaupmanninum í Feneyjum:

Ég vil semja við ykkur, kaupa við ykkur, ganga með ykkur, ræða við ykkur og allt það; en ég vil ekki snæða með ykkur, drekka með ykkur, né biðja með ykkur. Hvað er að frétta úr kauphöllinni?




16.jún. 2013 - 11:42 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Íslensk fyndni eða erlend

Margar skemmtisögur íslenskar eiga sér erlendar fyrirmyndir, og er erfitt að skera úr um það, hvort þær séu flökkusögur, sem borist hafi til Íslands, eða hvort íslenskum háðfuglum hafi dottið hið sama í hug við ýmis tækifæri og fyndnum útlendingum áður.
13.jún. 2013 - 14:44 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Laugarvatn

Skemmtilegt var að sjá formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks kynna stjórn sína á Laugarvatni vorið 2013. Sá staður var ekki í miklu dálæti hjá sjálfstæðismönnum á fjórða áratug.
09.jún. 2013 - 16:17 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Merkileg frétt í Ríkisútvarpinu

Nefndin telur, að svo virðist vera sem stjórnmálaandstæðingar Geirs hafi reynt að gera stefnu hans og lífsskoðun að glæp, en þau vinnubrögð tíðkuðust í alræðisríkjum tuttugustu aldar.
07.jún. 2013 - 23:05 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Faðirvorið

Skopstæling Kiljans á Faðirvorinu var til að hnykkja á meginboðskapnum í Sjálfstæðu fólki, að íslenskir kotbændur létu kúga sig og sættu sig auðmjúklega við það. Útgáfa Préverts er hins vegar andvarp lífsnautnamannsins, sem vill fá frið fyrir trúarbrögðum.
02.jún. 2013 - 19:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Söguleg ljósmynd

Ég rakst á Facebook á ljósmynd, sem Runólfur Oddsson hafði sett þar, en Kjartan Gunnarsson tók. Hún er af okkur nokkrum í kvöldverðarboði á Þingvöllum í júlí 2004, ef ég man rétt mánudagskvöldið 19. júlí.
01.jún. 2013 - 20:05 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Að liðnum kosningum

Halldór Laxness var ómyrkur í máli, þegar hann talaði um kosningar. Hann skrifaði í Alþýðubókinni 1929: „Kosníngar eru borgarastríð þar sem nef eru talin í stað þess að höggva hálsa. Sá sem mestu lofar og lýgur nær flestum nefjum. … “
29.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Vingjarnlegar móðganir

Eitthvert besta dæmið, sem ég kann um vingjarnlega móðgun, er, þegar breski rithöfundurinn Barbara Cartland var í viðtali í breska ríkisútvarpinu við konu að nafni Söndru Harris.
28.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Margrét Thatcher

Thatcher sagði mér hins vegar eitt sinn í kvöldverði: „Gallinn við stjórnmálamennina á meginlandinu er, að þeir hafa aldrei skilið hina engilsaxnesku hugmynd um frelsi innan marka laganna.“
27.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Stjórnarmyndanir

Íslenskir stjórnmálaforingjar þurfa að berjast í þremur lotum, fyrst að komast á framboðslista, síðan að afla atkvæða í kosningum og loks að mynda stjórn.
26.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Baráttudagar

Komin er út stórfróðleg bók eftir Stefán Gunnar Sveinsson sagnfræðing, Búsáhaldabyltingin: sjálfsprottin eða skipulögð? Kemst höfundur að þeirri niðurstöðu, að „búsáhaldabyltingin“, eins og óeirðirnar veturinn 2008–2009 eru oft kallaðar, hafi verið hvort tveggja, sjálfsprottin og skipulögð.
25.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Sögur úr kosningum

Margt getur skemmtilegt gerst í kosningabaráttu.
23.maí 2013 - 08:01 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Erfitt verkefni nýrrar stjórnar

Erfiðasta verkefni hinnar nýju stjórnar verður að ná tökum á ríkisfjármálum, sem hafa farið gersamlega úrskeiðis síðustu fjögur árin.
22.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Með eiturörvar í hjartastað

Jón Trausti hafði oft sætt árásum drýldinna skólamanna, enda sjálfmenntaður og vandaði ekki alltaf stíl sinn sem skyldi, þótt hann bæri af um sköpunarmátt og frásagnargleði.
20.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Myndband af mér í Brasilíu

Hin síðari misseri hef ég jafnan dvalist nokkra mánuði á ári í Rio de Janeiro í Brasilíu, þar sem ég er í rannsóknarsamstarfi við nokkrar stofnanir, meðal annars um grænan kapítalisma og um hagþróun í BRIK-löndunum.
18.maí 2013 - 09:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Ógleymanleg heimsókn

Einn dagskrárliðurinn var heimsókn í safnið um uppreisnina í Varsjá 1944. Sú heimsókn var ógleymanleg.
17.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Fjárhæli og andabú

Heimspekidoktorarnir Vilhjálmur Árnason og Salvör Nordal skrifuðu lærðar ritgerðir í rannsóknarskýrslu Alþingis um siðferði eða öllu heldur siðleysi íslenskra fjármálamanna fyrir bankahrunið 2008. Ein hneykslunarhella þeirra var hugmyndin um Ísland sem fjármálamiðstöð.


16.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Pétur Pétursson

Þrír nafnkunnir menn í Reykjavík hétu upp úr miðri 20. öld Pétur Pétursson.
15.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Rangfeðruð skammaskrif

Íslendingar hafa löngum skrifað skammir hver um annan og oft nafnlaust, en lesendur hafa þá reynt að geta sér til um höfunda, og hefur það gengið misjafnlega.
14.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Árni Vilhjálmsson: Minningarorð

Árni Vilhjálmsson bar ekki utan á sér, að hann var einn auðugasti útgerðarmaður landsins.
13.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Kúgun, flekun og nauðgun

En þær, sem reiðastar voru körlum fyrir fornar misgerðir og lengst gengu, sögðu með Andreu Dworkin: „Erfitt er að greina flekun frá nauðgun. Þegar ætlunin er að fleka, hefur nauðgarinn fyrir því að kaupa vínflösku.“
12.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Bókarheiti úr Biblíunni — og þó

Biblían er ekki aðeins merk í sjálfri sér, heldur líka vegna þess, hversu margt í vestrænni og þá um leið íslenskri menningu vísar í hana. Í þeim skilningi er hún þrungin menningarsögulegri merkingu, og væri mikill skaði að því að hætta að kenna kristin fræði í skólum.
10.maí 2013 - 12:04 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Myndband um starfsemi RNH

Hér er myndband um samstarfsverkefni AECR og RNH síðustu fimmtán mánuði:
09.maí 2013 - 10:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Alþýðuspeki um atvinnufrelsi

En oft hafa raddir úr þjóðardjúpinu orðað frelsishugmyndirnar betur en fræðimennirnir.
08.maí 2013 - 11:59 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Nokkrar bækur, sem ég er að lesa


05.maí 2013 - 19:59 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Silfrið: Myndband komið á Youtube

Ég var í viðtali við Egil Helgason sunnudaginn 5. maí 2013 um efnið í fyrirlestri þeim, sem ég flutti á félagsvísindaráðstefnu á Bifröst föstudaginn 3. maí. Það var gaman að því, að Egill kunni á latínu tilvitnunina í rómverska leikskáldið Júvenalis, sem ég vék að: Quis custodiet ipsos custodes?
04.maí 2013 - 14:29 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hvernig ég skýri bankahrunið

Meðal annars vísaði ég á bug fjórum algengum skýringum á bankahruninu:
01.maí 2013 - 23:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Uppgjör mitt við bankahrunið: föstudaginn 3. maí

Ég flyt fyrirlestur á ráðstefnu um þjóðfélagsfræði í Háskólanum á Bifröst föstudaginn 3. maí. Ber fyrirlesturinn, sem fluttur verður á ensku, yfirskriftina „The International Financial Crisis and the Collapse of the Icelandic Banks“.
30.apr. 2013 - 08:00 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

30. apríl

Davíð Oddsson myndaði sína fyrstu ríkisstjórn 30. apríl 1991. Þá um kvöldið hittumst við Davíð ásamt tveimur öðrum vinum okkar og konum þeirra þriggja og skáluðum.
29.apr. 2013 - 11:23 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Athugasemdir mínar við frétt Aftenposten

There are several misleading or even wrong statements in the news item by Torbjørn Pedersen, NTB, on the Icelandic elections, published in Aftenposten 27 April 2013.
28.apr. 2013 - 10:31 Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Jóhanna skilur við flokk sinn rjúkandi rúst

Nú þegar Jóhanna Sigurðardóttir dregur sig í hlé og heldur til Dýrafjarðar, en þangað renna öll vötn, sem kunnugt er, skilur hún flokk sinn eftir rjúkandi rúst.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og hefur verið gistifræðimaður við fjölmarga erlenda háskóla, þar á meðal Stanford-háskóla og UCLA. Hann fæddist 1953, lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Oxford-háskóla 1985 og er höfundur fjölmargra bóka um stjórnmál, sögu og heimspeki á íslensku, ensku og sænsku.

Verk hans, Kjarni málsins. Fleyg orð á íslensku, 992 bls. tilvitnanasafn, var gefið út af Bókafélaginu í nóvemberbyrjun 2010. Árið 2009 komu út eftir hann 828 blaðsíðna þýðing á Svartbók kommúnismans (Livre noir du communisme) á vegum Háskólaútgáfunnar og 160 bls. bók, Áhrif skattahækkana á hagvöxt og lífskjör, sem Bókafélagið gaf út. 

Nýjasta verk hans er Íslenskir kommúnistar 1918–1998, sem er 624 bls. myndskreytt ágrip af sögu íslensku kommúnista- og sósíalistahreyfingarinnar allt til endaloka Alþýðubandalagsins, og gefur Almenna bókafélagið það út. 

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 12.6.2013
Þegar hæfileikana vantar
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 17.6.2013
Af hverju ekki allan hagnaðinn?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 10.6.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 9. hola - Myndband
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 17.6.2013
Engin kvöldskemmtun á 17. júní?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 11.6.2013
Stóriðjan borgar verkafólki betur
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.6.2013
365 miðlar í fararbroddi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.6.2013
Laugarvatn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.6.2013
Íslensk fyndni eða erlend
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 17.6.2013
Útúrsnúningar
Fleiri pressupennar